Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2013, Side 16
16 Neytendur 21. ágúst 2013 Miðvikudagur
Færri freistingar á netinu
n Auðveldari verðsamanburður
F
lestir grunnskólanna eru búnir
að senda út innkaupalista yfir
það sem nemendur skólanna
þurfa fyrir veturinn.
Það geta verð drjúg peningaút
lát. Samkvæmt lauslegri athugun
kostar það 17.000–20.000 þúsund að
kaupa það nauðsynlegasta fyrir barn
sem er að fara í fimmta bekk. Þá er
einungis verið að miða við kaup á
ódýrustu stílabókum og ritföngum,
reiknivélum og heyrnartólum sem
sumir skólar vilja að börnin eigi til að
nota í tölvukennslu.
Það er hins vegar dálítið erfitt
að bera saman verð á skólavörum,
verð breytist hratt þessa dagana og
skólavörurnar eru misdýrar, það get
ur til að mynda munað fleiri hund
ruð krónum hvort valinn er ódýrasti
tússlitapakkinn eða sá dýrasti. Það
sama á við um blýanta, strokleður og
svo framvegis.
Til að spara er góð leið að fara á
netið og kaupa inn, það er auðvelt
að bera saman verð í rólegheitunum
á netinu og ef keypt er gegnum netið
er minni hætta á að eitthvað sé keypt
sem er ekki bráðnauðsynlegt. Með
öðrum orðum freistingarnar eru færri
fyrir framan tölvuskjáinn en þegar
farið er í búðina.
Skólatöskur eru misdýrar eins
og ritföngin en það er erfitt að finna
góða tösku sem kostar undir 12 þús
und krónum og algengt verð á vinsæl
um töskum er í kringum 20 þúsund
krónur. Það sama á við um penna
veski, þau eru frá nokkur hundruð
krónum upp í fleiri þúsund krónur
allt eftir því hversu vandað veskið er
og hvort að í því er að finna blýanta,
liti og penna og svo framvegis. Gott
sparnaðarráð er líka ef barnið er búið
að vera í skóla í einhver ár að fara yfir
það sem er til frá fyrra ári. Oft er hægt
að spara nokkra þúsundkalla með því
að endurnýta hlutina. n
Freistingum fækkar Það
er hægara um vik að stilla
innkaupunum í hóf með því að
versla á netinu því freistingarn-
ar eru færri. Mynd: Sigtryggur Ari
Ódýrara að kaupa
blóm beint frá býli
F
lestar garðyrkjustöðvar selja
í gegnum heildsölur sem
við eigum í flestum tilfell
um sjálfir. Þar af leiðandi för
um við ekki í samkeppni við
sjálfa okkur með því að selja blóm
á heildsöluverði. Fólk getur hins
vegar komið í garðyrkjustöðvar víða
um land og keypt afskorin blóm á
milliverði,“ segir Sveinn A. Sæland,
formaður Félags blómabænda og
blómabóndi á Espiflöt í Reykholti í
Biskupstungum.
Milliverð er verð sem er nokkurn
veginn mitt á milli heildsöluverðs
og þess verðs sem blóm eru seld á í
blómabúðum. Sveinn segir að sem
dæmi megi taka að þá rækti hann
mikið af liljum og sá sem ætti leið
um gæti komið við hjá honum og
fengið stykkið af litlum liljum á 500
til 600 krónur. Hann segir að stórar
liljur sem til að mynda eru gjarnan
notaðar í jarðarfararskreytingar
kosti 700 til 800 krónur stykkið beint
frá blómabúinu. Verðið ráðist af
gæðum blómanna.
Ferskari blóm
Í Espigerði er framleitt mikið af
blönduðum blómvöndum sem
seldir eru í stórmarkaði og Sveinn
segir heildsöluverð á litlum blóm
vendi sé á bilinu 800 til 900 krónur.
Stórverslanir leggi hins vegar mjög
lítið á vendina. Virðisaukaskattur
inn bætist við og örlítil álagning
en í flestum tilvikum noti búðirnar
blómin til að laða að viðskiptavini
og leitist því við að halda verðinu í
lágmarki.
„Blóm sem eru seld beint frá býli
eru að minnsta kosti einum degi
yngri en þau sem seld eru í blóma
búðum,“ segir Sveinn og bætir við
að blómabændur leggi mikið upp úr
því að koma vörunni sem ferskastri
á markað.
Sá sem kaupir beint af blóma
bóndanum veit nákvæmlega hvað
afskornu blómin sem hann kaupir
eru gömul þegar þau fara í vatn en
ekki er alltaf hægt að fá upplýsingar
um það í blómabúðum hversu göm
ul blómin eru sem keypt eru.
