Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2013, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2013, Síða 13
Helgarblað 6.–9. desember 2013 Fréttir 13 „Ég var í helvíti“ n Verður aldrei samur eftir Landakotsskóla n Ósáttur við viðbrögð kirkjunnar n Kallar eftir ábyrgð ríkisins og stundi nafnið mitt með munninn alveg upp við eyrað á mér svo minn- ingin um sígarettulyktina, andardrátt- inn og fingurna situr eftir. Hann stundi og fór síðan afsíðis til að runka sér. Kom svo, hneppti upp skyrtunni, setti á sig kragann og greiddi sér. Síðan fór- um við aftur fram og ég fór aftur í tíma en mér leið alveg fáránlega. Á þessum árum vissi ég samt ekkert hvað sjálfs- fróun var og gat ekki gert mér grein fyrir því sem hann var að gera, enda gerði ég það ekki fyrr en seinna. Það sama gerði hann inni á skrif- stofunni sinni, sem var lítið herbergi á milli kennarastofunnar og bekkjar- stofunnar á jarðhæð. Þar var hann var með fæturna undir borðinu á meðan ég sat við hlið hans og hann káfaði á andlitinu á mér og efri hluta líkamans. Ég man hvað hann var alltaf sveittur og hvernig hann stundi nafnið mitt fnæsandi og hvað neglurnar á honum voru gular.“ Án þess að muna það nákvæm- lega telur Valgarður að hann hafi verið sex til átta ára þegar þessi atvik átti sér stað. Kvaddi með kökkinn í hálsinum Seinna fór hann í sumarbúðir í Riftúni þar sem séra Georg og Margrét voru. Þá var hann níu til ellefu ára. Þar átti séra Georg það til að leika sama leikinn og í prestsbústaðnum. Einu sinni reiddist Valgarður og spurði hvað hann væri eiginlega að gera þarna með honum, hvort hann hefði gert eitthvað af sér. Þá fóru þeir aftur fram. „Ég fór tvisvar í Riftún og átti að vera þar í þrjár vikur. Í annað skiptið lögðu þau mjög hart að mér að vera áfram í þrjár vikur til viðbótar því það væri miklu skemmtilegra. Mér fannst þetta skrýtið og alla daga langaði mig bara að komast burt frá þessum stað. En þegar foreldrar mínir komu að sækja mig stóðu þau yfir mér á með- an ég sagði foreldrum mínum með grátkökkinn í hálsinum að ég vildi vera áfram í Riftúni. Foreldrar mín- ir voru mjög hissa en kvöddu án mín og ég varð þar eftir næstu þrjár vikurnar. Frá þeim tíma á ég minningar sem ég hef aldrei skilið. Mér var oft gefin flóuð mjólk fyrir svefninn og tel að mér hljóti að hafa verið byrluð lyf. Því ég átti þessa minningu sem ég áttaði mig aldrei á og hélt að væru bara draumar, þegar séra Georg var að halda á mér á náttfötunum yfir bílaplanið á Rif- túni og bera mig aftur í rúmið mitt í svefnskálanum. Ég skildi samt ekki af hverju mig var alltaf að dreyma sama drauminn aftur og aftur og þess- ar minningar hafa alltaf fylgt mér. Ég er alveg viss um að ég hafi verið mis- notaður á meðan ég svaf, enda var ég að glíma við mikil óþægindi varðandi endaþarminn á þessum tíma og missa saur.“ Valgarður sagði fyrst frá reynslu sinni í DV í júní 2011. Í rannsóknar- skýrslunni lýsti annar maður svipaðri upplifun á Riftúni. Reyndar segist Val- garður hafa veitt því eftirtekt að fleiri drengir voru teknir úr svefnskálanum: „Ég man að þau tóku alltaf einn strák- inn úr svefnskálanum á nóttunni. Ég vissi ekkert af hverju en eftir á þá var það mjög skrýtið.