Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2013, Síða 26
Íslenskir keppendur
við æfingar Það eru
öllu saklausari mótmælin
gegn keppni í íslenskri
fegurð. Í Indónesíu
er óttast um öryggi
keppenda í Miss World.
26 Fólk 9. september 2013 Mánudagur
One Direction-ilmvatnið slær í gegn
E
kkert lát virðist ætla að verða
á velgengni drengjanna í
strákabandinu One Direction
en ilmvatn úr þeirra smiðju
er talið hafa halað inn meira en 3,6
milljónir punda á einni viku. Sú
upphæð jafngildir um 686 milljón-
um íslenskra króna.
Ilmurinn, sem fór í sölu í
Harrods í London þann 25. ágúst
síðastliðinn, kallast Our Moment
og á fyrstu tveimur dögunum seld-
ust yfir þrjú þúsund flöskur auk
þess sem fjölmargir aðdáendur
drengjanna höfðu pantað sér ilm-
vatnið áður en það kom í búðir.
Talið er að á fyrstu vikunni hafi um
180 þúsund ilmvatnsflöskur selst
í Bretlandi en framleiðendur telja
söluna í Bandaríkjunum þó eiga
eftir að verða enn meiri.
Drengirnir í One Direct-
ion slógu í gegn í breska sjón-
varpsþættinum The X Factor árið
2010 og eru nú einir vinsælustu
tónlistar menn heims. Þó svo að
samningur drengjanna við
ilmvatns framleiðandann
sé trúnaðarmál telja sér-
fræðingar að drengirn-
ir fái sjálfir um tvö
pund fyrir hverja selda
flösku af ilmvatninu,
en það jafngildir tæp-
um 400 íslenskum
krónum. Séu áætl-
aðar sölutölur rétt-
ar ættu þeir því nú
að hafa grætt um
360 þúsund pund,
eða um 68,6 milljónir
króna. n
n 180 þúsund glös seldust fyrstu vikuna
Ríkustu
konur jarðar
1 Liliane Bettencourt Franski viðskiptamógúllinn
Liliane Bettencourt er ríkasta kona
jarðar en eiginfé hennar er metið á um 30
milljarða Bandaríkjadala. Faðir hennar
stofnaði snyrtivörufyrirtækið L‘Oréal og
á Bettencourt nú yfir 30 prósenta hlut í
fyrirtækinu.
2 Christy Walton
Christy Walton
er ekkja John
Walton en hann var
sonur Sam Walton,
stofnanda bandarísku
verslunarkeðjunnar Wal-Mart. Þegar
John lést árið 2005 erfði Christy hans
hlut í fyrirtækinu og er eiginfé hennar nú
metið á 28,2 milljarða Bandaríkjadala.
3 Alice Walton
Alice Walton er
dóttir fyrrnefnds
Sam Walton en hún
erfði dágóðan hlut
í Wal-Mart er faðir
hennar lést. Alice hefur
verið meðal ríkasta fólks heims undan-
farin ár en eiginfé hennar er metið á um
26,3 milljarða Bandaríkjadala.
4 Iris Fontbona Fontbona
er ekkja chíleska
kaupsýslumannsins
Andrónico Luksic en
hann var einn ríkasti
maður Chile. Fontbona
og fjölskylda stýra einu
stærsta koparnámufyrirtæki í heimi og er
eiginfé hennar metið á um 17,4 milljarða
Bandaríkjadala.
5 Georgina Rinehart
Ástralska námu-
drottningin og kaup-
sýslukonan Georgina
Rinehart hefur um
nokkuð skeið verið meðal
ríkasta fólks jarðar en eiginfé hennar er
metið á um 17 milljarða Bandaríkjadala.
topp 5
Fanning komin
með kærasta
Bandaríska leikkonan Dakota
Fanning er komin með kærasta.
Sá heppni heitir Jamie Strachan
og er 32 ára fyrirsæta frá Bretlandi.
Parið hefur sést víða saman í New
York undanfarnar vikur og virðist
ástfangið upp fyrir haus. Fanning
hefur ekki oft verið við karlmann
kennd en leikkonan unga hefur
sagt í viðtölum að það sé henni ekki
mikið kappsmál að eignast kærasta.
