Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2013, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2013, Blaðsíða 26
Helgarblað 6.–9. desember 201326 Fréttir Erlent Græða á sögu kókaínbaróns n Blendnar tilfinningar í garð Pablos Escobar í Kólumbíu F íkniefnabaróninn Pablo Escobar, sem skotinn var til bana af lögreglunni fyrir hartnær tuttugu árum, hef- ur hlotið vissa uppreisn æru í seinni tíð í heimalandi sínu Kól- umbíu. Á götuhornum í Medellín, heimabæ hans , má sjá götusölu- menn selja boli og límmiða prýdda andlitsmyndum af Jesú Kristi, Hello Kitty, Che Guevara og Pablo Escobar. Í samtali við BBC sagði einn götusölumannanna varning með ásjónu Escobars vera langvin- sælastan. Ættingjar fórnarlamba Escobars segja persónudýrkun hans í dag jafnast á við kjaftshögg. Græða á sögu fjöldamorðingja Götusölumenn er þó fjarri lagi þeir einu sem græða á ímynd Escobars, sem var á hátindi sínum talinn vera sjöundi ríkasti maður verald- ar með um áttatíu prósenta hlut alls kókaíns sem neytt var í Banda- ríkjunum. Í helstu verslunarhverf- um Medellín má finna ævisögur og DVD-myndir sem segja sögu hans. Flestir heimamenn vísa enn til hans með gælunafninu Pablito, sem hefur frekar jákvæðan tón en hitt. Í huga margra kann þessi persónudýrkun á eiturlyfjakóngin- um að orka tvímælis. Svo virðist sem heimamenn hafi gleymt því að glæpasamtök Escobars stóðu fyrir ýmsu öðru en einungis fram- leiðslu og dreifingu eiturlyfja; allan áttunda og fyrri hluta níunda ára- tugar var öllum þeim sem stóðu í vegi fyrir Escobar ýmist mútað, rænt eða þeir myrtir. Talið er að fjöldi þeirra sem liggja í valnum eftir áralangt blóðbað Escobars sé á bilinu fjögur til fimm þúsund manns. Sápuópera um Escobar vinsælasta sjónvarpsefnið Í fyrra hófst á kólumbísku sjón- varpsstöðinni Caracol sýning hálfgerðrar sápuóperu um ævi Esco bars. Þættirnir hafa notið vægast sagt mikillar velgengni og hefur endurútgáfa þeirra verið seld til alls sextíu og sex landa, þar á meðal Norður-Kóreu. Sjónvarps- stöðin hefur ekki birt tölur um gróða stöðvarinnar af sjónvarps- þáttunum en ýmislegt bendir til þess að hún sé arðbærasta þátta- röð í sögu Kólumbíu. Sé geng- ið um markaði Medellín má finna fjöldann allan af götusölumönn- um sem selja DVD-útgáfu þáttar- aðarinnar ólöglega. David Busta- mante, einn sölumannanna, segist í samtali við BBC ekki fyrirverða sig fyrir að selja vöru sem hyllir blóði drifna sögu Escobars. „Hví ætti ég að hafa áhyggjur af því, ég var að- eins barn þegar hann var í stríði sínu gegn stjórnvöldum. Það hafði engin áhrif á mig,“ segir hann í samtali við BBC. Börn fórnarlamba ósátt Ekki eru þó allir Kólumbíumenn á eitt sáttir með þá ímynd sem birt- ist af Escobar daglega í Kólum- bíu. Einn þeirra er Rodrigo Lara Restrepo en faðir hans, sem var dómsmálaráðherra, var myrtur af böðlum Escobars árið 1984. „Þessi þróun er í raun gott dæmi um það hvernig viðhorf Pablos Esco bar hafði yfirhöndina, það að græða þrjá dollara sé mikilvægara en nokkuð annað,“ segir Restrepo. Annar sem tekur í sama streng og hann er Federica Arellano sem sömuleiðis missti föður sinn í stríði Escobars. Hann lést er Escobar sprengdi farþegaflugvél í þeim til- gangi að myrða forsetaframbjóð- andann Cesar Gavira. Gavira var þó ekki um borð, en hundrað og sjötíu saklausir borgarar voru um borð. „Það að sjá andlit Escobars, hér um bil daglega, í sjónvarpinu er móðgun, það er sem daglegt kjaftshögg,“ segir Arellano. n Glamúrlíf fjöldamorðingja Hér má sjá eitt dæmi um þann varning sem seldur er á götuhornum Kólumbíu; albúm með svipmyndum úr ævi Pablos Escobar. Hjálmar Friðriksson hjalmar@dv.is „Það að sjá andlit Escobars, hér um bil daglega, í sjónvarpinu er móðgun, það er sem daglegt kjaftshögg. Eyrun stóðu upp úr