Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2013, Blaðsíða 40
Stöð 3
40 Afþreying 20.–22. september 2013 Helgarblað
Schwarzenegger í Avatar 2
n Framhaldsmyndin væntanleg árið 2016
N
ýjustu fregnir
herma að enginn
annar en Arnold
Schwarzenegger
muni fara með hlut-
verk í væntanlegu fram-
haldi af stórmyndinni Avat-
ar. Schwarzenegger og James
Cameron, leikstjóri og hug-
myndasmiður Avatar, hafa verið
vinir um árabil en þeir störfuðu
fyrst saman við gerð hinna sívin-
sælu Terminator-mynda. Síðan
þá hafa þeir meðal annars starf-
að saman að heimildamynd um
ættbálka frumbyggja í Amazon
auk þess sem Schwarzenegger,
sem var ríkisstjóri Kaliforníu-
fylkis, heiðraði Cameron á al-
þjóðlegu kvikmyndahátíðinni í
Santa Barbara.
Avatar 2 er enn í undirbún-
ingi og hefur nákvæmur útgáfu-
dagur því ekki verið ákveðinn,
en myndin er þó að öllum lík-
indum væntanleg árið 2016.
Þótt ótrúlegt megi virðast mun
Schwarzenegger fara með hlut-
verk ills hershöfðingja en auk
hans hafa þrír aðalleikaranna úr
Avatar einnig skráð sig til leiks,
en það eru þau Zoe Saldana,
Sam Worthington og Sigourney
Weaver.
Fjögur ár eru síðan Avatar var
frumsýnd, árið 2009, og hlaut
hún einróma lof gagnrýnenda
fyrir einstakar tæknibrellur þó
mörgum hafi fundist söguþráð-
urinn helst til líkur ævintýrinu
um Pocahontas. Myndin hlaut
þó ekki aðeins góða gagnrýni
heldur einnig góða aðsókn en
hún sló fjölmörg met í miðasölu
og var um tíma tekjuhæsta kvik-
myndin í Bandaríkjunum og
Kanada. Þá komst hún einnig
vel frá verðlaunahátíðum en
hún var til að mynda tilnefnd til
níu óskarsverðlauna og vann til
þriggja. n horn@dv.is
Sjónvarpsdagskrá Föstudagur 20. september
Stöð 2RÚV SkjárEinn Stöð 2 Sport
dv.is/gulapressan
Sigmundur tælir fjárfesta
Norðurlandameistarar
Um síðustu helgi varð Rima
skóli Norðurlandameistari
grunnskólasveita, titill sem
sveitin hefur oft unnið áður
og stimplar skólinn sig enn
inn sem algert skákveldi.
Álfhólsskóli Kópavogi varð
Norðurlandameistari barna
skólasveita sem er mikið
afrek hjá þeirri ungu skák
sveit. Sannarlega glæsi
legur árangur hjá skólunum
báðum og enn til marks um
gott skákstarf í Reykjavík og
Kópavogi.
Í Kína stendur nú
yfir heimsmeistara
einvígi kvenna í skák. Þar tefla Hou Yifan hin kíverska og rússneska
skákkonan Anna Ushenina. Anna er núverandi heimsmeistari en Yifan
var heimsmeistari á undan henni. Yifan heimsótti Ísland í fyrra og kom
meðal annars að gröf Bobby Fischers. Þegar þetta er ritað er Yifan með
örugga forystu, 4.51.5 og er afar líklegt að hún tryggi sér titilinn enda yfir
hundrað stigum hærri en Anna.
Skákvertíðin á Íslandi er heldur betur komin vel af stað. Skákfélag
Akureyarar hefur hafið vetrarstarfsemina og má lesa um hana á skak
felag.blog.is. Kennsla í grunnskólunum er einnig komin á fullt og er kennt
í yfir 30 reykvískum grunnskólum í viku hverri. Æfingar taflfélaganna eru
hafnar og hafa verið vel sóttar af börnum og unglingum.
