Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2013, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2013, Side 25
Helgarblað 6.–9. desember 2013 Fréttir 25 Kröfuhafarnir munu vígbúast Slitastjórn Glitnis hefur gefið það út að hún telji bankaskattinn ólögmætan N ei,“ segir einn af heimildar­ mönnum DV þegar hann er spurður að því hvort kröfuhafar föllnu íslensku bankanna muni borga bankaskattinn sem ríkisstjórnin ætl­ ar að leggja á þá til að fjármagna skuldaniðurfellingar sínar sem kynntar voru á laugardaginn og í kjöl­ farið sleppa því að höfða mál til að láta reyna á lögmæti skattheimtunn­ ar. Ríkisstjórnin ætlar að leggja sér­ stakan bankaskatt á þrotabú sem eru í slitameðferð hér á landi, Glitni og Kaupþing, upp á samtals 80 milljarða króna. Þessi upphæð bætist við 13,5 milljarða bankaskatt sem ríkisstjórn­ in er nú þegar búin að gefa út að hún ætli að innheimta frá búunum. Reynt að semja Áður en til slíkra dómsmála kemur munu eiga sér stað viðræður á milli kröfuhafanna og ríkisstjórnarinnar. Þær viðræður eru enn ekki hafnar samkvæmt heimildum en einn að­ ili sem er tengdur kröfuhöfunum sagði að vissulega væri samnings­ vilji fyrir hendi hjá þeim til að koma í veg fyrir að málið fari fyrir dóm. „Mun nást samkomulag á milli kröfuhafanna og ríkisins eða ekki?“ spyr einn af heimildarmönnum DV. Alveg óljóst er því hvað muni koma út úr slíkum viðræðum. Þrotabú bankanna munu því borga skattinn og láta svo reyna á lögmæti hans. Erfitt er hins vegar að sjá hvern­ ig niðurstaða ætti að geta fengist í málið utan dómstóla þar sem kröfu­ hafarnir munu væntanlega ekki sætta sig við svo háan skatt. Bæði slitastjórn Glitnis og Kaupþings telja sig einfaldlega ekki hafa heim­ ild til að greiða þennan bankaskatt. Munu fara út fyrir landsteinana Heimildarmaðurinn segir að ef samkomulagið náist ekki þá muni kröfuhafarnir fara í mál við íslenska ríkið. „Nú ef samkomulagið næst ekki þá bara „súa“ þeir íslenska rík­ inu samkvæmt íslenskum lögum. Svo fara þeir með þetta til alþjóð­ legra dómstóla ef svo ber undir […] Eftir því sem meira er „pönkast“ á þeim mun líklegra er það.“ Annar heimildarmaður DV segir að hugsanlegt sé að kröfuhafar muni geta sætt sig við að gefa eftir einhverja fjármuni, íslenskar krón­ ur, sem eru í búunum til að liðka til fyrir nauðasamningum hjá þrota­ búunum. Ríkisstjórnin hefur hins vegar ekki viljað setjast niður til við­ ræðna um samninga við kröfuhafa bankanna. Líklegt má samt telja að einhverjar viðræður fari fram á milli ríkisstjórnarinnar áður en til dóms­ mála kemur. Telja frumvarpið ólögmætt Bankaskatturinn sem innheimta á til að fjármagn skuldaniðurfellingu ríkisstjórnarinnar upp á 80 millj­ arða króna er sami skattur í eðli sínu og kynntur var í október til að fjármagna fjárlagagatið. Ríkis­ stjórnin kynnti þá að innheimta ætti 13,5 milljarða króna inn í ríkis­ kassann með innheimtu sérstaks bankaskatts á fjármálafyrirtæki í slitameðferð. Slitastjórn Glitnis, fyrir hönd kröfuhafa bankans, fékk lagafrum­ varpið til umsagnar í október frá efnahags­ og viðskiptanefnd Al­ þingis. Þann 28. október skilaði slitastjórnin umsögn um frum­ varpið. Í þeirri umsögn kemur skýrt fram að kröfuhafarnir telji skattinn ólögmætan. „Það er mat Glitnis að frumvarpið sé haldið verulegum annmörkum sem geti valdið því að fyrirhuguð álagning bankaskatts á fjármálafyrirtæki í slitameðferð verði talin ólögmæt fyrir dómstól­ um,“ segir í bréfinu sem Steinunn Guðbjartsdóttir ritaði. Í bréfinu telur Steinunn upp hvað lög og reglur slitastjórnin tel­ ur að bankaskatturinn brjóti en meðal annars er um að ræða brot á jafnræðisreglu stjórnarskrárinn­ ar sem og eignarréttarákvæði henn­ ar. Í niðurlagi bréfsins segir orðrétt: „Með vísan til framangreinds telur Glitnir ljóst að verulegir annmark­ ar séu á frumvarpinu eins og það liggur nú fyrir Alþingi. Nauðsynlegt er að efnahags­ og viðskiptanefnd taki framangreindar athugasemdir Glitnis til skoðunar, enda nauðsyn­ legt að réttarstaðan verði skýrð frekar í ýmsum veigamiklum atrið­ um. Færi svo að frumvarpið yrði samþykkt óbreytt telur Glitnir fulla ástæðu til þess að látið verði reyna á grundvöll og lögmæti skattheimt­ unnar fyrir stjórnvöldum og dóm­ stólum.