Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2013, Page 49

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2013, Page 49
Skrýtið Sakamál 49Helgarblað 6.–9. desember 2013 Gripinn eftir 27 ár V art mátti á milli sjá hvort Stafford Spicer ágirntist meir; Joanne Marie Jones, 23 ára fyrirsætu sem einnig starfrækti ferða- skrifstofu, eða bíl hennar, glæsi- legan, bláan Chevrolet Camaro árgerð 1978. Spicer fannst hvort tveggja bíllinn og eigandi hans sexí og fantasíur Spicers um Joanne tengdust ávallt bílnum. Tíðum hafði Spicer fylgst með Joanne þegar hún yfirgaf íbúð kærasta síns að morgni til er hún fór til vinnu á ferðaskrifstofu sinni á Long Beach í Kaliforníu í Banda- ríkjunum – alltaf glæsileg og vel til höfð. Spicer sá fyrir sér hvernig sítt, liðað hár Joanne bylgjaðist sem foss yfir bak leðursætisins í Camaro-inum þegar hann gerði hvað sem hann langaði við hana – slíkar voru fantasíur hans. Slíkar fantasíur voru engin nýlunda hjá Spicer og tæpum ára- tug áður hafði hann látið undan einni slíkri, brotist inn í íbúð á Long Beach og misþyrmt kynferð- islega konunni sem þar bjó. Henni hafði tekist að komast undan og hafa samband við lögregluna. Með öllu grunlaus Lítið vissi Joanne, að morgni dags 29. apríl, 1985, að kynferðisleg- ur öfuguggi fylgdist með henni. Slæða mengunar lá yfir borginni og deyfði fyrstu geisla sólar, enda klukkan rétt um hálf sex. Joanne gekk rösklega að Camaro-inum, þetta var mikilvægur dagur því fyrir lá, ef allt gengi eftir, að landa stórum samningi á ferðaskrifstof- unni. Spicer beið ekki boðanna og síðar sagði öryggisvörður í nærliggjandi byggingu að hann hefði heyrt háan hurðarskell og síðan hefði Spicer „skotist eins og eldibrandur“ út á götu. Spicer gerði sér grein fyrir að hann hefði hugsanlega hlaupið á sig, vakið of mikla athygli, en hann hreinlega réð ekki við sig. Joanne var ein á ferð og hann ákvað að grípa gæsina meðan hún gafst. Í pússi sínu hafði hann hníf – sem hann taldi nauðsynlegt verkfæri á Long Beach. Horfin af yfirborði jarðar Víkur nú sögunni til Toms, kærasta Joanne. Um hádegisbil hringdi hann á ferðaskrifstofuna til að forvitnast um samninginn stóra. En svörin sem hann fékk voru önnur en hann vænti. „Joanne hef- ur ekki komið hingað og við höfum ekkert heyrt í henni,“ sagði vinnu- félagi Joanne og var ekki laust við að undrunar gætti í rómnum. Eðlilega var Tom brugðið og hringdi hann í ættingja Joanne, en þeir höfðu ekkert heyrt. Þeim leist ekkert á blikuna og höfðu sam- stundis samband við lögregluna. Það var engu líkara en Joanne hefði horfið af yfirborði jarðar og innan skamms hófst rannsókn á hvarfi hennar sem og viðamikil leit. Ófullnægjandi vísbendingar Þremur dögum síðar var Tom á ferð um Long Beach. Sá hann þá ekki nema bláa Camaro-inn og þekkti hann eins og skot. Við stýr- ið sat maður á fertugsaldri og lék á als oddi í félagsskap þriggja far- þega. Tom fylgdi bílnum eftir eins lengi og honum var mögulegt og hafði samband við lögregluna sem náði í skottið á bílstjóranum á bílastæði við stórmarkað. Við stýr- ið sat Stafford Spicer og voru hann og félagarnir teknir til yfirheyrslu. Spicer harðneitaði að þekkja nokkuð til Joanne og fullyrti að hann hefði keypt bílinn af manni sem hann hefði hvorki séð fyrr né síðar. Þrátt fyrir að ósamræmis gætti í framburði Spicers var lögreglan ekki með nóg í höndunum til að hafast frekar að hvað hvarf Joanne áhrærði – jafnvel þótt hann væri skráður kynferðisbrotamaður. Spicer var ákærður fyrir að stela bílnum og síðan sleppt. Illa farið lík Sex vikum síðar var nokkrum stangveiðimönnum gengið fram hjá vegaræsi í grennd við þjóðgarð Los Angeles og lagði óbærilegan fnyk fyrir vit þeirra. Þegar þeir könnuðu málið nánar fundu þeir nakið og rotnandi lík