Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2013, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2013, Side 6
Helgarblað 6.–9. desember 20136 Fréttir Léttburafæðingum fjölgaði n Hrunið setti strik í reikninginn n Álagstengdir viðburðir hafa áhrif L éttburafæðingum fjölgaði á Ís- landi í kjölfar efnahagshrunsins samkvæmt nýrri rannsókn Mið- stöðvar í lýðheilsuvísindum við Læknadeild Háskóla Íslands. Rannsóknina vann Védís Helga Eiríksdóttir, doktorsnemi í lýðheilsu- vísindum, í víðtækri samvinnu við innlenda og erlenda vísindamenn og birtust niðurstöður þeirra í vísinda- tímaritinu PLoS One á miðvikudag. Í tilkynningu frá heilbrigðisvís- indasviði Háskóla Íslands kemur fram að fyrri rannsóknir bendi til þess að álagstengdir viðburðir geti haft áhrif á framvindu meðgöngu og útkomu fæðinga en börn fæðast of létt eða fyrir tímann eru í aukinni áhættu hvað varðar nýburadauða auk ýmiss konar heilsufarsvanda- mála þegar fram líða stundir. Í rannsókninni könnuðu Védís og samstarfsfólk hennar tíðni létt- bura- og fyrirburafæðinga fyrir og eftir efnahagshrunið á Íslandi. Með léttburafæðingum er átt við börn sem eru léttari en 2.500 grömm við fæðingu, fyrirburar teljast þau börn sem fæðast fyrir 37. viku meðgöngu. Rannsóknin náði til allra lifandi fæddra einbura á Íslandi frá byrjun árs 2006 til loka árs 2009 þar sem tíðni léttbura- og fyrirburafæðinga eftir efnahagshrunið í október 2008 er borin saman við tíðni slíkra fæðingaútkomna á fyrri hluta rann- sóknartímabilsins. Rannsókn Védísar leiddi í ljós að léttburafæðingar voru mark- tækt fleiri í kjölfar efnahagshruns- ins en árin á undan, sérstaklega meðal mæðra undir 25 ára aldri og mæðra sem voru ekki á vinnumark- aði. Fjölgunin var mest afgerandi sex til níu mánuðum eftir hrunið. Hins vegar fjölgaði fyrirburafæðingum ekki í kjölfar hrunsins. n einar@dv.is Léttburar Léttburafæðingar voru mark- tækt fleiri í kjölfar efnahagshrunsins en árin á undan. Mynd PHotos.coM „Það var heldur napurt“ Heitavatnslaust á Akranesi „Já, það var heldur napurt en við vissum af þessu fyrir fram og gerðum það sem mögulegt var að gera til að bregðast við þessu. Þetta hefur ekki skapað vandamál en auðvitað valdið óþægindum því frostið er í meira lagi,“ segir Guðjón Brjáns- son, forstjóri Heilbrigðisstofn- unar Vesturlands á Akranesi. Sem kunnugt er var heita- vatnslaust á Akranesi á mið- vikudagskvöld vegna bilunar. Á miðvikudag hafði verið unnið að viðgerð á aðveituæð heita vatnsins frá Deildartunguhver og lauk henni undir kvöld. Þegar hleypt var á að nýju kom í ljós önnur bilun. Um tíu leytið á miðvikudagskvöld var við- gerð lokið og byrjað að hleypa vatni á lögnina en sökum þess hversu langan kafla í lögninni þurfti að tæma var ekki búist við að fullur þrýstingur yrði kom- inn á vatnið á Akranesi fyrr en um miðja nótt. Ekki bætti úr skák að frostið slagaði hátt í tíu stig á miðvikudagskvöld og var því víða orðið ansi napurt á heimilum þegar á leið kvöldið. Þurftu meðal annars einhverjir að grípa til þess ráðs að ganga í úlpum og ullarpeysum innan- dyra. Starfsmenn Orkuveitunnar höfðu samband við sjúkrahúsið og dvalar- og hjúkrunarheimilið á Akranesi og fleiri aðila með viðkvæma starfsemi þegar síð- ari bilunin kom upp til að vara þá við. Guðjón segir að á sjúkrahús- inu hafi ekki þurft að grípa til sérstakra ráðstafana en reynt hafi verið að halda hitanum inni og hita á sjúklingum og starfs- fólki. „Við vonum bara að hitinn stígi. Hér inni og úti líka. Við þolum ekki mikið lengri tíma.