Eitt helsta mót hvers árs er Haustmót Taflfélags Reykjavíkur. Það er
vel sótt í ár og aflokkurinn vel skipaður með þá félaga og meistara Jón
Viktor Gunnarsson og Stefán Kristjánsson fremsta í flokki. Þeir hafa báð
ir farið vel af stað og eru með fullt hús ásamt FIDEmeistaranum Einari
Hjalta Jenssyni. Í bflokki tefla marga af sterkustu skákkonum lands
ins og verður spennandi að sjá hvernig þeim gengur en í nóvember mun
kvennalandsliðið tefla á EM í Varsjá. Snemma í október mun svo Tafl
félag Reykjavíkur blása til Stórmeistaramóts. Er það framtak afar glæsi
legt og betur verður fjallað um það mót í næstu pistlum.
dv.is/blogg/skaklandid
Stefán Bergsson skrifar
Skáklandið
14.20 Íslandsmótið í handbolta
(Valur-Haukar) Endursýndur
leikur sem var á RÚV - Íþróttir á
fimmtudagskvöldi.
15.40 Ástareldur (Sturm der Liebe) E
16.30 Ástareldur (Sturm der Liebe) E
17.20 Unnar og vinur (23:26)
17.43 Valdi og Grímsi (2:6)
18.12 Smælki (10:26)
18.15 Táknmálsfréttir
18.25 Fagur fiskur (3:8) (Makríll
og nesti) Matreiðslumaðurinn
Sveinn Kjartansson og Áslaug
Snorradóttir, ljósmyndari og
stílisti, sýna það og sanna að
það er leikur einn að elda góm-
sætt sjávarfang. Framleiðandi
er Saga film. Textað á síðu 888 í
Textavarpi. e.
19.00 Fréttir
19.30 Veðurfréttir
19.35 Kastljós
20.00 Útsvar (Borgarbyggð -
Hornafjörður) Spurningakeppni
sveitarfélaga. Að þessu sinni
eigast við lið Borgarbyggðar og
Hornafjarðar. Umsjónarmenn
eru Sigmar Guðmundsson og
Þóra Arnórsdóttir og spurninga-
höfundur og dómari er Stefán
Pálsson.
21.10 Í spor annarra 5,5 (A Walk in
My Shoes) Stressaður kennari
á erfitt með að setja sig í spor
annarra en neyðist til þess eftir
að hún lendir í bílslysi. Leikstjóri
er John Kent Harrison og meðal
leikenda eru Nancy Travis, Philip
Winchester og Yara Martinez.
Bandarísk sjónvarpsmynd frá
2010.
22.40 Ferskir vindar 6,6 (Easy
Virtue) Ungur Englendingur
giftist bandarískri þokkadís.
Þegar hann kemur með hana
heim til foreldra sinna er hún
eins og gustur úr framtíðinni
og blæs bresku stífninni út um
gluggann. Meðal leikenda eru
Jessica Biel, Ben Barnes, Kristin
Scott Thomas og Colin Firth
og leikstjóri er Stephan Elliott.
Bandarísk bíómynd frá 2008.
00.15 Banks yfirfulltrúi: Vinur
kölska 7,3 (2:3) (DCI Banks:
Friend of the Devil) Bresk
sakamálamynd. Alan Banks
lögreglufulltrúi rannsakar dular-
fullt sakamál. Meðal leikenda
eru Stephen Tompkinson,
Lorraine Burroughs, Samuel
Roukin og Colin Tierney. Atriði
í myndinni eru ekki við hæfi
barna. e.
01.45 Útvarpsfréttir í dagskrárlok
07:00 Barnatími Stöðvar 2
08:10 Malcolm in the Middle (6:16)
08:30 Ellen (48:170)
09:15 Bold and the Beautiful
09:35 Doctors (57:175)
10:15 Fairly Legal (4:13)
11:00 Drop Dead Diva (10:13)
11:50 The Mentalist (18:22)
12:35 Nágrannar
13:00 Extreme Makeover: Home
Edition (19:25)
13:45 Back-Up Plan 5,5 (Varaáætlun-
in) Rómantísk gamanmynd
15:25 Ævintýri Tinna
15:45 Scooby-Doo! Leynifélagið
16:05 Waybuloo
16:25 Ellen (49:170)
17:10 Bold and the Beautiful
17:32 Nágrannar
17:57 Simpson-fjölskyldan (20:22)
18:23 Veður
18:30 Fréttir Stöðvar 2
18:47 Íþróttir
18:54 Ísland í dag
19:11 Veður
19:20 Ríkið (5:10)
19:40 Arrested Development (14:15)
20:20 Logi í beinni Laufléttur og
skemmtilegur þáttur í umsjá
Loga Bergmann.
21:05 World’s Greatest Dad 6,9
Robin Williams í ljúfsárri gam-
anmynd um mann sem leitar
allra leiða til að fela vandræða-
legan dauðdaga sonar síns.
