Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2013, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2013, Síða 8
8 Fréttir Helgarblað 6.–9. desember 2013 Ríkislögreglustjóri er þögull um CIA n Heimilt að taka við upplýsingum sem njósnastofnanir afla um Íslendinga G reiningardeild ríkislög- reglustjóra neitar að svara ítrekuðum fyrirspurn- um DV um eðli samstarfs greiningardeildarinn- ar við bandarískar leyniþjónustu- og njósnastofnanir á skýran hátt. Spurningum um eðli samstarfs- ins, hvort greiningardeildin hafi átt frumkvæði að því að biðja um upplýsingar um íslenska borgara, eða móttekið slíkar upplýsingar frá bandarískum yfirvöldum, er ekki svarað með skýrum hætti. Þó kemur fram í svörum grein- ingardeildarinnar að skýr lagaheim- ild sé fyrir því að taka við upplýs- ingum um íslenska ríkisborgara sem bandarískar njósnastofnanir hafi aflað. Þá sé greiningardeildinni einnig heimilt að deila upplýsingum sem hún hefur aflað um íslenska rík- isborgara með bandarískum njósna- stofnunum. Reikna má með því að slíkum lagaheimildum hafi verið beitt, þó greiningardeildin vilji ekki svara því með skýrum hætti. Eins og fram hefur komið í fjöl- miðlum að undanförnu er Ísland á lista yfir þær þjóðir sem eiga í hvað nánustu samstarfi við Þjóðarör- yggisstofnun Bandaríkjanna, NSA. Uppljóstranir Edwards Snowden hafa sýnt hvernig sú stofnun hefur safnað ítarlegum upplýsingum um fólk í ýmsum löndum Evrópu, meðal annars með því að fylgjast með net- notkun óbreyttra borgara og hlera símtöl þeirra. Þá hefur verið upplýst að NSA hafi hlerað símtöl Angelu Merkel, kanslara Þýskalands. Áleitnar spurningar Kristinn Hrafnsson, talsmaður WikiLeaks, segir þennan skort á svörum frá greiningardeildinni gera það að verkum að ákveðnar spurn- ingar verði nú áleitnari en áður. „Varðandi það hvort þeir hjá grein- ingardeildinni séu í einhverju virku sambandi við bandarísk yfirvöld um upplýsingaöflun um Íslendinga eða séu viðtakendur slíkra upplýs- inga, spyr ég hvort það sé virkilega svo að ef slík samskipti séu til stað- ar í dag – að það sé innan lagaheim- ilda?“ Director of National Itelligence, DNI, heldur utan um starf allra leyniþjónustu- og njósnastofnana bandaríska ríkisins. Þannig má ljóst vera að NSA hefur aðgang að þeim upplýsingum sem leyniþjónusta Bandaríkjanna, CIA, aflar, en grein- ingardeildin hefur greint frá því í skýrslu að hún eigi í nánu samstarfi við CIA í miðlun trúnaðarupplýs- inga. Kristinn segir að ef grein- ingardeildin sé í beinu samstarfi við DNI sé ekki hægt að líta öðruvísi á það en að hún sé í samstarfi við all- ar njósnastofnanir Bandaríkjanna, þar á meðal NSA. Ríkislögreglustjóri fyrir þingnefnd Ekkert hefur komið fram sem stað- festir að greiningardeildin eigi í beinu samstarfi við DNI, en eins og DV hefur greint frá á hún hins vegar í samstarfi við bandarískt hulduapparat sem gengur undir dul nefninu GRPO, en það kem- ur fyrir í yfir 200 sendiráðsskjölum WikiLeaks. Þrátt fyrir að samstarf- ið sé skjalfest í skjali bandaríska sendiráðsins á Íslandi frá árinu 2009 hefur ríkislögreglustjóri neit- að að kannast við GRPO. Ríkislögreglustjóri var kallað- ur fyrir stjórnskipunar- og eftirlits- nefnd í síðustu viku. Þar