Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2014, Side 34
Helgarblað 26.–28. júlí 201434 Menning
Endurvekur simbabveskar tónlistarhefðir
Hljóðfærið mbira ekki heltekið illum öndum
S
érstaða tónlistarinnar sem ég
spila liggur í hljóðfærunum
sem ég nota. Meðal þeirra er
hljóðfærið mbira,“ segir Hope
Masike, tónlistarmaður frá Harare í
Simbabve. Hún er á tónleikaferða
lagi um Evrópu og heldur tónleika á
Íslandi á laugardag.
Mbira er afrískt hljóðfæri sem er
sérstaklega tengt við land og þjóð
Simbabve. „Ég byrjaði að spila á það
árið 2007 og síðan þá hefur tónlist
mín orðið fyrir miklum áhrifum frá
hefðbundinni tónlist frá Sim babve.
Ég lærði einnig djass þegar ég var í
tónlistarnámi í Simbabve College
of Music þannig að tónlist mín er
sambland af tónlist frá Simbabve og
djassi,“ segir hún í samtali við DV, en
þegar blaðamaður náði á Hope var
hún stödd í Austurríki þar sem hún
var með tónleika. Tónlist hennar
hefur fengið góðar viðtökur víða um
Evrópu.
„Þegar ég byrjaði að spila á mbira
voru mjög fáir að gera það heima í
Simbabve. Fólki var í nöp við hljóð
færið vegna þess að þegar Simbabve
var nýlenda Breta var mbira tengt við
illa anda. Á nýlendutímabilinu hætti
fólk að spila á hljóðfærið og ýmsar
hefðir landsins lögðust í dvala. Jafn
vel mörgum árum eftir nýlendu
tímanum lauk var mörgum enn
illa við hljóðfærið,“ segir Hope en
þessu vildi hún breyta og gera sim
babveskar tónlistarhefðir vinsælar á
ný. „Þegar ég byrjaði að spila á hljóð
færið fórum við í herferð til þess að
kynna hljóðfærið fyrir ungu fólki og
fá fólk til tengja hljóðfærið listrænni
tjáningu. Nú sjö árum seinna eru
margir byrjaðir að spila á hljóðfærið
aftur heima.“
Tónleikar Hope Masike verða í
Stúdentakjallaranum laugardaginn
26. júlí og hefjast þeir kl. 21.00. n
salka@dv.is
Sérstök tónlist Samblanda Hope Masike af djassi og afríska hljóðfærinu mbira hefur
notið vinsælda.
Föðurleit í Frakklandi
n Ari Frank ætlar að finna föður sinn n Gerir heimildarmynd um leitina
A
ri Frank Inguson er 24 ára
en hefur aldrei hitt föður
sinn. Það eina sem hann
veit er að hann heitir Eric
Hobé og bjó einhvern
tíma í frönsku borgunum Brest og
París. Í mörg ár hefur Ari reynt að
hafa uppi á honum í gegnum netið
og með hjálp franskra félaga, en án
árangurs. Þrátt fyrir ítrekaðar mis
heppnaðar tilraunir hyggst hann
ekki gefast upp, heldur þvert á móti;
næsta sumar ætlar hann að hætta
öllu hálfkáki og fljúga til Frakklands
til að finna föður sinn hvað sem
það kostar. Með honum í för verða
heimspekingurinn Fylkir Birgis
son og myndlistarneminn Berg
lind Erna Tryggvadóttir. Þau ætla
að leggja Ara lið og festa ferðalagið
á filmu svo úr verði heimildamynd
um föðurleitina.
Óvæntur ferðafélagi
Ari og félagar hyggjast hefja leitina
í París, þar sem móðir hans og Eric
kynntust. „Mamma var á ferðalagi
um Evrópu og var í Frakklandi í ein
hvern tíma. Þar kynntist hún þess
um manni, en það slitnaði fljót
lega upp úr því sambandi og hún
hélt ferðalaginu áfram,“ segir Ari
en móðir hans var komin alla leið
til Svíþjóðar þegar hún áttaði sig á
því að hún var ekki lengur kona ein
sömul. Hún hafði í kjölfarið sam
band við Eric sem vildi þá ekkert við
málið kannast. „Hans viðbrögð voru
neikvæð. Hann sagði eitthvað á þá
leið að hann tryði ekki að hann ætti
barnið; að þetta yrði sennilega ljós
hært barn með blá augu.“
Nokkrum mánuðum síðar
fæddist svarthærður strákur og
dökkur yfirlitum, sem síðar varð lif
andi eftirmynd föður síns.
