Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2013, Blaðsíða 48
Helgarblað 6.–9. desember 201348 Skrýtið
K
önnunarleiðangur að flaki
dráttarbáts undan strönd
Nígeríu í maí breyttist í
björgunarleiðangur þegar í
ljós kom að einn meðlimur
tólf manna áhafnar var á lífi í flak-
inu, þremur dögum eftir að báturinn
sökk. Maðurinn, Harrison Okene,
var kokkur um borð en hann náði
á ótrúlegan hátt að finna loftpytt í
bátnum. „Þegar báturinn sökk voru
þrír menn fyrir framan mig og ég sá
hvernig þeim skolaði í burtu þegar
sjórinn flæddi inn. Ég vissi að þeir
voru dánir um leið,“ sagði Harrison
við fjölmiðla eftir að honum hafði
verið bjargað. Húð hans var farin að
flagna af vegna saltvatnsins og þá
hafði hann ekkert til að drekka nema
kóladrykki. „Það var niðamyrkur og
ég var viss um að nú væri komið að
leiðarlokum. Ég beið eftir því að sjór-
inn fyllti rýmið en það gerðist aldrei.
Það var niðamyrkur en samt gat ég
séð móta fyrir líkum skipsfélaga
minna. Það var megn lykt af þeim og
svo komu fiskar sem borðuðu líkin.
Ég heyrði það vel, hljóðin voru hryll-
ingur.“
„Hann er lifandi!“
Kafarinn sem bjargaði Harrison,
Nico Van Heerden, tók myndband
af leiðangrinum en þar heyrist
einnig í samstarfsmanni hans, Col-
by Werrett, sem leiðbeindi Nico
frá yfirborðinu. Kafarinn synti um
flakið og sagði við Colby að hann
hefði fundið það sem hann hélt
vera lík eins úr áhöfninni. Hann
teygði sig í hönd þess en varð þá
gríðarlega brugðið og öskraði í
talstöðina. Colby reyndi að róa
hann niður og spurði hvað gengi á.
„Hann er lifandi, hann er lifandi,“
öskraði Nico, ekki viss um hvað
væri að gerast. Colby talaði við
hann, róaði Nico og bað hann um
að gera slíkt hið sama fyrir Harri-
son. Nico rétti upp þumalinn og
sagði við Harrison að allt yrði í lagi,
auk þess að klappa á öxl hans. Eft-
ir smá tíma hóf Nico að undirbúa
kokkinn, sem var einungis í nær-
buxum. „Þú mátt ekki missa stjórn
á þér, þú verður að hlusta á mig,“
sagði Nico við Harrison áður en
hann setti á hann öndunargrímu
og björgunarbúnað. Á leiðinni
upp ræddu bæði Colby og Nico við
Harrison, til þess að halda honum
rólegum og við meðvitund. Mikil
hætta var á því að hann myndi
þjást af köfunarveiki ef of hratt yrði
farið með hann upp, þar sem hann
hafði verið svo lengi djúpt neðan-
sjávar. Til þess að koma í veg fyrir
slíkt var hann settur í þrýstijöfn-
unarhylki áður en hann fór alla leið
upp á yfirborðið.
Tveir loftpyttir tengdir saman
Síðar meir fóru menn að velta því
fyrir sér hvernig Harrison gat lifað
svo lengi í flakinu, þar sem rým-
ið sem hann var í var frekar lítið
og í hvert skipti sem hann andaði
frá sér, jók hann magn koltvíoxíðs
í loftinu. Í tilfellum sem slíkum er
það frekar aukið magn þess sem
dregur fólk til dauða, heldur en
skortur á súrefni. Í tilfelli Harrison
virðist vatnið hafi spilað sinn þátt,
þar sem koltvíoxíð leysist hrað-
ar upp í vatni. Eðlisfræðingurinn
Maxim Umansky, velti þessu vel
fyrir sér. Rýmið sem Harrison var í
var of lítið til þess að súrefnið dygði
honum og komst Maxim að þeirri
niðurstöðu að rýmið hefði á ein-
hvern hátt verið tengt við annan
loftpytt. „Sú útskýring er sú skyn-
samlegasta hvað varðar þessa ótrú-
legu björgun.“ n rognvaldur@dv.is
Heimilislaus
með námskeið
Mike Momamy frá Seattle í
Bandaríkjunum ákvað að láta
ekki deigan síga þótt hann hafi
orðið heimilislaus, heldur leit
það jákvæðum augum. Hann
hefur ákveðið að sýna fólki
hvernig hann fer að því að lifa
af á götunni með því að bjóða
upp á námskeið. Þátttakendur
munu klæðast eins og þeir séu
heimilislausir, hanga fyrir utan
bókasafnið í Seattle eða fá sér
blund í almenningsgarði. Nám-
skeiðið kostar litla tvö þúsund
dollara, rúmlega tvö hundruð
þúsund krónur, en fjórðungur
upphæðarinnar rennur til góð-
gerðamála. Enn sem komið er
hefur þó enginn sótt námskeiðið
og viðbrögðin hafa verið mjög
misjöfn.