“ Heila önn í skammarkrók Valgarður segir að á síðasta árinu í barnaskóla hafi honum risið hold og þá hafi séra Georg tekið hann upp að töflu til að sýna bekknum bunguna á buxunum, gera grín að honum og niðurlægja hann. „Þá var ég farinn að útiloka hann. Þá lét hann mig sitja í skammarkrók heila önn, sem var mjög niðurlægjandi. Þá sat ég á borði sem var upp við vegginn og hinir krakkarn- ir sátu allir annars staðar í stofunni og gangur á milli okkar. Ég man að einn kennarinn leyfði mér stundum að sitja með hinum krökkunum en fékk bágt fyrir. Á þessum tíma reyndi ég að gera grín að þessu en seinna áttaði ég mig svo á því hvað þetta var mikið niður- brot. Ég taldi alltaf að ég hlyti að hafa gert eitthvað af mér en vissi aldrei hvað. Í raun var ég mjög prúður nem- andi og aldrei til vandræða. Enda hafði ég aldrei lent í skammarkrókn- um fram að þessu. Þetta var bara svívirðilegt.“ Valgarður segir að félagar hans í bekknum hafi reynt að standa saman og styðja hvern annan í gegnum skólagönguna. „Ég held að það hafi margir lent verra í því en ég. En við ræddum það aldrei.“ Alltaf upplifað sig utangarðs Foreldrum sínum sagði Valgarður aldrei frá ofbeldinu. „Mamma var veik. Það er víst eitthvað sem þeir gera, meðvitað eða ómeðvitað, að sigta út börn sem eiga foreldra sem eru að glíma við erfiðleika. Ég var ekkert að fara að tala um eitthvað svona við mömmu mína þegar hún glímdi Framhald á næstu síðu  ásökunum og þeir funda með séra Georg sem neitar sök → B fer í prestshúsið og segir þar nokkrum prestum frá kynferðisofbeldi sem séra Georg og Margrét beittu hann á árunum 1978–1983. Áður hafði hann reynt að ræða þetta við skriftir → C segir Jolsson biskupi frá kynferðisofbeldi sem séra Georg beitti hann á árunum 1956–1958 1990–1996 Starfs- maður fræðsluskrifstofu segir að kvartað hafi verið undan harðræði Margrétar. Fræðslustjóri kannast ekki við málið. 2001 Móðir kvartar við Hjalta skóla- stjóra og skólanefnd undan harðræði Margrétar. Hún reynir árangurslaust að fá áheyrn Gisjen biskups og tilkynnir málið til fræðsluyfirvalda 1994–1995 Séra Georg stýrir biskups- umdæminu á meðan það er biskupslaust 1998 Jóhannes Gijsen biskup leggur til við Páfagarð að Georg verði veitt viðurkenning 2000 eða þar um bil. Afi og amma segja Gisjen biskupi að barnabarn þeirra geti ekki verið í skólanum vegna Margrétar 2003 Amma kvartar við séra Hjalta undan einelti Margrétar gagnvart barnabarninu → Foreldrar barns í 8 ára bekk kvarta við aðstoðarskólastjóra þar sem barnið er komið með kvíða- og streitueinkenni. Barnið lauk námi utan skóla → Margrét hættir kennslu 2007 A segir séra Davíð Tencer frá ofbeldinu 2008 Séra Georg fellur frá og Margrét fyrirfer sér með því að kasta sér niður úr turni Landakotsskóla 2010 C segir Pétri Bürcher bisk- upi frá ofbeldinu → E segir Pétri frá kynferð- isofbeldi sem séra Georg og Margrét beittu D. Um leið segir hann að annar kaþólskur prestur hafi misnotað hann á fullorðinsárum. 2011 Að minnsta kosti fjórir kæra kyn- ferðisbrot til lögreglu → apríl Pétur biskup er boðaður á fund innanríkisráðherra sem hefur þá upplýsingar um tvö mál innan kirkjunnar, en fundinn sitja einnig ráðuneytisstjóri, fulltrúi lögreglu og Barnaverndarstofu → 16. júní Umfjöllun um ofbeldi innan kaþólsku kirkjunnar og í Landa- kotsskóla hefst í fjölmiðlum → 29. ágúst Rannsóknarnefnd kaþólsku kirkjunnar er skipuð. 