Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2013, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2013, Qupperneq 22
22 Fréttir Helgarblað 6.–9. desember 2013 ábyrgð. „Það er varla leggjandi á fjölskylduna að standa í svona því fylgir svo mikil reiði,“ segir Anna Jóna. „Fyrst að ríkið getur gert þetta, þá finnst mér sjálfsagt að það geri það.“ En bæði Sigríður og Anna Jóna eru reiðar yfir því að enginn skyldi hafa haft samband við þær til að ræða ástand Sævars, sérstaklega undanfarnar vikur. Þær höfðu þó báðar margreynt að koma sínu sjónarmiði á framfæri. Öll þeirra samskipti við þá sem komu að máli hans fóru fram að þeirra frum­ kvæði. „Það var aldrei hringt í okkur aðstandendur til að spyrja okkur að því hvernig okkur litist á hlutina,“ segir Anna Jóna. „Kannski kom okkur það ekki við, enda var hann með sitt sjálfræði. Það eru líka erfið leikarnir í þessum málum. Það var lítið hlustað á okkur,“ segir hún. Þurfti vin Upplýsingagjöf til þeirra systra barst seint og illa. Um tíma voru þær báðar búsettar á Akureyri, en Sævar var í Reykjavík. Sím­ töl til þeirra sem fara með mál­ ið voru mörg og báðu þær um að einhver reyndi að nálgast Sævar á jafningjagrundvelli. „Hann þurfti einhvern sem hafði mikla þolin­ mæði og gat nálgast hann af hlýju og skilningi,“ segir Anna Jóna. Það gekk hins vegar ekki og Sævar var mikið einn. Glaður að sjá þær Það hefur gengið á ýmsu í sam­ skiptum Önnu Jónu og Sigríðar við Sævar, en þegar þær heimsóttu hann á geðdeild varð hann glaður að sjá þær. Þær reyndu að færa honum eitthvað og fara með hann út af spítalanum. „Ég held að hann hafi verið mikið einn þar og lítið far­ ið út nema þegar við heimsóttum hann,“ segir Sigríður. En Sævar var reiður. Hann var ósáttur við aðstæður sínar, en veik­ indunum fylgdi líka sú trú hans að fólk væri að reyna að hrella hann og bregða fyrir hann fæti. „Hann var virkilega ósáttur og heiftin var mikil,“ segir Sigríður. Hótaði systrum sínum Systurnar höfðu ekki heyrt í Sævari um nokkurt skeið þegar hann lést. Síðustu samskipti hans við Önnu voru á þann veg að allur heimur­ inn væri á móti Sævari og hann var mjög æstur og reiður. „Það voru all­ ir að taka frá honum eða gera hon­ um eitthvað,“ segir Anna. Sævar átti það til að skrifa henni bréf sem voru mjög ljót og hún segist hafa hent. Í bréfunum komu fram hugarórar Sævars, sem taldi alla vera á móti sér og hótaði Önnu öllu illu. Fyrir skemmstu hótaði hann svo að drepa þær systur. „Hann hafði í hótunum við okkur og sagðist ætla að koma norður og skjóta okkur. Það var mjög sárt, en hann var bara fárveikur,“ segir Anna. Lögreglu var gert kunnugt um hótanirnar, en þær voru ekki kærðar og þar með var ekkert að­ hafst frekar í málinu. Vissu af byssunni Systkinin fréttu, líkt og aðrir lands­ menn, af umsátursástandinu í fjöl­ miðlum. „Ég var búin að marg­ segja lögreglunni frá því að hann væri með byssu í íbúðinni,“ seg­ ir Sigríður og telur að hægt hefði verið að bregðast við miklu fyrr. Hún hefur fengið upplýsingar um að lögreglan hafi þurft að hafa af­ skipti af Sævari margoft og jafn­ vel þurft að taka af honum vopn. Ekki liggur fyrir hvaðan byssan