Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2013, Blaðsíða 27
Fólk 27Miðvikudagur 28. ágúst 2013
„Ég er mjög sátt“
B
úið er að velja keppendur í
keppnina Ungfrú Ísland sem
haldin verður á Broadway
þann 14. september næstkom
andi. Keppnin sem hefur legið í dvala
undanfarin ár var gagnrýnd snemma
í sumar og skráði mikill fjölda kvenna
sig til keppni í mótmælaskyni.
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þing
kona Samfylkingarinnar, var ein þeirra
sem skráðu sig í keppnina, ásamt Guð
rúnu Jónsdóttur, forstöðukonu Stíga
móta, og Hildi Lilliendahl. „Vona að ég
komist í keppnina. Ég þarf að byggja
upp sjálfstraustið eftir kosningaósigur
inn!“ sagði Sigríður um skráningu sína.
Enginn mótmælandi keppir
DV fékk sendan lista yfir þátttakendur í
keppninni og þykir ljóst að engin þeirra
kvenna sem skráðu sig í mótmælaskyni
fékk inngöngu.
Sigríður Ingibjörg þarf því að leita
annarra meðala til að byggja upp sjálfs
traustið.
DV ræddi við þrjár stúlkur um
æfinga ferlið, þær Öddu Maríu Óttars
dóttur, Aldísi Athitayu Gísladóttur og
Huldu Viktorsdóttur. Nánar verður
fjallað um keppnina í helgarblaði DV.
Læra að ganga
Adda María Óttarsdóttir, 19 ára, segir
æfingaferlið hafa farið hægt af stað. Nú
æfi þær hins vegar stíft. Bæði í göngu
og líkamsrækt.
„Við erum byrjaðar á fullu í ræktinni
og á gönguæfingum. Við mætum í lík
amsrækt í World Class í Laugum. Svo
erum við í klukkutímapásu og förum í
spa og gufu. Við erum að læra að ganga
og finna rétta taktinn. Næst á dagskrá
er að fara á Broadway og setja upp sýn
inguna.“
Adda María segist hafa verið boðuð
í viðtal í sumar og hún spurð fjölmargra
spurninga. „Ég var spurð hvort ég reyki,
hver uppáhaldsfegurðardrottningin
mín er, hvað foreldrar mínir gera og
um áhugamál og stefnu í lífinu. Spurn
ingarnar voru heilmargar.“
Hún gefur lítið fyrir þá gagnrýni sem
fram hefur komið. „Við fáum stuðning
í því að vera ekkert að pæla of mikið í
þessu. Auðvitað má svo fólk hafa sínar
skoðanir, ég get lítið sett út á það.“
Aldrei liðið betur
Aldís Athitaya Gísladóttir er 23 ára
og með þeim eldri í keppninni. Hún
starfar sem förðunar og naglafræðing
ur og segir þátttökuna skemmtilega lífs
reynslu. „Þetta er rosalega gaman, ólíkt
öllu sem ég hef gert áður. Æfingarnar
ganga vel. Við æfum bikiní, tísku og
kjólagöngu.“
Hún segir að í raun hafi henni aldrei
liðið betur og þakkar það góðri ráð
gjöf og líkamsrækt. „Ég sjálf get sagt að
mér hefur aldrei liðið jafn vel. Ég fékk
góða næringarráðgjöf sem ég fer eftir,
ég borða oft yfir daginn, hollari mat en
áður og hreyfingin hefur gert mér gott.“
Hún tekur undir með Öddu Maríu
og segist sátt við keppnina. „Ég myndi
aldrei taka þátt í keppni sem þessari
ef ég þyrfti til dæmis að skrifa undir
samning um útlit mitt og framkomu.
Ég hef ekki gert neitt slíkt.
Við erum allar stelpurnar orðnar
nánar og upplifum lítið stress og enga
pressu, við erum allar jafnar, það er
enginn keppnisandi í rauninni,“ segir
Aldís ánægð með keppnina.
Keppt í bikiníi
Hulda Viktorsdóttir, 19 ára nemandi
í Verslunarskólanum, segist halda að
keppnin sé skemmtilegt tækifæri. „Ég
var boðuð í viðtal, einhver sendi inn
ábendingu og ég mætti í hálfgert próf
þar sem ég var spurð spurninga um
keppnina og mig sjálfa. Mér finnst
þetta skemmtilegt,“ segir hún og segir
gagnrýni þá er kom fram í byrjun sum
ars aðeins hafa vakið meiri athygli á
keppninni. „Auðvitað hafa allir rétt
á sínum skoðunum. Fólk má keppa í
hverju sem er. Þetta er ekkert eins og
var í gamla daga, það er verið að skoða
svo margt annað. Þetta snýst ekki bara
um fegurð, heldur líka viðhorfin til lífs
ins og hvað þú ert að gera í lífinu.“
Ákveðið var að sleppa keppni á
bikinífatnaði í Miss World. Þrátt fyr
ir það keppa íslenskar stúlkur enn í
bikinífatnaði. Finnst þeim það ekki
skjóta skökku við. „Nei, okkur stelp
unum finnst þetta vera partur af
keppninni.“ n
n Ekki keppt í bikiníi í Miss World n Þingmaður fær ekki að keppa
n Þórunn færir út kvíarnar
Þ
órunn Högnadóttir ræðst ekki
á garðinn þar sem hann er
lægstur. Home Magazine sem
hefur verið til í netútgáfu í
nokkurn tíma og gengið vel að henn
ar sögn kemur nú einnig út í prent
útgáfu.
