Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2013, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2013, Blaðsíða 26
Dularfullt dauðsfall Ekki hefur enn verið gefin út nokkur dánarorsök leikkonunnar Lisu Robin Kelly og hennar er ekki að vænta fyrr en eftir nokkra mánuði þrátt fyrir að krufningin hafi farið fram. Frá þessu greinir fréttastöðin CNN. Gera þarf flókna eiturefnagreiningu vegna dauðsfallsins og tekur allt að 10 vikur að greina niðurstöðurnar. Lisa Robin lék eitt aðalhlutverka í þáttunum That 70´s Show. Hún lést í svefni á meðferðarheimili í Kaliforníu, 43 ára að aldri. K vikmyndaheimurinn blómstrar utan Hollywood. DV tók saman áhugaverð- ustu og söluhæstu kvik- myndir utan Hollywood. Indland: Chennai Express Spennu- og ástamynd með gamaní- vafi að hætti Bollywood með einni helstu stjörnu bransans, Shah Rukh Chan, sem rakaði inn 18 milljónum dollara í frumsýningarvikunni. Suður-Kórea: Cold Eyes Þessi áhugaverði spennutryllir hal- aði inn 5 milljónir eftir mánuð í sýn- ingu og náði því inn meiri tekjum en World War Z og The Lone Ranger. Myndin er endurgerð Hong Kong-myndar frá árinu 2007, Eye in the Sky, en það viðist engu máli skipta hvað vinsældirnar varðar. Argentina: Foosball Stærsta teiknimynd sögunnar í Suð- ur-Ameríku hefur náð mikilli hylli og aðsókn í Buenos Aires og fleiri borg- um Argentínu. Í landinu öllu hafa verið seldir miðar fyrir 11 milljónir dollara. Rússland: Legend No. 17 Í Legend No. 17 segir leikstjórinn Nikolay Lebedev sögu íshokkíleik- mannsins Valery Kharmalov. Sagan er átakanleg og spennandi og Rússar hafa streymt í bíó og keypt miða fyrir 30 milljónir dollara síðan myndin var frumsýnd í apríl í vor. Aðeins þremur Hollywood-myndum hefur vegnað betur í landinu á árinu, Iron Man (44 milljónir dollara), Fast and Furious 6 (34 milljónir dollara) og Life of Pi (30 milljónir dollara). Mexíkó: Nosotros Los Nobles Nýstirnið Gary Gaz Alazraki leik- stýrir þessari gamanmynd sem hef- ur snúið öllu á hvolf í heimalandi hans Mexíkó. Hún hefur rakað inn 26 milljónum dollara eftir 15 vikur í sýn- ingu og sló í raun öll fyrri aðsóknar- met þar í landi. Japan: The Wind Rises Hayao Miyazaki hefur gert há- dramatíska teiknimynd sem byggð er á lífi mannsins sem hannaði hinar frægu Zero-stríðsflugvélar sem not- aðar voru í seinni heimsstyrjöldinni. Leikstjórinn hefur legið undir ámæli frá þjóðernissinnum í Japan vegna myndarinnar en aðrir landsmenn taka henni fagnandi. Myndin hal- aði inn 9,6 milljónir dollara á tveim- ur dögum og felldi teiknimynd frá Hollywood í allt öðrum flokki af stalli sínum, Monsters University. Eft- ir tvær vikur í sýningu eru tekjurn- ar himinháar, 58 milljónir dollara og aðsóknin er enn mikil. Kína: Tiny Times Sú allra söluhæsta um þessar mund- ir utan Hollywood er myndin Tiny Times í leikstjórn Guo Jingming. Þroskasaga fjögurra ungra stúlkna sem hefur komið Kínverjum ræki- lega á óvart. Kínverjar ættu að veðja oftar á konur því í kassanum eru 79 milljónir dollara og myndin hefur verið í sýningu í aðeins um 8 vikur. 