Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2013, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2013, Page 4
4 Fréttir 28. ágúst 2013 Miðvikudagur Kurr fór um salinn n Fundað um málefni ungabarnaleikskólans 101 Á mánudag fór fram fundur á vegum Reykjavíkurborgar með foreldrum barna sem vistuð voru á ungbarnaleik­ skólanum 101. Skólanum var lokað á dögunum eftir að alvarlegar ásakan­ ir komu upp en málið er nú til rann­ sókn hjá lögreglu. Kurr fór um salinn þegar lögfræðingur ungbarnaskólans tilkynnti að skólinn yrði opnaður á ný á fimmtudag. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Reykjavíkur­ borg. Það var Þyrí Steingrímsdóttir, lög­ maður eigenda, sem tilkynnti um opnunina og sagði að búið væri að senda tvo starfsmenn í leyfi og rann­ sókn væri komin vel á veg. Því væri ekkert því til fyrirstöðu að opna aftur. Framkvæmd var óformleg könnun í kjölfarið á meðal foreldra hvort þeir vildu senda barnið sitt aftur í skól­ ann. Eitt foreldri vildi það. Á meðal þeirra fyrirspurna sem komu frá foreldrum var hvort hægt væri að setja upp eftirlitsmynda­ vélar á leikskólum til þess að tryggja öryggi barna. Ragnar Þorsteinsson, fundarstjóri og sviðstjóri skóla­ og frístundasviðs borgarinnar, sagði að persónuvernd kæmi í veg fyrir slíkt. Halldóra Gunnarsdóttir, fram­ kvæmdastjóri barnaverndar Reykja­ víkur, fór yfir málið með foreldrum og þær ásakanir sem bornar hefðu verið á hendur leikskólanum og starfsmönnum hans. Ekki var þó far­ ið ítarlega í efnisatriði málsins þar sem það er til rannsóknar hjá lög­ reglu. Einnig var mikið rætt um þær að­ stæður sem hafa skapast vegna máls­ ins. Skorað var á borgina að hjálpa foreldrum þar sem neyðarástand ríkti vegna þess að foreldrar hefðu enga vistun fyrir börnin. Engin end­ anleg lausn fannst á þeim vanda en farið var vel yfir verklag borgarinnar og hvaða úrræði stæðu foreldrum til boða. n Stefnir ríkinu út af auðlegðarskatti n Kona á níræðisaldri greiddi 5 milljónum meira í skatt en hún hafði í tekjur Í slensk kona á níræðisaldri, sem greiddi 24 milljónir í skatt en var með tekjur upp á 19 milljón­ ir, hefur ákveðið að leita réttar síns með því að stefna íslenska ríkinu út af innheimtu auðlegðar­ skattsins sem er hluti af þeim skatti sem hún greiðir til ríkisins. Þetta seg­ ir lögmaður konunnar, Hróbjartur Jónatansson, aðspurður um mál­ ið. Auðlegðarskatturinn sem konan greiddi nam 13 milljónum af þessum 24 og er hún því eignamikil: Hrein eign hennar nemur um 650 milljón­ um króna miðað við að auðlegðar­ skatturinn er 2 prósent af eignum yfir 150 milljónum hjá einstaklingum. DV birti umfjöllun um auðlegðar­ skatt í mánudagsblaðinu og höfðu nokkrir aðilar samband við blaðið til að benda á tilfelli þar sem auðlegðar­ skatturinn gæti verið óréttlátur. Mál umbjóðanda Hró­ bjarts var eitt þeirra sem nefnt var til sögunnar. Líkt og Bjarni Benediktsson fjár­ málaráðherra hefur boðað verður auð­ legðarskatturinn ekki endurnýjaður í lok þessa árs en hann hefur skilað 27,5 milljörðum króna í ríkiskassann á síðustu fjórum árum. Skatturinn leggst á eignir um­ fram 75 milljónir hjá einstaklingum og sameiginlegar eignir yfir 100 milljónum hjá hjónum. Einhver tilfelli eru því til þar sem að minnsta kosti virðist leika vafi á hversu réttlátur auðlegðar­ skatturinn er en einnig hafa verið nefnd til sögunnar dæmi þar sem fólk er tekjulaust en þarf að ganga á eignir sem það á umfram 75 milljón­ ir til að greiða skattinn. Þurfti að selja eignir Hróbjartur segir að umrædd kona hafi þurft að selja eignir til að eiga fyrir auðlegðarskattinum. „Það var bara með sölu eigna. Ef þú þarft að borga fimm millj­ ónir umfram tekj­ ur þínar þá selur þú bara einhverja eign sem þú átt og afhendir ríkinu andvirðið. Þetta verður eigin lega ekki ljósara en það að hún hafi nánast bara far­ ið með eignina til ríkisins og afhent hana sem greiðslu