Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2013, Page 23
Menning 23Miðvikudagur 21. ágúst 2013
Náttúruleg list
n Fjörusandur, steinar og skeljar
S
ýningin Firðir er eftir Rögnu
Róbertsdóttur og Hörpu Árna
dóttur. Þær sýna verk sem
verða til úr náttúrulegu hrá
efni á ólíkum stöðum. Önnur sýn
ingin verður opnuð í Skagafirði um
helgina og er sjálfstætt framhald sýn
ingar sem þær héldu í Arnarfirði í
fyrra. Listakonurnar hafa undanfar
ið dvalið í Skagafirði við listsköpun
sem byggist á hinni sérstöku með
höndlun á náttúruefnum sem þær
hafa tileinkað sér. Þær hafa gert til
raunir á staðnum með fjörusand,
skeljar, steina og gróður. Afrakstur
inn verður til sýnis í listamiðstöðinni
Bæ á Höfðaströnd sem er í námunda
við Hofsós. Sýningaropnun sunnu
daginn 25. ágúst, kl. 16.00 á Bæ á
Höfðaströnd. n
Íslenskur leikritavetur
n Sex ný íslensk leikrit verða frumsýnd í Borgarleikhúsinu og Þjóðleikhúsinu í vetur
Leikstjóri Hamlet er Jón Páll Eyj
ólfsson og hefur hann sinn nán
asta samstarfsmann og dramatúrg
Jón Atla Jónasson sér við hlið. Það
verður spennandi að sjá Ólaf Darra
feta í fótspor ekki ómerkari leikara
en Lárusar Pálssonar, Gunnars Eyj
ólfssonar og Hilmis Snæs í hlut
verki ákvörðunarfælna Danaprins
ins.
Það er svo vel til þess fundið hjá
Borgarleikhúsinu að setja upp eins
konar barnaútgáfu af Hamlet á litla
sviðinu sem Bergur Þór Ingólfsson
leikstýrir. Í leikritinu, sem heitir
Hamlet litli, er sjónarhóli hins litla
Hamlet beint að áhorfendum og
fjallað um föðurmissi og óttann
í öðru samhengi en aðdáendur
verksins þekkja.
Leikhús í útrás
Borgarleikhúsið er einnig í útrás í
ár og hefur tekið Gamla bíó í mið
bænum á leigu. Þar verður leikritið
Hús Bernhörðu Alba eftir Federico
García Lorca sett upp með Þröst
Leó í aðalhlutverki. Kristín Jóhann
esdóttir leikstýrir. Ástæðan fyrir
þessum flutningum mun vera góð
aðsókn á Mýs og menn og Mary
Poppins og það hlýtur að vera
gleðiefni fyrir leikhúsáhugafólk að
Gamla bíó fyllist á ný af fólki en
reksturinn þar hefur verið upp að
ofan síðan óperan flutti í Hörpu.
Að sama skapi hlýtur það að
vera pínu svekkjandi fyrir starfsfólk
Þjóðleikhússins að sjá Borgarleik
húsfánann blakta við hún hinum
megin við götuna en auðvitað hefði
það verið tilvalið fyrir Þjóðleikhús
ið að færa hluta sinnar starfsemi í
Gamla bíó.
Besti bær í heimi
Mig langar sérstaklega að minnast
á leikritið Bláskjá eftir Tyrfing Tyrf
ingsson sem frumsýnt verður í
byrjun febrúar í Borgarleikhúsinu.
Tyrfingur er hússkáldið hjá Borgar
leikhúsinu á þessu ári en hann út
skrifaðist fyrir um tveimur árum
úr náminu Fræði og framkvæmd í
Listaháskóla Íslands og hefur aldeil
is látið til sín taka í íslenska leikhús
heiminum síðan. Leikrit hans var
hluti af verkinu Núna sem sýnt var
í Borgarleikhúsinu á síðasta leikári
og útskriftarverkefni hans Grande
var tilnefnt til Grímuverðlauna.
