Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2013, Qupperneq 40

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2013, Qupperneq 40
40 Lífsstíll Helgarblað 6.–9. desember 2013 „Það eru allir að flýta sér! Tólgin og kertin okkar Meðfylgjandi mynd er af blóði úr ungum manni með allt of háa blóðfitu, blóðprufan hafði staðið á rannsóknarborðinu í nokkrar klukkustundir. Á þeim tíma nær fitan að setjast ofan á og storkna. Fita sem ýmist er komin frá meltingarveginum beint eftir fituríka máltíð, eða frá lifrinni síðar. Það þarf ekki mikið ímynd- unarafl til að áætla hvað þessi fita getur gert líkamanum. Harða fitan er einmitt fitan sem bráðnar aðeins við hátt bræðslustig og sem brennur reyndar best sem tólgarkerti. Eins sem gefur líka stökku áferðina og brúna litinn á frönsku kartöflunum, kleinunum og jafnvel laufabrauðinu nú yfir jólin eftir, djúpsteikingu. Góða fitan er tær Góða fitan, þar á meðal omega-fitu- sýrurnar, helst hins vegar tær og fljótandi niður undir frostmark og eins og hún gerir í fiskinum í djúpum hafsins. Fiskfita sem getur virkað eins og yngingarmeðal fyrir ofalda þjóð og sem hefur sýnt sig gera gegn æðabólgu, æðakölkun, gigt, elli- glöpum, krabbameinum, athygl- isbresti og þunglyndi. Í fiskin- um okkar og lýsinu felst því ekki aðeins afkoma okkar sem þjóðar, heldur bestu sóknartækifærin til bættrar heilsu. Unnar kjötvörur ýmiss konar, innihalda hins vegar mikið af harðri fitu, oft meira en líkami okkar ræður við með góðu móti. Hugsum okkur eitt andartak að meðfylgjandi blóðprufa hafi einmitt verið tekin eftir máltíð á skyndibitastað þar sem á boðstól- um var hamborgari með frönskum kartöflum og majónesi. Mikið hef- ur verið rætt um offituvand- ann að undan- förnu og vaxandi tíðni sykursýki. Þróun sem á fyrst og fremst rætur að rekja til neyslu- venja okkar þar sem Íslendingar standa illa að vígi. Varnaðarorð Oft öfunda ég veðurfræðingana sem spáð geta óveðri og flestir taka mark á. Eftir mikla snjókomu og spáð er stormi og rigningu með asahláku. Fólk hvatt til að gera ráðstafanir heima við og moka frá niðurföllunum svo ekki fari illa. Af hverju er ekki tekið mark á okkur heilbrigðisstarfsfólkinu þegar við spáum aðeins lengra fram í tím- ann og að æðarnar munu stíflast í okkur sjálfum við óbreytt ástand? Að velja frekar tólg í stað góðra kolvetna sem uppistöðu í fæð- unni er stórhættulegt og stuðlar að allt annars konar bruna en er okkur ætlaður. Vilhjálmur Ari Arason Af sjónarhóli læknis Sipp er skemmtilegt og fjölbreytt Sipp er góð styrktaræfing að sögn íþróttafræðingsins Kjartans Orra A llir geta sippað,“ sagði Kjartan Orri Sigurðsson, þrekþjálfari hjá knattspyrnuliðinu Kristian stad DFF í Svíþjóð, við blaðamann. Að sippa er alhliða æfing sem tekur á mörgum þáttum. Orri, eins og hann er jafnan kallaður, útskýrði það nánar. „Í fyrsta lagi er sipp mjög góð leið til að taka svokallaða lotuþjálfun, en það er líklega áhrifaríkasta leiðin sem fólk getur tekið til að þjálfa hjarta og lungu,“ sagði Orri, sem er íþróttafræðingur að mennt. „Í öðru lagi er það góð styrktaræfing.