á skattinum,“ segir Hróbjartur. Látið reyna á meðalhófsregluna Að hans mati þá þarf ríkisvaldið að gæta meðalhófs í skattheimtu og ætl­ ar umbjóðandi hans að láta reyna á regluna um meðalhófið fyrir dómi. „Að mínu mati þá þarf bara að gæta meðalhófs í skattheimtunni. Það má ekki ganga lengra en nauðsynlegt er til að ná ákveðnu, lögmætu mark­ miði. Það markmið að innheimta skatta er lögmætt en spurningin er hversu langt megi ganga til að ná þessu markmiði og hvort gengið hafi verið lengra en góðu hófi gegnir í til­ felli umbjóðanda míns. Þegar skatt­ heimta gengur úr hófi fram þá get­ ur hún að mínu viti verið ólögmæt. Þetta er sjónarmiðið sem við mun­ um láta reyna á fyrir dómi: Að það að taka allar tekjur upp í skatt og meira til er að mínu mati óhóflegt,“ segir Hróbjartur. Vilja álagningu fellda úr gildi og endurgreiðslu Hróbjartur segir að málareksturinn gangi út á það að fá álagninguna á skattinum fellda úr gildi og að um­ bjóðandi hans fái endurgreiðslu á milljónunum 24. „Við ætlum ekki að fara að reyna að svara þeirri spurn­ ingu hversu langt ríkisvaldið megi ganga í skattheimtu almennt. Við ætlum bara að fá úr því skorið hvort það sé hóflegt að taka allar tekjur við­ komandi og meira til. Ef það telst ekki vera hóflegt þá er það stjórnvalda að búa til reglur um það hvað telst vera hóflegt í þessu sambandi,“ segir Hró­ bjartur. Hann segir stefnu í máli kon­ unnar vera í vinnslu og að hún verði tilbúin um eða eftir næstu helgi. Líkt og komið hefur fram í fjöl­ miðlum þá hefur Guðrún Lárusdótt­ ir, eigandi útgerðarinnar Stálskipa, höfðað mál gegn íslenska ríkinu út af greiðslu auðlegðarskattsins. Að minnsta kosti tvö slík mál munu því rata fyrir dóm. n Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is „Þegar skatt- heimta gengur úr hófi fram þá getur hún að mínu viti verið ólögmæt Telur skattheimtuna óhóflega Hró- bjartur Jónatansson telur skattheimtuna í máli umbjóðanda síns hafa verið óhóflega. Annað mál Annar aðili, kona á níræðisaldri, ætlar að stefna íslenska ríkinu út af auðlegðarskattinum. Fyrir var Guðrún Lárusdóttir í Stálskipum búin að því. Mynd ViðskipTAbLAðið 26. ágúst 2013 Ætla að opna í vikunni Ungbarnaleik- skólanum 101 var lokað af eigendum á meðan rannsókn var á frumstigi. Mynd krisTinn MAgnússon börn í reykjavík koma illa út úr lestrarskimun Fleiri læsir í Reykjanesbæ Hlutfallslega færri nemendur í öðrum bekk í Reykjavík geta lesið sér til gagns en í Reykjanesbæ og á Reykjanesi. Þetta leiða niðurstöður árlegrar lestrarskimunar í ljós. Að­ eins 63 prósent barna í öðrum bekk í grunnskólum Reykjavíkur geta lesið sér til gagns. Skimunin náði til 35 skóla í Reykjavík. Hlutfallið þar hefur ekki mælst lægra síðan árið 2005, þegar hlutfall þeirra sem náðu að lágmarki 65 prósenta ár­ angri á prófinu var 60 prósent. Ár­ angurinn í Reykjanesbæ er betri. Þar er hlutfallið 69,4 prósent og á Reykjanesi öllu er hlutfallið 65,7 prósent. Þegar horft er á einstaka hluta Reykjavíkurborgar sést að árangur­ inn er bestur í miðbæ Reykjavíkur, Hlíðum og í Vesturbænum, en þar ná 76 prósent barnanna 65 pró­ senta árangri. Í Árbæ og Grafar­ holti er hlutfallið 67 prósent, í Laugardal og Háaleiti er hlutfallið 60 prósent og í Grafarvogi og Kjalar nesi 56 prósent. Lestrarfærni í Breiðholti er slökust en þar nær helmingur barna tilsettum árangri. Segist ekki hafa greitt auðlegðarskatt Bjarni Benediktsson, fjármála­ ráðherra og formaður Sjálfstæðis­ flokksins, segist aldrei hafa greitt auðlegðarskatt líkt og haldið var fram í DV á mánudaginn. Þar kom fram að Bjarni hefði greitt tæplega tveggja milljóna króna auðlegðar­ skatt af eignum upp á 128 milljón­ ir króna. Á Facebook­síðu sinni á þriðjudaginn sagði Bjarni að þetta væri ekki rétt: „Að gefnu tilefni er rétt að taka fram að ég hef aldrei greitt auðlegðarskatt.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.