Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2013, Blaðsíða 3
Fréttir 3Miðvikudagur 28. ágúst 2013
Flugvélin var í góðu standi
n Innri rannsókn sýnir að allt var eins og best var á kosið þegar flugvél fórst á Akureyri
Þ
egar TF- ‐MYX fórst var
viðhald vélarinnar sam-
kvæmt áætlun og engin
viðhaldsverk eða tækni-
leg atriði útistandandi,“ segir í til-
kynningu sem Mýflug sendi frá sér
á þriðjudag. Þar kemur fram að
áhöfn flugvélarinnar sem fórst á
Akureyri þann 5. ágúst síðastliðinn
var rétt þjálfuð og hæf til flugsins,
flugvakt hafði verið stutt og nægur
tími gefist til hvíldar fyrir áhöfnina.
Þrír voru um borð í vélinni og létust
tveir þegar hún brotlenti.
Í tilkynningunni sem Mýflug
sendi frá sér kemur fram að veður-
aðstæður hafi verið hagstæðar og
nægt eldsneyti hafði verið tekið til
flugsins. Um er að ræða niðurstöðu
frumrannsóknar flugfélagsins, en
Mýflug tekur þó fram að aðrir séu
hæfari en þeir til þess að fara með
rannsókn flugslyssins, samanber
rannsóknarnefnd flugslysa. Þetta
er engu og síður niðurstaða innri
rannsóknar, en af þessu er ekki
hægt að álykta um orsakir slyssins.
„Réttar niðurstöður fást trúlega
ekki fyrr en Rannsóknarnefnd sam-
gönguslysa skilar endanlegri niður-
stöðu rannsóknar sinnar. Mýflug
aðstoðar Rannsóknarnefndina
eftir því sem hún telur að það geti
orðið að gagni,“ segir Mýflug.
Í síðustu viku undirritaði Mýflug
samning um kaup á King Air B200-
flugvél sem ætlað er að leysa vél-
ina sem fórst, TF-MYX, af hólmi.
Nýja flugvélin er smíðuð árið 1999
og segir Mýflug hana vera búna
bestu tækjum sem völ er á. Eftir
er að ljúka fjármögnun hennar,
koma vélinni til landsins og inn-
rétta hana til sjúkraflugs sem og
skrá hana á flugrekstrarleyfi félags-
ins. Segir Mýflug að það geti tekið
tíma en vonandi komist hún í notk-
un sem fyrst. n
steinn Gunnarsson, varaformaður
hennar. Aðspurður hvernig störf-
um nefndarinnar hafi verið háttað
eftir að ný ríkisstjórn tók við segir
hann að nefndin hafi nær ekk-
ert aðhafst. „Við fengum fljótlega
skilaboð um að gera ætti algjört
hlé á störfum samninganefndar-
innar.“ Hann bendir á að fyrri
ríkis stjórn hafi þegar verið búin
að hægja á viðræðunum svo lítið
hafi í raun breyst. Nýrri ríkisstjórn
fylgdi fyrst og fremst sú breytingin
að tæknileg vinna ýmissa sér-
fræðinga er varðaði aðildarvið-
ræðurnar var stöðvuð.
Kostnaður ríkisins vegna að-
ildarviðræðna við Evrópusam-
bandið nemur hingað til um
það bil 900 milljónum íslenskra
króna. Af 16 samningaköflum
hefur 11 verið lokað, en ekki hef-
ur fengist niðurstaða í þeim köfl-
um sem snúa að sjávarútvegs- og
landbúnaðarmálum. Verði fram-
hald aðildarviðræðna borið und-
ir þjóðina og ákveðið að halda
þeim áfram má ætla að veruleg-
ur aukakostnaður fylgi því hléi
sem nú hefur verið gert. Að sögn
þeirra sem DV ræddi við er líklegt
að semja þyrfti um vissa kafla að
nýju og jafnvel skipa nýja samn-
inganefnd sem þyrfti tíma til að
kynna sér málin.
Árni Páll Árnason, formað-
ur Samfylkingarinnar, sendi
Gunnari Braga opið bréf á dögun-
um og krafði hann svara um stöðu
Íslands gagnvart Evrópusam-
bandinu. Samkvæmt svari sem
Árna Páli barst síðastliðinn föstu-
dag hefur aðildarumsóknin ekki
verið afturkölluð og telst Ísland
enn umsóknarríki. Bendir Árni
Páll á að þetta gangi í berhögg
við nýleg ummæli utanríkisráð-
herra um að Evrópusambandið
líti ekki lengur á Ísland sem ríki í
umsóknarferli. n
Helga Vala gagnrýnir ráðherra
Röng túlkun
lögfræðiálits?
