Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2013, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2013, Blaðsíða 20
Heimilisfang Tryggvagötu 11 Hafnarhvoli, 2. hæð 101 Reykjavík fréttaskot 512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 aðalnúmer ritstjórn áskriftarsími auglýsingar sandkorn 20 Umræða P áll Magnússon útvarpsstjóri er á undarlegum brautum. Starfsfólk hans er rekið og niðurlægt í hagræðingarað­ gerðum þar sem nauðsynlegt hefði verið að sýna mildi og tillitssemi. Fautaskapurinn var takmarkalaus og myndgerðist í orðsins fyllstu merk­ ingu þegar Páll náðist á upptöku þar sem hann kallaði undirmann sinn óþverra. Flestum er ljóst að Ríkisútvarpið er rekstrarlega í ógöngum. Stofnun­ in hefur tapað háum fjárhæðum án þess að tekist hafi að snúa við þeirri þróun. Útvarpsstjórinn hefur rekið báknið í beinni samkeppni við einka­ aðila og gert út á sápu fremur en að sinna því hlutverki sínu að hlúa að menningu í landinu. Sá hluti Ríkis­ útvarpsins sem hefur komist næst því að sinna lögboðnu hlutverki sínu er Rás 1 þar sem öflugt starfsfólk hef­ ur lagt metnað í að halda úti dagskrá án þess að gefa bíómiða og konfekt­ kassa fyrir hlustunina. Rás 2 er því marki brennd að þar er flest til sölu. Þeir sem vilja athygli á ríkismiðlinum gefa gjafir sem þulir ljósvakans dæla út af fullkomnu siðleysi. Borgaðu og fjölmiðillinn vekur á þér athygli. Þarna er sama aðferðarfræðin og í dagblaði útrásarvíkingsins sem selur aðgang að blaðamennskunni. Sjón­ varpið er í meginatriðum eins og Stöð 2 eða Skjár Einn. Amerísk af­ þreying ríður þar húsum í bland við innlenda skemmtiþætti sem sum­ ir hverjir skilja eftir óbragð í munni. Notaleg tilbreyting er í þætti á borð við Orðbragð þar sem með glaðbeitt­ um hætti er fjallað að gagni um ís­ lenska tungu. En þetta er undan­ tekningin. Sumir hafa nefnt nauðsyn þess að halda úti ríkisfréttastofu. Fréttastofa RÚV hefur undanfar­ ið gert flestu hugsandi fólki ljóst að henni er stjórnað með þeim hætti að samrýmist ekki heiðarlegri frétta­ mennsku. Fréttaröð um uppsagnir í þeirra eigin stofnun er vísbending um óboðlega stjórn­ unarhætti. Það sætir furðu að stjórn Ríkis­ útvarpsins skuli láta það við­ gang­ ast að Páll Magnússon láti stærsta höggið ríða á Rás 1. Þar ætti að hlífa og efla. En það er áhugavert í því ljósi að stríð­ alin yfirstjórnin með útvarpsstjórann í broddi fylkingar sleppur við niður­ skurð. Starfsmannastjórinn sem traðkar á mannauðinum með því að reka fólk tafarlaust á dyr og loka aðgangi að tölvupósti og Face­ book­síðu starfsmanna situr sem fastast. Fitulag RÚV er ósnert á meðan vöðvar ris­ ans rýrna og aflimun er í full­ um gangi. Stjórn Ríkisútvarpsins verður að láta til sín taka. Fimm ára skipunartími út­ varpsstjórans mun renna út á næstunni og þá er mál að skipta út. Það þarf nýja hugsun inn í fyrirtækið og endurskilgreiningu. Almenningur á heimt­ ingu á því að þeir milljarðar sem fyrirbærið sogar til sín séu notaðir af skyn­ semi og þjóðinni til gagns. Það geng­ ur bókstaflega ekki að ríkið haldi úti samkeppni á fjölmiðlamarkaði. Sá leikur er eins og ójafn og hugsast getur. Skattfé er notað til þess að framleiða fjölmiðlaefni sem jafnóðum fellur í gleymskunnar dá og er fáum til gagns. Það er kominn tími til þess að reisa við Ríkisútvarp­ ið og skapa því þann sóma og sess sem boð­ legur er. Út með Pál og meðreiðar­ fólk hans. n Vikublað 10.