Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2013, Blaðsíða 10
Vikublað 10.–12. desember 201310 Fréttir
Auðmenn Kópavogs
n Verktaki efstur á lista n „Peningar og hamingja er tvennt ólíkt“
Verktakinn Sigurður Sigurgeirsson,
sem seldi fyrirtækið JB byggingar-
félag árið 2007 er rík-
asti Kópavogs búinn.
Eignir hans eru 3,2
milljarðar sam-
kvæmt skatta- og
útsvarsskrá árið 2012
sem byggir á gjald-
árinu 2011. Þorsteinn
Hjaltested og hans fjöl-
skylda er ofarlega á listanum
en hann hefur átt í harðri deilu
um eignarrétt á jörðinni Vatns-
enda. Samanlagðar eignir hans,
systur hans og móður eru fimm
milljarðar. DV mun áfram fjalla um
auðugasta fólk landsins á næstu
vikum. hjalmar@dv.is, rognvaldur@dv.is
10 Magnús Jónatansson 64 ára
Eignir: 541 milljón kr.
n Magnús var úrskurð
aður gjaldþrota
snemma árs 2012 en
hann var einn stærsti
skuldari sparisjóðsins
Byrs. Hann var hvað
þekktastur fyrir að
vera einn af aðstand
endum eignarhaldsfélag
anna Góms og Lindbergs, ásamt
Ólafi Garðarssyni lögmanni. Félögin keyptu
tugi fasteigna í Örfirisey í lok árs 2006 og
byrjun 2007. Skuldir Magnúsar og félaga
tengdum honum námu nærri 1,9 milljörðum
króna í nóvember 2008.
8 Jóhannes Tómasson 68 ára
Eignir: 680 milljónir kr.
n Jóhannes er sonur Tómasar Tómassonar
sem stofnaði Ölgerð Egils Skallagríms
sonar árið 1913. Jóhannes rak fyrirtækið
ásamt bróður sínum eftir andlát Tómasar
fram til ársins 2002 er þeir bræður seldu
hlut fjölskyldunnar. Báðir bræðurnir högn
uðust vel á þeirri sölu.
6 Ragnheiður Jóna Jónsdóttir 53 ára
Eignir: 860 milljónir
n Ragnheiður Jóna og eiginmaður
hennar, Arnór Víkingsson lækn
ir, keyptu hús Hannesar Haf
stein í miðborg Reykjavíkur,
Grundarstíg 10, og reka þar nú
menningartengda starfsemi
undir merkjum Hannesarholts.
Börn þeirra eru einnig eigendur
að húsinu. Faðir Ragnheiðar var
Jón Guðmundsson sem átti meðal
annars Sjólastöðina, útgerð í Hafnarfirði. Fyrirtækið
var um tíma eitt það umsvifamesta í Hafnarfirði.
9 Magnús Árnason 60 ára
Eignir: 594 milljónir kr.
n Magnús á heildsöluna Gullborg, sem
er hvað þekktust fyrir flugeldasölu.
Fyrirtækið var með þeim fyrstu sem sér
merkti flugeldana með sínu merki og ís
lenskum aðvörunarmerkjum. Eiginkona
hans, Guðný María Guðmundsdóttir,
kemur einnig að rekstrinum en þau
hjónin reka einnig Art Deco heildsölu,
sem selur snyrtivörur og ilmvötn.
3
3
9
8
6
11 Nils H. Zimsen 68 ára
Eignir: 539 milljónir kr.
n Auðæfi Nils Zimsen má rekja til
arfs frá föður hans Christian Zim
sen, lyfjafræðingi og stofnanda
Laugarnesapóteks. Öll systkini
Nils; Kristinn, Jón og Else, eru mjög
auðug. Faðir Jóns Christians sat meðal
annars í stjórn lyfjafyrirtækisins Pharmaco hf. Jón er
kvæntur Jóhönnu Halldóru Sigurðardóttur.
12 Þorsteinn Vilhelmsson 61 árs
Eignir: 495 milljónir kr.
n Þorsteinn Vilhelmsson keypti nær allt
hlutafé í Samherja hf. árið 1983 í félagi
við bróður sinn Kristján og frænda,
Þorstein Má Baldvinsson. Hann sagði sig
hins vegar frá rekstrinum eftir sársauka
fullar deilur árið 2000 og seldi allt hlutafé
sitt í fyrirtækinu, en hann var þá stærsti hluthafi
í því með 21,9% hlut.
13 Ágúst Már Ármann 65 ára
Eignir: 422 milljónir kr.
n Ágúst Már Ármann er fyrrverandi stjórnarfor
maður Byr. „Peningar hafa ekki breytt lífi mínu.
Þó maður eigi einhverja peninga, þá jafngildir það
ekki hamingju. Það er tvennt ólíkt,“ sagði Ágúst við
DV. Ágúst Már starfaði á árum áður hjá framleiðslu
fyrirtækinu Silhouette í London en tók svo til starfa
í heildverslun föður síns, Ágúst Ármann ehf. Hann kom
heim árið 1971 og hefur síðan rekið heildverslunina ásamt
Önnu M. Kristjánsdóttur, eiginkonu sinni. „Mín velgengni er
vegna árangurs í starfi við verslun,“ segir Ágúst. Hann var
mikið í fréttum árið 2009 eftir að hann kaus á aðalfundi
Byrs í umboði breska fatahönnuðarins Karenar Millen.
14 Benedikt Stefánsson 64 ára
Eignir: 413 milljónir kr.
n Benedikt er helsti eigandi Plastco ehf. ásamt syni
sínum og eiginkonu. Fjölskyldan er potturinn og
Framhald á síðu 12