“ Miðað við viðbrögð heimildar­ manna DV við skuldatillögum ríkis­ stjórnarinnar, og þeim skýru orðum sem komu fram í bréfi Steinunnar Guðbjartsdóttur frá því í október, þá er nokkuð ljóst að málið mun fara fyrir dóm. Ef kröfuhafarnir munu hafa betur í því máli gæti svo far­ ið að íslenska ríkið – íslenskir skatt­ greiðendur – muni þurfa að borga milljarða til baka til þrotabúa bank­ anna með vöxtum og einnig skaða­ bætur og málskostnað. Skulda­ tillögurnar eru því ekki án áhættu. n „Nú ef samkomu- lagið næst ekki þá bara „súa“ þeir íslenska rík- inu samkvæmt íslenskum lögum Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is Telja sig ekki geta greitt skattinn Nánast má fullyrða að kröfuhafar Glitnis muni fara í mál við íslenska ríkið. Mynd SIgTRygguR ARI Sparnaðurinn gæti horfið í steinsteypu gæti gleypt lífeyrinn Aðgerðin sem kynnt var um síð­ ustu helgi hefur þann tilgang að veita hópi skuldara einhvers kon­ ar réttlætisbætur fyrir verðbólgu síðustu ára. Eins og flestir vita hækkar verðbólga verðtryggðar skuldir og er það einmitt það sem ríkisstjórnin vill reyna að bæta fólki, greiða til baka hluta verð­ bótanna með niðurfærslu og skattafslætti. Eins og áður hefur verið fjallað um eiga 80 milljarð­ ar að koma úr ríkissjóði til beinn­ ar lækkunar skulda en afganginn eiga skuldarar sjálfir að greiða með áðurnefndri séreignar­ lífeyrissparnaðarleið. Undanfarin tíu ár hefur verð­ bólga nær aldrei verið undir eða í nánd við verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands. Bankinn stefnir að því að halda verðbólgu í 2,5 prósentum á ári. Vikmörk upp á 1,5 prósent í hvora átt eru á þessu markmiði og er því ásættan legt að verðbólgan fari upp í fjögur prósent á ári að mati stjórnvalda. Markmiðið hefur verið í gildi síðan í mars árið 2001 þegar bankinn og ríkisstjórnin sendu frá sér sameiginlega yfir­ lýsingu um markmiðin. Mark­ miðin eru þó ekki meira en bara markmið sem stefnt er að en ekki er bundið í lög að verðbólgan megi eða geti ekki farið umfram þessi mörk. Bjuggu til sitt eigið viðmið Sérfræðingahópurinn sem ríkis­ stjórnin fékk til að útfæra leiðir til að standa við kosningaloforðið um stórfelldar skuldaniðurfell­ ingar vegna forsendubrests mið­ aðist ekki við verðbólgumark­ mið Seðlabankans þegar ákveðið var hvað ætti að fella mikið niður. Nefndin horfði þess í stað á tímabilið frá því að markmið­ ið var sett árið 2001 til ársloka 2007 og kannaði hver meðaltals­ verðbólga hefði verið á þessum tíma. Niðurstaðan var sú að 4,8 prósenta verðbólga á ári, sem var meðaltalsverðbólga á þessu tímabili, væri eitthvað sem lán­ takendur ættu að búast við. Það er því viðmiðið þegar bæta á fólki upp forsendubrestinn. Áætlað er að leiðréttingin nemi 13 prósentum af vísitölu neysluverðs til verðtryggingar á tímabilinu sem um ræðir. Aðeins er horft til tímabilsins desember 2007 til ágúst 2010 þegar kemur að leiðréttingunni en það er mat hópsins og stjórnvalda að þá hafi orðið forsendubrestur frá því sem lántakendur verðtryggðra fast­ eignalána bjuggust við að þurfa að greiða til baka. Hámark er þó á þessu og getur verið að í ein­ hverjum tilfellum nemi leið­ réttingin minna en þessum þrett­ án prósentum en ríkisstjórnin fullyrðir að hámarkið hafi að­ eins áhrif á um tíu prósent þeirra sem rétt eiga á leiðréttingu. Sér­ eignarsparnaðarleiðin kemur svo til viðbótar við þetta. Þeir sem eiga rétt á fullri niðurfærslu og geta veitt árlega hálfri milljón króna geta því notað 5,5 milljón­ ir til að minnka skuldir hjá sér. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.