“ Sippið vinnur einnig með jafn- vægi, samhæfingu og styrkir bein- in. Í íþróttabúðum má finna ódýr sippubönd og þarf ekki nema smá rými þar sem hátt er til lofts til þess að æfingin geti farið fram. Sipp er því ódýr leið til þess að þjálfa upp þol og vinna með líkamann. „Það skemmti- lega við sippið er einmitt að það er svo fjölbreytt,“ sagði Orri. „Það er hægt að setja sér ótal mark- mið eins og að ná yfir 60 sippum á mínútu eða ná 20 tvöföldum snúningum í röð, hoppa fram og til baka, til hliðar, á öðrum fæti. Möguleikarnir eru ótelj- andi,“ sagði Orri og mælir eindregið með þessari krefjandi líkamsrækt. n Góð æfing Sipp er ekki aðeins fyrir boxara. Lék körfubolta með Val Kjartan Orri starfar við þrek- þjálfun í Svíþjóð. Staður þar sem kraftaverkin gerast n Gefur út sína fyrstu bók eftir miklar vinsældir á vefnum Þ etta er matur fyrir alla,“ segir Berglind Guðmunds- dóttir, matarbloggari og hjúkrunarfræðingur, þegar blaðamaður slær á þráðinn til hennar. Hún heldur úti síðunni Gulur-Rauður-Grænn & Salt og sendi nýverið frá sér sína fyrstu bók, Fljótlegir réttir fyrir sæl- kera, með girnilegum uppskrift- um. „Þetta er fjölbreytt og fljótlegt. Ekkert ofurhollt, bara venjulegur matur.“ Berglind vann sem hjúkrunar- fræðingur á BUGL frá árinu 2009 en lét af störfum þar í sumar. Bókin er tileinkuð börnunum sem koma þangað og rennur hluti af ágóða hennar til styrktar BUGL. Í dag heimsækir Berglind gamla vinnu- staðinn sinn og færir þeim fyrsta hagnaðinn, 100 þúsund krónur. Kraftaverkastaðurinn BUGL „Þetta er staður þar sem krafta- verkin gerast. Ég ber rosalega mikla virðingu fyrir þessum stað og þetta er einn besti vinnustaður sem ég hef unnið á,“ segir Berglind sem vildi vekja athygli á málefn- um krakkanna sem þangað þurfa að fara. Hún segir krakkana vera hæfileikaríka og ekki frábrugðna öðrum í þjóðfélaginu. „Ég fékk flott fyrirtæki í lið með mér sem vildu ólm hjálpa til,“ segir Berglind. „IKEA gefur sængur og kodda og Nói Siríus mun gefa jól- anammi fyrir alla krakkana. Ég er síðan að vinna að því að fá spil fyrir þau,“ en Berglindi er mikið í mun að þeir sem dvelji þar yfir jólin geti haft það notalegt. Einfalt fyrir fólk í tímaþröng Í bókinni Berglindar má finna alls kyns uppskriftir að mat fyrir alla daga vikunnar og einnig barnvæn- an mat. Hráefnin eru fá og flækju- stigin eru tekin út. „Það eru engin hráefni sem maður þekkir ekki og þarf að fara í fimm búðir til þess að finna,“ út- skýrir Berglind. „Ég vildi hafa þetta einfalt. Þetta er tilvalið fyrir fólk sem er að stíga sín fyrstu skref í eldhúsinu og líka fyrir fólk sem er í tímaþröng,“ bætir hún við en hún þekkir það af eigin raun. Hún Ingólfur Sigurðsson ingosig@dv.is Síauknar vinsældir Berglindar Matar- bloggið hefur vaxið hratt frá stofnun þess fyrir rúmu ári. Kúlugott Hnetusmjör er svo miklu meira en bara álegg. Hér rennur það saman við Rice Krispies og fleira gúmmelaði og verður að gómsætu konfekti, eftirrétti – eða bara hvenær-sem-er-rétti! Stökkt, mjúkt og svo ólýsanlega gott. Þetta verður jólakonfektið í ár! 35 litlar kúlur Eldunartími 20 mínútur n 260 gr hnetusmjör n 50 gr Rice Krispies n 300 gr flórsykur n 30 gr smjör, brætt n 300 gr suðusúkkulaði 1. Látið öll hráefnin saman í hrærivél og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman. Hnetusmjör hefur mismunandi áferð þannig að ef kúlurnar eru of blautar bætið þá meiri flórsykri saman við, ef þær eru of þurrar, bætið meira hnetusmjöri saman við. 2. Hnoðið litlar kúlur úr deiginu. Dýfið þeim í brætt súkkulaðið og geymið á ofnplötu hulda smjörpappír, þar til súkkulaðið hefur harðnað lítillega. segist alltaf í tímaþröng og yfirleitt sein fyrir. „Mest lesið á síðunni minni eru fljótlegu uppskriftirnar. Það eru aðrir í sömu sporum. Það eru allir að flýta sér!“ segir Berglind að lok- um og skellir upp úr. n
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.