sem hann hafði undir höndum kom eða hversu mörg skot hann hafði til umráða. Sævar var ekki með byssu­ leyfi. Skortur á kærleika Saga Sævars er víti til varnaðar. „Það var aldrei hlustað. Hann var þrár og erfiður, en auðvitað var hægt að vinna hann á sitt band. En þetta einkenndist mikið af úrræða­ leysi og var sem enginn hlustaði á það sem við vorum að reyna að segja,“ segir Anna Jóna. „Þjónustan við hann var engin. Þó að maður væri að reyna að fá fólk til að nálgast hann af kærleika var það aldrei gert. Ég lagði mikla áherslu á að það yrði gert, að ein­ hver reyndi að vinna hann yfir á sitt band og að Sævar gæti treyst viðkomandi. Þá gæti hann treyst þeim og farið með þeim út og gert eitthvað,“ segir hún og telur að það hefði eflt lífsgæði hans. „Eins og alltaf er verið að tala um, að efla lífsgæði fólks, en hafa þau ekki bara í hrúgu uppi í sófa.“ Vildi vera venjulegur Gunnar veltir því fyrir sér hvort að þetta verði til þess að geðheilbrigðis­ kerfinu verði gefinn meiri gaum­ ur. „Þetta snýst allt um Excel­skjöl en ekki fólk. Skjölin stýra öllu. Gott og vel, en hvort ætlum við að setja pening næst í heilbrigðiskerfið eða sérsveitina?“ spyr Gunnar og seg­ ir að fyrir mann í sömu stöðu og Sævar var í hafi ekkert minna dug­ að en öryggisdeild. Gunnar segist vona að þessi hörmulegi atburður verði til þess að hér skapist um­ ræða um veikustu einstaklinga geðheilbrigðis kerfisins og þjónustu við þá. „Af hverju gefst kerfið upp á svona veikum einstaklingum. Dæmin eru miklu fleiri. Hvernig gat það gerst að hann var ekki und­ ir meira eftirliti,“ spyr Gunnar. Ég held að þetta séu spurningar sem verði að svara. Anna Jóna segist vona að kerfið hafi ekki verið búið að gefast upp á Sævari, en segir að þegar hann var í innlögn á Kleppi hefði hann þurft á því að halda að einhver reyndi að vinna hann á sitt band og nálgast hann. „Hann saknaði venjulega lífsins. Ég fann það oft að það lá þungt á honum hvernig hann hafði farið með líf sitt,“ segir Anna Jóna. n Þ etta eru bæði viðkvæm og erfið mál sem snúa að einstaklingum sem glíma við mikla erfiðleika og þau eru átakanleg þegar þau koma upp,“ segir Kristján Þór Júlíusson heil­ brigðisráðherra. Kristján segist ekki geta tjáð sig um einstök mál, en greinir frá því í samtali við DV að velferðarráðuneytið hafi um nokkurt skeið verið með mál geð­ fatlaðra til skoðunar. Vinna vel saman „Við höfum verið að vinna með þessi mál í nokkurn tíma í ráðu­ neytinu og höfum þá verið að reiða okkur á geðsvið Landspítalans og þá fagþekkingu sem þar er til stað­ ar í þeirri vinnu,“ segir Kristján og segir að þar hafi Páll Matthíasson, áður framkvæmdastjóri geðsviðs LSH, nú forstjóri spítalans, farið fyrir vinnunni. Þá hefur verið sam­ starf milli innanríkis­ og velferðar­ ráðuneytisins við að fara yfir og samræma aðgerðir lögreglu, réttar­ kerfis og heilbrigðis­ og félagsþjón­ ustunnar. Einnig hafa mál fanga sem glíma við geðraskanir komið til skoðunar innan ráðuneytisins. „Almennt get ég sagt að vel­ ferðarþjónustan í landinu, lög­ gæslan og geðheilbrigðis þjónustan vinna vel saman,“ segir Kristján, sem gefur ekki upp hvort mál Sævars Rafns verði