One Direction
Strákarnir hafa
eignast aðdáend-
ur um allan heim
sem virðast nú
ólmir í að kaupa
ilmvatnið þeirra.
Óttast um öryggi keppenda
n Ungfrú heimur flutt um set vegna hótana harðlínumúslima
F
ögur fljóð sem keppa um tit-
ilinn Ungfrú heimur þurfa
ekki að óttast mótmæli harð-
línumúslima þegar þær
koma til Indónesíu. Keppnin
hefur verið flutt frá höfuðborginni
Djakarta, til eyjunnar Balí til að
tryggja öryggi keppenda. Þar er and-
rúmsloftið öllu friðsælla og minni
ítök harðlínumúslima á eyjunni.
Lady Gaga hótað
Áður höfðu skipuleggjendur keppn-
innar reynt að friða öfgamennina
með því að breyta umgjörðinni á
þann hátt að keppendur koma fram
í sarong í stað bikinís. Sú ákvörðun
dugði ekki til og vænlegast þótti að
flytja keppnina.
Meirihluti íbúa Indónesíu er ís-
lamstrúar og friðsamur. Það er að-
eins örsmár hluti þeirra sem er öfga-
menn í trú, en sá hluti er hávær
og ofbeldishneigður og því fyllsta
ástæða til að sýna aðgát. Í fyrra þurfti
Lady Gaga að hætta við að halda tón-
leika í landinu vegna mikilla mót-
mæla múslima. Henni þótti ekki
óhætt að koma til landsins enda var
henni líkt við sjálfan skrattann og all-
ar líkur á að ofbeldismenn gerðu að
henni aðsúg. Harðlínumúslimarnir
hótuðu að kveikja í tónleikastaðnum
og stofna þannig lífi tónleikagesta í
hættu. Þrátt fyrir að berjast ötullega
fyrir mannréttindum þá gafst Lady
Gaga upp gagnvart þessari ógn.
Saklaus mótmæli á Íslandi
Keppnin verður haldin 28. sept-
ember næstkomandi. Feg-
urðarkeppnum er mótmælt á
mörgum vígstöðvum. Fegurðar-
samkeppnin Ungfrú Ísland
verður endurvakin í ár. Skiptar
skoðanir eru um réttmæti slíkr-
ar keppni og fólk er almennt
klofið í afstöðu sinni til hennar.
Öllu saklausari voru mótmæli
gegn keppninni á Íslandi. Keppn-
in sem hefur legið í dvala undan-
farin ár var gagnrýnd snemma
í sumar og skráði mikill fjölda
kvenna sig til keppni í mót-
mælaskyni.
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,
þingkona Samfylkingarinnar,
var ein þeirra sem skráðu sig
í keppnina, ásamt Guðrúnu
Jónsdóttur, forstöðukonu
Stígamóta, og Hildi Lilliendahl.
„Vona að ég komist í keppnina.
Ég þarf að byggja upp sjálfstraustið
eftir kosningaósigurinn!“ sagði Sigríð-
ur um skráningu sína.
Óhefðbundin mótmæli
Íslenskir femínistar hafa áður beitt
óhefðbundnum aðferðum til að
mótmæla. Í desember árið 1971
mótmæltu þeir fegurðarsamkeppn-
um og kröfðust þess að hætt yrði að
nota líkama kvenna í auðgunar-
skyni og í auglýsingum. Mótmælin
voru tíð eftir þessi mótmæli og
frægt varð þegar kýr var teymd inn
á keppnisstað.
Mótmælin báru betri árangur
en þau sem íslenskar konur höfðu
uppi í ár en fegurðarsamkeppnir
lögðust af hér á landi í nokkur ár,
meðal annars vegna mótmæl-
anna.
Búið er að velja keppendur
í Ungfrú Ísland sem verður
haldin 14. september næst-
komandi og eru keppendur
við undirbúning og æfingar
um þessar mundir. n
Líkt við skrattann Tónlistarkonan Lady
Gaga er upptekin af mannréttindum og berst
ötullega fyrir þeim. Hún gafst hins vegar
upp fyrir harðlínumúslimum í Indónesíu sem
hótuðu að kveikja í tónleikstaðnum.