Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2013, Page 17
Fréttir 17Miðvikudagur 28. ágúst 2013
Búðu til þitt eigið rasp
n Ekki henda brauðafgöngunum
Þ
að er auðvelt að búa til
brauðrasp og tilvalið að
geyma alla brauðafganga.
Það má nota allar tegund-
ir af brauði í raspið og skiptir þá
engu hvort um ræðir hvítt, heil-
korna-, súrdeigs- eða rúgbrauð
auk þess sem gjarnan má blanda
brauðtegundum saman.
Á síðunni whatscookingamer-
ica.net segir að ekki eigi þó að nota
gamalt og myglað brauð því rasp-
ið muni bragðast þannig. Brauðið
má heldur ekki vera of nýtt því það
þarf að vera þurrt. Ef þú ert með
nýtt brauð er vel hægt að hita það
á vægum hita í ofninum þar til það
þornar. Settu þá nokkrar brauð-
sneiðar á bökunarpappír og inn í
ofn. Ekki stafla þeim því þá þornar
brauðið síður. Bakaðu við 150°C í
10 til 15 mínútur en þegar sá tími er
hálfnaður er gott að snúa sneiðun-
um við svo þær þorni jafnt.
Það er einnig gott ráð að setja
alla brauðenda og aðra afganga
af brauði í plastpoka og geyma
í frystinum þar til þú vilt búa til
raspið. Þegar þú ert kominn með
nægilegt magn af brauði setur
þú það í matvinnsluvélina og ríf-
ur það niður þar til það nær þeim
grófleika sem þú óskar eftir. n
gunnhildur@dv.is
Reiðhjálmar
innkallaðir
UVEX-reiðhjálmar af gerðinni
gerðinni Exxential sem fengist
hafa hjá Líflandi hafa verið inn-
kallaðir. Framleiðandinn UVEX
hefur einnig innkallað tvær aðr-
ar tegundir, Uvision Elegance
og Supersonic Elegance, og hafa
hjálmarnir nú þegar verið teknir
úr sölu.
Frá þessu er greint á heima-
síðu Neytendastofu en þar segir
að ástæða innköllunarinnar hafi
verið sú að þeir uppfylli ekki staðla
um viðnám gegn því að eitthvað
stingist í gegnum þá og/eða um
höggþol. Þá er þeir sem eiga slík-
an hjálm vinsamlega beðnir um að
hætta notkun hans undir eins og
koma með hann aftur í verslun Líf-
lands þar sem þeir fá annaðhvort
að minnsta kosti sambærilegan
hjálm eða endurgreitt að fullu.
Hugum að
haustlaukum
Haustlaukar eru plöntur sem
mynda lauk eða hnýði sem gróð-
ursett er að hausti áður en fer að
frysta. Þumalputtareglan við gróð-
ursetningu lauka sé sú að dýptin
sé sem nemur þrefaldri hæð/þykkt
lauksins. Ef laukurinn er fimm
sentímetrar á hæð ætti að gróður-
setja hann á 15 sentímetra dýpi.
Hann eigi að vera. hulinn með 10
sentímetra moldarlagi.
Á síðu Blómavals er bent á að
gaman sé að setja niður lauka af
ýmsu tegundum svo þeir spretti
upp með litríku blómskrúði næsta
vor. Krókusa, stjörnuliljur og
snæliljur sé hægt setja í litlar þyrp-
ingar í beð eða jafnvel í jaðrana á
grasflötinni.
Stærri lauka eins og túlípana og
páskaliljur sé best að setja saman
í myndarlega hópa með 10 til 50
laukum og hafa á áberandi stöðum
þar sem þeirra verður best notið.
Rasp úr brauðafgöngum
Það má vel nota allar tegund-
ir af brauði í raspið.
Óþarfi að sjóða
fryst ber
Matvælastofnun hefur í samvinnu
við sóttvarnalækni ákveðið að
breyta þeim ráðleggingum sem
áður voru gefnar út varðandi suðu
á frosnum berjum. Hér á landi
hafa ekki greinst sýkingar af völd-
um lifarbólgu A sem rekja má til
þessara matvæla og því ólíklegt að
þau hafi verið til sölu hér á landi.
Á heimasíðu Matvælastofnun-
ar segir að ekki sé þörf á að sjóða
öll frosin ber ef nota eigi þau í rétti
sem ekki séu hitameðhöndlaðir.
Það sé þó enn mælt með suðu
á hindberjum þar sem nóró-
veirusýkingar hafi oft verið raktar
til neyslu á frosnum hindberjum.
Suða hafi hvorki áhrif á bragð né
lit hindberja og því sé vel hægt að
sjóða þau áður en þau eru notuð í
eftirrétti og drykki.