Í lok síðustu viku lagði utanríkisráð-
herra fram lögfræðilega álitsgerð
fyrir utanríkismálanefnd vegna
ákvörðunarinnar um hlé á aðildar-
viðræðunum. Í álitinu er fjallað um
lagalega þýðingu þingsályktana og
er niðurstaða þess sú að þingsálykt-
anir sem ekki byggjast á sérstakri
heimild í lögum eða stjórnarskrá
bindi stjórnvöld ekki umfram það
sem af þingræðisvenjunni leiðir. DV
ræddi við Helgu Völu Helgadóttur,
héraðsdómslögmann, um málið.
Henni finnst mikilvægt að athyglinni
sé beint að þeirri spurningu sem lögð
var fram í álitsgerðinni, en hlutverk
lögfræðinganna var að útskýra
„lagalega þýðingu þingsályktana í
þeim skilningi hvort þær geti haft
bindandi áhrif á stjórnvöld umfram
það sem leiðir af þingræðisvenjunni“.
Þetta kemur fram í upphafi álitsins.
„Mikilvægt er að hafa í huga að
verið er að leita svara við því hvort
ályktanir séu bindandi fyrir stjórnvöld
umfram það sem venja er vegna
þingræðisreglunnar. Af málflutningi
ráðherra undanfarna daga að dæma
virðist hann ekki hafa fullan skilning
á þessu,“ segir Helga Vala og bætir
við: „Ef hann hefur á þessu skilning þá
spyr maður sig hvort hann sé viljandi
að reyna að greina rangt frá því sem
fram kemur í ályktuninni. Þegar
stjórnvöld hafa farið af stað með það
sem ályktunin sagði til um get ég ekki
séð að það gangi upp, í þingræðisríki
þar sem Alþingi er skipað ákveðið
vald, að stjórnvöld ákveði einhliða og
án aðkomu þings að hætta við það
sem hafið er.“
„Þetta er bara Ísland“
S
taðan er sú að það er verið
að flýta göngum á öllu svæð-
inu,“ segir Hallfríður Ósk
Ólafs dóttir, bóndi í Víðidals-
tungu í Víðidal og formaður
félags sauðfjárbænda í Vestur-Húna-
vatnssýslu. Um helgina spáir óveðri
um norðanvert landið, eða eins og
segir á vef Veðurstofu Íslands: „Um
er að ræða óveðurslægð sem spáð er
að dýpki mjög hratt.“ Þar segir einnig
„óvissa í braut lægðarinnar veldur
óvissu“ um það hvaða landshluti
verði verst úti. „Ennþá er full ástæða
fyrir íbúa á N-verðu landinu að vera
við öllu búnir.“
Gert er ráð fyrir norðan- og norð-
vestanátt á laugardag; 15 til 23 metr-
um á sekúndu og talsverðri eða mik-
illi rigningu norðan til á landinu.
Snjór getur fallið í meira en 200 til
300 metra hæð yfir sjó. Spáin minnir
óneitanlega á aftakaveðrið í fyrra sem
leiddi til þess að fé á Norðausturlandi
fennti í kaf. Talið er að um þrjú þús-
und kindur hafi drepist. Veðrið sem
spáð er nú virðist ætla að ganga yfir á
tiltölulega skömmum tíma.
Hallfríður segir að það leggist
aldrei vel í bændur að fá hret á þess-
um tíma ársins. Við því hafi verið
brugðist með því að skipuleggja
göngur fyrr en ætlað var. „Við leggj-
um í hann í Víðidalnum í dag [þriðju-
dag, innsk. blm.],“ segir hún í samtali
við DV. Hún segir að samkvæmt því
sem hún hafi heyrt hafi gengið vel að
manna göngur en að í sumum tilvik-
um eigi að reyna að smala á skemmri
tíma en venjulega. Hún bendir fólki,
sem vill leggja bændum lið núna í vik-
unni, að gefa sig fram við sveitarstjóra
á viðkomandi svæðum. Hún viti til
þess að kallað hafi verið eftir aðstoð í
Austur-Húnavatnssýslu.
Úlfaldi úr mýflugu
Guðbrandur Björnsson er bóndi að
Smáhömrum í Steingrímsfirði, sunn-
an Hólmavíkur. Hann er formaður fé-
lags sauðfjárbænda í Strandasýslu.
Guðbrandur er þeirrar skoðunar að of
mikið hafi verið gert úr veðrinu, í það
minnsta miðað við nýjustu veðurspá.
„Ég lít svo á að verið sé að gera úlfalda
úr mýflugu. Þetta er ekki sambærileg
spá og í fyrra,“ segir hann. Vissulega
verði veðrið vont en að fljótt muni
draga úr óveðrinu – ef fer sem horfir.
„Mér finnst ábyrgðarhluti hjá veður-
fræðingunum að líkja þessu við veðr-
ið í fyrra. Það veður sló í vikutíma, eða
fast að því.“ Hann segir að útlit sé fyrir
hærra hitastig en í fyrra og þar af leið-
andi minni snjó.
