Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2013, Page 37
Lífsstíll 37Helgarblað 20.–22. september 2013
B
ærinn Chamonix tók á móti
okkur með lemjandi rign-
ingu. Það var kolsvört þoka
til fjalla og ekkert að sjá þar
nema útlínur skógarins við
rætur fjallsins. En spennan var til
staðar þrátt fyrir að veðurguðirnir
væru ekki sérlega vinsamlegir. Og
það vita Íslendingar manna best
að veður eru fljót að breytast. Við
Óli ákváðum að fall væri fararheill
og bjartsýnin yfirgnæfði slagviðrið.
Mont Blanc var innan seilingar og
aðeins þurfti að bíða á meðan veðr-
ið róaðist.
Við vorum dauðþreyttir við kom-
una til Chamonix snemma á mánu-
dagsmorguninn. Þá höfðum við ver-
ið á ferðalagi í næstum sólarhring.
Ferðin hafði reyndar ekki byrjað
sérlega vel. Við mættum í Leifs-
stöð tveimur tímum fyrir brottför
og tókum því rólega í verslunum og
á kaffihúsi. Ég fylgdist með klukk-
unni. Brottför WOW air til Parísar
var klukkan 16.20. Allt í einu gall við
í hátalarakerfinu að það væru allra
síðustu forvöð fyrir farþega þess
flugs að koma sér um borð. Lokað
yrði fyrir skráningu á næstu andar-
tökum. Samkvæmt klukkunni voru
enn 13 mínútur í brottför. Við tókum
á sprettinn og náðum að rananum
á undraskömmum tíma. Þar beið
okkar hlaðfreyja sem var allt ann-
að en glöð á svip. „Þið eruð heppn-
ir,“ sagði hún og sagðist vera um það
bil að loka fyrir aðgang. Við afsökuð-
um okkur í bak og fyrir. Ísinn bráðn-
aði og hún sagði okkur að lagt væri
upp úr stundvísi hjá flugfélaginu
sem yfirtók hið alræmda Iceland Ex-
press sem sjaldan var á réttum tíma
á áfangastöðum og hlaut frægð fyrir.
Okkur var fyrirgefið og skömmu síð-
ar svifum við í átt til Frakklands.
Við komuna til Parísar leituðum
við uppi bílaleiguna þar sem við
höfðum fest okkur bíl á ótrúlegu
verði. Hann átti að kosta 18 þúsund
krónur í rúmlega viku. Þetta hafði
verið undravert nettilboð sem hlýj-
aði okkur verulega um hjartarætur.
Afgreiðslumaðurinn í Eurocar-bíla-
leigunni leit út eins og tvíburabróðir
Baracks Obama Bandaríkjaforseta.
Hann sló á létta strengi á meðan
hann skráði inn vegabréf okkar og
ökuskírteini. Svo færðist alvöru-
blær yfir andlit hans. „Þið gerið ykk-
ur grein fyrir að bílinn er algjör-
lega á ykkar ábyrgð,“ sagði hann á
ensku með frönskum framburði.
Það fór um okkur félagana þegar
við reiknuðum lauslega út að bif-
reið af þessari gerð, nýr Renault
Megane, kostaði örugglega meira
en þrjár milljónir króna. Obama
horfði föðurlega á okkur þegar
hann útskýrði að franska umferðin
væri full af hættum og ef bílar lentu
ekki í árekstri væri líklegt að þeim
væri stolið. Allt væri á okkar eigin
ábyrgð. Nettilboðið væri svona hag-
kvæmt vegna áhættusækni okkar. Ef
við vildum losna undan þrúgandi
ábyrgðinni yrði að leggja út annað
eins til viðbótar. „En þá eruð þið líka
seif,“ sagði hann af enn meiri sann-
færingarkrafti en Obama sjálfur
þegar hann reyndi að fá þingið til að
samþykkja innrás í Sýrland. Við lét-
um umsvifalaust að vilja afgreiðslu-
mannsins og nettilboðið gufaði upp
í skítalykt.