munu þingmenn hafa spurt hann út í eðli þess samstarfs sem greiningar- deildin á við CIA og nýlegar fregn- ir þess efnis að Ísland sé á meðal þeirra landa sem eigi í hvað nán- ustu samstarfi við NSA. Gríðarlega alvarlegt Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, sagði frá því í ræðu á þingi að ríkislögreglustjóri hefði með- al annars verið spurður út tækni- búnað sem sagt er að staðsettur sé á Íslandi og notaður til að safna upplýsingum á Íslandi. Þá munu þingmenn einnig hafa spurt hann út í samstarfið við GRPO. Ekkert hefur komið fram um það hver svör ríkislögreglustjóra við spurn- ingum þingmannanna voru. Í ræðu sinni á þinginu sagði Jón Þór að það væri gríðarlega alvarlegt ef íslensk lögregluyf- irvöld væru mögulega að safna saman upplýsingum hér á landi og deila þeim með erlendum yf- irvöldum. „Og þegar ég spurði [ríkis lögreglustjóra] um það hvaða eftirlit sé með því að greiningar- deildin fari ekki umfram sínar heimildir, þá er eftirlitið, virðist það vera tiltölulega takmarkað, og það er eitthvað sem þarf að bæta,“ sagði Jón Þór. Loðin svör DV spurði greiningardeildina hvort hún hefði heimild til þess að fá upplýsingar um íslenska ríkis- borgara sem erlendar leyniþjón- ustur hefðu aflað? Í svari Jóns F. Bjartmarz hjá greiningardeildinni kom fram að fyrir því væri „skýr lagaheimild.“ Þá spurði blaðamaður hvort kann- að hefði verið hvort öflun þessara upplýsinga myndi teljast í samræmi við inn- lend lög, væri þeirra aflað af íslenskum löggæsluað- ilum, og hvort að grein- ingardeildin hefði farið fram á slíka upplýsinga- öflun. Jón F. Bjartmarz svaraði þessari fyrirspurn með því að vísa í lagaheimildir ís- lensku lögreglunnar sem hann sagði að væru skýrar: „Laga- heimildir íslensku lögreglunnar eru skýrar og vísa í því sambandi til sakamálalöggjafar, lögreglu- laga, almennra hegningarlaga, laga um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum, reglu- gerðina um greiningardeild, reglu- gerð um meðferð persónuupp- lýsinga hjá lögreglu, reglugerð um sérstakar aðferðir og aðgerð- ir lögreglu við rannsókn sakamála og reglugerð um vernd trúnaðar- upplýsinga, öryggisvottanir og ör- yggisviðurkenningar á sviði örygg- is- og varnarmála.“ Þegar DV ítrekaði fyrirspurn- ina og bað um skýr svör svar- aði Jón á þessa leið: „Eins og ég hef þegar svarað þér þá eru skýr- ar lagaheimildir fyrir starfsemi greiningardeildar sem fer að lög- um í starfsemi sinni.“ Þegar DV ítrekaði fyrirspurnina aftur svaraði Jón með eftirfarandi hætti: „Emb- ætti ríkislögreglustjóra hefur svar- að öllum spurningum sem þú hef- ur beint til embættisins.“ n Jón Bjarki Magnússon jonbjarki@dv.is Ríkislögga fyrir þingnefnd Haraldur Johannessen er ríkislög- reglustjóri en hann var kallaður fyrir þingnefnd á dögunum til þess að svara fyrir samstarf greiningar- deildar ríkislögreglustjóra við bandarískar njósnastofnanir. Höfuðstöðvar CIA Greiningardeild ríkislögreglustjóra er meðal annars í sam- starfi við CIA þegar kemur að miðlun trúnaðarupplýsinga. Þingmaður spyr Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, var einn þeirra sem spurði ríkislögreglustjóra út í samstarfið við bandarískar njósnastofnanir. Mynd SIGtRyGGuR ARI „Embætti ríkislög- reglustjóra hefur svarað öllum spurningum sem þú hefur beint til embættisins. talsmaður WikiLeaks Kristinn Hrafns- son segist velta því fyrir sér hvort það sé virkilega svo að lagaheimild sé fyrir miðlun upplýsinga um íslenska ríkisborgara. 