Joanne og var það svo illa farið að meinafræðing- um tókst ekki að finna nokkuð sem vísað gæti á morðingja hennar. Eina sem hægt var að fullyrða með einhverri vissu var að hún hafði verið stungin til bana. Næstu 23 ár söfnuðu málsskjöl- in ryki en eins og oft vill verða með gömul óleyst mál var þessu máli komið í hendurnar á Steve nokkrum Davis, rannsóknarlög- reglumanni, og varð þess skammt að bíða að hann fengi nýjar vís- bendingar sem hann gat fylgt. Enda hafði tækninni fleygt fram, ekki síst hvað varðaði DNA-sýni. Þriggja ára leit Í ljós kom að blóðsýni sem tekin höfðu verið af mottu úr farangurs- rými Camaro-ins og glasahaldara innihéldu lífsýni úr Joanne og þannig var búið að tengja bílinn morðinu á henni. En DNA-sýni sýndu einnig að Spicer hafði kom- ið þar nærri. Það tók Steve Davis þrjú ár að finna Spicer. Hann fannst að lok- um á hosteli í Las Vegas – atvinnu- laus flækingur. Þrátt fyrir hetjulegan málflutn- ing verjanda Spicer, þegar réttað var í málinu, efaðist kviðdómur ekki um sekt Spicer og sextugur að aldri var hann dæmdur til að eyða því sem eftir lifði ævinnar á bak við lás og slá. Ekki er fráleitt að ætla að hann hefði komist upp með morð, en sí- fellt meiri tækni sem lögregla beit- ir við rannsókn mála kom í veg fyrir. n „Spicer sá fyrir sér hvernig sítt, liðað hár Joanne bylgjaðist sem foss yfir bak leður- sætisins í Camaro-inum þegar hann gerði hvað sem hann langaði við hana. Myrt í blóma lífsins Lík Joanne Marie fannst illa farið sex vikum eftir morðið. Morðinginn Stafford Spicer naut frelsis í 27 ár eftir morðið á Joanne Marie. n Joanne Marie var myrt 1985 n Spicer taldi sig hafa komist upp með morð Drepinn vegna Playstation 4 Tuttugu og eins árs Bandaríkja- maður, Ronnie Collins, hefur ver- ið handtekinn vegna gruns um að hafa orðið 22 ára manni, Ikenna Uwakah, að bana í San Francisco í vikunni. Uwakah og Collins höfðu mælt sér mót en sá fyrrnefndi hafði auglýst Playstation 4-leikja- tölvu sem hann átti til sölu. Þegar viðskiptin áttu að fara fram er talið að Collins hafi dregið upp byssu og skotið Uwakah nokkrum sinn- um. Að því búnu fjarlægði hann tölvuna úr bifreið Uwakah og yfir- gaf vettvanginn. Uwakah var úr- skurðaður látinn á sjúkrahúsi. Playstation 4-leikjatölvan kom í almenna sölu í Bandaríkjunum þann 15. nóvember síðastliðinn og hefur selst í yfir tveimur milljón- um eintaka. Morð ekki færri frá árinu 1965 Morðum í Chicago, þriðju fjöl- mennustu borg Bandaríkjanna, hefur fækkað mikið það sem af er ári miðað við undanfarin ár. Haldi þessi þróun áfram út des- embermánuð verða liðin 48 ár síðan jafn fá morð voru framin í borginni. Fyrstu ellefu mánuði ársins voru 380 myrtir í borginni en til samanburðar voru 474 myrtir fyrstu ellefu mánuði ársins 2012. Skotárásum hefur fækkað um 25 prósent frá síðasta ári og öllum glæpum, allt frá minnihátt- ar eignaspjöllum til morða, hefur fækkað um 15 prósent í borginni. Lögregluyfirvöld borgarinnar hafa staðið fyrir miklu átaki gegn glæpum á árinu og lagt mikla áherslu á að taka á ólöglegri meðferð skotvopna. Fyrstu ellefu mánuði ársins voru 6.372 byssur haldlagðar af lögreglu. Svívirðilegt brot gegn hálfsystur Tuttugu og fimm ára Norðmaður hefur verið dæmdur í eins og hálfs árs fangelsi fyrir að mis- nota hálfsystur sína kynferðis- lega. Maðurinn átti sér engar málsbætur en áður en hann mis- notaði stúlkuna gaf hann henni drykk sem hann hafði blandað út í amfetamíni og metamfetamíni. Fyrir dómi kom fram að mað- urinn hefði ítrekað boðið stúl- kunni kannabisefni en hún ávallt neitað. Þegar stúlkan bragðaði á fíkniefnakokteilnum og spurði hálfbróður sinn út í vont bragð sagði hann að hann hefði bland- að vítamínum út í drykkinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.