Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2013, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2013, Blaðsíða 3
Fréttir 3Miðvikudagur 21. ágúst 2013 „Sumar ferðir eru verri en aðrar ferðir“ Þ að voru bara iðnaðarmenn alls staðar,“ segir Þórarinn Hávarðsson sem fór ásamt eiginkonu sinni í langþráð frí til Spánar fyrr í sumar með ferðaskrifstofunni Sumarferð­ um. Dvöldu þau á Hótel Melia í Alicante í tíu daga og kostaði ferðin þau um 350 þúsund krónur. Verið var að taka hótelið í gegn og því iðnaðarmenn að störfum víða á svæðinu, með tilheyrandi há­ vaða og raski. „Maður er að borga fyrir að fá að slappa af, en þetta var ekki afslöppun fyrir fimm aura.“ Þrátt fyrir þessu miklu óþægindi í ferðinni sjálfri er Þórarinn óánægð­ astur með viðbrögð ferðaskrifstof­ unnar við ábendingu hans. Engin viðbrögð „Það sem fór mest í taugarnar á mér voru viðbrögð ferðaskrifstofunnar. Við byrjuðum á að senda þeim tölvupóst og hugmyndin var að benda þeim á þetta væri ekki nógu gott. Við vorum ekki að fara fram á neinar skaðabætur eða neitt slíkt. En viðbrögðin voru engin.“ Þórarinn hringdi líka í Sumar­ ferðir og fékk þau svör að málið yrði skoðað og að haft yrði samband við hann fljótlega. Það gerðist hins vegar ekki. Að lokum var Þórarni bent á að senda kvörtunina á ákveðið net­ fang. Hann segist ekki hafa upplifað mikla þjónustulund af hálfu starfs­ mannsins sem hann ræddi við. Fannst hann bæði kuldalegur og óliðlegur. „Mér var sagt að það væri ein kona sem sæi um þetta á föstu­ dögum. Það er bara verið að tryggja það að maður gefist upp og hætti þessu röfli.“ Loftkælingin fór að leka Þórarinn segir að stöðugt áreiti hafi verið af iðnaðarmönnunum alla tíu dagana sem þau dvöldu á hótelinu, sem er skráð fjögurra stjörnu. „Þarna var verið að berja, bora og henda til plötum. Það var mikið ónæði af þessu. Það voru líka iðnaðarmenn á sólbaðssvæðinu, að bora og henda til drasli. Svo þegar við vorum búin að vera á hótelinu í þrjá daga þá voru teppin rifin af pí­ anóbarnum og öllu rústað. Svo var barnum lokað og skilrúm sett fyrir.“ Eitt kvöldið fór svo að leka úr loft­ kælingunni í herberginu hjá þeim hjónum, sem gerði það að verkum að þau þurftu að fá iðnaðar mann upp á herbergið líka. Þórarinn segir að umhverfið í kringum hótelið hafa einnig verið í mikilli óreiðu og aðkoman því ekki mjög skemmtileg. „Svæðin fyrir framan hótel eru yfirleitt flott, sér­ staklega þegar það er komið upp í fjögurra stjörnu. En þarna var fullt af gámum, fullir af drasli, stéttin var skítug og steypumulningur úti um allt.“ Þá voru þau hjónin einnig mjög ósátt við hve mikið kostaði að leggja bílaleigubílnum í stæði á vegum hótelsins. En átta tímar kostuðu þau 17 evrur, eða rúmar 2.700 krónur ís­ lenskar. Reyndu að gera gott úr ferðinni „Það var hið besta mál að það væri verið að gera við hótelið, því mað­ ur sá á köflum að það þurfti virki­ lega á því að halda,“ segir Þórarinn. Honum finnst hins vegar skrýtið að framkvæmdirnar hafi staðið yfir akkúrat á háannatíma ferða­ mennskunnar. Og að Sumarferðir hafi boðið upp á hótelið í þessu ástandi. Þau hjónin ákváðu hins vegar að reyna að gera það besta úr ferðinni og í stað þess að dvelja mikið á hót­ elinu ferðuðust þau töluvert um. Þau ætluðu ekki að gera neitt veð­ ur út af málinu og höfðu