Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2014, Blaðsíða 44
Helgarblað 26.–28. júlí 2014
57. tölublað 104. árgangur Leiðbeinandi verð 899 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
9 771021 825033
ISSN 1021-8254
Allir
eru að
fá sér!
Fastar með Tolla
n Sölvi Tryggvason hefur
strengt þess heit að leggja ekk-
ert annað en safa sér til munns
í minnst fimm daga ásamt fóst-
bræðrum sínum, þar á meðal
Tolla Morthens. Á miðvikudag
var hann kominn á þriðja dag í
föstunni og setti stöðufærslu á
Facebook í tilefni þess. „Tilfinn-
ingakerfið hægt og bítandi að
aðlagast þessu, bragðlaukarnir
að núllstillast og líkaminn að
hreinsast. Þegar maður fastar
sér maður svart á
hvítu hvað stór
hluti af át-venj-
um manns er
hrein og klár
fíkni-árátta eða
bara einfaldlega
vani,“ skrifaði
Sölvi.
Salmann skaðar
málstaðinn
n Ritstjórinn fyrrverandi Jónas
Kristjánsson hraunar yfir eitt-
hvað í það minnsta tvisvar á
dag á bloggi sínu. Skotspónn
hans á fimmtudag var Salmann
Tamimi, trúarleiðtogi múslima
á Íslandi, og fer Jónas ekki fögr-
um orðum um hann. „Salman
var bundinn fastur í meinta siði
miðausturlanda. Þar vill karlinn
ráða yfir konunni og hafa forræði
barnanna eftir skilnað. Þetta er
gamaldags karlremba, sem hefur
verið aflögð hérlendis. Salman
verður að sætta sig við það. Fé-
lag múslima á að banna slíkri
karlrembu að
tala fyrir hönd
múslima.
Skaðar
málstað
íslenzkra
múslima,“
skrifar Jónas.
Stéttarfélögin
áróðurstæki
Palestínu
n Snorri Óskarsson, kenndur við
Betel, var á sínum tíma rekinn úr
starfi fyrir blogg sitt. Hann er þó
hvergi nærri hættur og á fimmtu-
dag skrifaði hann pistil um áróð-
urstæki Palestínumanna á Íslandi,
stéttarfélögin. „Sömu aðilar tylla
sér upp með stéttarfélögunum og
hrópa gyðinga og styðja Hamas
en ná ekki burðugum kjarasamn-
ingum fyrir sína félagsmenn. Þau
stéttarfélög eru ekki tilbúin að
leggja út í lögfræði-
kostnað hjá fé-
lagsmönnum
þegar að þeim
er sótt; en
Hamas fær
opinberan
stuðning!“-
skrifaði Snorri.
*Ekkert Etanól nivEamEn.com
ÞaÐ BYRJaR
HJÁ ÞÉR
Prófaðu nýju nivEa mEn Sensitive næringuna eftir rakstur.
Án alkóhóls og berst gegn sviða, kláða og roða.
ÞAÐ ER TIL BETRI LEIÐ
TIL AÐ RÓA HÚÐINA
Vínveitingaleyfi á hverja 100
Bakaríið á Siglufirði 13. staðurinn sem fær leyfi
N
ýlega sótti bakarí á Siglufirði
um vínveitingaleyfi og
var sú umsókn samþykkt
athugasemdalaust á fundi
bæjarráðs. Þetta væri þó ekki frá-
sögu færandi nema fyrir þá stað-
reynd að með þessari leyfisveitingu
eru þeir staðir á Siglufirði sem hafa
vínveitingaleyfi orðnir 13, sem
verður að teljast gott miðað við að
íbúar Siglufjarðar eru um 1.300
talsins.
Sigurður Valur Ásbjarnarson,
bæjarstjóri Fjallabyggðar, var frekar
hissa þegar blaðamaður bar töluna
undir hann. „Mér finnst eiginlega
spurningin vera, getur þetta geng-
ið?“ sagði Sigurður en bætti við að
á síðustu tveimur árum hefði bæj-
arlífið breyst mikið og nefnir hann
aukinn straum ferðamanna í bæinn
sem eina skýringu á þessum aukna
fjölda veitingastaða sem vilja bjóða
upp á vínveitingar.
„Og bara svo þú hafir ein-
hverjar tölur, þá komu hingað um
4.000 manns árið 2010 í Síldar-
minjasafnið en í dag er sú tala að
nálgast 15.000,“ segir Sigurður og
bætir við að Héðinsfjarðargöng hafi
aukið umferð í bæinn umtalsvert.
Fjölgun ferðamanna hefur
verið hröð og mikil undanfarin ár
en ferðamenn sem fóru í gegnum
Leifsstöð í júní síðastliðnum voru
110.000. Það er fjölgun upp á 20.000
manns frá sama tíma í fyrra. Frá
janúar til júní fóru 400.000 ferða-
menn í gegnum Leifsstöð en allt
árið í fyrra voru þeir 780.000. Júlí og
ágúst eru iðulega þeir mánuðir þar
sem ferðalög eru í hámarki og því
er nánast öruggt að heildarfjölgun
milli ára verði töluverð. n
jonsteinar@dv.is
Frá Siglufirði Aukinn straumur ferða-
manna hefur gjörbreytt bænum að sögn
bæjarstjóra Fjallabyggðar.
MYND KRISTINNM@BIRTINGUR.IS