Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2013, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2013, Page 12
Helgarblað 6.–9. desember 201312 Fréttir „Ég var í helvíti“ n Verður aldrei samur eftir Landakotsskóla n Ósáttur við viðbrögð kirkjunnar n Kallar eftir ábyrgð ríkisins M ér finnst ég svo lítilsvirtur,“ segir Valgarður Braga- son, 42 ára, einn úr hópi þeirra sem lögðu fram kröfu á hendur kaþólsku kirkjunni vegna ofbeldis sem þeir sættu í Landakotsskóla. Valgarður fékk greiddar 82.170 krónur í bætur og segir: „Nú eru tvær vikur síðan ég fékk bæturnar og síðan hef ég reynt að halda ró minni. Af því að mig langar ekki til þess að standa í einhverjum leiðindum, vera reiður og sár. Ég hef nóg annað að gera við tíma minn, en þetta er bara svo glatað að ég get ekki sætt mig við þessa framkomu. Ég finn það æ betur eftir því sem tíminn líður.“ Kallað eftir kröfum Ásakanir um ofbeldi og kynferðislega misnotkun innan kaþólsku kirkjunnar á Íslandi komu fram í júní 2011. Í kjöl- farið skipaði biskup rannsóknarnefnd kaþólsku kirkjunnar þann í ágústlok 2011 og var henni falið að rannsaka þessar ásakanir. Það var svo þann um miðjan nóvember 2012 sem biskup stofnaði fagráð kaþólsku kirkjunnar. Fagráðið kallaði eftir kröfum frá þeim sem töldu að á sér hefði verið brotið, óháð því hvort viðkomandi teldi að brotið væri fyrnt gagnvart lögum. Var óskað eftir upplýsingum um tengsl viðkomandi við kirkjuna á Íslandi á þeim tíma sem atburður átti sér stað, gerendur, lýsingar á atvikum og gögn- um er viðkomandi taldi styðja mál sitt. Alls lýstu 22 einstaklingar kynferð- is- eða ofbeldisbrotum vígðra þjóna eða annarra starfsmanna kaþólsku kirkjunnar. Fagráðið tók tíu kröfugerð- ir til greina sem vörðuðu kynferðis- lega misnotkun af hálfu séra Georgs, fyrrverandi skólastjóra Landakots- skóla og fulltrúa biskups, og Margrétar Müller, kennara við skólann, á árun- um 1959–1984. Fagráðið tók til greina sex aðrar kröfugerðir varðandi and- legt eða líkamlegt ofbeldi af hálfu séra Georgs og Margrétar. Ein kröfugerðin varðaði kynferðisleg samskipti tveggja fullorðinna einstaklinga. Valgarður gerði kröfu um 6 milljónir í skaða- og miskabætur vegna kynferð- islegrar misnotkunar og ofbeldis sem hann mátti sæta sem barn. Samkvæmt lögmanni hans var ofbeldið gagnvart honum bæði svæsið og niðurlægjandi líkt og fram kemur í greinargerð sem lögð var fyrir fag ráðið. Við kröfugerðina var stuðst við viðmið um sanngirn- isbætur vegna miska á stofnunum á vegum ríkisins. Valgarður gerði einnig kröfu um að faðir hans fengi skóla- gjöldin endurgreidd, alls 2,7 milljón- ir króna og að hann fengi 300 þúsund krónur fyrir málskostnaði. Hann fékk hins vegar 82.170 krónur í bætur, sem nær ekki einum þriðja af málskostnaði. Til samanburðar voru greiddar sanngirnisbætur úr ríkissjóði til þeirra sem urðu fyrir varanlegum skaða af illri meðferð eða ofbeldi á vist- og meðferðarheimilum. Við ákvörðun sanngirnisbóta var litið til alvarleika ofbeldis eða illrar meðferðar, meðal annars með til til- liti til tímalengdar vistunar og alvar- leika afleiðinga. Hæstu bætur voru sex milljónir króna. Misnotaður frá sjö ára aldri Foreldrar Valgarðs tóku trúna þegar hann var þriggja ára og hann um leið, en hann er sonur þeirra Braga Krist- jónssonar bóksala og Nínu Bjarkar Árnadóttur skálds. Foreldrar hans tóku þátt í kirkjustarfi á uppvaxtarár- um hans og sjálfur þjónaði Valgarður til altaris í messum og tók þátt í barna- starfi kirkjunnar. Sex ára hóf hann nám í Landa- kotsskóla þar sem hann var til tólf ára aldurs. Öll