Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2013, Blaðsíða 17
Fréttir Erlent 17Vikublað 10.–12. desember 2013
SpilltuStu ríki heimS
n Ný skýrsla frá Transparency International n Sómalía, Norður-Kórea og Afganistan skrapa botninn n Ekkert Evrópuríki á listanum
Sómalía
Stig: 8
Íbúafjöldi: 10 milljónir
Lífslíkur: 50 ár
Þjóðarleiðtogi: Hassan Sheikh Mohamud
n Sómalía nýtur
þess vafasama
heiðurs að vera
spilltasta ríki
heims ásamt
Norður-Kóreu og
Afganistan. Hálf-
gert upplausnar-
ástand hefur verið í Sómalíu um margra
ára skeið og nánast algjör stjórnleysi ríkt.
Spilling virðist vera óhjákvæmilegur fylgi-
fiskur stjórnleysis og sú er raunin í Sómalíu.
Ríkið hefur fengið mikla fjármuni í aðstoð
frá erlendum ríkjum og opinberar eftirlits-
stofnanir hafa gagnrýnt það að milljarðar
króna sem áttu að fara í hjálparstarf á
undanförnum árum hafi alls ekki skilað sér
í hjálparstarf.
Suður-Súdan
Stig: 14
Íbúafjöldi: 8,3 milljónir
Lífslíkur: 62
Þjóðarleiðtogi: Salva Kiir Mayardit
n Þó svo að Suður-
Súdan hafi aðeins
fengið sjálfstæði
árið 2011 virðist
spilling loða við
þetta nýjasta land
heims samkvæmt
upplýsingum
Transparency International. Innviðir
landsins eru enn í mótun og virðist spilling
vera útbreitt vandamál, meðal annars
af þeim sökum. Þannig geta landsmenn
sem hafa nægt fé milli handanna mútað
opinberum starfsmönnum til að fá betri
þjónustu, þar á meðal heilbrigðisþjónustu.
Í skýrslu Transparency um Suður-Súdan í
mars kom fram að 66 prósent landsmanna
hafi þurft að múta einhverjum til að fá
betri þjónustu.
Afganistan
Stig: 8
Íbúafjöldi: 31 milljón
Lífslíkur: 60 ár
Þjóðarleiðtogi: Hamid Karzai
n Spilling er
útbreitt og
vaxandi vanda-
mál í afgönsku
þjóðfélagi og er
ríkið metið jafn
spillt og Sómalía og
Norður-Kórea. Stórt
spillingarmál kom upp árið 2010 þegar upp
komst að aðilar tengdir Hamid Karzai for-
seta höfðu eytt ótrúlegum fjárhæðum í eigu
Kabul Bank til að fjármagna lúxuslífsstíl
sinn. Upphæðin sem um ræddi nam milljarði
Bandaríkjadala, eða rúmum 100 milljörðum
króna á núverandi gengi en þessir aðilar lán-
uðu einnig vinum og vandamönnum sínum
fé á laun. Aðeins tókst að endurheimta 180
milljónir dala, rúma 20 milljarða króna.
Jemen
Stig: 17
Íbúafjöldi: 24,8 milljónir
Lífslíkur: 64 ár
Þjóðarleiðtogi: Abd Rabbuh Mansur Hadi
n Jemen er eitt
fátækasta ríkið í
Mið-Austurlöndum.
Efnahagurinn er
afar bágur og slig-
andi 40 prósenta
atvinnuleysi er
viðvarandi. At-
vinnuleysi á meðal ungs fólks er 70 prósent.
Konur eiga afar erfitt uppdráttar í landinu.
0,7 prósent þingmanna eru konur og aðeins
7,6 prósent kvenna sækja sér framhalds-
menntun. Heilsa þjóðarinnar er bág og 61
prósent barna í landinu þjáist af vannær-
ingu, samkvæmt Alþjóðabankanum. Matar-
skortur er eitt stærsta vandamálið sem
Jemenar glíma við.
Súdan
Stig: 11
Íbúafjöldi: 31 milljón
Lífslíkur: 62
Þjóðarleiðtogi: Omar al-Bashir
n Súdanska ríkisstjórnin
fer með öll völd yfir
olíubirgðum landsins
og hefur svokölluð
einkavinavæðing loðað
við landið um langt skeið.