því aldrei samband við ferðaskrifstofuna á meðan þau voru úti. Atvik á flug­ vellinum á leiðinni heim varð þó kornið sem fyllti mælinn og því ákvað Þórarinn að hafa samband við Sumarferðir. Kornið sem fyllti mælinn „Þegar við vorum að bóka okkur inn kom í ljós að skráningin okkar var eitthvað skrýtin. Við vorum skráð sem fimm manna fjölskylda með ungbarn. Sem passaði ekki því við vorum bara eldri hjón. Það tók svo langan tíma að laga þetta að það var búið að bóka alla inn og það voru bara tvö sæti eftir á sitthvorum staðnum í vélinni.“ Þórarinn segir það ekki hafa komið til greina í ljósi þess að konan hans er mjög flug­ hrædd. Hann sagði því þvert nei við sætunum sem þeim buðust og þrjú korter tók að fá aðra fjölskyldu til að færa sig svo Þórarinn og kona hans gætu setið saman. „Við röfluðum svo mikið að það var ákveðið að láta einhverja aðra lenda í veseni. Svo kom í ljós að þetta var fimm manna fjölskylda og eitt barnið þurfti að sitja annars staðar. Sem var auðvit­ að út úr kortinu.“ Þórarni þótti það mjög leitt en tekur fram að fjölskyld­ an hafi komið á eftir þeim að inn­ ritunarborðinu. „Maður skammast sín fyrir þetta en ég varð að hugsa um konuna mína númer eitt, tvö og þrjú.“ Sóttist bara eftir svari Þórarinn segir þau hjónin sein­ þreytt til vandræða og að mikið þurfi til að þau fari að gera veður út af einhverjum málum. „Það sem gerir mig svo brjálaðan er þetta gríðarlega virðingarleysi af hálfu starfsmanna ferðaskrifstofunnar. Ef þeir hefðu bara svarað strax og sagt að þeim þætti þetta leitt, þá hefði þetta verið í góðu lagi. Það var það eina sem ég sóttist eftir. Sumar ferð­ ir eru verri en aðrar ferðir. Þetta er mjög svekkjandi. Maður er búin að halda aftur sér vegna hrunsins að fara út þó maður sé mikill að­ dáandi svona ferða. En loksins lét maður verða af þessu og þá fer þetta svona,“ segir Þórarinn svekktur. Átti að hafa samband við fararstjóra DV hafði samband við Steinunni Tryggvadóttur, sölustjóra hjá Sumar ferðum, sem sagðist ekki geta fundið skriflega kvörtun frá Þórarni í kerfinu hjá þeim. Þá kannaðist enginn sölumaður við að hafa svar­ að viðskiptavini á dónalegan hátt. „Það sem þessi maður gerir vit­ laust er að hafa ekki strax sam­ band við fararstjórann okkar. Við erum með fararstjóra í fullu starfi úti til að leysa svona mál. Ef að hótelið hefur staðið í einhverjum framkvæmdum sem hafa valdið viðskiptavinum okkar óþægind­ um þá hefðum við bara fært þá. Það er það sem við leggjum áherslu á í okkar skilmálum, að það þýði ekk­ ert alltaf að kvarta þegar heim er komið. Þú verður að láta vita á með­ an þú ert úti. Steinunn segist vera búin að setja þjónustudeildina inn í málið og að samband verði haft við Þórarin til að ljúka málinu. n n Iðnaðarmenn eyðilögðu langþráð sumarfrí Þórarins og eiginkonu hans„Ef þeir hefðu bara svarað strax og sagt að þeim þætti þetta leitt, þá hefði þetta verið í góðu lagi. Það var það eina sem ég sóttist eftir. „Maður er að borga fyrir að fá að slappa af, en þetta var ekki afslöppun fyrir fimm aura Sólrún Lilja Ragnarsdóttir blaðamaður skrifar solrun@dv.is Hótel Melia Þórarinn gerði þau mis- tök að taka ekki mynd af öllu raskinu við hótelið. Hann lagði meiri áherslu á að ná fallegum myndum úr fríinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.