Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2013, Side 20
20 Lífsstíll 28. ágúst 2013 Miðvikudagur
Kopar og elliglöp
n Of mikil neysla getur valdið Alzheimerssjúkdómnum
A
ð neyta kopars er manns-
líkamanum nauðsynlegt
en að neyta hans í of miklu
magni getur aukið lík-
urnar á Alzheimerssjúkdómn-
um. Þetta kemur fram í niður-
stöðum rannsóknar sem birt var
í vísindaritinu Proceedings of the
National Academy of Sciences fyrir
skemmstu. Kopar finnst í fjölmörg-
um fæðutegundum og má í því
samhengi nefna rautt kjöt, skelfisk
og ávexti og grænmeti svo nokkur
dæmi séu tekin.
Það voru vísindamenn við Uni-
versity of Rochester í New York
sem framkvæmdu rannsóknina
sem vísað er til. Tilraunir voru
gerðar á músum sem skipt var í tvo
hópa. Annar hópurinn fékk fæðu
með háu hlutfalli kopars á með-
an hinn hópurinn fékk fæðu með
litlu magni kopars. Niðurstöðurnar
leiddu í ljós að fyrri hópurinn átti
í meiri erfiðleikum en sá seinni
með að losa sig við ákveðið prótín,
amyloid, sem talið er eiga sinn þátt
í að valda elliglöpum.
„Það virðist vera að með tím-
anum hafi kopar hamlandi áhrif á
heilann í að losna við þetta tiltekna
prótín,“ segir dr. Rashid Deane,
sem fór fyrir rannsókninni, í sam-
tali við breska ríkisútvarpið, BBC.
Ekki nóg með það þá virðist kopar
hreinlega hvetja heilann til fram-
leiðslu á prótíninu. Deane segir við
BBC að fólk sem borðar fjölbreytta
fæðu ætti ekki að hafa neinar
áhyggjur. Hins vegar mælir hann
ekki með því að kopars sé neytt í
fæðubótarformi. n
Á bannlista
eftir ræktina
Salt snarl
Margir finna þörf
fyrir að borða
eitthvað salt
eftir æfingu,
slíkt snarl er
þó oft helst
til hitaein-
ingaríkt. Salt-
þörfin kviknar
vegna steinefna sem skiljast út
með svita. Fáið ykkur banana í
staðinn, í honum er pótassíum
og kalíum sem ætti að fullnægja
þörfinni betur.
Sykur
og gos
Það er
ekkert
verra en
að fá sér
sykrað gos
eða sætindi eft-
ir æfingu. Sykur hleður ekki ein-
göngu aukakílóunum á líkamann,
heldur hægir á brennslu líkamans
til lengri tíma. Gosdrykkja eykur
vökvasöfnun líkamans. Fáið ykkur
ósætt íste í staðinn eða bragðbætt
en sykurlaust vatn.
Hrátt grænmeti
Grænmeti er frá-
bær kostur
yfir daginn.
Heilnæmt
og inni-
heldur litla
sem enga
fitu. En eft-
ir æfingu
þarftu prótín
líka og hrátt grænmeti getur verið
tormelt. Til að halda í hollustuna
er hægt að prófa grænmetisdrykki
sem eru bættir með prótíni.
Mjólkursúkkulaði
Sætt mjólkursúkkulaði inniheld-
ur hundruð hitaeininga. Fáðu þér
frekar dökkt
súkkulaði, og
fyrir æfingu
frekar en
eftir, þar
sem það
inniheldur
ekki nærri
því nógu
mikið af nær-
ingarefnum til þess að næra þig
eftir æfingu.
Orkustykki
Orkustykki eru
markaðssett
fyrir þá sem
sækja rækt-
ina. Engu
að síður er
orkustykki
ekki góður
kostur. Það
inniheldur
alltof mikið af
sykri sem hægir á efnaskiptum
líkamans og hvetur til fitufram-
leiðslu. Settu frekar hnetur og
þurrkaða ávexti í poka. Margfalt
hollara og þér líður betur á eftir.
Svona getur þú lifað
hamingjusömu lífi
n Líttu á erfiðleika sem tækifæri n Heilsurækt og djúpöndun mikilvæg
Þ
að vilja allir lifa hamingju-
sömu, heilbrigðu og inni-
haldsríku lífi en það getur
þó reynst sumum erfitt að
ná þessu takmarki sínu. Á
síðunni Mind Body Green hafa ver-
ið tekin saman nokkur atriði sem
einkenna þá sem lifa hamingju-
sömu lífi sem við getum haft í huga
þegar við reynum að öðlast ham-
ingjusamt líf. Það sem einkennir
hamingjusama er:
Lítil skref færa þig skrefinu lengra
Steinunn Sigurðardóttir fata-
hönnuður kann listina að hugsa út
fyrir kassann. Hún leitar stöðugt að
leiðum að nýjum stöðum og segir
heim tísku og hönnunar hrein-
lega krefjast þess að fara út fyrir
þægindahringinn. Í viðtali við DV
nýverið ræddi hún um hugsunar-
hátt sinn. „Það er öllu ýtt að þér
svo hratt. Þar er talað um að flytja
fjöll, og þessi fyrirtæki flytja fjöll í
orðsins fyllstu merkingu. Þú lærir
að horfa langt fram á veginn. Það er
nauðsynlegt.