22:35 Fright Night 6,4 Toni Collette
og Colin Farrell í endurgerð sam-
nefndrar hrollvekju frá 1985.
Charlie Brewster býr ásamt
móður sinni í rólegu hverfi. Dag
einn fá þau nýjan nágranna
sem í fyrstu virðist bjóða af sér
góðan þokka enda verður móðir
Charlies strax hrifin af honum.
Skólafélagi Charlies, Ed, er hins
vegar ekki eins hrifinn og þegar
fólk fer að hverfa sporlaust úr
hverfinu sannfærist hann um að
Jerry, en svo heitir nýji nágrann-
inn, sé vampíra.
00:20 Doomsday 6,0 Framtíðartryllir
um hóp af fólki sem vinnur
saman gegn illum öflum sem
vilja sjá mannkynið bíða hræði-
leg örlög.
02:05 Saw V 5,6 Fimmta myndin um
hinn ógeðfellda raðmorðingja
Jigsaw, en þótt hann sé allur er
ekki þar með sagt að handbragð
hans sé horfið. Hann hefur kom-
ið skilaboðum fyrir á snjallan
hátt handa blóðþyrstum læri-
sveinum sínum um hvernig skuli
halda drápsleiknum áfram.
03:35 Traitor 7,0 Frábær spennumynd
um FBI-starfsmann sem fær
mál til rannsóknar, málið flækist
þó til muna þegar samstarfs-
maður rannsakandans liggur
undir grun.
05:25 Fréttir og Ísland í dag Fréttir
og Ísland í dag endursýnt frá því
fyrr í kvöld.
06:00 Pepsi MAX tónlist
08:25 Dr.Phil
09:05 Pepsi MAX tónlist
14:55 The Voice (13:13) Bandarískur
raunveruleikaþáttur þar sem
leitað er að hæfileikaríku tón-
listarfólki. Í stjörnum prýddan
hóp dómara hafa bæst Shakira
og Usher.
17:25 Dr.Phil
18:05 The Office (24:24) Skrifstofu-
stjórinn Michael Scott er hættur
störfum hjá Dunder Mifflin en sá
sem við tekur er enn undarlegri
en fyrirrennari sinn. Nýr eigandi
lítur dagsins ljós í þessum
lokaþætti af The Office.
18:30 Happy Endings (4:22) Banda-
rískir gamanþættir um vinahóp
sem einhvernveginn tekst alltaf
að koma sér í klandur.
18:55 Minute To Win It Einstakur
skemmtiþáttur undir stjórn
þúsundþjalasmiðsins Guy Fieri.
Þátttakendur fá tækifæri til að
vinna milljón dollara með því að
leysa þrautir sem í fyrstu virðast
einfaldar. Faðir með dansæði
reynir við milljónina í félagi við
konu frá Washington D.C.
19:40 Family Guy 7,4 (22:22) Ein
þekktasta fjölskylda teikni-
myndasögunnar snýr loks aftur
á SkjáEinn. Peter Griffin og fjöl-
skylda ásamt hundinum Brian
búa á Rhode Island og lenda í
ótrúlegum ævintýrum þar sem
kolsvartur húmor er aldrei langt
undan.
20:05 America’s Funniest Home
Videos (41:44) Bráðskemmti-
legur fjölskylduþáttur þar sem
sýnd eru fyndin myndbrot sem
venjulegar fjölskyldur hafa fest
á filmu.
20:30 The Biggest Loser (13:19)
Skemmtilegir þættir þar sem
fólk sem er orðið hættulega
þungt snýr við blaðinu og kemur
sér í form á ný.
22:00 History of Violence 7,5
Bandarísk spennumynd frá
árinu 2005. Rólyndismaður
vinnu hetjudáð með því að beita
ofbeldi sem hefur í för með sér
afdrifaríkar afleiðingar fyrir
fjölskyldu mannsins. Leikstjóri
er David Cronenberg en með
helstu hlutverk fara stórleik-
ararnir Viggo Mortensen, Maria
Bello og Ed Harris.
23:40 Flashpoint (14:18) Spennandi
þáttaröð um sérsveit lög-
reglunnar sem er kölluð út þegar
hættu ber að garði.
00:30 Excused Nýstárlegir
stefnumótaþáttur um ólíka
einstaklinga sem allir eru í leit
að ást.
00:55 Bachelor Pad (1:7) Sjóðheitir
þættir þar sem keppendur úr
Bachelor og Bachelorette eigast
við í þrautum sem stundum þarf
sterk bein til að taka þátt í.