skoðað sérstak­ lega í ráðuneytinu. Erfið lögræðismál Á Íslandi hefur það almennt verið talið rétt að reyna að vinna með einstaklinga í samfélaginu og finna þeim viðeigandi úrlausnir þar. Það samræmist einnig þingsályktunar­ tillögu sem liggur fyrir á Alþingi, þar sem fram kemur að þjónusta verði samræmd og tryggja eigi rétt geðfatlaðra einstaklinga til sjálf­ stæðs lífs. Þó kemur fyrir að svipta þarf einstakling lögræði og eru þau mál nánast undantekningarlaust mjög erfið. Kristján segir að oftast sé erfitt að ákveða hvernig haga eigi ákvörðunum um lögræði og svipt­ ingu þess. „Það sem gerir þetta kannski erfitt er þessi spurning um lögræðislögin. Það er að segja hvert frelsi borgaranna á að vera. Öll aðför að frelsi einstaklingsins í þessum efnum er mjög umdeild og ákvarðanatakan er þess vegna erfið. Það er í sjálfu sér engin lausn að vega að frelsi einstaklinga,“ segir Kristján. Hann segir að í þeim til­ fellum sem það sé gert sé ströng­ um reglum þar að lútandi fylgt til þess að reyna að komast hjá mikl­ um skaða. „Í þessum efnum mun ég reiða mig á það sem fagfólkið segir,“ segir Kristján. astasigrun@dv.is „Mun reiða mig á fagfólk“ Geðheilbrigðismál til skoðunar í heilbrigðisráðuneytinu Viðkvæm mál Þó ráðherra tjái sig ekki um einstök mál, líkt og mál Sævars, segir hann að geðheilbrigðismál hafi verið til skoðunar innan ráðuneytisins undir hand- leiðslu fagfólks. Mynd SiGtryGGur Ari „Hann réð ekkert við þetta og alls ekki að búa einn Málið verður rannsakað Ríkissaksóknari hefur hafið rannsókn á atvikum og aðgerðum lögreglu í Hraunbæ 20 morguninn sem Sævar Rafn Jónasson lést. Í tilkynningu frá embættinu er það tekið fram að við rannsókn sína muni ríkissaksóknari, með aðstoð lögreglumanna við embætti sérstaks saksóknara, taka skýrslur af lögreglumönnum sem voru á vettvangi. Farið verður yfir aðgerðir lögreglu með hliðsjón af almennum hegningarlögum, lögreglulögum og verklagsreglum ríkislögreglustjóra þegar um beitingu skotvopna er að ræða. Þá hafa vopn sérsveitar- mannanna verið tekin til hliðar í þágu rannsóknarinnar. Það verður hins vegar lögreglan á höfuðborgarsvæð- inu sem rannsakar allt sem varðar forsögu Sævars, handhöfn og meðferð hans á skotvopni, sem og annað er hann varðar að sögn ríkissaksóknara. Systir Sævars hefur hitt lögregluna vegna málsins og bíður fjölskylda hans niðurstöðu rannsóknarinnar. Sævar rafn Sævar þótti efnilegur drengur á sínum yngri árum. Sigríður segir að eftir að hann fór á sjóinn hafi allt farið í vitleysu og hann leiðst út í óreglu. Skaut út um glugga Sævar mun hafa skotið á lögreglu og bíla út um glugga íbúðarinnar. Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is sunnudaginn 8. desember kl. 16 og mánudaginn 9. desember kl. 18 í Galleríi Fold, á Rauðarárstíg Bragi Á sgeirsson Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalistamanna svo og fjöldi frábærra verka gömlu meistaranna. Jólauppboð í Gallerí Fold Forsýning alla helgina í Gallerí Fold föstudag kl. 10–18, laugardag kl. 11–17, sunnudag kl. 12–15, mánudag kl. 10–17 (einungis þau verk sem boðin eru upp á mánudag) Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.