–12. desember 2013 Ég var í helvíti Ég svaf uppí með þeim öllum fjórum Ég er sorgmæddur, það er vont að vera sagt upp Fitulagið friðað Valgarður Bragason um Landakotsskóla. – DV Björgvin Halldórsson um kettina sína. – DV Guðni Már Henningsson. – DV Harður Illugi Illugi Gunnarsson menntamála­ ráðherra þykir einstaklega kjarkaður stjórnmálamaður. Hann hefur hiklaust tekið slagi á borð við skerðingar hjá Lána­ sjóði íslenskra námsmanna og niðurskurð hjá Ríkisútvarpinu. Það vekur athygli að hann hvik­ ar hvergi frá ákvörðunum sínum þótt naprir vindar blási. Nýjasta útspil hans kom á beinni línu DV og er það að ekki sé óhugs­ andi að selja Rás 2. Innanhúss á Mogga Ævisaga Hemma Gunn, sem Orri Páll Ormarsson, blaðamaður á Morgunblaðinu skráði, hefur verið umdeild og þá sérstaklega vegna eftirmála bókarinnar þar sem höfundur­ inn lýsir Hemma sem ósanninda­ manni. Vinnu­ staður Orra Páls birti ritdóm um bókina fyrir síðustu helgi. Þar gaf Skafti Þ. Halldórsson félaga sínum fjórar stjörnur fyrir verk­ ið. Reyndar gefur hann lítið fyrir fyrsta hluta bókarinnar og um­ fjöllunina um knattspyrnuferil Hemma. Trompaður ráðherra Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ ráðherra er á góðri leið með að verða frægastur allra ráðherra að endemum. Ríkis­ útvarpið rakti ítar­ lega hvernig hann sem stjórnarand­ stöðuþingmaður hraunaði yfir IPA­ styrki Evrópusam­ bandsins og taldi þá óæskilega þar sem verið væri að bera fé á Íslendinga. Líkti hann þeim við eldvatn og perlur. Þegar ESB ákvað að hætta að veita „mút­ unum“ til Íslands trompaðist ráð­ herrann. Enginn botnar í því hvað hann vill eða hvað ráði breyttri af­ stöðu ráðherrans. Framsókn flýgur Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra má vel við una að kannanir sýna að Fram­ sóknarflokkur hans rís í fylgi eftir að úrræði fyrir skuldara voru kynnt með pompi og prakt í Hörpu. Þetta gerist þrátt fyr­ ir að Sjálfstæðisflokkurinn hafi tónað niður svimandi loforð Framsókn­ ar úr 200–300 millj­ örðum í 80. Hið skondna er svo að Sjálfstæð­ isflokk­ urinn, sem engin lof­ orð sveik, tap­ ar fylgi sam­ kvæmt nýjustu mælingum. Reynir Traustason rt@dv.is Leiðari Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður: Þorsteinn Guðnason • Ritstjóri: Reynir Traustason • Aðstoðarritstjóri: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir Ritstjórnarfulltrúi: Ingi Freyr Vilhjálmsson • Umsjónarmaður innblaðs: Viktoría Hermannsdóttir • Umsjónarmaður helgarblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir • Framkvæmdastjóri og vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson • Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur Á Alþingi hefur verið upplýst að ein megin ástæðan fyrir því að ákveðið hefur verið að lög­ þvinga Orkuveitu Reykjavíkur til að aðskilja starfsemi sína í ein­ ingar (sem „stunda vinnslu, fram­ leiðslu og sölu raforku og heits vatns og gufu og rekstur grunnkerfa, svo sem dreifiveitu rafmagns, hitaveitu, vatnsveitu, fráveitu og gagnaveitu, auk annarrar starfsemi sem hefur sambærilega stöðu“), sé sú að aðrar veitustofnanir í landinu séu þessa fýsandi. Öllum skal gert jafn erfitt fyrir Fyrst þær hafi verið þvingaðar inn í slíkt ferli þá skuli einnig hið sama gilda um OR. Með öðrum orðum, öllum, þar á meðal OR skuli gert að búa við sömu erfiðu