Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2013, Blaðsíða 2
2 Fréttir 28. ágúst 2013 Miðvikudagur
Of næmis lyf
notað í dóp
Embætti landlæknis hefur fengið
vísbendingar um að á Íslandi sé
verið að nota ofnæmislyf til fram
leiðslu á metamfetamíni. Lyfið
sem um ræðir heitir Clarinase og
er aðallega gefið sem forðatöflur
til að draga úr einkennum tengd
um árstíðabundnu ofnæmiskvefi
(frjókornaofnæmi), svo sem
hnerra, rennsli eða kláða í nefi og
augum ásamt nefstíflu.
Þetta kemur fram í tilkynn
ingu á vef embættisins, en þar
kemur einnig fram að Clarinase
innihaldi m.a. virka efnið pseudo
efedrín. „Þegar ávísanir lyfsins
er skoðaðar kemur í ljós að fjöldi
notenda hefur ekki aukist undan
farin ár en eftirtektarvert er að
nokkrir einstaklingar hafa feng
ið ávísað talsvert miklu af lyfinu,
sem vekur upp grunsemdir um
að verið sé að misnota það á ein
hvern hátt,“ segir landlæknir.
n Gunnar Bragi á skjön við Sigmund Davíð n Óvissa um Evrópumálin
É
g mundi ekki segja að hlegið
væri að okkur, en fólk er dá
lítið undrandi,“ segir einn af
samningamönnum Íslands um
stöðvun aðildarviðræðna við
Evrópusambandið í samtali við DV.
„Fólk skilur ekki alveg hvers vegna
stjórnvöld taka þá ákvörðun að hætta
í miðju kafi áður en samningavið
ræðunum lýkur. Við hefðum varla
þurft meira en ár í viðbót til að ljúka
þeim.“
Ákvörðun ríkisstjórnarinnar um
að stöðva aðildarviðræðurnar ætti
ekki að koma neinum á óvart, enda
er kveðið á um það í stefnuskrá bæði
Framsóknarflokksins og Sjálfstæðis
flokksins að ekki skuli halda við
ræðunum áfram nema að undan
genginni þjóðaratkvæðagreiðslu.
Það sama stendur í stjórnarsátt
mála nýrrar stjórnar. Talsverð um
ræða hefur skapast um málið eftir að
Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkis
ráðherra Íslands, lýsti því yfir í sam
tali við fréttastofu RÚV á dögunum
að hann sæi ekki endilega fyrir sér að
málið yrði afgreitt í þjóðaratkvæða
greiðslu. Auk þess hefði hann ekki
hug á að beita sér fyrir slíku. Sigrún
Magnúsdóttir, þingflokksformaður
Framsóknarflokksins, er á sama máli
og hann. „Mér finnst enginn him
inn og jörð vera að farast þótt við
kjósum ekki einn tveir og þrír,“ segir
hún í samtali við DV. „Við förum eft
ir stjórnarsáttmálanum. Fyrst þarf að
leggja þetta fyrir Alþingi og svo taka
ákvörðun. Svo sjá bara fréttamenn og
landsmenn hver niðurstaðan verður.“
DV ræddi við þingmenn flokksins
og samningamenn Íslands um mál
ið, en eins og fram kom í síðustu viku
hefur Gunnar Bragi ákveðið að leysa
samninganefndina upp. Þá hefur
fjölda þýðenda við utanríkismála
ráðuneytið verið sagt upp störfum og
mun þýðendum fækka enn frekar á
næstu misserum.
Beðið eftir skýrslunni
Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar
kemur fram að gerð verði sérstök
skýrsla um stöðu aðildarviðræðna og
þróun mála innan Evrópusambands
ins. Í framhaldi muni Alþingi taka
ákvörðun um málið. Þetta hefur vakið
nokkra furðu í ljósi þess að þegar hef
ur verið útbúin 76 blaðsíðna skýrsla
um aðildarferlið, en hún kom út rétt
fyrir kosningar. Þeir þingmenn Fram
sóknarflokksins sem DV ræddi við
eru þó á einu máli um að bíða skuli
annarrar skýrslu.
„Við bíðum bara. Þetta er ekkert
flókið í mínum huga. Aðildarvið
ræðunum er hætt og það er tilgangs
laust að vera með samninganefnd ef
það eru ekki aðildarviðræður,“ segir
Haraldur Benediktsson sem áður
starfaði sem formaður Bændasam
taka Íslands og barðist af hörku gegn
því að Ísland gengi í Evrópusam
bandið. Silja Dögg Gunnarsdóttir
tekur í sama streng. „Ég er bara sam
mála þessu ferli,“ segir hún og bætir
því við að hún telji Gunnar Braga vera
að vinna í fullkomnu samræmi við
stjórnarsáttmálann.
