Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2013, Blaðsíða 38
38 Neytendur Helgarblað 6.–9. desember 2013
Jólagjöfin í ár er
ekki lífsstílsbók
n Álitsgjafar velja jólagjöfina í ár n Föt og íslensk menning góð í jólapakkann
Í
slensk bók er á toppnum yfir
jólagjafirnar í ár samkvæmt
álitsgjöfum sem DV leitaði til
en allir nefndu þeir bækur sem
góða gjöf. „Íslenskar bækur, að
undanskildum lífsstílsbókum, eru
nauðsynlegar öll jól,“ segir einn
þeirra en Rannsóknasetur verslun-
arinnar útnefndi lífsstílsbækur jóla-
gjöfina í ár. Álitsgjafar nefndu ýmsa
bókar titla þar á meðal Mánasteinn
eftir Sjón, Guðni – Léttur í lund, Lygi
eftir Yrsu og Eftirréttabók Kristu.
„Ég legg mikið upp úr að gefa eigu-
legar bækur sem takmarkast ekki
við einn lestur. Matreiðslubækur
eða til dæmis spennubók sem fleiri í
fjölskyldunni geta deilt,“ segir annar
álitsgjafi.
Önnur íslensk menning var
einnig ofarlega því viðmælendur
nefndu líka íslenska myndlist en í
því samhengi má benda á að oft selja
myndlistarmenn plaköt með verk-
um sínum. Þau eru sniðug leið til að
eignast falleg verk fyrir miklu lægri
upphæð en annars væri. Þá nefndu
viðmælendur góða geisladiska, ís-
lenska hönnun, handverk eða bíó-
myndir á dvd.
Flíkur voru einnig ofarlega á lista
álitsgjafa. „Síð peysa með munstri
er „möst“ fyrir konur. Snilld við
kjól eða buxur.“ Annar segist iðu-
lega fá föt í jólagjöf og þau komi sér
alltaf vel. „Skinn eru tímalaus eign
sem hlýjar og fegrar, hvort sem er á
höfuð eða herðar. Þau eru falleg yfir
kjóla og peysur eða kápur og jakka.“
Það getur verið nokkur vandi
að velja jólagjöf sem hittir í mark.
Gott ráð er að fylgjast vel með því
hvað fólk kaupir sér sjálft og eins að
reyna að fylgjast með áhuga málum
fólks og athuga hvað gæti fallið á
kramið því tengt. Gott ráð getur ver-
ið að spyrja aðstandendur og vini
um hvað þeir telji að myndi hitta í
mark en þeim ráðum verður þó að
taka líka með ákveðnum fyrirvara
og meta sjálfur.
Á síðunni má sjá fleiri atriði sem
viðmælendur nefndu sem jólagjöf-
ina í ár. n
Auður Alfífa Ketilsdóttir
fifa@dv.is
Jólagjöfin í ár
Álitsgjafar DV eru sammála
um að íslenskar bækur séu
góð gjöf. Mynd Sigtryggur Ari
Græjur fyrir
áhugamálið„Hvort sem það er útvist, skíði, hand-
verk, módelsmíði, púsl, veiðar – það
er alltaf hægt að bæta við græju eða flík.
Fjölskyldan getur slegið saman ef það er dýr
hlutur eins og bakpoki fyrir útvistarmann-
eskjuna.
Spil„Allt sem ýtir undir heilbrigða afþr-
eyingu og samverustundir er vel séð í
jólapakkann.
Umhverfisvæn
upplifun„Ostasmökkunarnámskeið eða gott
matreiðslunámskeið svo fólk geti not-
ið aðeins lífsins saman og án þess að hlaða
upp meira drasli heima hjá sér, það er ekki
umhverfisvænt.
Heimalagað
og heimagert„Konfekt, sultur, sokkar, húfa, grafið
kjöt eða lax – möguleikarnir eru
óþrjótandi.
Power Bank-
varaaflstöð„Viðbótarrafmagn fyrir gemsann fyrir
fólk sem er á þönum og þarf alltaf að
vera í sambandi.
iPad mini„Algjör snilld í vinnu, skóla eða
fyrir áhugamálin. Ég nota hann undir
punkta á fundum, sjónvarpsþætti o.fl. Það
er líka hægt að kaupa pínulítið lyklaborð á
hann – og allt passar þetta í veskið.
Jólagjöf
fyrri ára
Samkvæmt rannsóknasetri
verslunarinnar
n 2013: Lífsstílsbók
n 2012: Íslensk tónlist
n 2011: Spjaldtölva
n 2010: Íslensk lopapeysa
n 2009: Jákvæð upplifun
n 2008: Íslensk hönnun
n 2007: GPS-staðsetningartæki
n 2006: Ávaxta- og grænmetispressa
Álitsgjafar DV
n Silja Bára Ómarsdóttir
- stjórnmálafræðingur
n Hans Orri Kristjánsson
- verkefnastjóri á Jónsson & Le'macks
n Þórhildur Ólafsdóttir
- fréttamaður á RÚV
n Anna Pála Sverrisdóttir
- formaður Samtakanna 78
n Ásmundur Einar daðason
-þingmaður Framsóknarflokksins og
aðstoðarmaður forsætisráðherra
n tobba Marinós
- ritstjóri vefmiðla Skjás Eins
n Þórhallur Heimisson
- sóknarprestur
Geit eða brunnur„Gjöf sem gefur. Eitthvað sem hjálpar
fjölskyldu eða þorpi í vanda.
Nuddtímar„Gjafakort í nudd er góð gjöf enda
eitthvað sem allir geta notið þó fæstir
láti það eftir sér.
„ Íslenskar bækur,
að undanskildum
lífsstílsbókum, eru
nauðsynlegar öll jól.
„Síð peysa
með
munstri er
„möst“ fyrir
konur