aðstæðurnar! Reykjavíkurborg, Akranes og Borgarbyggð andmæltu þessu lengi framan af en gáfust síðan upp og lyppuðust niður frammi fyrir ríkis­ valdinu. Treysta sér ekki til að láta reyna á undanþágu En hvers vegna telja menn sig þurfa að gera þetta? Það er vegna þess að tilskipun Evrópusambandsins kveð­ ur á um slíkan aðskilnað og blátt bann við því að starfsemi sem flokk­ ast undir samkeppnisrekstur sé á einhvern hátt niðurgreidd af starf­ semi sem nýtur einkaleyfis. Og vegna þess að Íslendingar hafi ekki leitað eftir undan­ þágu á sínum tíma frá til­ skipun ESB hvað þetta varðar, þá sé tómt mál um þetta að tala nú. Endurskoða þarf allt regluverkið Ég held hins vegar að þetta sé misskilningur og að rétt sé að láta á þetta reyna enda er ljóst að sam­ kvæmt reglum ESB eru forsendur fyrir hendi til undanþágu. Og hvað varðar aðrar veitustofnanir en OR, þá þarf að endurskoða laga­ og reglu­ verk þeirra einnig. Það er einfald­ lega fráleitt að starfsemi sem flokkast undir grunnþjónustu sé ekki rekin með hagsmuni samfélagsins eina að leiðarljósi en ekki ímyndaðs mark­ aðar. Samkeppni veitustofnana varð að martröð Draumar um markaðsbúskap á sviði veitustofnana hafa reynst martraðir þegar til kastanna hefur komið og oftar en ekki leitt til hærra verðs og lakari þjónustu. Þess má geta að ég hafði for­ göngu um það í tíð síðustu ríkis­ stjórnar að taka upp áður sam­ þykkta póst­tilskipun og láta tiltekin ákvæði hennar ekki koma til fram­ kvæmdar þar sem þau hentuðu illa íslenskum veruleika. Áttum við þar samleið með Norðmönnum. Lánardrottnar og langtímahagsmunir Við umræðuna á Alþingi um OR frumvarpið kemur fram að lánar­ drottnar OR setji sig ekki upp á móti aðskilnaðinum! Gott og vel, við kunnum að vera þeim háð um stundarsakir en hér er verið að tala um skipulag til langrar framtíðar. Auk þess skilst mér að málin standi þannig að þeir setji sig ekki upp á móti breytingum fremur en að þeir séu þeim hlynntir. Samlegð og markaður Hagræðingarnefnd ríkisstjórnarinnar mátti ekki sjá smáa stofnun án þess að vilja sameina hana annarri stærri – allt vegna samlegðar – hér er hins vegar farið gagnstæða leið og öllu sundrað. Enda er takmarkið ekki að ná samlegðaráhrifum; takmark­ ið er ekki að þjóna notendum held­ ur búa í haginn fyrir markaðsvæð­ ingu veitustofnana og í framhaldinu einkavæðingu raforkunnar og vatns­ ins. Það er fráleitt annað en að slíkar grunsemdir vakni í ljósi reynslunnar. Sporin hræða. Aftur í nefnd Síðastliðinn mánudag fór fram at­ kvæðagreiðsla eftir aðra umræðu um frumvarp sem heimilar uppstokkun og aðskilnað en verði ekki frestað gildistöku lögþvingunarfrumvarps­ ins – eins og gert hefur verið þar til nú – er komið í gang ferli sem geng­ ur þvert á hagsmuni neytenda. Þing­ flokkur VG sat hjá við atkvæðagreiðsl­ una í þeirri von að Atvinnuveganefnd Alþingis, sem hefur málið til umfjöll­ unar, endurskoði afstöðu sína og fall­ ist á að fresta enn um sinn að lög sem þvinga OR til að fara inn í aðskilnað­ arferli með starfsemi sína verði að veruleika. n „Hagræðingar­ nefnd ríkisstjórn­ arinnar mátti ekki sjá smáa stofnun án þess að vilja sameina hana annarri stærri. Ögmundur Jónasson alþingismaður Kjallari „Yfirstjórnin með útvarps­ stjórann í broddi fylkingar sleppur við niðurskurð. Gegn hagsmunum samfélagsins

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.