Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2013, Side 18
18 Fréttir Erlent
K
æru landar, Nelson Mand-
ela sameinaði okkur, saman
munum við veita honum
hinstu kveðju,“ sagði Jacob
Zuma, forseti Suður-Afríku
er hann ávarpaði þjóð sína og sagði
henni frá andláti Nelson Mandela.
Skarðið sem Mandela skilur eftir
sig er stórt sérstaklega í huga Suð-
ur-Afríkumanna þar sem hann er
þjóðhetja og nafn hans tákn lýð-
ræðis og framfara. Nelson Mand-
ela lést á fimmtudag, þá 95 ára að
aldri. Heilsu hans hafði hrakað mik-
ið undanfarin ár og frá því í júní á
þessu ári var hann mjög veikur og
vart hugað líf. Formleg jarðarför
hans fer fram á sunnudag og er búist
við því að mikill fjöldi þjóðhöfðingja
sæki hana.
Lífshlaup
Erfitt er að fara yfir lífshlaup Nelson
Mandela í stuttu máli.
Hann fæddist í Transkei í Suður-
Afríku árið 1918, en foreldrarn-
ir gáfu honum nafnið Rolihlahla
Mandela. Það var svo kennari hans
sem síðar kallaði hann Nelson og var
það nafnið sem hann sjálfur valdi
að nota. Mandela lærði lögfræði og
varð lögmaður árið 1942. Hann varð
virkur þátttakandi í Afríska þjóðar-
ráðinu, stjórnmálaflokki sem barð-
ist fyrir auknum réttindum blökku-
manna í Suður-Afríku.
Árið 1949 varð Mandela einn
leiðtoga flokksins og tók þátt í mikl-
um uppgangi hans. Árið 1956 var
Mandela ákærður fyrir landráð og
stóð ákæruferlið fram til ársins 1961.
Árið 1960 var Afríska þjóðarráðið
bannfært og öll starfsemi þess. Það
olli mikilli spennu og óróa í Suður-
Afríku. Eftir þjóðarmorð í Sharpeville
hvatti Mandela til hefndaraðgerða
og lagði friðsæla baráttu til hliðar að
sinni. Það varð til þess að árið 1962
var Mandela dæmdur í fimm ára
fangelsi, en ári síðar var hann dæmd-
ur í lífstíðarfangelsi, fyrir landráð. Í
27 ár sat Mandela í fangelsi, en hann
var leystur úr haldi þann 11. febrú-
ar 1990 og var tæpum mánuði síðar
kosinn forseti Afríska þjóðarráðsins.
Næstu tvö ár vann hann að því að
koma á sátt með friðsælum hætti í
Suður-Afríku og árið 1993 fékk hann
friðarverðlaun Nóbels.
Það var svo árið 1994 sem Mand-
ela varð fyrsti lýðræðislega kjörni
forseti í Suður-Afríku. Hann dró
sig í hlé árið 1999 og sinnti mann-
réttindamálum á heimsvísu þaðan í
frá. Hann hefur hamrað á því að kyn-
þáttahatur, og hatur almennt, sé ekki
meðfæddur eiginleiki, heldur samfé-
lagsmein. „Enginn fæðist með hatur
í brjósti sér,“ sagði Mandela og sagði
það frekar vera lært. Þeir sem gátu
lært að hata, geta líka lært að elska,
sagði hann.
Þurftu að deila honum
Fjölskylda Mandela segir að erfitt
hafi verið að deila honum með
heimsbyggðinni. Mandela var dáður
um allan heim. Hann ferðaðist mik-
ið, hélt ræður og erindi og vann ötul-
lega að mannréttindamálum. Dóttir
hans, Maki Mandela, segir að börnin
hans hafi öll þurft að deila föður sín-
um með heimsbyggðinni. Það var oft
erfitt, en þau vita það sjálf að þau eru
börnin hans af holdi og blóði. Hún
segir að Nelson Mandela hafi kannski
verið læri faðir margra, en hann var
pabbi hennar. Tenging þeirra hafi því
verið órjúfanleg. Maki var ung þegar
faðir hennar fór í fangelsi og var orðin
fullorðin kona er hann var látinn laus.
Hún var með föður sínum er hann
lést á fimmtudag. n
Vikublað 10.–12. desember 2013
Jólablað DV
Kemur út með helgarblaði DV 13. des.
og verður aðgengilegt frítt inni á DV.is
Allt um jólagjafir fyrir hann og hana, börn og
unglinga, ömmur og afa, vini og vandamenn
Hönnuðir kynna jólahönnun og gefa ráð varðandi innpökkun
Jólaminningar rifjaðar upp
Jólaföndur krufið til mergjar
Jólauppskriftir og annað góðgæti
Jól græjufíkla – nýjungar fyrir jólin
Sparifötin – það heitasta í ár
Jól græjufíkilsins-nýjungar fyrir jólin
Sparifötin-helstu tískutrendin í ár
Hjörtur Sveinsson
hjortur@dv.is
S: 512-7054
Bókið auglýsingar tímanlega
Jónatan Atli Sveinsson
jonatan@dv.is
S: 512-7059 dv.is/auglysingar
„Enginn fæðist með
hatur í brjósti sér“
n Nelson Mandela skilur eftir sig stórt skarð n Þurftu að deila honum með heimsbyggðinni
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
Læra að elska Þeir
sem lært hafa að
hata, geta líka lært
að elska. Mynd ReuteRS
Stillti til friðar Eftir 27 ár í fangelsi fékk
Mandela friðarverðlaun Nóbels og varð
síðar fyrsti lýðræðislega kjörni forseti
Suður-Afríku
Á góðri stundu Mandela var dáður um
allan heim.
Leiddist í Norður-Kóreu
Merrill Newman sleppt eftir mánuð í haldi
B
andaríkjamaðurinn Merrill
Newman er kominn aftur til
Bandaríkjanna eftir að hafa
setið í varðhaldi í Norður-
Kóreu.
Newman var handtekinn þegar
hann hugðist yfirgefa Norður-Kóreu
í byrjun nóvember en þangað hafði
hann komið sem ferðamaður á veg-
um kínverskrar ferðaskrifstofu. Eft-
ir að hafa verið í haldi í um mánuð
var honum sleppt úr haldi og leyft
að yfir gefa landið. Ekki liggur fyrir
hvers vegna Newman var hneppt-
ur í hald en grunur leikur á að það
tengist þeirri staðreynd að hann
barðist í Kóreustríðinu á sínum tíma.
Í stuttu spjalli við blaðamann
Santa Cruz Sentinel segir Newman
að hann hafi fengið nóg að borða
og hann hafi dvalið á hótelherbergi
í Norður-Kóreu. Honum hafi liðið
vel en orðið leiður, enda fjarri vinum
og vandamönnum. Joe Biden, vara-
forseti Bandaríkjanna, var staddur
í Suður-Kóreu þegar Newman var
sleppt og bauð Biden honum far til
Bandaríkjanna í einkaþotu sinni.
Newman hafnaði þessu góða tilboði
og kaus frekar að drífa sig heim til
Bandaríkjanna sjálfur. n
einar@dv.is
„Nelson
Mandela
sameinaði okkur,
saman munum
við veita honum
hinstu kveðju.