Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2013, Page 6
6 Fréttir 20.–22. september 2013 Helgarblað
Sjálfstæðismenn deila
n Sumir vilja prófkjör en aðrir uppstillingu
D
eilur risu upp á meðal sjálf-
stæðismanna í Reykjavík um
hvernig eigi að velja fram-
bjóðendur inn á lista í kom-
andi sveitarstjórnarkosningum. Sum-
ir vildu sjá hefðbundið prófkjör ásamt
uppstillingu á listanum á meðan aðr-
ir vildu leiðtogaprófkjör og uppstill-
ingu. Hermdu heimildir DV að flokk-
urinn logaði stafnanna á milli vegna
þessarar deilu. Á fimmtudagskvöld
var ákveðið að slá af leiðtogaprófkjör.
Guðlaugur Þór Þórðarson og fylgis-
menn hans börðust fyrir því að haldið
yrði leiðtogaprófkjör á meðan önnur
öfl í flokknum hafa talað fyrir öðrum
kostum. Ljóst er að Morgunblað Dav-
íðs Oddssonar vildi ekki að leiðtoga-
prófkjör yrði haldið líkt og einn nán-
asti stuðningsmaður Guðlaugs Þórs,
Sveinn Andri Sveinsson, ræddi á Face-
book í vikunni: „Af einhverjum ástæð-
um er Morgunblaðið að missa sig yfir
tillögum sem liggja fyrir fulltrúaráði
Sjálfstæðisflokksins í Reyjavík um val
á lista fyrir næstu borgarstjórnarkosn-
ingar.“ Vitnaði Sveinn Andri meðal
annars í Styrmi Gunnarsson máli sínu
til stuðnings og sagði svo um þann
hóp sjálfstæðismanna sem berst gegn
prófkjöri: „Hjá þessum ágætu mönn-
um eru prófkjör langbesta leiðin til
að velja á framboðslista – þegar þeim
hentar.“
Greining Sveins Andra á sýnir
ágætlega þann vanda sem fyrir ligg-
ur: Annars vegar er valdakjarni inni í
flokknum sem vill hafa sem mest um
það að segja hverjir fara fram – aðil-
ar sem ekki eru mjög hrifnir af Guð-
laugi Þór sem orðinn er nokkuð ein-
angraður í flokknum þó hann njóti
alltaf trausts stuðnings í grasrót hans
líkt og stuðningsmenn hans vita – en
hins vegar eru það stuðningsmenn
Guðlaugs Þórs og annarra sem vilja
að haldið verði prófkjör þar sem hinn
almenni flokksmaður getur sýnt hug
sinn í verki. Nokkur pólarísering virð-
ist vera innan flokksins út af mál-
inu og hverfist hún að miklu leyti um
persónu Guðlaugs. n ingi@dv.is
Fluconazol ratiopharm
eitt hylki - stakur skammtur
árangursríkt
gott verð
einfalt
Sveppasýkingu
í leggöngum
Einungis 1 hylki tekið um munn við
Nýjung
án lyfseðils
á Íslandi!
Notkunarsvið: Fluconazol ratiopharm inniheldur fluconazol. Án ávísunar frá lækni er Fluconazol ratiopharm
notað við sveppasýkingum í leggöngum af völdum gersveppsins Candida hjá konum sem áður hafa verið
greindar með sveppasýkingu. Frábendingar: Ofnæmi fyrir fluconazoli eða skyldum azól-lyfjum eða einhverju
öðru innihaldsefni lyfsins. Samhliða meðferð með cisapridi, astemizoli, terfenadini, pimozidi, erythromycini
eða quinidini. Gæta skal sérstakrar varúðar ef eftirfarandi á við: Í mjög sjaldgæfum tilvikum getur Fluconazol
ratiopharm valdið alvarlegum húðviðbrögðum með blöðrumyndun og húðlosi (Stevens-Johnson heilkenni).
Ef húðútbrot koma fram á meðan á meðferð með Fluconazol ratiopharm stendur skal strax hafa samband
við lækni, sem ákveður hvort nauðsynlegt sé að grípa til frekari aðgerða. Samhliða meðferð með halofantrini
eða terfenadini. Meðfædd eða áunnin breyting á starfsemi hjartans (lengingu QT bils). Samhliða notkun lyfja
sem einnig geta lengt QT bilið á hjartalínuritinu, t.d. lyf við hjartsláttartruflunum í flokki IA eða III. Truflun
í jafnvægi blóðsalta, einkum minnkuð þéttni kalíums og magnesíums. Hægur hjartsláttur sem þarfnast
meðferðar, hjartsláttartruflanir eða alvarleg hjartabilun. Meðganga og brjóstagjöf: Ekki skal nota Fluconazol
ratiopharm á meðgöngu eða við brjóstagjöf. Skömmtun: Við Candidasýkingu í leggöngum: Eitt Fluconazol
ratiopharm 150 mg hylki í stökum skammti. Algengar aukaverkanir: Höfuðverkur, húðútbrot, kviðverkur, uppköst,
niðurgangur og ógleði, breyting á lifrargildum. Lesið vandlega fylgiseðil sem fylgir lyfinu. SmPC: Maí 2013.