Það eru rúmlega 600 kílómetrar
frá Charles de Gaulle-flugvelli í
París til Chamonix. Við geystumst
í gegnum nóttina á allt að 130 kíló-
metra hraða. Í myrkrinu sáum við
ekkert af Frakklandi nema vegaskilti
sem vísuðu til þess að við værum í
sögufrægum héruðum. Ferðin gekk
ágætlega á þræltryggðum Renault
Megane. Það var eitt stopp á leiðinni
og áður en við vissum af vorum við
komnir í heimabæ Mont Blanc,
Chamonix þar sem um 10 þús-
und manns búa. Eftir að hafa sofið
í þrjá tíma lögðum við leið okkar á
Aiguille du Midi sem er 3.842 metra
hár. Þetta var fyrsta skrefið í að-
lögun okkar fyrir þunna loftið í 4.800
metra hæð á Mont Blanc. Þangað er
farið í kláfi.
Það var rigning á jörðu niðri en í
3.000 metra hæð tók við snjóstorm-
ur. Ferðalagið með kláfnum var
hrikalegt þar sem hann silaðist lóð-
beint upp með hrikalegum klettum
Midi. Vírarnir sem héldu kláfnum
uppi voru kafísaðir og reglulega
skullu klakaklumpar á þak kláfsins.
Svo vorum við skyndilega komn-
ir upp. Vestfirskur vetrarhamur tók
á móti okkur ásamt þunna loftinu.
Svimi og mæði náðu yfirhöndinni.
Aðlögunin var hafin. Um helgina
tekur alvaran við. Þá kemur í ljós
hvort Hvíti risinn tekur við okkur. n
Reynir
Traustason
Baráttan
við holdið
Bílaleigubíll á spottprís
Þriggja tinda leiðin Um
þessi snjógöng í rúmlega 3.800
metra hæð fara þeir sem leggja
til atlögu við Mont Blanc á
svokallaðri þriggja tinda leið.
Mynd: Ólafur SveinSSon.
Borgarferðir lífga
upp á haustið
n Áhugasamir geta valið á milli 36 áfangastaða n Evrópa og Bandaríkin vinsæl
Barcelona
Heimsferðir bjóða upp á fjögurra
nátta ferð til Barcelona 1.–5. nóvem-
ber. Borgin býður upp á allt sem hug-
urinn girnist en hún er mikil menn-
ingarborg þar sem fyrst ber að nefna
listasöfn Miró og Picasso. Þá fanga
byggingar borgarinnar athygli manns
á hverju götuhorni og gamli hluti
borgarinnar, Barrio Gotico, þar sem
fyrstu byggingarnar risu á 13. öld,
er einstakur. Römbluna þekkja all-
ir sem iðar af lífi og fjöri en alls konar
veitingastaðir, kaffihús og barir liggja
eftir henni endilangri. Svo verður að
minnast á ströndina og ólympíuþorp-
ið sem hafa líka sitt aðdráttarafl. Þá er
matur og drykkur hér í hæsta gæða-
flokki og tapas-menningin er einstök.
Um alla borg er hægt að finna verslan-
ir og verslunarmiðstöðvar sem gera
borgina að einstakri verslunarborg.
frankfurt
Icelandair býður upp á pakkaferðir til
borgarinnar fram til 31. október, þrjár
nætur frá 64.900 krónum.
Frankfurt er helsta miðstöð fjár-
mála í Þýskalandi en það er margt ann-
að sem borgin hefur upp á að bjóða.
Þetta er spennandi borg sem vert er að
heimsækja allan ársins hring en borgin
og heillandi sveitirnar í kring njóta sín
að sjálfsögðu best í sumri og sól. Frank-
furt er lífleg og skemmtileg með iðandi
mannlíf, útikaffihús á hverju horni og
fjölbreytta menningarviðburði á borð
við leiksýningar, listsýningar, óperur
og tónleika. Þar er að finna marga af-
bragðsgóða veitingastaði. n
frankfurt Er iðandi afmannlífi með
útikaffihús á hverju horni.