03:05 Pepsi MAX tónlist
09:55 Formúla 1 2013 - Æfingar
(Singapúr 2013 - Æfing # 1) Beint
13:25 Formúla 1 2013 - Æfingar Beint
16:00 Spænsku mörkin 2013/14
16:30 Evrópud. (Tottenham - Tromsø)
18:15 Evrópud. (Zulte Waregem - Wigan)
20:00 Meistarad Evrópu - fréttaþ.
20:30 La Liga Report
21:00 Evrópudeildarmörkin
21:50 Pepsí-mörkin 2013
23:05 Evrópud. (Valencia - Swansea)
00:50 Evrópud. (M. Haifa - AZ Alkmaar)
16:55 Jamie’s American Road Trip
17:45 Raising Hope (2:22)
18:10 Don’t Trust the B*** in Apt 23
18:35 Funny or Die (2:12)
19:00 The Great Escape (2:10)
19:40 Smash (2:17)
20:25 The X-Factor US (4:26)
21:10 Hunted (1:8) Bresk spennu-
þáttaröð af bestu gerð. Sam er
njósnari á vegum einkarekinnar
leyniþjónustu.
22:10 Strike back (2:10)
23:00 Cougar Town (2:15)
23:25 The Great Escape (2:10)
00:10 Smash (2:17)
00:55 The X-Factor US (4:26)
01:40 Hunted (1:8)
02:40 Strike back (2:10)
03:30 Tónlistarmyndb. frá Popptíví
18:00 Strákarnir
18:30 Friends (1:24) (Vinir)
18:50 Seinfeld (10:13)
19:15 The Big Bang Theory (9:23)
19:35 Two and a Half Men (1:24)
20:00 Það var lagið
21:00 A Touch of Frost (2:4)
22:45 24 (2:24)
23:30 It’s Always Sunny In
Philadelphia (6:10)
23:55 Það var lagið
00:55 A Touch of Frost (2:4)
02:40 24 (2:24)
03:25 It’s Always Sunny In
Philadelphia (6:10)í
06:00 Eurosport
07:40 Tour Championship 2013 (1:4)
11:40 Tour Championship 2013 (1:4)
15:40 PGA Tour - Highlights (36:45)
16:35 Inside the PGA Tour (38:47)
17:00 Tour Championship 2013 (2:4)
22:00 Tour Championship 2013 (2:4)
02:30 Eurosport
SkjárGolf
20:00 Hrafnaþing Heimastjórnin
21:00 Motoring. Mótoringfréttir
21:30 Eldað með Holta Grillupp-
skriftir Holta í matreiðslu Úlfars.
Dagskrá ÍNN er endurtekin um helg-
ar og allan sólarhringinn.
ÍNN
09:40 Broadcast News
11:50 The Other End of the Line
13:40 Moneyball
15:50 Broadcast News
18:00 The Other End of the Line
19:50 Moneyball
22:00 The Fighter
23:55 Flypaper
01:20 The River Why
03:05 The Fighter
Stöð 2 Bíó
16:40 Hull - Cardiff
18:20 Sunderland - Arsenal
20:00 Match Pack
20:30 Premier League World
21:00 Enska úrvalsdeildin - upphitun
21:30 Ensku mörkin - neðri deild
22:00 Tottenham - Norwich
23:40 Enska úrvalsdeildin - upphitun
00:10 Messan
01:10 Man. Utd. - Crystal Palace
Stöð 2 Sport 2
Stöð 2 Gull
H
rollvekjan Fright Night
verður sýnd á Stöð 2
á laugardagskvöldið
en þetta er endurgerð
samnefndrar kvik-
myndar frá 1985. Hún fjallar
um Charlie Brewster sem býr
ásamt móður sinni í rólegu
hverfi. Dag einn fá þau nýjan
nágranna sem í fyrstu virðist
bjóða af sér góðan þokka enda
verður móðir Charlies strax
hrifin af honum. Skólafélagi
Charlies, Ed, er hins vegar ekki
eins hrifinn og þegar fólk fer
að hverfa sporlaust úr hverfinu
sannfærist hann um að Jerry,
en svo heitir nýi nágranninn,
sé vampíra. Leikstjóri myndar-
innar er Craig Gillespie en aðal-
leikarar eru Toni Collette, Colin
Farrell og Anton Yelchin.
Fright Night á Stöð 2
Avatar Myndin hlaut einróma lof
gagnrýnenda á sínum tíma.