rústunum Hundurinn Dexter lá fastur undir braki í níu daga N íu dögum eftir að hvirfil- bylur lagði heimili Jocobs Montgomery í rúst, fannst hundur hans á lífi í rústun- um. Eyrun stóðu upp úr þungu braki, þar sem hann hafði hírst, í meira en heila viku frá því hvirfil- bylur skók Illinois í Washingtonfylki í Bandaríkjunum. Montgomery varð viti sínu fjær af gleði þegar í ljós kom að Dexter var, eftir allt sem á undan var geng- ið, á lífi. „Það kom í ljós að hann hélt kyrru fyrir í íbúðinni eftir að þakið og veggirnir hrundu,“ segir eigandinn. Af frásögn Orange News að dæma gat hundurinn eitthvað hreyft sig um. „Ég veit ekki hvernig hann fór að því en hann lifði þetta af,“ sagði maðurinn í geðshræringu við dagblaðið Sun Times. Þakið fauk upp og hrundi yfir íbúðina, ásamt veggjunum, þann 17. nóvember síðastliðinn. Dexter er sex mánaða gamalla pitbull. Hann fannst, liggj- andi á gólfinu, skinhoraður og illa á sig kominn, hjá eldhúsvaskin- um – eða þar sem hann hafði end- að í hamförunum. Randy Wheat, yfirmaður sveitar sem sérhæfir sig í að bjarga dýrum, bjargaði Dexter. „Maður gat talið í honum rifbeinin. Að öðru leyti var hann ómeiddur. Hann hafði ekkert getað drukkið en gat innbyrt snjó í einhvern tíma. Montgomery, sem er í heimavarnarliði Illinois, var ekki heima þegar hvirfilbylurinn skall á. Hann var úrkula vonar um að finna Dexter. Það voru því fagnaðar- fundir þegar þeir vinirnir hittust aftur. „Hann hefur greinilega lést töluvert á þessum tíma en er byrj- aður að fitna aftur,“ er haft eftir Montgomery. „Hann var með nokkrar rispur en þær eru að gróa. Honum virðist líða vel núna.“ n baldur@dv.is Dexter Hundurinn át snjó í nokkra daga, en hafði ekkert annað að nærast á í níu heila daga. Glæpamenn fá ekki að koma aftur Þeir glæpamenn sem brotið hafa af sér í Noregi, eru sendir úr landi en af einhverjum ástæðum ákveða að snúa til baka eiga ekki von á góðu. Norska þingið mun á næstu vikum kjósa um frumvarp þess efnis að allt að margfalda refsingu erlendra brotamanna sem vísað hefur verið úr landi en snúa aftur til Noregs. Sam- kvæmt frumvarpinu geta þess- ir aðilar átt von á að tveggja ára fangelsisdómi í stað 35 daga eins og lögin kveða á um nú. Talið er nær öruggt að frumvarpið verði samþykkt enda nýtur það stuðn- ings allra flokka. Á undanförnum árum hafa fjölmargir glæpamenn ákveðið að snúa aftur til Noregs þótt þeir megi það ekki lögum samkvæmt. Fjölmennastir í þess- um hópi eru afbrotamenn frá Rúmeníu og Nígeríu. Margir vilja vinna í IKEA Mikill fjöldi fólks er án atvinnu á Spáni og þegar ný störf eru auglýst er gjarnan mikil ásókn í þau. Þetta kom berlega í ljós á dögunum þegar störf voru aug- lýst vegna nýrrar IKEA-verslunar sem opnuð verður í Alfafar í Val- encia-héraði í austurhluta Spán- ar. Áhugasamir voru hvattir til að sækja um á vef verslunarinn- ar en ekki vildi betur til en svo að svo margir sóttu um að vefurinn hrundi. Þegar tuttugu þúsund umsóknir höfðu borist hrundi vefurinn en 400 störf voru aug- lýst. Atvinnuleysi á svæðinu er 28 prósent og hafa margir verið án atvinnu lengi. Tuttugu kreppuár í viðbót Enn af efnahagsástandinu á Spáni. Greiningarfyrirtækið PwC segir í nýrri skýrslu að tuttugu ár gætu liðið þar til spænska ríkið jafnar sig fullkomlega af efna- hagsniðursveiflunni sem hófst á haustmánuðum 2008. Er áætlað að spænska ríkið verði ekki búið að ná jafnvægi fyrr en árið 2033. Á þeim tuttugu árum sem til stefnu eru er áætlað að verg landsframleiðsla aukist um 42 prósent – það er meira en vænst er í Þýskalandi og Frakklandi. Atvinnuleysi er sem fyrr segir mjög mikið á Spáni og talið er að fimmtán ár muni líða þar til það fer undir 10 prósent. Í dag eru 26,7 prósent Spánverja án vinnu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.