Sendir eftir-
myndir af
sjálfum sér
Sænskur ljósmyndari í leit að
atvinnu ákvað að fara frekar
óhefðbundna leið til að vekja
athygli viðskiptavina. Með
hverri ferilskrá sem hann send-
ir fylgir með lítil stytta sem er
eftirmynd af honum sjálfum.
„Listrænir stjórnendur og yfir-
menn auglýsingastofa hafa nóg
á sinni könnu. Maður verður
því að gera hlutina öðruvísi til
að vekja á sér athygli. Það þarf
meira en nokkur blöð til þess,
en á endanum eru það auðvitað
ljósmyndirnar mínar sem fólkið
vill skoða,“ segir maðurinn.
Ólst upp hjá rangri fjölskyldu
Mistök á fæðingardeildinni uppgötvuð sextíu árum seinna
S
extugur japanskur karlmaður
fékk nýlega fréttir sem munu
breyta lífi hans til frambúðar.
Í ljós kom að mistök urðu á
fæðingardeildinni þar sem maður-
inn kom í heiminn og tók röng fjöl-
skylda hann heim. Hann höfðaði
mál gegn spítalanum og fékk bætur
upp á rúmlega 37 milljónir króna.
Ástæðan er sú að hans líffræðilegu
foreldrar voru efnaðir en sú fjöl-
skylda sem ól hann upp bjó við fá-
tækt og erfiðleika. Fósturmóðir
hans ól hann ein upp frá tveggja ára
aldri eftir að fósturfaðir hans lést,
auk tveggja eldri barna sinna. Þau
bjuggu í tveggja herbergja íbúð þar
sem útvarp var þeirra helsti munað-
ur. Maðurinn vann í verksmiðju og
fór í skóla á næturnar í von um betra
líf. „Það var eins og fósturmóður
minni hefði verið ætlað að eiga erfitt
líf,“ sagði maðurinn en konan er nú
látin. Þá hefur maðurinn aðstoðað
eldri börn hennar frá því að hún lést.
Hefði hann farið heim með réttri
fjölskyldu hefði hann fengið einka-
kennslu og notið þeirra forréttinda
sem því fylgja að eiga ríka foreldra.
Hann á þrjá yngri bræður en þeir eru
ástæðan fyrir því að mistökin komu í
ljós. Þegar foreldrar þeirra létust fóru
þeir fram á að DNA-sýni yrði tekið af
elsta bróður þeirra. Hann var ekki
líkur þeim í útliti og sýnið, ásamt
skýrslum frá spítalanum, leiddi í ljós
að hann var ekki líffræðilegur bróðir
þeirra. Bræður hans halda að móður
þeirra hafi stundum grunað hvernig
í pottinn var búið, vegna mismun-
andi útlits bræðranna. Þá mundu
þeir eftir því að hún hafði stundum
talað um að barnið hefði verið fært
henni á fæðingardeildinni í röngum
fötum. n
rognvaldur@dv.is
Fóru heim með rangt barn
Móðir mannsins talaði um að
barnið hennar hefði ekki verið
í réttum fötum á fæðingar-
deildinni. Mynd úr saFni
Eru simpansar
persónur?
Samtök um réttindi dýra hafa
farið fram á að dómstóll í New
York viðurkenni að simpans-
inn Tommy verði viðurkenndur
sem persóna. Markmið sam-
takanna er að simpansar hljóti
þá viðurkenningu almennt.
Vilja samtökin að Tommy
verði sleppt úr búri sínu og
telja að prísund hans standist
ekki lög og vilja að hann kom-
ist í griðland fyrir prímata. Í
kærunni segir einnig að hann
eigi rétt á því að geta hreyft sig
eðlilega og vera í friði.
Fastur í skips-
flaki í þrjá daga
Könnunarleiðangur að skipsflaki breyttist skyndilega í björgunaraðgerð
Fastur í flakinu
Harrison Okene var þrjá daga
fastur í skipsflaki. Hann
komst í loftpytt sem bjargaði
lífi hans.
Harrison Okene Húð hans flagnaði af og
hann þjáðist af miklum vökvaskorti.
Mynd reuTers