Ekki forgangsmál að kjósa
Þingmaðurinn Willum Þór Þórs
son telur augljóst að boðað verði til
þjóðaratkvæðagreiðslu um málið.
„Það sem mér finnst skýrt í stjórn
arsáttmálanum er að þjóðin fái að
kjósa um þetta,“ segir hann og virðist
Páll Jóhann Pálsson vera hjartanlega
sammála honum. „Einhvern tímann
þarf að kjósa um þetta, en mér finnst
það nú ekki vera neitt forgangsmál,“
segir Páll og bætir því við að hann
telji ýmislegt annað mun meira að
kallandi.
Nokkur óvissa ríkir um fyrirætlan
ir stjórnvalda í Evrópumálum og hefur
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf
stæðisflokksins, upplýst að ekki hafi
verið rætt um þjóðaratkvæðagreiðslu
innan ríkisstjórnar. Þá virðast ráðherr
ar hafa mismunandi skoðanir á mál
inu. Þegar stjórnarsáttmáli ríkisstjórn
arinnar var kynntur á Laugarvatni
þann 22. maí var málflutningur Sig
mundar skýr. „Að sjálfsögðu kemur
til þjóðaratkvæðagreiðslu, en menn
hljóta, við ákvörðun um tímasetningu,
að taka aðstæður inn í reikninginn,“
sagði hann. Tæplega þremur mánuð
um síðar hafði utanríkisráðherra lýst
því yfir að Evrópusambandið væri út
af borðinu og engin þjóðaratkvæða
greiðsla yrði haldin að hans frum
kvæði.
900 milljóna viðræður að baki
Einn af meðlimum samninganefndar
Íslands sem DV ræddi við er Þor
Jóhann Páll Jóhannsson
blaðamaður skrifar johannpall@dv.is
Evrópumálin
mæta afgangi
„Það sem mér
finnst skýrt í
stjórnarsáttmálanum er
að þjóðin fái að kjósa um
þetta.
Óþarfi að kjósa
Gunnar Bragi Sveinsson
utanríkisráðherra ætlar
ekki að eiga frumkvæði að
þjóðaratkvæðagreiðslu um
framhald aðildarviðræðna
við Evrópusambandið. Hér
ásamt Stefan Füle, stækk-
unarstjóra ESB.
Ísland fjarlægist Evrópu Aðildarviðræður hafa verið stöðvaðar og utanríkisráðherra
hyggst leysa upp samninganefnd Íslands.
Sammála Gunnari Sigrún Magnúsdóttir,
þingflokksformaður Framsóknarflokksins,
telur Gunnar Braga halda rétt á málum
varðandi aðildarviðræðurnar. Mynd SiGtryGGur Ari
Fara fram
á lögbann
Landvernd, Náttúruverndarsam
tök Íslands, Náttúruverndarsam
tök Suðvesturlands og Hraunavinir
sendu á þriðjudag sýslumanninum í
Reykjavík beiðni um lögbann vegna
vegaframkvæmda í Gálgahrauni. Er
farið fram á að framkvæmdum verði
hætt þegar í stað og lögbann sett á
lagningu Álftanesvegar. Samtök
in vilja meina að framkvæmdin sé
ólögmæt þar sem framkvæmdaleyfi
sem Garðabær gaf út á sínum tíma,
í apríl 2009 sé löngu runnið út. Það
hafi bara gilt í ár frá útgáfudegi. Þá
er einnig bent á að umhverfismat
vegna framkvæmdanna sé orðið
ellefu ára gamalt og að núverandi
framkvæmd sé allt önnur en sú
sem upphaflega lá til grundvallar
matinu.
Að lokum lýsa gerðarbeiðendur
furðu sinni á umfjöllun Vegagerðar
innar á málinu á heimsíðu sinni.
Segja þeir að samkvæmt henni
„virðist Vegagerðin líta svo á að hún
eigi sjálfdæmi í ágreiningsmálum
sem að henni snúa.“
Benedikt gefur
Sigmundi ráð
Benedikt Árnason hefur verið
ráðinn efnahagsráðgjafi Sig
mundar Davíðs Gunnlaugs
sonar forsætisráðherra og ráð
herranefnda ríkisstjórnarinnar.
Benedikt er 47 ára hagfræðing
ur frá Háskóla Íslands og með
meistaragráðu í hagfræði og
MBA frá University of Toronto.
Benedikt starfaði sem hag
fræðingur á Þjóðhagsstofnun
frá 1988–1993, fjármálastjóri
Vita og hafnamálastofnun
ar 1994–1995, skrifstofustjóri
í iðnaðar og viðskiptaráðu
neytinu 1996–2004, aðstoðar
framkvæmdastjóri í Norræna
fjárfestingarbankanum 2005–
2007 og aðstoðarforstjóri og
síðar forstjóri Askar Capital
2008–2010 og aðalhagfræðingur
Samkeppniseftirlitsins frá 2011.