“ Endurráðning Páls er háð lagalegri óvissu Á næstunni kemur í ljós hvort Páll Magnússon getur haldið starfi sínu sem útvarpsstjóri N okkrum klukkustundum eftir að mótmælaganga hafði far- ið fram við Útvarpshúsið í Efstaleiti þar sem með- al annars var krafist að út- varpsstjóri viki gerði stjórnarformað- ur RÚV þá tillögu að gerður yrði nýr ráðningarsamningur við hann. Þetta gerðist á stjórnarfundi á fimmtu- daginn í síðustu viku. Stjórnarfor- maður RÚV er Ingvi Hrafn Óskars- son. Ólga hefur verið á RÚV síðustu daga vegna fjöldauppsagnanna í síð- ustu viku og var mótmælagangan við útvarpshúsið til að mótmæla þeim. Sú staðreynd að tillöguna bar upp á þessum tiltekna stjórnarfundi er hins vegar tilviljun þar sem stjórn- inni ber að gera ráðningarsamning við útvarpsstjóra, Pál Magnússon, samkvæmt bráðabirgðaákvæði nýrra laga um RÚV sem samþykkt voru á Alþingi í vor. Ingvi Hrafn segir í samtali við DV að lögin um RÚV kveði á um að þessi samningur skuli gerður við út- varpsstjóra á skipunartíma þessarar stjórnar RÚV. „Það er kveðið á um það í lögunum að það skuli gera ráðningarsamning við útvarpsstjóra. Það er ekki búið að ganga frá því.“ Skipunartími þessarar stjórnar RÚV rennur hins vegar út í byrjun næsta árs og því er ekki mikill tími til stefnu. ný lög – breytt landslag Ingvi Hrafn segir að lögin kveði á um að ráðningarsamningurinn skuli vera til fimm ára. Í nýju lögunum um RÚV, sem staðfest voru á Alþingi í vor, segir orðrétt: „Útvarpsstjóri skal ráðinn til fimm ára í senn og er heimilt að endurráða hann einu sinni.“ Páll Magnússon hefur nú stýrt RÚV í átta ár en ef hann yrði endur- ráðinn til ákveðið margra ára myndi starfstími hans hjá RÚV fara yfir tíu ár í heildina eða í samtals þrettán. Hins vegar hefur Páll aldrei verið endurráðinn út frá þessu lagaákvæði þar sem það er nýmæli í lögum um ríkisútvarpið eins og segir í greinar- gerð með lögunum: „Nýmæli er að kveðið sé á um að útvarpsstjóri skuli ráðinn til fimm ára og að einungis sé heimilt að endurráða hann einu sinni.“ starf útvarpsstjóra skal auglýst Stjórnin hefur því heimild til að endurráða Pál samkvæmt lögunum en spurningin er hvort ákvæðið um að hver útvarpsstjóri skuli að- eins sitja í tíu ár vegi þar upp á móti sem og annað ákvæði um að störf stjórnenda RÚV skuli auglýst. „Stöð- ur stjórnenda Ríkisútvarpsins skulu auglýstar opinberlega.“ Þar af leiðandi er ákveðinn vafi í málinu um að stjórnin hafi í raun heimild til að endurráða Pál. Spurn- ingarnar sem eru upp í málinu eru því þessar: Má endurráða Pál án auglýsingar? Má endurráða Pál þrátt fyrir að endurráðningin myndi þýða að hann yrði útvarpsstjóri í meira en tíu ár? Sökum þessarar lagalegu óvissu í málinu mun stjórnin leita til lög- manns eftir lagalegu áliti á málinu. „Þetta verður á borði stjórnar núna á næstunni. Niðurstaðan um þetta þarf að liggja fyrir áður en skipunar- tíma þessarar stjórnar lýkur. Þannig skil ég lögin. Það er skylda okkar að klára þetta mál áður en ný stjórn er kosin,“ segir Ingvi Hrafn. tillaga í skugga uppsagna Stjórnarfundinn þar sem tillagan var lögð fram bar upp eftir nokkra erfiðustu daga í sögu RÚV hing- að til. Niðurskurður hjá stofnuninni leiddi til fjöldauppsagna á meira en 40 starfsmönnum og kastaðist í kekki á milli Páls Magnússonar og Helga Seljan dagskrárgerðarmanns á starfsmannafundi sem haldinn var hjá RÚV í síðustu viku. Ekki er ofsagt að mikil ólga, sárindi og reiði hafi verið innan stofnunarinnar síð- ustu dagana vegna þessa. Umræð- an um niðurskurðinn og tengd mál hefur því alls ekki verið auðveld fyrir stjórnendur og starfsmenn RÚV. Við þessa umræðu bætist sú laga- lega óvissa sem er uppi um áfram- haldandi ráðningu útvarpsstjóra. n Óvissa Óvissa er uppi um hvort stjórn RÚV geti gert ráðningarsamning við Páll vegna ákvæða í nýjum lögum um stofnunina. Mynd sigtryggur Ari „Það er kveðið á um það í lögunum að það skuli gera ráðningar- samning við útvarpsstjóra. ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.