Kylfa ræður kasti
Ari segist aðspurður ekki hafa
margar vísbendingar um hvar Eric
sé niðurkominn þessa stundina. En
hvernig ætlar Ari að finna mann í
tæplega 70 milljóna manna landi
sem vill ekki láta finna sig? „Móðir
mín er náttúr lega minn helsti heim
ildarmaður. Hún er með heimilis
fang mannsins, á þeim tíma þegar
þau voru að hittast í París.“
Þessi íbúð verður einmitt fyrsti
viðkomustaður leitarhópsins, en
í henni var Ari getinn. „Þar get ég
hugsanlega fengið skrá yfir fyrrver
andi leigjendur. Það væri náttúrlega
gullið að fá kennitöluna hans þar,
því það myndi auðvelda mér verk
ið töluvert. Ég er líka með nafnið
á þessum vini hans sem hann bjó
með. Síðan er ég með einhverjar
addressur í Brest, þaðan sem pabbi
minn er.“
Að öðru leyti ætlar Ari að láta
skeika að sköpuðu. „Ég hef í raun
ekki hugmynd um hvert þetta
ferðalag leiðir mig. Kannski enda
ég bara í einskis manns landi –
eða á Gazasvæðinu. Kannski tek
ur þetta bara tvær vikur en kannski
enda ég á því að fara í reisu um
heiminn, maður þarf bara að spila
þetta eftir eyranu,“ segir Ari. En
hvað ætlar hann að gera þegar og ef
hann hittir föður sinn loksins? „Ég
veit það ekki. Ég myndi alla vegar
byrja á því að kveikja á myndavél
inni og ná augnablikinu.“
Indí
Þremenningarnir eru þessa stund
ina á fullu að reyna að fjármagna
verkefnið og Ari er vongóður um
að það takist. Hann hvetur áhuga
sama fjárfesta og styrktaraðila til
að hafa samband við sig, en hann
er í símaskránni. „Það væri nátt
úrlega yndislegt að fá fyrir farinu
fram og til baka og uppihaldi úti.
Annars verður þetta ekkert sér
staklega dýrt verkefni, við ætlum
bara að nota ódýra myndbands
upptökuvél og gera þetta allt sjálf;
útkoman verður vonandi krútt leg
indímynd.“ n
Baldur Eiríksson
baldure@dv.is
Hyggjast koma
með sumarið
Beebee and the Bluebirds ætlar
að færa landsmönnum sumar
ið á næstunni. Það hyggst hún
gera með lagi sínu Red Forest
sem fjallar um batnandi veð
ur á suðvestur horni landsins.
Hljómsveitina leiðir söngkonan
og rafmagns gítarleikarann Bryn
hildur Oddsdóttir. Lagið er að
sögn forsvarsmanna hljómsveit
arinnar djassaður sumarslagari
sem fær unga sem aldna til að
dilla sér í takt.
Lagið verður frumflutt í Virk
um morgnum á mánudags
morgun. Í kjölfar þess verða tón
leikar með hljómsveitinni á Húrra
miðvikudaginn 30. júlí og á Akur
eyri um verslunarmannahelgina.
Til liðs við
Morðingjana
Morðingjarnir hafa formlega bætt
við sig fjórða meðlimnum, Baldri
Ragnarssyni úr Skálmöld. Hann
hefur áður spilað sem gestur með
hljómsveitinni við mikið lof tón
leikagesta. „Enda eru tveir gítarar
augljóslega betri en einn, og meiri
bakraddir betri en minni,“ segir í
Facebooktilkynningu.
„Einnig færir þetta sveitinni
aukinn kynþokka, en eins og
margir vita á Baldur það til að
spila afar fáklæddur. Ekki það að
við lítum á hann sem „sex object“
eingöngu, en samt næstum því,“
segir hljómsveitin á Facebooksíð
unni í gamansemi.
Frí tónlist
þarf ekki að
vera ólögleg
Ólafur Arnalds, tónlistarmaður
og BAFTAverðlaunahafi, athugar
reglulega hvernig fólk flettir hon
um upp í leitarvélinni Google
með aðstoð „Google alerts.“ Hann
segir að 90 prósent uppflettinga á
nafni hans snúist um það hvern
ig megi niðurhala mp3útgáfu af
tónlist hans ólöglega. „Ég ætla ekki
að kæra neinn, en fólk … helm
ing tónlistar minnar er hægt að
finna ókeypis og löglega nú þegar,“
sendir hann sem ákall til aðdáenda
sinna á Facebook. Hann hvetur
fólk til að nálgast tónlistin hans frá
útgefendum sem er að finna gjald
frjálst netinu, í stað þess að sækja
hana til þriðja aðila sem hyggjast
hagnast á auglýsingatekjum.
M
Y
N
D
H
Ö
R
Ð
U
R
S
V
EI
N
SS
O
N
Eftirlýstur Þetta er eina myndin sem Ari á
af Eric Hobé, pabba sínum.