Tyrfingur þykir eitt mesta efni
sem íslenskt leikhús býr yfir um
þessar mundir og það er virðingar
vert af Borgarleikhúsinu að gefa
Tyrfingi tækifæri til að þroska eigin
hæfileika og sinna sinni list af krafti
þetta árið. Leikrit Tyrfings heitir
Bláskjár og er víst fyrsta leikrit í
heimi sem gerist í Kópavogi.
Hér var aðeins farið yfir brot
af því sem leikhúsin bjóða upp
á í vetur. Dagskrá leikhúsanna
er aðgengileg öllum á heimasíð
um leikhúsanna. Þjóðleikhúsið
sendi bækling inn á hvert heimili
með Fréttablaðinu á þriðjudaginn
og dagskrárbæklingur Borgar
leikhússins kemur út á morgun,
fimmtudag. n
Auður Ava Fylgir eftir velgengni Svarts
hunds prestsins með leikritinu Undarlegt
eðli hjónabandsins.
Tyrfingur Tyrfingsson leikskáld Er
leikskáld Borgarleikhússins í ár - höfundur
verksins Bláskjár sem gerist í Kópavoginum.
Íslendingar í Metropolitan
Ó
perusöngkonan Dísella Lár
usdóttir er ekki fyrsti Ís
lendingurinn sem er fastráð
inn við Metropolitanóperuna
í New York. María Markan óperu
söngkona var fastráðin við húsið á ár
unum 1941–1942. Fjórir Íslendingar
hafa sungið á fjölum Metropolitan–
óperunnar.
Dísella var í viðtali í Vikunni
þar sem hún greindi frá því að hún
hefði verið fastráðin við Metropolit
anóperuhúsið. „Ég er ekki fyrsti Ís
lendingurinn til að syngja hjá óp
erunni. María Markan var fyrst, svo
hafa Kristján Jóhannsson og Krist
inn Sigmundsson sungið þarna líka.
Ég er samt fyrsta íslenska söngkon
an til að syngja í þessu óperuhúsi því
María Markan söng í gamla óperu
húsinu,“ sagði Dísella í viðtalinu.
Í Vikunni kom fram að Dísella hafi
verið fyrsti fastráðni Íslendingurinn
við Metropolitanóperuhúsið. DV
birti frétt byggða á umfjöllun Vik
unnar. Einhverjir bentu hins vegar
á það á samfélagsmiðlum að þetta
væri ekki rétt. María Markan hefði
verið fastráðin við húsið. DV leitaði
til Sigríðar Ellu Magnúsdóttur, sem
er ein af ástsælustu söngkonum Ís
lands og óperusérfræðingur, til að
komast að hinu sanna.
„Það kemur fram í ævisögu Maríu
Markan að hún hafi verið fastráðin
við Metropolitanóperuna og starfað
þar á árunum 1941–1942,“ segir Sig
ríður. „Hún var valin úr hópi mörg
hundruð söngvara. Var ein þriggja
sem fengu samning við húsið. Síð
an þá hafa aðrir Íslendingar sungið
í óperunni – Kristinn Sigmundsson
og Kristján Jóhannsson voru ráðnir
í sérstök hlutverk. En María var fast
ráðin og söng stórar rullur á þeim
tíma sem hún var við húsið.“
Ferill Maríu endaði hins vegar
snögglega eftir að hún eignað
ist barn árið 1942 og hún söng ekki
framar í Metropolitanóperunni. Nú
eigum við Íslendingar aðra óperu
stjörnu sem vonandi á eftir að gera
garðinn frægan í Bandaríkjun
um. „Íslendingar geti verið stoltir af
Dísellu,“ segir Sigríður. „Þetta er frá
bær árangur.“ n
simonb@dv.is
n María Markan fyrst fastráðin í Metropolitan-óperunni
Dísella Lárusdóttir
óperusöngkona
Syngur við Metropolitan-
óperuna í New York.
María Markan
Var fyrst Íslendinga
fastráðin við Metro-
politan-óperuhúsið.