þessi sex ár lifði Valgarður í ótta. „Stundum gengu þau aftan að mér og rifu í hnakkadrambið á mér, hölluðu sér upp að mér og hvísluðu í eyra mitt að ég ætti að vera rólegur. Það var margt skrýtið þarna sem ég áttaði mig ekki á að væri rangt, þó að það væri auðvitað vont að verða fyrir því. Í raun þá vissi maður aldrei í hvernig skapi þau væru. Stundum lá vel á þeim og þá var allt í lagi en aðra daga var þetta verra. Ég var alltaf að reyna að lesa í aðstæðurnar og reyna að átta mig á hverju ég átti von. Ég var alltaf á tauginni, alltaf á varðbergi. Mér leið alltaf illa í Landakotsskóla. Það var svo þegar ég var sjö ára sem séra Georg byrjaði að atast í mér. Þá náði hann í mig í tíma eða fór með mig beint úr frímínútum inn í gamla prestsbústaðinn þar sem hann lét mig setjast við borð, tók af sér prestskragann, fiktaði í hárinu á mér Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir ingibjorg@dv.is „Þetta var eins og ég hefði verið beðinn afsök- unar og sleginn utan undir strax á eftir 1954 Margrét Müller kemur til Íslands 1956 Séra Ágúst Georg kemur til landsins og hefur kennslu við Landa- kotsskóla 1961 Séra Georg tekur við sem skólastjóri Landakotsskóla 1962 Margrét hefur kennslu í Landa- kotsskóla 1963 A, 13 ára stúlka, greinir foreldrum sínum frá ofbeldi sem hún hafði ítrekað sætt á árunum 1960–1963. Faðir hennar fer á fund kirkjunna en fær þau svör að stúlkan hafi fjörugt ímyndunarafl → Nemandi yfirgefur skólanum vegna rangra sakargifta af hálfu Margrétar 1964 Sumarbúðir reknar á Riftúni í Ölfusi fram til ársins 1997 1968 Móðir kvartar við kirkjuna undan harðræði séra Georg og Mar- grétar gagnvart barninu 1969 A segir séra Alfons Mertens frá ofbeldinu → Séra Georg verður staðgengill biskups 1970–1980 Foreldri kvartar undan einelti Margrétar. Barnið er á endanum tekið úr skólanum 1974–1975 Fermingarpiltur segir séra Oremus frá harðræði og vanrækslu. 1975–1980 Fermingar- pilturinn segir abbadísinni í Hafnarfirði og fleiri nunnum frá ofbeldinu. Hún segist ekki hafa skilið orð hans. 1976–1989 Faðir fer á fund séra Georgs og kvartar undan framkomu Margrétar gagn- vart barni. Séra Georg eys yfir hann fúk- yrðum. Faðirinn fer einnig á fund biskups sem lofar betrun og iðrast aðgerðarleysis á dánarbeðinum 1983 Móðir kvartar við séra Georg und- an andlegri hörku og hótunum Margrétar. Tvö eldri börn hennar hætta í sunnudaga- skólanum af sömu sökum. Biskup Jolson lofar rannsókn en ekkert gerist 1985 A segist hafa sagt séra Hjalta Þorkelssyni frá ofbeldinu og hann sagt: „æ, æ, æ, æ, þetta er agalegt“. Hjalti neitar því að hafa fengið vitneskju um ofbeldið 1985–1988 Séra Georg stýrði biskupsumdæminu á meðan það var biskupslaust 1988 A greinir nunnu frá of- beldinu. Nunnan leggur til að þær biðji fyrir séra Georg 1989 Séra Patrick segir að A hafi greint sér frá reynslu sini → Móðir kvartar við séra Georg og síðar við Jolson biskup vegna harðræðis Margrétar. Hún flytur úr hverfinu og lætur barnið skipta um skóla 1989–1990 Starfsmaður fræðslu- skrifstofu segir að kvartað hafi verið við fræðsluyfirvöld vegna harðræðis Mar- grétar eftir að barn var slegið með flötum lófa. Fræðslustjóri kannast ekki við málið sem var ekki skráð 1990 Nemandi er heima í nokkra daga eftir að Margrét hæðist að honum og rífur stíl sem hann skrifaði → A segist hafa fengið heimsókn frá séra Hjalta og líklega séra Patrick Breen og greint frá ofbeldinu. Þeir neita báðir að Hjalti hafi verið með í för. Patrick segir Jolson biskupi frá Sagan öll

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.