Hún hefur fengið til liðs við sig ekki
ómerkari ljósmyndara en Richard
Powers en hann á efni í öllum helstu
tímaritum í Evrópu, eins og Elle
Decoration og RUM.
„Mér finnst alltaf skemmtilegra að
halda á blaðinu og skoða það þannig.
Þá voru líka margir áskrifenda sem
vildu fá að sjá efni tímaritsins á prenti.
Það er gaman að fá viðbrögð fólks. Við
erum komin með marga í áskrift bæði
á prenti og á netútgáfunni og ég er
mjög sátt við það.“
Netútgáfuna er enn hægt að nálg
ast frítt á netinu, homemagazine.is, en
tímaritin verða seld í vel völdum versl
unum, til að mynda Epal og Freebird.
Tímaritið er veglegt og fjallað um
tísku, mat og gæði lífsins. „Við heim
sækjum þrjár glæsikonur, Rachel Zoe,
stílista fræga fólksins í Hollywood,
kíkjum heim til Eddu í Kúltúr og skoð
um fallegt heimili hjá Maggý í Fonts.
Uppskriftirnar eru á sínum stað,
ásamt frábærri umfjöllun um París, en
þar skoðum við líka eitt flottasta hót
el í París, La Maison. Linda Péturs
dóttir sýnir okkur uppáhaldshlutina
sína, svo skoðum við hausttískuna
í nokkrum tískuvöruverslunum og
fáum að vita hvað þarf að eignast fyrir
haustið til að tolla í tískunni, og margt,
margt fleira.“ n iris@dv.is
Fékk þann stóra
í sparifötunum
Ásmundur Helgason bar af
á bökkum Laxár í Aðaldal í
vikunni þegar hann mætti í
sparifötunum til veiða. Það
borgaði sig að vera vel til fara
því Ásmundur fékk stærðarinn
ar lax. Veiðiverslunin Veiðiflug
ur á Langholtsvegi setti mynd
af Ásmundi og tröllinu á Face
booksíðu sína sem hér sést með
fréttinni. Ásmundur er, eins flest
ir vita, tvíburabróðir Gunnars
Helgasonar leikara en þeir veiða
mikið saman. Svo mikið að þeir
hafa gert um það sjónvarpsþátta
röð. Vísir.is greindi frá því fyrr í
sumar þegar Gunnar fékk sinn
fyrsta lax í tæpt ár í Breiðdalsá.
Gunnar sagði ástæðuna þá að
hann hafi enn verið að jafna sig
eftir að hafa veitt 25 punda dreka
einmitt í Aðaldalnum árið áður.
Stórhuga Þórunn leggur
mikinn metnað í það sem
hún tekur sér fyrir hendur.
Mynd: dV Ehf / Sigtryggur Ari
Klífur fjöll og
metorðastiga
Ásdís Ýr Pétursdóttir, sem ný
verið var ráðin sviðsstjóri sam
skiptaviðs Actavis á Íslandi, klífur
ekki eingöngu metorðastigann
heldur einnig hæstu fjöll heims.
Ásdís er kona fjallageitarinnar
Haraldar Ólafssonar pólfara
en saman fóru þau upp á Kili
manjaro, hæsta fjall Afríku, árið
2007 og stunda sportið saman af
miklum áhuga.
Klæðast bikiníi
í Ungfrú Ísland
Kristjana Guðbrandsdóttir
blaðamaður skrifar kristjana@dv.is
Adda María „Spurningarnar voru
heilmargar,“ segir Adda María.
Aldís „Aldrei liðið betur,“ segir Aldís.
hulda „Partur af keppninni,“ segir Hulda
um það að keppendur klæðist bikiníi.
Keppir ekki Sigríður Ingibjörg Inga-
dóttir var ein þeirra kvenna sem skráðu
sig til keppni. Nú er ljóst að engin þeirra
sem skráði sig í mótmælaskyni hefur
fengið inngöngu í keppnina.
hörkuflott Tímaritið er nú
fáanlegt á prenti.