Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2013, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2013, Síða 20
20 Lífsstíll 9. september 2013 Mánudagur Candy Crush Saga malar gull n Notendur eyða 77,5 milljónum króna á dag A llir sem kynnst hafa snjall- símaleiknum Candy Crush Saga vita hversu hrika- lega ávanabindandi hann er og því ætti engan að undra að leikurinn, sem er orðinn einn sá vinsælasti sinnar tegundar, mal- ar gull á degi hverjum. Vefsíðan AppAdvice greindi frá því í vik- unni að þróunaraðili Candy Crush Saga, vefsíðan King.com, græði 633 þúsundir Bandaríkjadala á dag í gegnum notendur leiksins, en það jafngildir um 77,5 millj- ónum íslenskra króna. Árlegur gróði fyrirtækisins vegna Candy Crush Saga nemur því allt að 230 milljónum dollara, eða rúmum 28 milljörðum króna. Candy Crush Saga var gefinn út fyrir Facebook í apríl 2012 og í nóvember sama ár fyrir snjallsíma. Vinsældir leiksins eru gríðarlegar en hátt í átta milljónir manns spila leikinn daglega auk þess sem á hverjum degi bætast við nýjir not- endur. Í mars 2013 tók leikurinn fram úr FarmVille 2 sem vinsæl- asti leikurinn á Facebook en þá voru notendur leiksins orðnir 46 milljónir á mánuði. Niðurhal á leiknum er ókeypis en notendum stendur til boða að kaupa ýmsar uppfærslur í leikn- um, svo sem fleiri líf, fleiri aðgerð- ir og aðgang að fleiri borðum svo eitthvað sé nefnt. Slíkir möguleik- ar virðast afar vinsælir hjá notend- um leiksins því Candy Crush Saga er nú tekjuhæsta snjallsímafor- ritið í App Store. n horn@dv.is Vinsæll Candy Crush Saga er afar vinsæll en daglegir notendur hans er hátt í átta milljónir. Afi kveikti áhugann n Jóhanna Vilhjálmsdóttir gefur út heilsubók n Æskuvinkona læknaðist af Chrons E lsku afi minn heitinn, Baldur Johnsen læknir, var í raun sá sem kveikti fyrst áhugann hjá mér á náttúrulækning- um,“ segir Jóhanna Vilhjálms- dóttir sem hefur gefið út Heilsu- bók Jóhönnu þar sem hún sýnir fram á hvernig má bæta líf sitt með breyttu mataræði. „Hann var mikill vinur minn og ég hjálpaði honum í ýmsu grúski þegar ég var unglingur. Hann var einstakur áhugamaður um plöntur og virkni þeirra. Hann var með þeim fyrstu sem rannsökuðu mátt fiskiolía og skrifaði um hann í bókinni Heilbrigði úr hafdjúpunum,“ segir hún í formála bóka sinnar og á greinilega ekki langt að sækja áhuga sinn. Í bókinni fjallar Jóhanna um ólíka fæðuflokka, fitusýrur, vítamín, stein- efni og margt annað og vísar í niður- stöður rannsókna og greinir frá reynslu fólks sem hefur fengið bata við sjúkdómum með breyttum lífs- stíl. Þeirra á meðal er Fanney Karls- dóttir, æskuvinkona hennar, sem greindist með Chrons-sjúkdóminn aðeins 25 ára. Hér er að neðan er birt brot úr reynslusögu Fanneyjar. Engin lækning þekkt Chrons má flokka sem sjálfsónæmis- sjúkdóm en þessi sjúkdómur er langvinnur sjúkdómur í meltingar- færum. Æ fleiri greinast með þenn- an sjúkdóm – aðallega ungt fólk frá tvítugu til þrítugs og jafnvel undir tvítugu. Sjúkdómseinkennin eru að- allega kviðverkir og niðurgangur eða hægðatregða. Stundum kemur blóð með hægðum og einnig getur þyngdartap og sótthiti fylgt sjúk- dómnum. Langvarandi blæðing frá þörmum getur leitt til blóðleysis og sjúkdómurinn getur truflað vöxt og þroska barna, meðal annars vegna skorts á næringarefnum. Hefðbund- in læknisfræði segir að engin lækn- ing sé þekkt en meðferð hafi það takmark að uppræta skort á næring- arefnum, halda bólgubreytingum í skefjum, lina verki og stöðva blæð- ingu. Algengasti fylgikvilli Chrons- sjúkdóms er garnastífla, sem verður vegna þess hve þarmaveggirnir þykkna mikið. Meðferð sem hefðbundin læknis- fræði býður upp á er inntaka á