Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2013, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2013, Page 8
8 Fréttir Vikublað 10.–12. desember 2013 Vonleysið algjört n Ólympíufari veikur síðan kaþólska kirkjan bauð 170 þúsund n Sex ára ofbeldi F yrst kaþólska kirkjan getur ekki borið ábyrgð á sjálfri sér og hef- ur ekki manndóm til að taka á þessu máli á sá sem leyfði henni að starfa hér að axla sína ábyrgð,“ segir Ísleifur Friðriksson, fyrr- verandi nemandi í Landakotsskóla sem sætti þar langvarandi grófu ofbeldi. Kirkjan viðurkenndi ekki að hún væri bótaskyld gagnvart Ísleifi en vildi greiða honum 170 þúsund króna frjálst framlag, sem hann afþakkaði. „Frá því að ég fékk þessar krónur frá kirkjunni þá hefur allur vindur verið úr mér. Ég er eins og sprungin blaðra. Ég er búinn að vera virkilega veikur síðan, búinn að sitja hér aleinn í mínu horni, alltaf að hugsa um þetta, með stöðugar áhyggjur og vonleysi í hjarta. Þetta er svo hræðilegt að ég veit ekki hvað ég á að segja. Mér finnst eins og ég standi einn í heiminum og þessir níðingar, ég segi bara eins og Jón Hreggviðsson, vont er þeirra ranglæti en verra er þetta réttlæti.“ Brostnar vonir Ísleifur var sá fyrsti sem steig fram á sínum tíma og sagði frá því í nafn- lausu viðtali að hann hefði ver- ið beittur ofbeldi í Landakotsskóla. Skömmu síðar steig hann fram undir nafni og mynd og sagðist vera maður- inn á bak við nafnlausu frásögnina. Ís- leifur kom svo fram í Kastljósi daginn sem hann fékk bréfið og greindi frá því hversu ósáttur hann var við þess- ar málalyktir. Síðan hefur hann verið afar illa haldinn. „Ég átti vonir og vænti þess að þetta yrði svolítið skárra á eftir. En mér líður verr núna en áður. Það var eins og þeir hefðu hent naglasprengju inn í hóp af mótmælendum.“ Hann bendir á að kirkjan hafi kall- að eftir kröfum en síðan hafi framlag hennar ekki dugað fyrir málskostnaði. „Ég hef verið með lögfræðing frá því að ég kom fyrst fram, því þá var ég svo aumur að ég gat ekki rætt við neinn,“ Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir ingibjorg@dv.is Ríkið verður að grípa inn í Ögmundur Jónasson ætlar að taka málið upp á Alþingi Ögmundur Jónasson alþingismaður segir að kaþólska kirkjan hafi illa brugðist og að ríkið verði að grípa inn í myndina. „Kaþólska kirkjan hefur því miður illa brugðist. Það er dapurlegt, ekki aðeins fyrir fórnarlömb þjóna kirkjunnar heldur einnig kirkjuna sjálfa. Kaþólska kirkjan getur haft sín sjónarmið varðandi sanngirnisbætur en þær hafa verið teknar upp af hálfu hins opinbera á Íslandi og þar með varð til ákveðið viðmið sem kaþólska kirkjan virðir ekki. Þess vegna líkja fórnarlömbin því við að vera slegin blautri tusku í andlitið þegar þeim er boðið brotabrot af því sem fórnarlömb annars staðar í kerfinu hafa fengið. Sum fórnarlambanna hafa afþakkað það sem að þeim hefur verið rétt, líta ekki á það sem sanngirnisbætur, fjarri lagi. Í raun held ég að það séu ekki peningarnir sem skipta máli heldur eru þeir táknrænir, þeir eru mælikvarði á sanngirnina. Fyrst kaþólska kirkjan er svona smá í sér þykir mér sýnt að ríkið verði að koma inn í þessa mynd. Til að einstaklingar sem voru í skólanum og urðu fyrir alvar­ legu ofbeldi sitji við sama borð og önnur börn í skólakerfinu. Því hef ég ákveðið að vekja máls á þessu á Alþingi hið fyrsta. Ábyrgð ríkisins hlýtur að liggja einhvers staðar fyrst kirkjan er svo smá í sér að hún rís ekki undir þessu.