Guðbrandur segir að þar í sveit
bíði menn rólegir þar til nær dregur.
Bændur á svæðinu þurfi ekki nema
einn dag eða góðan dagpart til að
sækja megnið af sínu fé. Þeir bændur
sem hann hefur talað við ætla al-
mennt að halda að sér höndum.
„Það er mjög vafasamt að blása þetta
svona út með hliðsjón af því hvernig
þessi spá er. Það dregur úr þessu inn-
an sólarhrings. Ég vona að hún sé rétt
núna.“ Sjálfur á Guðbrandur um 400
ær á fjalli – eða um 1.100 kindur með
öllu.
Ýmislegt getur gerst
Hrafn Guðmundsson, veðurfræðing-
ur á Veðurstofu Íslands, segir að út-
lit sé fyrir að snjólínan núna verði
hærri en í hvellinum í fyrra. Hann
bendir hins vegar á að brugðið geti til
beggja vona. Sá mikli kuldi sem varð í
fyrra hafi ekki birst í spám fyrr en rétt
áður en veðrið skall á. Því geti ýmis-
legt gerst. „Allavega er mjög líklegt að
það verði óveður – en það er spurning
hvernig það lendir,“ segir Hrafn. Hann
segir að veðrið virðist ætla að ganga
hraðar niður en í fyrra, það sé jákvætt.
Útlit sé fyrir að veðrinu sloti norð-
austan til eftir hádegi á laugardag.
Allt að 40 þúsundum á fjalli
Viðbúnaðurinn í Húnavatnssýslum
er meiri en á Ströndum. Jón Kristinn
Sigmarsson, formaður félags sauð-
fjárbænda í Austur-Húnavatnssýslu,
sagði í samtali við DV á þriðjudag að
menn væru upp til hópa að undirbúa
göngur. Svæðið væri það víðfeðm-
asta á landinu og að á fjalli væru um
15 þúsund ær ásamt lömbum. Lík-
lega um 30 til 40 þúsund kindur. Jón
Kristinn sagði að menn gerðu ráð fyrir
því að sleppa einum hluta svæðisins –
þar sem tíminn væri knappur.
Kollegi hennar vestan megin sýslu-
marka, Hallfríður Ósk, segir að bænd-
ur vilji í lengstu lög forðast að lenda í
því sem gerðist á Norðausturlandi í
fyrra. Hún segir þó að bændur trúi því
varla að þetta verði eins slæmt og þá.
Allt kapp verði þó lagt á að ná fénu úr
hættu og engin áhætta verði tekin.
Hún segir að á sumum bæjum
sé slætti ekki lokið, vegna vætutíðar
undanfarið, og að þetta sé þess vegna
óheppilegt. Bændur séu hins vegar
vanir því að laga sig að aðstæðum og
mæta áföllum af ýmsum toga. „Þetta
er ekki draumastaða en þetta er bara
Ísland,“ segir hún, létt í bragði þrátt
fyrir slæma veðurspá. n
n Bændur í Húnavatnssýslum farnir á fjöll n Strandamenn bíða átekta
„Mér finnst
ábyrgðarhluti hjá
veðurfræðingunum að líkja
þessu við veðrið í fyrra.
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Svona er veðurspáin
Veðurstofan spáir því að versta veðrið verði þegar
líður á föstudaginn. Eftir hádegi á föstudag gangi
í norðvestan 18 til 23 metra á sekúndu norðvestan
til, með mikilli rigningu. Norðvestan og vestan
15 til 23 metrar á sekúndu verða á Suðvestur- og
Suðurlandi. Mun hægari vindur verður á austan-
verðu landinu. Hiti verður frá einu stigi upp í tólf,
hlýjast austast. Á laugardag verður áfram norðan-
og norðvestanátt, 15 til 23 metrar á sekúndu fyrir
hádegi en hægari vindur norðaustan til. Eftir hádegi
verður vindurinn á bilinu 13 til 18 metrar á sekúndu
að norðvestan, með rigningu á láglendi, annars
slyddu eða snjókomu. Gert er ráð fyrir næturfrosti
norðan til.
Á sunnudag gengur veðrið alveg niður og snýst í
suðaustan 8 til 13 metra á sekúndu með hlýrra lofti.
Ær með lömb
Víðast um
norðanvert landið
halda bændur og
búalið til fjalla.
Á Ströndum trúa
menn að veðrið
verði ekki eins
slæmt og í fyrra.
Mynd SIgtryggur ArI
Bóndi Hallfríður Ósk í Víðidal segir að
bændur taki enga áhættu og haldi því af
stað í göngur. Mynd HAllfríður ÓSk
tveir létust Slysið varð þann 5. ágúst síðastliðinn. Mýflug hefur nú lokið innri rannsókn á
slysinu. Mynd Völundur JÓnSSon / AkureyrI VIkuBlAð