15. 11. 2013 Dró sér fé frá góðgerða- samtökum Gjaldkeri Aflsins á Akureyri, samtaka gegn kynferðis- og heimilisofbeldis fékk síðastliðin október fjörutíu og fimm daga skil- orðsbundinn fangelsisdóm fyrir að draga sér fé. Samkvæmt dómin- um hafði hann frá febrúarmánuði 2012 til janúar þessa árs dregið sér rúmlega þrjú hundruð og fimm- tíu þúsund krónur. „Við fáum þetta allt til baka. Þetta er bara eins og gengur og gerist,“ segir Anna María Hjálmars dóttir, formaður Aflsins, í samtali við DV. Hún segir að hún muni læra af þessu. „Ég er búin að læra að vera gjaldkeri, þannig að þetta er bara jákvætt,“ segir Anna María. Viðurkenndi brotið Í dómi yfir gjaldkeranum kemur fram að hún hafi viðurkennt brot sitt skýlaust. Hann er sagður hafa millifært rúmlega 357 þúsund krónur yfir á eigin bankareikning af reikningum félagsins. Auk þess tók hann peninga út af reikning- um þess og notaði í eigin þágu sem og tók við söfnunarfé og skilaði ekki til félagsins. Aflið er styrkt af íslenska ríkinu en samtökin treysta þó á söfnunarfé til geta sinnt þeim verkefnum sem það hef- ur á sínum snærum. Anna Mar- ía segist hafa uppgötvað fjár- dráttinn þegar hún skoðaði ársreikninga félagsins og hafi hún þá lagt fram kæru. „Þetta er bara skólabókardæmi, hún átti erfitt og byrjaði að fá lán og skil- aði aftur, svo fékk hún aftur lán og ætlaði að skila því aftur, svo gerð- ist það ekki. Hún ætlaði sjálfsagt að skila þessu áður en þetta komst upp,“ segir hún. Þó þessi upp- hæð sé ekki mjög há þá er þetta talsverður skerfur af fjármagni samtaka sem vaða ekki í pening- um. Anna María segist þó vera ánægð með að allt féð muni skila sér til baka að lokum. „Við höfum þetta sem sjóð þegar þetta kem- ur til baka. Það fer í það að byggja kvennaathvarf,“ segir hún. Stóð einn að fjárdrættinum Anna María minnist á gróusögu sem farið hefur víðan völl þess eðlis að gjaldkerinn hafi ekki stað- ið einn að fjárdrættinum og hafi stjórnendur samtakanna verið með í svikunum. „Hún mætti þá vera rosalega fórnfús ef hún væri til í að taka skellinn fyrir þetta. Við yrðum ekki rík ef við ætluðum að skipta þessu fé á milli okkur,“ segir hún. Anna María telur líklegast að sögusagnirnar hafi hafist hjá þeim sem vilja koma höggi á samtökin. „Ég hef oftar en einu sinni fengið morðhótun. Þetta er náttúrulega mjög erfitt starf og margir ekki sátt- ir sem eru gerendur. Anna María segir að þetta „leiðin- lega atvik“ muni ekki setja strik í reikninginn hjá samtökunum og segir hún að framtíðin sé björt hjá Aflinu. Stefnan er sett hátt og vilja þær koma á fót kvennaathvarfi á Akureyri. „Þetta veltur á húsnæði, okkur vantar húsnæði sem er á viðráðanlegu verði,“ segir hún. Hún segir verulega þörf á kvenna- athvarfi utan Reykjavíkur; bæði sé heilmikið mál fyrir konur að flýja suður bæði vegna starfs og barna, sem og geti það verið gott fyrir sumar konur frá Reykjavík að kom- ast frá öllum aðstæðum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.