26 Fólk 21. ágúst 2013 Miðvikudagur „Farið og takið myndir í Egyptalandi“ B reski leikarinn Benedict Cumberbatch var með skýr skilaboð til ljósmyndara sem sátu fyrir honum fyrir utan tökustað Sherlock-sjón- varpsþátta BBC. „Farið og takið myndir í Egyptalandi og sýnið heiminum eitthvað sem er mikilvægt,“ stóð á blaði sem hann hélt fyrir andliti sér þegar hann steig út úr hjólhýs- inu þar sem hann hafði aðstöðu. Leikarinn Benedict Cumber- batch er hvað þekktastur fyrir að leika einkaspæjarann Sherlock Holmes. Hann er rísandi stjarna í heimalandi sínu og vakti strax mikla athygli í hlutverki Steph- en Hawking í sjónvarpsmynd BBC árið 2004. Ferill hans hefur verið blómlegur síðan. Hann lék í kvikmyndinni Atonement 2007 og Tinker Tailor Soldier Spy árið 2011. Síðast vakti hann athygli í hlutverki Khan Noonien Singh í myndinni Star Trek: Into Dark- ness sem frumsýnd var síðasta vor. Næst mega aðdáendur eiga von á honum í hlutverki Julians Assange í myndinni The Fifth Estate. n Söluhæstu myndir utan Hollywood n Tiny Times frá Kína söluhæst n Mikil gróska í kvikmyndagerð n Benedict sendi ljósmyndurum tóninn Skýr skilaboð Benedict er greinilega illa við dægurþrasið og vill að kastljósi fjölmiðla verði beint að þarfari málefnum. Chennai Express Bollywood-hittari eins og þeir gerast bestir. Cold Eyes Endurgerð Hong Kong-tryll- isins Eye in the Sky hefur vakið lukku. Foosball Stærsta teiknimynd S-Ameríku er vinsæl í Argentínu. Legend No. 17 Rússar hrífast af mynd um íshokkístjörnuna Valery Kharmalov. Nosotros Los Nobles Það er vert að fylgjast með leikstjóranum Gary Gaz frá Mexíkó. The Wind Rises Hayao Miyazaki gerði mynd byggða á lífi manns sem hannað Zero-stríðsflugvélar. Myndin er umdeild en vinsæl. Tiny Times Þroskasaga fjögurra kvenna hefur slegið rækilega í gegn í Kína. Frægir heilsugúrúar 1 Jane Fonda Margir Íslendingar lágu á stofugólfinu í skrautlegum og þröngum leikfimifatnaði og glenntu út fætur í undarlegustu stellingum eftir leiðbeiningum Jane Fonda. Sú hin sama hafði mikil áhrif á líkamsræktarbransann í heiminum og skipar því efsta sæti listans. 2 David Lynch David hefur ferðast heimshornanna á milli og þar á meðal til Íslands og leiðbeint fólki í að bæta líf sitt og annarra með hugleiðslu. David trúir því að lítill hópur fólks sem stundar hugleiðslu geti gert heiminn að betri stað. 3 Suzanne Somers Sjónvarps-leikkonan úr Three ś Company er einnig höfundur fjögurra matreiðslubóka og um- deildur höfundur bóka um krabbamein og öldrun. Mest þekkt er hún fyrir að mæla með hinu skondna líkams- ræktartæki Thighmaster. 4 Gwyneth Paltrow Leikkonan hávaxna sló í gegn með matreiðslu- bók sinni, My Fathers Daughter, og síðan þá hefur hún verið óþreytandi í hlutverki heilsugúrús og miðlar boðskapnum á vefsíðu sinni, GOOP, og í nýrri bók sinni, It‘s All Good. 5 Miranda Kerr Ofurfyrirsætan Miranda Kerr stýrir nú nýjum þáttum á Net-A-Porter þar sem hún deilir með að- dáendum heilsuráðum og gefur ráð um næringu. Hún lofar mátt chia- fræja, maca-dufts og gefur uppskriftir að uppáhaldsnæringar- drykkjum sínum. topp 5

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.