“ útskýrir hann. „Ég lifði í þeirri björtu von að ég fengi kannski ró og frið en þá sjá þeir til þess að ég sé troðinn enn lengra niður í svaðið aftur. Stjórn- endur kirkjunnar vita að ég hef ekkert bolmagn til þess að herja á þá, enda láglaunamaður eftir kreppu. Þess vegna komast þeir upp með þetta og það svíður. Núna þarf ég virkilega á aðstoð sálfræðinga að halda og stelpurnar í Stígamótum ætla að halda aðeins utan um mig. Ég veit ekki hvað ég hef eytt háum upphæðum í það að sækja mér aðstoð en það hleypur örugglega á einhverjum milljónum. Þú sérð að tíminn hjá sálfræðingi kostar 15.000 krónur. Þannig að ég hefði verið fljót- ur að eyða þessum peningnum í það.“ Satt best að segja er hann ánægð- astur með að hafa afþakkað pening- ana. „Mér fannst það svo mikill níð- ingsskapur að vilja ekki biðja mig afsökunar á þann hátt sem ég hafði beðið um og axla þá ábyrgð. Biskup- inn sýndi engan vilja til þess að mæta mér og það felst engin iðrun í þessum málalyktum.“ Hélt hann væri einn Ofbeldið gagnvart Ísleifi hófst þegar hann var sjö ára og það stóð yfir alla hans barnaskólagöngu, eða þar til hann var þrettán ára. Hon- um var nefnilega gert að vera ári lengur í skólanum en til stóð. Á þessum árum var honum nauðgað reglulega af séra Georg og Margréti Müller. Þegar hann opnaði á umræðuna um ofbeldið í skólanum hafði hann lengi ætlað sér að segja frá því sem þau gerðu honum en alltaf hafði eitt- hvað staðið í vegi fyrir því. Í raun virt- ist hann ómeðvitað setja allt fyrir sig í þeim efnum, hvort sem það varð- aði hans einkahagi eða almenna um- ræðu í þjóðfélaginu. Það var hins vegar fyrir svona tíu árum sem hann sagði bræðrum sínum frá því sem kom fyrir hann. Seinna sagði hann konunni sinni frá þessu. Síðan ætlaði hann með málið í fjölmiðla en þá komu upp svipuð mál innan kaþólsku kirkjunnar í Írlandi og Bandaríkjunum. „Ég vildi ekki að fólk héldi að ég væri að stökkva á vagninn. Síðan kom biskupsmálið upp. Það hafði mikil áhrif á mig. Ekki síst í ljósi þess að sama dag var ég á leið til lögreglunnar að leggja fram kæru. Þá hélt ég að það gæti kannski aldrei orðið. Ég hélt líka alltaf að það yrði á brattann að sækja því ég væri bara einn. Það væri ekki um fleiri að ræða.“ Sagði vini sínum frá Sjálfur sagði Ísleifur aldrei frá of- beldinu þegar hann var að alast upp. Ekki beint. Hins vegar lét hann í það skína að honum liði illa í skólanum og að þangað vildi hann ekki fara. „Einu sinni sagði ég mínum besta æsku- vini frá. Þá vorum við að rífast og ég hreytti því í hann að ég hefði víst kom- ið við konu. Við vorum bara tíu ára og ræddum það ekkert nánar. Hann sagði heldur engum frá þessu. Enda var þetta bara rimma okkar á milli.“ Ofbeldið litaði engu að síður allt hans líf. „Ég hef oft sagt við fjöl- skylduna að allt sem miður hefur far- ið í mínu lífi megi rekja til þess sem þarna gerðist. Fyrir mér er það aug- ljóst. Allan þennan tíma lifði ég í ótta. Mér var haldið í heljargreipum og ég vissi aldrei hverju ég átti von á — eða jú, ég vissi það kannski, en það var lítil huggun í því. Í gegnum allan grunnskólann var ég það sem kallast tossi. Þegar ég lauk gagnfræðaskóla og fór í málmsmíði í Iðnskólanum í Reykjavík blómstraði ég í þessum fögum sem ég var alltaf svo lélegur í. Af því að þetta snerist ekki bara um kynferðisofbeldið held- ur var alltaf verið að gera lítið úr okkar árangri,“ segir Ísleifur og tekur dæmi. „Þau voru mjög ströng og settu mikið fyrir. Ef ég náði ekki að klára öll stærðfræðidæmin þá var ég dreginn Misnotaður í sex ár Ísleifur stendur hér fyrir framan skólann þar sem hann var beittur grófu, lang­ varandi ofbeldi. Það hafði svo alvarlegar afleiðingar að hann ætlaði að svipta sig lífi og hefur þrisvar þurft að leggjast inn á geðdeild. MynD SIgtryggur ArI Sviptur æskunni Ísleifur var sjö ára þegar séra Georg og Margrét hófu ofbeldis­ glæpina gegn honum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.