2012 2. nóvember Skýrsla rannsóknarnefndar kaþólsku kirkjunnar kemur út. Hún telur að kaþólska kirkjan hafi gerst sek um vanrækslu og þöggun → 5. nóvember Pétur biskup skipar fagráð kaþólsku kirkjunnar. Um fagráðið gilda ekki sérlög líkt og um nefndir sem könnuðu vist- og meðferðarheimili fyrir börn. Hlutverk fagráðsins er að veita álit um bótarétt þolenda og leggja fram tillögur að úrbótum 2013 8. janúar Fagráðið kallar eftir kröfugerðum vegna hvers kyns ofbeldis eða misgjörða af hálfu kirkjunnar → 30. ágúst Fagráðið leggur skýrslu fyrir biskup, sem verður ekki gerð opinber. → 14. nóvember Stjórnendur kirkjunnar sendir út bréf til þolenda þar sem hún segist ekki hafa bótaskyldu gagnvart þeim, að einu tilfelli undanskildu. við þunglyndi og ástandið var erfitt heima. Ég var ekki í neinni aðstöðu til að ræða þetta og reyndi bara að láta lítið fyrir mér fara,“ segir Valgarður. Það var fyrst eftir að fjallað var um ofbeldið innan veggja skólans í fjöl- miðlum að Valgarður greindi fjöl- skyldunni frá því sem kom fyrir hann í æsku. „Þá var ekki mikið um að fólk hringdi í mig. Enda held ég að fólki hafi fundist þetta of mikið og það hafi ekki vitað hvernig það ætti að takast á við þetta. Þannig að ég einangraðist og var svolítið einn með þetta. Seinna heyrði ég samt að mínir nánustu hefðu verið í rusli yfir þessu en það var aldrei talað um það. Fólk veit ekki hvað það á að segja. Þó að þetta hafi verið erfitt hefur mér þótt gott að fara í gegnum þetta, því núna sé ég betur hvar ýmislegt byrjaði. Ég var orðinn kvíðinn, þunglyndur og einrænn í gagnfræðaskóla. Ég hef alltaf átt erfitt með að treysta fólki án þess að skilja af hverju. Eins hefur mér Þolendum misboðið Gagnrýna vinnubrögð kirkjunnar og skammarlega lágar bætur Ég er brotinn maður eftir sem áður,“ sagði Ísleifur Friðriksson í viðtali við Kastljósið. Árið 2011 lýsti hann því í viðtali við Fréttatímann hvernig hann var viðstöðulaust beittur ofbeldi í Landakotsskóla. Allt frá sjö ára aldri var hann látinn taka þátt í athöfnum sem hann vissi ekkert um en misnotkunin stóð yfir þar til hann varð þrettán ára. Hann var beittur grófu kynferðis- ofbeldi í Landakotsskóla og tekinn úr svefnskálanum á Riftúni. Ísleifi voru boðnar 170 þúsund krónur frá kaþólsku kirkjunni sem hann afþakkaði á þeim forsendum að hugur fylgdi ekki verki og að fagráðinu hefði aðeins verið ætlað að fegra kirkjuna. Frá upphafi hefði legið fyrir að þolendur ættu ekki bótakröfurétt en kirkjan hefði engu að síður óskað eftir því að þolendur gerðu kröfu um bætur. Síðan hefði komið á daginn að engin vilji var til þess að mæta þeim kröfum. „Ég vildi bara að kirkjan bæri ábyrgð á þessu. Ég ætlaði að fá smá frið í hjartað.