Domino's hagnast
í skugga afskrifta
n Skilyrði til arðgreiðsla eftir milljarðsafskrift og mikla tekjuaukningu
M
óðurfélag Domino‘s á Ís-
landi, Pizza-Pizza ehf.,
hagnaðist um 111 milljónir
króna í fyrra og jukust tekj-
ur félagsins um nærri 500
milljónir króna – tekjuaukningin nam
meira en 25 prósentum á milli ára.
Þetta kemur fram í ársreikningi félags-
ins sem skilað var til ársreikningaskrár
þann 9. september síðastliðinn. Hagn-
aður fyrirtækisins í fyrra kemur fram
í skugga afskrifta hjá félaginu upp á
meira en milljarð króna. Þær skuld-
ir eru tilkomnar vegna skuldsetningar
á félaginu á árunum fyrir hrunið 2008
en það var í eigu Magnúsar Kristins-
sonar, útgerðarmanns í Eyjum, áður
en Landsbankinn tók félagið af hon-
um upp í skuldir.
Domino‘s er í eigu Birgis Þór Bielt-
vedt, sem stofnaði Domino‘s á Íslandi
fyrir um 20 árum, en hann keypti félag-
ið aftur af Landsbankanum eftir hrun
þegar það var kengskuldsett. DV hef-
ur sagt fjölmargar fréttir af sölu, fjár-
hagslegri endurskipulagningu og af-
skriftum hjá Domino‘s á síðustu árum.
Miðað við ársreikning félagsins er það
nú loks komið aftur á beinu brautina,
rekstrarhagnaður er ágætur og tekju-
aukning umtalsverð á milli ára.
Afskrift upp á 1.000 milljónir
Líkt og DV greindi frá í september í
fyrra þá námu afskriftir vegna sölu og
fjárhagslegrar endurskipulagningar
Domino‘s tæplega 1.070 milljón-
um króna. Skuldir Domino‘s höfðu
numið 1.800 milljónum króna en í
lok árs 2011 voru þær komnar niður
í tæplega 530 milljónir króna, aðal-
lega vegna umræddra afskrifta. Í dag
nema skuldir félagsins tæpum 550
milljónum króna og eignirnar eru
metnar á 660 milljónir króna.
Félagið er í dag með jákvætt eig-
ið fé – eignir að frádregnum skuld-
um upp á 100 milljónir króna en fyr-
ir sölu Domino‘s og skuldaafskriftina
hafði eiginfjárstaðan verið neikvæð
upp á fleiri hundruð milljónir króna.
Domino‘s virðist því vera komið fyrir
vind og mun félagið að öllum líkind-
um geta greitt einhvern arð út til hlut-
hafa sinna á komandi árum þó stjórn
félagsins hafi ákveðið að greiða ekki
arð í ár vegna rekstrarársins í fyrra.
Söluverðið helmingi
lægra en árið 2005
Skuldsetning, sala og fjárhagsleg
endurskipulagning Domino‘s hefur
vakið mikla athygli á Íslandi síðastliðin
ár. Fyrst var um að ræða furðu vegna
þess að pítsusjoppa skuldaði nærri tvo
milljarða króna en þá staðreynd má
meðal annars rekja til þess að þegar
Birgir Bieltvedt seldi Domino‘s árið
2005 þá var kaupverðið hátt; um 110
milljónir króna – upphæð sem á engan
hátt endurspeglaði raunverulegt
verðmæti félagsins. Til samanburðar
má geta þess að þegar Birgir keypti
félagið aftur árið 2011 þá nam kaup-
verðið – greiðsla og yfirtaka á skuld-
um – um 560 milljónum króna. Kaup-
verðið árið 2011 var því um helmingi
lægra en kaupverð félagsins sex árum
síðar. Í millitíðinni hafði félagið skipt
um hendur nokkrum sinnum: Farið til
Baugstengdra aðila, síðar til Magnúsar
Kristinssonar, þaðan til Landsbankans
og loks aftur til Birgis Bieltvedt. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Staðan vænkast
Staða Domino's hefur
vænkast mjög eftir
að Birgir Þór Bieltvedt
keypti félagið árið 2011
og rúmur milljarður
var felldur niður hjá
félaginu.
Aron dæmdur
Hæstiréttur Íslands þyngdi á
fimmtudag dóm Héraðsdóms
Reykjavíkur yfir Aroni Karls-
syni og dæmdi hann í tveggja
og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa
blekkt þrjá banka þegar hann
seldi fasteign við Skúlagötu í
Reykjavík. Rúmlega 96 milljón-
ir króna, sem félag Arons hafði
í ávinning af viðskiptunum, eru
gerðar upptækar auk þess sem
hann þarf að greiða Arion banka
rúmlega 64 milljónir króna og
Íslandsbanka og Glitni rúmar 48
milljónir króna hvorum.
Í dómi Hæstaréttar segir
að ráðstafanir Arons hafi ver-
ið gerðar til að þess að vekja og
hagnýta á ólögmætan hátt villu
bankanna um atvik í því skyni
að hafa af þeim fé. Var ákveðið
að þyngja refsingu sem Aron
hafði fengið í héraði um hálft ár
auk þess sem honum var gert
að greiða bönkunum skaðabæt-
ur. Í yfirlýsingu frá Aroni eftir að
hann var dæmdur í héraði kom
fram að dómurinn væri honum
mikil vonbrigði því hann hefði
ekki gert neitt rangt.
Átök Guðlaugur Þór nýtur stuðnings í
grasrót flokksins.