Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2013, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2013, Qupperneq 9
Fréttir 9Mánudagur 9. september 2013 É g veit ekki endilega hvert mark- mið mitt er með að skrifa þetta en ég veit bara að þetta er að naga mig inní mér og ég þarf að koma þessu út,“ skrifar 16 ára stúlka, Selma Björk Hermannsdóttir, í að- sendri grein sem birtist á Bleikt.is um helgina. Selma fæddist með skarð í vör og hefur þurft að þola mikið ein- elti vegna þess. „Ég fæddist með skarð í vör hægra megin og án þess að ýkja, þá get ég sagt það að ég er niðurlægð og mér er strítt út af því allavega einu sinni í mánuði alveg síðan ég man eftir mér,“ segir hún. „„Gleymdirðu að fæðast með venjulegt andlit eða?“ var sagt við mig í dag. Og í byrjun vikunnar var það: „Hvaða djöfulsins fatli er þetta í and- litinu á þér?““ Greinin hefur farið sem eldur í sinu um netið en meðal þeirra sem deildu greininni voru Jón Gnarr borgar stjóri. Hann hrósar Selmu fyrir hugrekki. „Hugrökk, falleg og gáfuð stúlka hún Selma sem á eftir að ná langt í lífinu með þessu jákvæða hugarfari. Fólk er stundum hrætt við sterkar og sjálf- stæðar manneskjur og reynir að finna eitthvað að þeim af því það finnur til minni máttar kenndar gagnvart þeim. Takk fyrir að deila sögunni þinni. Áfram Selma Björk, haltu þínu striki!“ sagði Jón. Selma segir meðal annars í grein- inni að litli bróðir hennar hafi einnig þurft að þola árásir fyrir það eitt að vera bróðir hennar. „Litli bróðir minn sem er 4 árum yngri en ég var að labba heim úr skólanum fyrir rúmlega 1 og hálfu ári síðan þegar strákur sem er 1 ári eldri en ég fór að stríða honum fyrir að eiga „ljóta stóru systur“. Bróð- ir minn varð brjálaður og hljóp að honum og ætlaði að „ráðast á hann“ og strákurinn henti honum í jörðina og bróðir minn kom heim þennan dag með blóð í hárinu eftir að hafa skollið með hausinn í gangstéttina.“ n Ung stúlka lögð í einelti n Selma Björk fæddist með skarð í vör og hefur mátt þola árásir Hugrökk stúlka Selma hefur mátt lifa við langvarandi einelti vegna þess að hún fæddist með skarð í vör. Hún tjáði sig af miklu hugrekki um ofbeldið í pistli um helgina. Ógæfumaður sló ungling Lögreglu barst tilkynning um líkamsárás á Laugaveginum á laugardagskvöld þar sem tveir menn í annarlegu ástandi slógust fyrir utan bar. Mennirnir eru góð- kunningjar lögreglunnar og hafa oft komið við sögu í málum þar á bæ. Annar þeirra sló fjórtán ára vegfaranda sem átti leið hjá. Báð- ir mennirnir voru handteknir og færðir í fangageymslur í kjölfarið. Brotist var inn í apótek í Kópa- vogi laust fyrir miðnætti á laugar- dagskvöld. Rúða hafði verið brotin en svo virðist sem innbrotsþjófur- inn hafi ekki haft nokkuð upp úr krafsinu því engu virtist hafa verið stolið. Nokkrar tilkynningar bár- ust um þjófnaði í Reykjavík og Hafnarfirði í á laugardag en fimm þjófnaðir voru tilkynntir frá klukk- an 13 til klukkan 15. Stolið var úr verslunum og gaskútum stolið við heimili. Fjárfesting dregst saman Hagstofa hefur gefið út helstu efnahagstölur fyrir fyrstu sex mánuði ársins. Ber þar helst að nefna að landsframleiðsla jókst um ríflega tvö prósent á fyrstu sex mánuðum ársins 2013 að raun- gildi borið saman við saman tíma í fyrra. Það að útflutningur jókst um rúmlega eitt prósent og að innflutningur dróst saman um tæp fimm prósent hefur öllum líkindum haft sitthvað að segja. Fjárfesting skrapp hins vegar tölu- vert saman, réttara sagt um tæp þrettán prósent. Það er þónokk- ur viðsnúningur frá því í fyrra er fjárfesting jókst um fimm prósent. Tekið skal fram að sú fjárfesting var nær öll í formi innfluttra skipa og flugvéla. Nýtt fjármagn leysir vanda Ólíklegt er að Landspítalinn geti leyst úr vandanum á lyflækn- ingasviði spítalans nema til komi nýtt fjármagn. Þetta sagði Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, í kvöldfréttum RÚV á sunnudag. Kristján Þór Júlíusson heilbrigð- isráðherra sagði á dögunum að vilji til verka væri ekki síður mik- ilvægur en peningar. Vöktu þau ummæli nokkra athygli. Óánægja lækna snýst ekki síður um vinnuaðstöðu, skipulag og menntunarmöguleika en kaup og kjör hefur RÚV eftir framkvæmdastjóra lyflækninga- sviðs. Formaður Læknafélags Ís- lands telur að læknar muni segja upp en Björn hafði ekki heyrt af því.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.