Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2013, Side 44
44 Lífsstíll Helgarblað 6.–9. desember 2013
Farðu á fjall
Fjallganga getur verið með ýmsu
móti. Það eru ekki aðeins þeir
sem eru í frábæru líkamsformi
sem geta gengið á fjöll. Einstak-
lingar sem eru ekki í toppformi
geta líka farið á fjöll. Fólk velur
einfaldlega lítið fjall til þess
að ganga á, eins og til dæmis
Helgafell í Hafnarfirði. Fjallganga
er úrvals útivist, endurnærandi
fyrir sálina og auk þess ertu um-
vafinn náttúrunni. Kjörið er að
taka vin með sér og rækta vinátt-
una í leiðinni en einnig er hægt
að fara einn með sjálfum sér og
njóta einverunnar.
Safnaðu stigum
Einhverjum þykir markmiðasetn-
ing leiðinleg og finnst sem hún
tendri ekki sigurviljann til þess
að ná lokatakmarkinu. Þá eru góð
ráð dýr. Skemmtileg lausn til þess
að vinna bug á þessu vandamáli
er að setja sér markmið um að
safna til dæmis 30 stigum í gegn-
um mánuðinn. Síðan er hægt að
gera lista yfir leiðir til að safna
stigunum. Tvö stig fyrir að fara í
heimsókn til ömmu og afa, þrjú
stig fyrir að fara í jógatíma, fimm
stig fyrir að lesa bók og svo fram-
vegis. Listinn er ótæmandi og
ímyndunaraflið leikur þar stórt
hlutverk.
ford.is
Ford Fiesta, bensín 65 hö, beinskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 4,3 l/100 km. CO2 losun 99 g/km. Ford Fiesta, EcoBoost bensín 100 hö, sjálfskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 4,9 l/100 km. CO2 losun 114 g/km.
Tökum allar tegundir bíla upp í nýja. Brimborg og Ford áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður getur verið frábrugðinn mynd í auglýsingu.
BEINSKIPTUR FRÁ
SJÁLFSKIPTUR FRÁ
FORD FIESTA
2.450.000 KR.
2.790.000 KR.
KOMDU OG PRÓFAÐU
FORD FIESTA ER BESTI SMÁBÍLLINN ÁRIÐ 2013
Ekki enn sannfærð/ur? Hér eru fleiri staðreyndir um Ford Fiesta:
Hiti er í framsætum og 3,5 tommu upplýsingaskjár í mælaborði. Farangursrýmið er einstaklega rúmt (290 lítra). CO2 gildin eru óvenju lág fyrir bensínvél og hann fær frítt í stæði í miðborg Reykjavíkur. Ford MyKey, brekkuaðstoð og
EasyFuel er staðalbúnaður. Öryggispúðarnir eru óvenju margir eða 7 talsins, þar af einn fyrir hné ökumanns. Sérstakt hitaelement er í miðstöð og er bíllinn því mjög fljótur að hitna sem er afar hentugt á köldum vetrarmorgnum!
Ford Fiesta var valinn besti smábíllinn árið 2013 af sérfræðingum eins vinsælasta bílablaðs heims,
Auto Express. Hann er útbúinn sparneytinni EcoBoost vél sem hefur hlotið titilinn Engine of the
Year, tvö ár í röð. Síauknar vinsældir Fiesta koma ekki á óvart því nýtt útlit hans er sérstaklega
rennilegt, hann er útbúinn snilldarbúnaði og svo er hann bara svo flottur.
Ford_Fiesta_5x18_25.11.2013.indd 1 4.12.2013 09:58:08
Mínijóla-Eurovision
V
erkefnið Geðveik jól gengur
út á starfsmenn fyrirtækja
taka áskorun um að velja
eða semja jólalag og fram-
leiða myndband því til
stuðnings.
„Þetta er svona mínijóla-
Eurovision-keppni,“ segir Bjarney S.
Lúðvíksdóttir, verkefnisstjóri Geð-
veikra jóla 2013. Um er að ræða
skemmtilega keppni á milli fyrir-
tækja sem sýnd verður í tveimur
þáttum á RÚV í desember.
„Í grunninn er þetta geðræktará-
tak sem snýst um geðheilsu á vinnu-
stöðum. Það er skorað á íslensk fyrir-
tæki að næra geðheilsuna og svo fá
þau líka áskorun um að semja eða fá
lánað jólalag og gera myndband því
til stuðnings og keppa svo í góðlát-
legri keppni um titilinn Geðveikasta
jólalagið 2013,“ segir Bjarney.
Geðveikasta jólalagið kynnt
„Og þetta er ekki síst skemmtilegt
vegna þess hve margt hæfileika-
ríkt fólk kemur í ljós. Þarna fá ama-
törarnir að láta ljós sitt skína.“
Þættirnir Geðveik jól verða sýnd-
ir á RÚV dagana 12. og 19. desember
næstkomandi. Í fyrri þættinum verða
myndböndin spiluð en í þeim seinni
verða úrslitin um Geðveikasta jóla-
lagið 2013 tilkynnt. Skorið verð-
ur úr um ágæti laganna af Geð-
veiku dómnefndinni, en hana skipa
þau Pétur Ben, Agnes í Sykri, Lára
Rúnars, Felix Bergsson, Sóley, Eyþór
Ingi, Sigtryggur Baldursson, Valdi-
mar og Óskar Jónasson. Auk þess
geta áhorfendur haft áhrif á úrslitin
með því að kjósa sitt uppáhaldslag
á vefsíðu átaksins og styrkt þannig
í leiðinni gott málefni. Í ár er ver-
ið að styrkja Vin athvarf, Hlutverka-
setur og Hugarafl og mun upphæðin
sem safnast deilast niður á þessi þrjú
málefni.
Laddi skellir sér í sveinkabúning
Það er Laddi sem skellir sér í jóla-
sveinsbúning til styrktar Geðveikum
jólum þetta árið. Jólasveinn þessi
hefur fengið nafnið GEÐgóður. Á
síðasta ári var það Jón Gnarr, borgar-
stjóri Reykvíkinga, sem gegndi þessu
hlutverki.
Fjölmargir þekktir einstaklingar
hafa lagt málefninu lið síðustu
daga, útvarpsmennirnir Gunna Dís
og Andri Freyr tóku sér frá útvarp-
inu og tóku að sér hlutverk kynna.
Þá tók Sólveig Eiríksdóttir á Gló
þátt og gerði tónlistarmyndband á
dögunum með aðstoð listamannsins
Snorra Ásmundssonar og Gunnars
Nelson bardagakappa og fleiri þrek-
inna kollega hans úr Mjölni. n
n Keppt um geðveikasta jólalagið n Afraksturinn verður sýndur á RÚV
Jólasveinninn geðgóði
Jólasveinninn geðgóði er
einn þeirra sem mun birtast
áhorfendum í Geðveikum
jólum. Mynd ÞorMar ViGnir
Kynnarnir Gunna Dís og Andri tóku sér
frí frá útvarpinu um stund til að leggja
málefninu lið.
Góð dómnefnd Skorið verður úr um
ágæti laganna af Geðveiku dómnefndinni,
einn meðlima hennar er tónlistarmaðurinn
geðþekki Valdimar. Mynd Gunnar Gunnarsson