Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2013, Qupperneq 12
12 Fréttir 9. september 2013 Mánudagur
Leigumorðingi að verki?
n Eitt ár frá óhugnanlegum morðum við Annecy-vatn í Frakklandi
L
eigumorðingi með reynslu
úr hernum gæti haft myrt
fjóra einstaklinga sem skotnir
voru til bana af stuttu færi við
Annecy-vatn í Frakklandi þann 5.
september í fyrra.
Morðin vöktu mikinn óhug
enda framin í grennd við tiltölu-
lega vinsælan ferðamannastað
um hábjartan dag. Írakskur verk-
fræðingur með breskt vegabréf, Saad
Al-Hilli, eigin kona hans, Ikbal, og
móðir hennar, Suhaila al-Allaf, voru
myrt með köldu blóði um hábjart-
an dag í bifreið sem þau ferðuðust
í. Franskur hjólreiðamaður, Sylvain
Mollier, var einnig skotinn til bana
en dætur Al-Hillis, Zainab og Zeena,
lifðu árásina af.
Um eitt hundrað lögreglumenn,
bæði frá Frakklandi og Bretlandi,
hafa rannsakað málið nærri sleitu-
laust undanfarið ár en enn sem
komið er ekki tekist að hafa hendur
í hári morðingjans. Um 800 manns
hafa verið yfirheyrðir og hafa þær
yfirheyrslur litlu skilað.
Breska blaðið The London Even-
ing Standard hefur eftir heimildar-
manni innan lögreglunnar að flest
bendi til þess að leigumorðingi hafi
framið morðin. Vísar hann í trúverð-
ugan framburð vitnis sem segir að
leigumorðinginn komi frá landi við
Balkanskagann og hafi fengið greitt
sem samsvarar tæpum 320 þús-
und krónum fyrir morðin. Mögu-
lega hafi morðin tengst deilum um
arf innan Al-Hilli-fjölskyldunnar en
vitað var að Saad Al-Hilli og bróð-
ir hans höfðu átt í deilum um eigur
sem faðir þeirra átti. Bróðir Saads,
Zaid Al-Hilli, var handtekinn vegna
gruns um að hafa skipulagt morðið
en honum hefur verið sleppt þar
sem engar sannanir gegn honum
liggja fyrir. n
einar@dv.is
Sundurskotinn
Tuttugu og einni kúlu
var skotið á bílinn. Þrír
lágu í valnum auk hjól-
reiðamanns sem talinn
er hafa verið vitni.
L
loyd Phillips, 48 ára breskur
kaupsýslumaður, hefur ver-
ið dæmdur í ellefu ára fangelsi
fyrir hrottalega nauðgun. Hann
setti örvandi efnið BZP út í
drykk 22 ára konu með þeim afleiðing-
um að hún féll í ómegin. Maðurinn
nýtti sér ástand hennar, og ók henni að
hótelinu sem hann dvaldi á. Þar fékk
hann lánaðan hjólastól undir því yfir-
skyni að kærastan hans væri ofurölvi,
sótti hana út í bíl og ók henni sem leið
lá, í hjólastólnum, upp á herbergi þar
sem hann nauðgaði henni rænulausri
í níu klukkustundir.
Á meðfylgjandi mynd úr öryggis-
myndavél hótelsins má sjá hvar hann
ekur stúlkunni meðvitundarlausri um
ganga hótelsins, áður en hann misnot-
aði hana með áðurnefndum hætti.
Baðaði konur í lúxus
Phillips þessi er þekktur kaupsýslu-
maður í heimaborg sinni, South-
ampton í Englandi. Hann á meðal
annars auðmannasnekkju af dýrustu
sort en hann rekur meðal annars lyfja-
verslun og vefsíðu sem selur miða á
viðburði. Hann tekur að jafnaði 10
þúsund pund á viku út úr rekstrinum,
andvirði um tveggja milljóna íslenskra
króna. Á vef Daily Mail er hann sagður
stunda það að narra til sín yngri konur
og baða þær í lúxus, ef svo má að orði
komast. Engum sögum fer af því hvort
hann hafi áður gerst brotlegur við lög.
Kvöldið örlagaríka hafði hann ann-
að í hyggju. Hann hafði mælt sér mót
við ungu konuna og sótti hana heim
til hennar undir því yfirskyni að hann
ætlaði að bjóða henni á tónleika.
Phillips gaf konunni skot og, til að
skola því niður, dós af orkudrykknum
Crunk Juice. Út í drykkinn hafði hann
laumað BZP, efni sem hefur í grunninn
ekki ósvipaða virkni og amfetamín, en
getur við ofneyslu valdið flogum, köst-
um eða meðvitundarleysi.
Níu tíma nauðgun
Konan bar fyrir dómi að hún myndi
vel eftir því þegar maðurinn sótti hana,
en lítið sem ekkert síðan, eftir því sem
á bílferðina leið. Í stað þess að fara á
tónleika ók Phillips henni að hóteli við
Wembley-leikvanginn. Upptökur úr
öryggismyndavélum sýndu glögglega
að konan hélt ekki haus og gat enga
björg sér veitt þar sem hann ók henni
um hótelið í hjólastól sem hann hafði
fengið að láni hjá starfsfólki hótels-
ins. Fram kemur að konan hafi aldrei
orðið árásarinnar vör meðan á henni
stóð, ef frá er skilið að einu sinni um
nóttina gat hún opnað augun og sá að
á klukkunni stóð 03.48. Hún sagði að
hún minntist þess að líkami hennar
hafi verið undinn og hún hafi legið í
óþægilegri stellingu. Annað myndi
hún ekki.