Flestum þykir gaman að hafa fal
leg afskorin blóm heima hjá sér og
vilja halda lífinu í þeim eins lengi og
kostur er. Til að lengja líftímann er
vert að hafa nokkur ráð í huga.
Leggið blautt við stilkana
Best er að sem stystur tími líði frá því
að blóm eru keypt og þangað til þau
komast í vatn. Ef blómin komast ekki
beint í vatn þarf að biðja þann sem
selur blómin að setja blautt við stilk
ana, bleyta pappír eða baðmull og
vefja utan um stilkana. Þegar heim
er komið þarf að skáskera stilkana
með beittum hníf, ef stilkarnir eru
sverir má skera upp í endana á þeim
svo blómin eigi auðveldra með að
taka upp vatn. Það á að setja blómin
í ylvolgt vatn með blómanæringu og
hreinsa neðstu blöðin af blóminu,
eða blöðin sem lenda ofan í vatninu,
þau geta rotnað. Það er nauðsyn
legt að nota blómanæringu því hún
inniheldur sótthreinsandi efni auk
næringar og blómin standa lengur.
Ílát sem notuð eru fyrir afskorin
blóm verða að vera tandurhrein.
Best er að þvo blómavasa að inn
an með heitu sápuvatni, og við og
við getur verið gott að hreinsa ílátin
með klórvatni.
Að lokum hafið í huga að afskorin
blóm endast best við lágt hitastig,
forðist því að hafa þau nálægt mið
stöðvarofnum eða láta sól skína
beint á þau. n
n Litlar liljur á 500 krónur n Stórverslanir leggja lítið á blómvendi
Jóhanna Margrét Einarsdóttir
blaðamaður skrifar johanna@dv.is
„Blóm sem
eru seld
beint frá býli eru
að minnsta kosti
einum degi yngri
en þau sem seld
eru í blómabúðum
Beint frá býli „Fólk getur komið
í garðyrkjustöðvar víða um land og
keypt afskorin blóm á milliverði,
sem er hagstæðara en kaupa í
verslunum,“ segir Sveinn A. Sæland,
formaður Félags blómabænda og
blómabóndi á Espiflöt í Reykholti í
Biskupstungum.
Standa lengi Ef vel er hugsað um liljur geta
þær staðið í upp undir tvær vikur.
Algengt verð 250,8 kr. 247,8 kr.
Algengt verð 250,5 kr. 247,5 kr.
Höfuðborgarsv. 254,4 kr. 247,4 kr.
Algengt verð 250,8 kr. 247,8 kr.
Algengt verð 252,9 kr. 247,9 kr.
Melabraut 250,5 kr. 247,5 kr.
Eldsneytisverð 20. ágúst
BenSín díSiLoLíA
Bóngóður
afgreiðslu-
maður
n Lofið fær bensínafgreiðslu
maðurinn á Stöðinni í Öskjuhlíð
fyrir aðstoð við konu í vandræð
um. Konan þurfti að láta mæla
loft í dekkjum hjá sér en loft
dælan virkaði ekki sem skyldi.
Hún leitaði ásjár hjá bensín
afgreiðslumanninum
sem brást við af mikilli
ljúfmennsku og jafn
aði með bros á vör
loftið í öllum
hjólbörðum á
bifreið kon
unnar. Á með
an skrapp kon
an og fékk sér
kaffi.
Þú ert næstur
í röðinni
n „Aðfaranótt laugardags sá ég
það að Mastercardkreditkortið
mitt vantaði í veskið. Ég reyndi
því að hringja í Neyðarþjónustu
Borgunar, sem er auglýst að sé
opin allan sólarhringinn, til að
loka kortinu.
Einum og hálfum klukku
tíma seinna og 2.500 krónum af
innistæðu af inneigninni minni
heyrði ég bara það sama og ég
hafði heyrt þegar ég fyrst hr
ingdi: „Þú ert næstur í röðinni“.
Inneignin mín kláraðist og því
gat ég ekki lokað kortinu. Þrátt
fyrir að hafa fengið símtal daginn
eftir að kortið mitt væri fundið,
hversu miklum pening hefði ver
ið hægt að eyða af kreditkortinu
á þessum tíma?“ spyr óánægður
viðskiptavinur.
Haft var samband við Borg
un vegna máls
ins. Að þeirra sögn
var lengsta bið
eftir afgreiðslu
neyðarþjónustu
Borgunar að
faranótt laugar
dags 1 mínúta og
35 sekúndur. Ekki sé vit
að til að bilun hafi orði í
kerfinu.
Lof og last
Sendið lof eða last á neytendur@dv.is