Þ
að má nota ýmis smáforrit
til að lækka farsímakostn-
aðinn, svo sem Skype og
Google Hangouts. Það eru
jafnvel til smáforrit sem
koma alfarið í stað símaþjónustu en
við notkun þeirra þarf þó að greiða
fyrir það gagnamagn sem er notað.
23 prósenta hækkun
Farsímaþjónusta hefur hækkað í
verði samfellt frá því í lok árs 2011
og er nú um það bil 23 prósent-
um dýrari en fyrir tveimur árum.
Þar af nemur hækkunin það sem
af er þessu ári rúmlega 10 prósent-
um. Þetta kemur fram á heima-
síðu ASÍ en verðlagseftirlit hefur
tekið saman verðþróun á síma- og
internetþjónustu síðastliðin tvö ár
úr tölum frá Hagstofu Íslands. Eins
segir að internetþjónusta hafi jafn-
framt hækkað töluvert í verði og sé
nú tæplega 16 prósentum dýrari en
í júlí 2011. Heimilissímaþjónusta
hafi hækkað nokkuð minna en hún
sé engu að síður tæplega 8 prósent-
um dýrari nú en fyrir tveimur árum
eftir nokkra lækkun um mitt þetta
ár.
Smáforrit lækka kostnaðinn
Eins og fyrr segir eru nokkrar leið-
ir til að draga úr þeim kostnaði sem
fylgir símakostnaði en Gunnlaugur
Reynir Sverrisson hjá Simon.is gef-
ur neytendum hér ráð. Hann seg-
ir að þeir sem vilji reyna að losna
við símaþjónustu fyrirtækjanna
geti í raun fengið sér frelsisnúmer
hjá símafyrirtækjunum, sleppt því
að fylla á inneignina og notað forrit
eins og Viber. „Það forrit virkar á flest
símastýrikerfi og lítur alveg eins út
og venjulegt símaforrit í símanum.
Gallinn er þó sá að það eru hnökrar
á þessu, símtölin geta verið slitrótt
þar sem þetta fer yfir netið og þú
þarft að vera þolinmóður ef þú not-
ar Viber. Auk þess getur þú einung-
is hringt í þá sem eru líka með Viber
í sínum síma.“ Hann bendir einnig
á að neytendur komist aldrei hjá
því að greiða fyrir símtölin því með
slíkum forritum þarf að greiða fyrir
gagnamagnið. „Ég er samt viss um
að þú getur hringt mun meira fyrir
1.000 króna gagnamagn heldur en
1.000 króna frelsisinneign.“
Ódýr smáskilaboð
Vinsælli smáforrit eru til dæmis
Skype, Google Hangouts og
Facetime en þar er meiri áhersla
lögð á myndsímtöl. Skype er þar
langvinsælast en Google Hangouts
er einnig mikið notað. Það síðar-
nefnda er forrit frá Google fyrir iOS-
og Android-síma og -spjaldtölvur.
Facetime er hægt að nota í iOS-sím-
um og Apple-tölvum en ekki öðrum
tækjum.
Gunnlaugur Reynir nefnir einnig
smáforrit svo sem Snapchat og
WhatsApp sem góðan kost fyrir þá
sem senda mikið af skilaboðum. „Ef
þú ert á annað borð með gagnamagn
í símanum þá getur þú sent smá-
skilaboð fyrir lítið sem ekkert með
forritum á borð við WhatsApp, Face-
book Messenger eða Google Hang-
out. Þetta er hentugt fyrir þá sem
senda mörg sms-skilaboð. Þetta er
bæði ódýrara og þægilegra því for-
ritin geyma alla samskiptasöguna
en þú tapar sms-skilaboðum í sím-
anum ef þú skiptir um síma.“
Fáðu mátulegan pakka
Að lokum tekur Gunnlaugur Reyn-
ir fram að neytendur sem vilji lækka
símakostnaðinn hjá sér án þess að
nota smáforrit þurfi fyrst og fremst
að athuga hvað þeir hringja mikið.
„Eiginlega öll símafyrirtækin eru
komin með þessar föstu mínútur
sem þú greiðir fyrir. Svo borgar þú
umfram það ef þú hringir meira.
Það er tilhneiging hjá símafyrirtækj-
unum að láta þig annaðhvort fá of
lítinn pakka til að mánaðargjaldið
virki sem lægst eða freistast til þess
að setja þig í pakka með fleiri mín-
útum en þú í rauninni þarft. Það er
því mikilvægast að fá nákvæman
mínútufjölda og velja pakkann sem
hentar þinni notkun. Pakkinn er þá
kannski dýrari en heildarkostnaður-
inn lækkar,“ segir hann. n
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
Svona lækkar þú
símakostnaðinn
n Farsímaþjónusta hefur hækkað um rúm 20 prósent á tveimur árum
Farsímakostnaður
Hefur hækkað mikið á
undanförnum árum.
Gunnlaugur Reynir Sverrisson Mælir
með að fólk noti smáforrit til að lækka
farsímakostnaðinn.