Þegar konan vaknaði, morguninn
eftir, var nauðgarinn Phillips enn í
herberginu. Hann sagði henni að þau
hefðu stundað kynlíf saman alla síð-
ustu nótt, að hennar frumkvæði. Hún
sá að rúmið var útatað blóði.
Smám saman, eftir að hann ók
konunni heim, komst hún til fullrar
meðvitundar og á hana fóru að renna
tvær grímur. Hún var blá og marin
víða um líkamann og var fárveik. Hún
gat ekki notað salerni, var sár í munni
og undir handarkrikum. Hún tók þá
ákvörðun, næsta dag, að leita læknis.
Eftir stutta skoðun hringdi læknirinn
á lögregluna.
„Viðbjóðsleg manneskja“
Fyrir dómi lýsti lögreglumaðurinn
sem stýrði rannsókninni Phillips sem
ófreskju sem líklegt væri að hefði
nauðgað mörgum konum um ævina.
Rannsóknin hafi leitt í ljós að ásetning-
ur Phillips var einbeittur og verknað-
urinn skipulagður. Phillips var fundinn
sekur um að hafa nauðgað konunni
ítrekað en sýknaður af því að hafa vís-
vitandi byrlað henni ólyfjan. Konan
sagði eftir réttarhöldin að hún væri full
viðbjóðs. „Hann er viðbjóðsleg mann-
eskja og ég vona að hann deyi í fang-
elsinu, svo hann geti ekki nauðgað
fleirum.“ Hún segir að hún hafi fyllst
viðbjóði þegar hann greindi henni frá
atburðum næturinnar, eins og hún
hefði samþykkt það sem fram fór. „Ég
fékk sjokk þegar hann sagði að hann
væri ánægður að sjá að henni liði ekki
illa með það sem gerst hafði. Hann
sagði svo við mig: „Sumar stelpur gætu
hrópað: Nauðgun!““
Maðurinn var sem fyrr segir
dæmdur í ellefu ára fangelsi en hann
fékk líka dóm fyrir að selja ólögleg efni
í lyfjabúðinni. Verslunin var tekin af
honum og er í dag stjórnað af öðrum
aðilum. n
n Ók konunni rænulausri í hjólastól n Byrlaði henni ólyfjan
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Hrottaleg nauðgun
kaupsýslumanns
Óhugnaður Nauðgar-
inn fékk lánaðan hjóla-
stól til að keyra ofurölvi
„kærustu“ sína.
Vegnaði vel Lög-
reglan segir að Lloyd
Phillips sé líklegur
til að hafa nauðgað
mörgum konum á
þennan máta.
Mannskæð
loftárás NATO
Að minnsta kosti 15 manns létu líf-
ið í loftárás NATO á héraðið Kunar
í Austur-Afganistan um helgina,
samkvæmt afgönskum öryggis-
sveitum. Þar af voru um níu al-
mennir borgarar. Talskona NATO
segir þó að tíu uppreisnarmenn
hafi fallið í árásinni og að hún hafi
engar upplýsingar um það hvort
einhverjir almennir borgarar hafi
lfallið. Þetta kemur fram á BBC.
Samkvæmt lögreglunni í Kunar
var loftárásin gerð á trukk í þorp-
inu Gambir stuttu eftir að sex ar-
abískir og afganskir uppreisnar-
menn stigu upp í bílinn. Í bílnum
voru einnig konur og börn sem
eru talin hafa fallið í árásinni.
Forseti Afganistan, Hamid
Karzai, bannaði afgönskum ör-
yggissveitum að kalla eftir loftárás-
um á afgönsk íbúðasvæði eftir að
talið var að 10 óbreyttir borgarar
hefðu látist í loftárás NATO í Kunar
í febrúar.
Herir Bandaríkjamanna og
Afgana hafa barist hart gegn talí-
bönum á þessu svæði síðustu tíu
árin.
Sakar
Bandaríkin
um samsæri
Nicolas Maduro, forseti Vene-
súela, segir að bandaríska ríkis-
stjórnin vilji knésetja ríkisstjórn
Venesúela með því að hefta að-
gang almennings að mat, raf-
magni og eldsneyti. „Ég hef gögn
undir höndunum um fund í Hvíta
húsinu og full nöfn þeirra sem
voru viðstaddir,“ sagði Maduro á
fjöldafundi í Aragua-héraði í gær.
Þetta kemur fram í frétt Al Jazeera.
„Þeir halda að Venesúela
muni riða til falls í október, svo
lengi sem þeir skipuleggja það
með því að hefta aðgang fólks-
ins að mat, rafmagni, eldsneyti
og hreinsunarstöðvum,“ sagði
Maduro, sem heldur því fram að
stjórnarandstaðan í Venesúela
hafi framið skemmdarverk með
hjálp Bandaríkjamanna sem gerði
það að verkum að rafmagn í stór-
um hluta landsins datt út í um
fjórar klukkustundir.
Á síðustu mánuðum hafa ráða-
menn í Venesúela oft staðhæft
að það sé samsæri í gangi gegn
þeim af hálfu Bandaríkjastjórn-
ar. Þá segist Maduro vera sann-
færður um að Bandaríkjastjórn
vilji ráða hann af dögum og tel-
ur jafnvel líklegt að hún ætli að
láta til skarar skríða á sama tíma
og þeir ráðast inn í Sýrland. Þess
má geta að fyrirrennari Maduros,
Hugo Chavez, hélt því oft fram að
leyniþjónustur Bandaríkjamanna
hefðu ætlað að myrða hann.