Opinberir starfsmenn eru
gjarnan sagðir krefjast
greiðslna undir borðið til að veita betri þjónustu.
Þá er mikill skortur á gagnsæi í landinu og veikur
löggjafi gerir það að verkum að opinberir starfs-
menn og embættismenn komast gjarnan upp
með spillingu í embætti. Árið 2012 settu yfirvöld
á fót nefnd sem hefur það hlutverk að berjast
gegn spillingu. Enn sem komið er hefur nefndin
þó ekki fjallað um eitt einasta spillingarmál.
Norður-Kórea
Stig: 8
Íbúafjöldi: 24,5 milljónir
Lífslíkur: 69 ár
Þjóðarleiðtogi: Kim Jong-un
n Norður-Kórea er
lokaðasta ríki heims
auk þess að vera eitt
það allra fátækasta í
heiminum. Landinu er
stjórnað af einræðis-
herranum Kim Jong-un
sem tók við embættinu
af föður sínum, Kim Jong-il, árið 2011. Botnlaus
spilling hefur ríkt í landinu um langt skeið og er
þeim, sem taldir eru andvígir yfirvöldum, oftar
en ekki stungið í steininn án dóms og laga, að
sögn mannréttindasamtaka. Þá er það þekkt
að opinberir starfsmenn, svo sem landamæra-
verðir, taki við mútum frá þegnum landsins sem
vilja komast frá því.
Túrkmenistan
Stig: 17
Íbúafjöldi: 5,1 milljón
Lífslíkur: 63 ár
Þjóðarleiðtogi: Gurbanguly
Berdimuhamedow
n Líkt og með svo mörg
önnur ríki á lista Transparency
International eru mútur og
mútugreiðslur eitt helsta vanda-
mál Túrkmenistan. Í gögnum
sem WikiLeaks birti árið 2010
voru nefnd nokkur dæmi um
þetta. Þannig geta þeir sem eru
stöðvaðir fyrir of hraðan akstur greitt frá 500 krónum til
að sleppa við sekt. Þeir sem gerast sekir um ölvunarakstur
eða að aka gegn rauðu ljósi geta sloppið við refsingu ef
þeir greiða lögregluþjónum mútur sem oft eru á bilinu sex
þúsund krónur til þrjátíu þúsund króna. Þá er spilling út-
breidd í stjórnkerfi landsins og má geta þess að forsetinn
var endurkjörinn í embætti í fyrra með 97% atkvæða.
Írak
Stig: 16
Íbúafjöldi: 31 milljón
Lífslíkur: 69 ár
Þjóðarleiðtogi: Jalal Talabani
n Í skýrslu sem
Sameinuðu
þjóðirnar unnu
um spillingu í Írak
voru 31 þúsund
íbúar spurðir um
meinta spillingu
í landinu. Í niður-
stöðunum, sem voru birtar í ágúst síðast-
liðnum, kom fram að 50 prósent aðspurðra
töldu að spilling væri meiri nú en áður. Þá
kom fram að fjórðungur landsmanna teldi
sig þurfa að greiða mútur að minnsta kosti
fjórum sinnum á ári. „Spilling heldur áfram
að hafa áhrif á daglegt líf meirihluta íbúa
Íraks,“ kom fram í skýrslunni.
Úsbekistan
Stig: 17
Íbúafjöldi: 30 milljónir
Lífslíkur: 68 ár
Þjóðarleiðtogi: Islam Karimov
n Töluverð spilling
ríkir í Úsbekistan
eins og sást berlega
í leyniskjölum sem
WikiLeaks gerði opin-
ber fyrir nokkru. Í þeim
kom meðal annars
fram að elsta dóttir
forseta landsins, Gulnara Karimova, ásamt
glæpaforingjanum Salim Abduvaliyev hafi mik-
ið um það að segja hver fær hátt settar stöður í
landinu. Samkvæmt gögnum WikiLeaks mælir
Abduvaliyev með tilteknum umsækjendum um
stöður bæjarstjóra, saksóknara eða ráðherra
við Karimovu sem síðan skipar þessa einstak-
linga í embætti. Þá hefur Karimova verið sökuð
um peningaþvætti í Sviss og Svíþjóð og voru
háar fjárhæðir í hennar eigu frystar í Sviss
sumarið 2012.
4
5
6
7
8–11
8–11
8–11
1–3
12–15
8–11
1–3
1–3