“ „Eins og verið sé að hrækja á mig“ „Ég upplifi þessar bætur eins og það sé verið að hrækja í andlitið á mér. Upphæðin er svo svívirðilega lág að henni hefði betur verið sleppt,“ sagði maður sem var við nám í Landakotsskóla á árunum 1970–1977. Hann upplifði þar andlegt og líkam- legt ofbeldi og hefur glímt við alkóhólisma, þunglyndi, reiði og sjálfsvígshugsanir mest- an part af lífi sínu. Hann fékk 82.170 krónur í bætur og í samtali við Morgun- blaðið sagði hann að hann hefði varla treyst sér til að rifja þetta upp þegar fagráðið óskaði eftir kröfum frá þolendum. „Það er svo ömurlegt að standa í þessu einn og óstuddur og ég vildi glaður vera að gera eitthvað allt annað. Eftir að fréttir fóru að berast af þessu þá lét séra Hjalti Þorkelsson, sem tók við skólastjórn af séra Georg, hafa eftir sér ummæli þar sem hann gerir lítið úr því sem gerðist í skólanum. Hann sagðist aldrei hafa orðið var við neitt. Mér finnst hræðilegt að upplifa að okkur sem vorum í skólanum sé ekki trúað. Ég reiddist þessum ummælum og ákvað því að setja sögu mína á blað og sendi hana til fagráðs.“ Hvatti hann aðra til þess að segja sögu sína svo málið yrði ekki þaggað í hel. „Mér finnst líka að ríkið hafi sloppið ótrúlega vel frá þessu máli. Íslenska ríkið borgaði kaþólsku kirkjunni fyrir að mennta þessi börn, en það er eins og rík- ið beri enga ábyrgð á því hvernig komið var fram við börnin. Þó að við séum orðin fullorðin höfum við áfram þörf fyrir vörn gegn kaþólsku kirkjunni,“ sagði hann og kallaði eftir frekari stuðningi frá ríkinu. Mikil vonbrigði „Kaþólska kirkjan hefur reynst mér illa í gegnum tíðina og núna sýndi hún það virkilega að hún kann ekki að iðrast,“ sagði maður í samtali við mbl.is. Hann var beittur grófu ofbeldi í Landakots- skóla sem stóð yfir í fjögur ár og hófst þegar hann var sjö ára. Minningarnar úr æsku eru manninum nánast óbærilegar en hann var sóttur í tíma og farið með hann inn á skrifstofu til séra Georg sem fróaði sér þar. Hann var líka látinn veita Margréti Müller munnmök. Á Riftúni var hann nokkrum sinnum látinn verja nóttinni með séra Georg þegar hann var átta og níu ára gamall þar sem Georg hafði við hann endaþarms- samfarir eða nuddaði sér upp við hann. Maðurinn sagði bæði nunnu og presti frá ofbeldinu þegar hann var ellefu ára, en ekkert var aðhafst. Hann hlaut varanlegan andlegan skaða af ofbeldinu. Hann fékk 300 þúsund í bætur og sagði að það væri eins og að fá blauta tusku í andlitið. „Ég var ekkert að biðja um tugi milljóna en auðvitað vænti maður þess að fá einhverja viður- kenningu á því að ég hafi verið misrétti beittur. Þetta eru mikil vonbrigði,“ segir maðurinn. „Okkur var gert afskaplega erfitt fyrir í öllu þessu langa ferli. Nálgunin var sú að maður þurfti alltaf að biðja um allt. Ég þurfti að biðja um fund, biðja um viðtal og biðja um bætur. Allt frestaðist þetta um einhverja mánuði, og þetta er svo það sem maður uppsker.“ Sagði hann að bæturnar væru ekki einu sinni plástur á sárið. „Ég er afskap- lega hryggur og leiður og mér er skapi næst að skila þessu bara.“ „Það er það ljótasta í þessu máli, að svona illmennum hafi verið leyft að brjóta á börnum í friði. Verulega ósáttur við niðurstöðuna Valgarður bendir á að kirkjan hafi sjálf kallað eftir kröfugerðum með nánum lýsingum á atvikum. Það sé erfitt að fara í gegnum minn- ingarnar og því skjóti skökku við að kirkjan ætli sér ekki að axla ábyrgð. Mynd Sigtryggur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.