Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2013, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2013, Blaðsíða 31
Vikublað 10.–12. desember 2013 Sport 31 1 BrasilíaSæti á heimslista: 10 Fjöldi HM-titla: 5 Lykilmaður: Neymar n Eins og flestum er kunnugt fer mótið fram í Brasilíu og það yrðu ekkert nema vonbrigði fyrir heimamenn ef þeim tækist ekki að vinna titilinn á heimavelli. Brasilíu- menn fóru létt með Álfukeppnina í sumar þar sem þeir unnu heimsmeistara Spánar í úrslitaleiknum 3–0. Liðið virðist býsna sterkt nú í aðdraganda mótsins og hefur unnið 12 af síðustu 13 landsleikjum sínum. Brasilía er í A-riðli með Kamerún, Mexíkó og Króatíu og ætti að fara nokkuð örugglega áfram. 2 ArgentínaSæti á heimslista: 3 Fjöldi HM-titla: 2 Lykilmaður: Lionel Messi n Argentínumenn hafa ekki unnið HM síðan árið 1986 en liðið er betur mannað núna en oft áður. Ef Lionel Messi nær að hrista af sér meiðslin sem hafa verið að hrjá hann skyldi enginn útiloka Argentínumenn enda valinn maður í hverri stöðu. Argentínumenn drógust í F-riðil með Nígeríu, Íran og Bosníu og ættu að fá fullt hús stiga út úr þeim riðli. Argent- ínumenn hafa unnið 7 af síðustu 12 leikjum sínum í öllum keppnum, tapað einu sinni og gert fjögur jafntefli. 3 Þýska-land Sæti á heims- lista: 2 Fjöldi HM-titla: 3 Lykilmenn: Mesut Özil, B. Schweinst- eiger n Það eru eflaust margir á því að nú sé tími Þjóðverjanna runninn upp, en liðið hefur staðið í skugganum á firnasterkum Spán- verjum undanfarin ár. Flestir lykilmanna Þjóðverja eru á besta aldri í dag og er ljóst að þýska stálið mun selja sig dýrt næsta sumar. Liðið er í nokkuð sterkum riðli ásamt Gana, Bandaríkjunum og Portúgal en ef allt er eðlilegt ættu Þjóðverjar að fara áfram í 16-liða úrslit. Liðið hefur unnið 9 af síðustu 12 leikjum sínum, tapað einum og gert tvö jafntefli. 4 SpánnSæti á heimslista: 1 Fjöldi HM-titla: 1 Lykilmaður: Andres Iniesta n Ákveðin kyn- slóðaskipti eru að verða í spænska landsliðinu enda eru lykilmenn undanfarinna ára, leikmenn á borð við Xavi, David Villa, Carles Puyol og Xabi Alonso, komnir töluvert yfir þrítugt. Spánverjar eiga þó mikinn fjölda ungra og efnilegra leikmanna sem eiga eftir að láta til sín taka í framtíðinni. Spánverj- ar eru í erfiðum riðli með Chile, Ástralíu og Hollandi og alls ekkert sjálfgefið að heimsmeistararnir komist upp úr riðlinum. Liðið hefur unnið 12 af síðustu 16 leikjum sínum, tapað tveimur og gert tvö jafntefli. 5 BelgíaSæti á heimslista: 11 Fjöldi HM-titla: 0 Lykilmaður: Eden Hazard n Ótrúlegur uppgangur hefur verið í belgískri knattspyrnu undanfarin ár og leika leikmenn belgíska lands- liðsins með mörgum af stærstu liðum heims. Langt er liðið síðan Belgar tóku síðast þátt á stórmóti og spurning hvort reynsluleysi leikmannahópsins komi til með að há þeim næsta sumar. Belgía dróst í riðil með Alsír, Suður-Kóreu og Rússlandi og verður liðið væntanlega í harðri baráttu við Suður- Kóreu og Rússland um að komast áfram. Liðinu gekk vel í undankeppni mótsins en tapaði tveimur æfingarleikjum, gegn Kólumbíu og Japan, á dögunum. 6 KólumbíaSæti á heimslista: 4 Fjöldi HM-titla: 0 Lykilmaður: Radamel Falcao n Kólumbíumenn eru ógnarsterkir um þessar mundir og fremstur í flokki frábærra leikmanna liðsins er markahrókurinn Radamel Falcao. Liðið endaði í 2. sæti í Suður-Ameríkuriðli undankeppninnar, tveimur stigum á eftir Argentínu. Kólumbíumenn eru í riðli með Fílabeinsströndinni, Japan og Grikklandi sem gæti orðið nokkuð strembið enda eru þetta allt nokkuð sterkar knattspyrnu- þjóðir sem jafnframt spila mjög ólíkan fótbolta. Kólumbíumenn hafa unnið 7 af síðustu 12 leikjum sínu, tapað tveimur og gert þrjú jafntefli. 