Á sama tíma verður þú að vera
meðvitaður um að þú þarft að halda
í einhvern kjarna sem heldur þér
á jörðinni. Stundum festist ég í því
að vilja alltaf borða sama matinn
þangað til ég get það ekki lengur,
stundum klæði ég mig alltaf í sömu
fötin þar til ég fæ nóg.
Það fer mikil orka í að ýta sjálfum
sér hugarfarslega á nýja staði.“
Þessum sannleika miðlar hún til
nemenda sinna
„Að teikna blindandi tekur nem-
andann alveg út fyrir allan þæginda-
hring. Ég læt einstaka nemendur
mína gera þetta. Ég hef líka beðið
nemendur mína um að teikna stórt
á vegg til að brjóta upp litlar teikn-
ingar þar sem blýanturinn er ávallt
notaður í litlar línur.
Öll þessi litlu skref verða til þess
að þú ferð skrefi lengra og út úr
rammanum.“
Gekk í barndóm
Sölvi Tryggvason fjölmiðlamaður er
nýkominn úr tveggja mánaða ferð
um Asíu. Hann segist hafa skorað
sjálfan sig á hólm.
„Ferðalagið sem ég fór í gerði
mig hamingjusamari, sérstaklega
vegna þess að ég upplifði mikla
gleði í ferðinni minni. Ég gekk dá-
lítið í barndóm aftur. Gerði mikið
af hlutum og skoraði sjálfan mig á
hólm.“ n
gunnhildur@dv.is
Einkenni þeirra hamingjusömu
n Þeir eru ekki langræknir.
n Þeir hugsa út fyrir kassann.
n Þeir fylgja rútínu og láta líkamsrækt
verða hluta af henni. Það tekur smá
æfingu að gera líkamsræktina að
daglegri rútínu og halda það út. Um leið
og þú hefur náð því stendur þú eftir mun
sterkari.
n Þeir eru umkringdir góðu fólki og eyða
því ekki tíma í neikvæðar manneskjur
sem hafa slæm áhrif á þá.
n Þeim er sama um hvað öðrum finnst.
n Þeir eru ekki sífellt að þóknast öðrum.
n Þeir líta á erfiðleika sem tækifæri.
n Þeir líta á það að taka við höfnun sé
hæfileiki og eru þrautseigir.
n Þeir taka frá tíma fyrir sjálfan sig. Hvort
sem það er að ná átta tíma svefni á
hverri nóttu, að taka 15 mínútur í að lesa
blaðið eða klukkutíma í ræktinni, þá er
þetta efst á forgangslista þeirra. Þegar
þú hugsar vel um sjálfan þig hefur þú
góð áhrif á aðra.
n Þeir eru andlega þenkjandi. Þetta
þýðir ekki endilega að þeir séu trúaðir
heldur frekar að þeir taka sér tíma til að
hugleiða eða að stunda jóga.
n Þeir stunda djúpöndun.
n Þeir vita að maður fær ekki allt sem
maður vill og eru sáttir við það. Það væri
auk þess leiðinlegur heimur að búa í.
n Þeir láta ekki ótta stjórna sér. Þeir eru
tilbúnir til að taka áhættu.
n Þeir kunna að segja nei. Þeir hafa lært að
setja mörk og mikið af þeim.
n Þeir eru með framtíðarsýn og fylgja
henni.
n Þeir gefa án þess að ætlast til að fá
eitthvað í staðinn.
n Þeir eru hvorki yfirborðslegir né láta þeir
ofmetnast.
n Þeir eru drifnir áfram af ástríðu. Þeir trúa
virkilega á það sem þeir eru að gera.
n Þeir kvarta ekki.
n Þeir hafa gildi og fara eftir þeim, bæði í
einkalífinu og starfi.
n Þeir synda gjarnan á móti straumnum.
n Þeir klára það sem þeir byrja á.
n Þeir bera sig ekki saman við aðra.
n Þeir vilja einnig að aðrir nái árangri.
Steinunn Sigurðardóttir Kann listina að
hugsa út fyrir rammann.
Tók sér tíma Sölvi Tryggvason fór í ævin-
týralegt ferðalag til Asíu. Hann tók sér tíma
og varð hamingjusamari fyrir vikið.
Gleði og gaman
Hamingjusamir eru
gjarnan umkringdir
góðu fólki.
Elliglöp Niðurstöðurnar
gáfu til kynna að neysla kop-
ars geti haft áhrif á elliglöp.