bólgu- eyðandi lyfjum, sterum og sýklalyfj- um. Allt eru þetta efni sem geta eftir langvarandi inntöku leitt til alvarlegra aukaverkana; sterar margfalda lík- urnar á hjarta-og æðasjúkdóm- um, sýklalyf veikja, m.a. ónæmis- kerfið með því að skemma flóruna í meltingarveginum og langvarandi neysla á bólgueyðandi lyfjum get- ur aukið líkur á blóðtappa og valdið magasárum svo eitthvað sé nefnt. Fanneyju var sagt að þetta væri ólæknandi sjúkdómur og var hún sett á steralyf til að byrja með. Eftir það tók við meðferð á bólgueyðandi lyfjum. Hún hóf samt strax að kynna sér óhefðbundnar leiðir og fékk að- stoð frá Kolbrúnu grasalækni til að koma slímhúðinni í þörmunum í lag. Fanney sneiddi hjá öllum unnum mat. Hún hætti að borða hvít, unn- in næringarsnauð kolvetni eins og sykur og hvítt hveiti. Einnig tók hún út ger og mjólk. Á meðan slímhúð- in var að jafna sig sleppti hún ávöxt- um og mjög trefjaríkju grænmeti sem hún tók síðan aftur inn í fæðuna eftir að hafa náð bata. Þegar heilsa Fanneyjar var sem verst lifði hún að- allega á ferskum grænmetissöfum. Hún drakk einnig hristing daglega og var uppistaðan spínat og lárpera ásamt safa úr límónu og engifer. Brokkólí þoldi hún síður en þolir það vel í dag. Hún neytti einnig kjöts en þó aðeins af lömbum sem eingöngu voru alin á grasi. Eftir tvö ár hætti hún á öllum lyfjum. n Kristjana Guðbrandsdóttir blaðamaður skrifar kristjana@dv.is „Hann var mikill vinur minn og ég hjálpaði honum í ýmsu grúski þegar ég var unglingur. Hugmyndir að morgunmat „Það er alveg ótrúlegur munur á því að hefja daginn uppfullur af mikilvægum næringarefnum sem endast lengi í stað þess að hafa borðað unnið morgunkorn sem fer á augabragði út í blóðið með tilheyrandi sykurfalli og þreytukasti skömmu síðar,“ segir Jóhanna í bók sinni og leggur til nokkrar hugmyndir að morgunmat. Hafra- eða chia- fræjagrautur Gamli góði hafra- grauturinn er fín leið til að byrja daginn, prótínríkur og uppfullur af vítamínum og steinefn- um. Ég hef undanfarið einnig notað chia- fræ í staðinn fyrir haframjölið eða í bland. Þau eru alveg einstaklega næringarrík, prótínrík og uppfull af omega 3 fitusýrum. Þeir sem aðhyllast basískt mataræði eða kolvetnasnautt kjósa chia- eða hampfræ frekar en hafragrautinn. Ágætt er að hafa einhverja tilbreytingu í þessu. Það má til dæmis setja möndlur, valhnetur, fræ, ber og döðlur og rúsínur (í hófi) út á grautinn. Þetta má jafnvel gera kvöldið áður og láta þá haframjölið og/ eða chiafræin og það sem maður kýs að hafa með því liggja í möndlumjólk (eða þeirri mjólk sem maður kýs eða bara vatni) yfir nóttina. Grauturinn er þá tilbúinn að morgni dags og óþarfi að elda hann. Grænn hristingur Svo má líka fá sér hristing með grænu salati, grænkáli, spínati eða spergilkáli, lárperu, ávöxtum og/eða berjum í morgunmat. Sumir kjósa að setja mysu og/eða hampprótín út í svoleiðis drykk til að fá meira prótín. Möndluhristingur Möndlumjólk með berjum, smá banana og jafnvel spergilkáli, spínati eða steinselju. Lífræn jógúrt Gott er að fá sér líf- ræna, hreina jógúrt af og til. Hægt er að setja út í hana dálítið af hunangi, möndlur, hnetur, ber, fræ og örfáar rúsínur. Kennir landanum að bæta líf sitt Í Heilsubók Jóhönnu er farið ítarlega í það hvernig bæta má líf sitt með réttu mataræði. Egg eru frábær morgunmatur Egg með smá grænmeti og lárperusneiðum eða gróf brauð- sneið með eggjum, síld, lárperu- sneiðum og grænmeti (gúrku, lauk, tómat, papriku) getur einnig verið ágæt tilbreyting. Þá er ekki úr vegi að hefja daginn á góðu salati og eggi og jafnvel fiski, þótt einhverjum kunni að finnast það alveg út í hött.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.