7 FrakklandSæti á heimslista: 19 Fjöldi HM-titla: 1 Lykilmaður: Franck Ribery n Frakkar hafa ekki átt sérstaklega góðu gengi að fagna undanfar- in ár en virðast þó vera að rétta úr kútnum. Liðið rétt komst áfram í lokakeppn- ina eftir sigur á Úkraínumönnum í umspili. Hópurinn er nokkuð reynslu- mikill og skyldi enginn útiloka að Frakkar komist langt í Brasilíu næsta sumar. Frakkar voru nokkuð heppnir í riðladrættinum en þeir mæta Svisslendingum, Hondúrum og Ekvadorum. Frakkar ættu að komast nokkuð örugglega upp úr þessum riðli og mætti ætla að þeir yrðu í baráttu við Sviss um efsta sæti riðilsins. Frakkar hafa unnið fjóra af síðustu 10 leikjum sínum í öllum keppnum, tapað fjórum og gert tvö jafntefli. 8 ÍtalíaSæti á heimslista: 7 Fjöldi HM-titla: 4 Lykilmenn: Andrea Pirlo, Mario Balotelli n Ítalir hafa verið lygilega öflugir undanfar- in ár og staðið sig betur en margir þorðu að vona. Liðið komst í úrslit EM 2012 þar sem það tapaði fyrir Spánverjum í úrslitum. Ítalir rúlluðu upp sínum riðli í undankeppninni en drógust í nokkuð strembinn riðil á föstudag. Þeir mæta Englandi, Úrúgvæ og Kostaríku og er óhætt að segja að þetta sé einn sterk- asti riðill mótsins. Ítalir eru bestir þegar mest liggur við og þrátt fyrir styrkleika Englendinga og Úrúgvæja eru Ítalir sigurstrang- legastir í riðlinum. Ítalir hafa unnið tvo af síðustu sjö leikjum sínum í öllum keppnum, gert fjögur jafntefli og tapað einum. 9 HollandSæti á heimslista: 9 Fjöldi HM-titla: 0 Lykilmaður: Robin van Persie n Hollendingar hafa þrisvar leikið til úrslita á HM en alltaf tapað, síðast árið 2010. Líklega munu Hollendingar þurfa að bíða lengur eftir sínum fyrsta heimsmeistaratitli enda meta veðbankar möguleika þeirra ekki ýkja mikla. Hollenska liðið vann öruggan sigur í sínum riðli í undankeppni HM en miklu stærra verkefni blasir við í riðlakeppninni á HM þar sem Holland er í riðli með Ástralíu, Chile og Spáni. Ef Hol- lendingum tekst að komast upp úr riðlinum eru þeir til alls líklegir enda riðillinn sá allra sterkasti á mótinu. Holland hefur unnið fjóra af síðustu sjö leikjum í öllum keppnum og gert þrjú jafntefli. 10 ÚrúgvæSæti á heimslista: 6 Fjöldi HM titla: 2 Lykilmaður: Luis Suárez n Úrúgvæ hampaði síðast heimsmeistara- titlinum árið 1950 en að mati veðbanka er ólíklegt að þeir vinni titilinn aftur í bráð. Liðið er þó betur mannað en oft áður og hefur á að skipa einum allra besta framherja heims, Luis Suárez, auk Edinson Cavani. Úrúgvæ lenti í basli í undankeppn- inni en komst í lokakeppnina með öruggum sigri á Jórdaníu í umspili. Liðið er í erfiðum riðli með Englandi, Kostaríku og Ítalíu. Fyr- irfram ætti liðið að verða í baráttu við Ítali um efsta sæti riðilsins en enginn ætti að útiloka Englendinga. Úrúgvæ var sem fyrr segir í basli í undankeppn- inni en hefur þó unnið fimm af síðustu sjö leikjum sínum, tapað einum og gert eitt jafntefli. Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is Brasilíumenn eru sigurstranglegastir n Dregið í riðla fyrir HM n Veðbanki Sky metur möguleika liðanna n Þessi lið eru líkleg

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.