Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2013, Page 27
Vikublað 10.–12. desember 2013 Lífsstíll 27
Forsala miða á Landsmót 2014 er í fullum
gangi og stendur hún til og með
31. desember 2013
Miði er frábær jólagjöf í pakka
hestamannsins og hjá okkur færðu falleg
gjafabréf. Hafðu samband í 514 4030 eða á
landsmot@landsmot.is
Kauptu jólagjöfina á
www.landsmot.is
Jólagjöf hestamannsins!
n „Áfengi hefur meiri fáránleika og óþverra í för með sér heldur en einhver lífsgæði“
A
ri Matthíasson rannsak-
aði byrði íslensks þjóðfé-
lags af áfengis- og vímu-
efnafíkn sem lokaverkefni
til meistaragráðu í heilsuhagfræði
við Háskóla Íslands.
Ari Matthíasson starfaði áður
sem framkvæmdastjóri félags- og
útbreiðslusviðs SÁÁ.
Á vef SÁÁ má finna mola úr
ritgerð Ara.
n 56% kvenna en 13% karla sem leggjast
inn á Vog hafa orðið fyrir kynferðislegu
ofbeldi. 56% kvenna og 48% karla úr hópi
sjúklinga hafa orðið fyrir líkamlegu ofbeldi.
n Ómeðhöndlaður alkóhólisti notar heil-
brigðisþjónustu tvöfalt meira en tíðkast
hjá fólki á sama aldri og af sama kyni.
Munurinn hverfur eftir meðferð. Kostnað-
ur heilbrigðiskerfisins vegna þessa er um
1,6 milljarðar króna á ári.
n Samkvæmt könnun Lýðheilsustöðvar
frá árinu 2007, voru 13,5% íslenskra karla
alkóhólistar, bæði virkir og óvirkir, en
5,8% kvenna. Til viðbótar var talið að
vímuefnafíklar væru um 1% fólks 15 ára
og eldra.
n Fimmtungur fullorðinna Íslendinga,
tæplega 40.000 manns, drekka sig í
minnisleysi á hverju ári
n 31,8% íslenskra karlmanna og 13,3%
kvenna drekka sig full einu sinni í mánuði.
n 11,6% karla og 2,2% kvenna fara á
fyllerí einu sinni í viku.
n 11,4% karla og 2,9% kvenna fengu sér
afréttara á árinu.
n 11,6% íslenskra karla og 3,3% kvenna
teljast virk í skaðlegri drykkju, sem er skil-
greind sem fimm drykkir eða meira einu
sinni til tvisvar í viku. Þetta eru 21.293
einstaklingar.
n 9,4% karla og 4% kvenna, 15 ára og
eldri, hafa lagst inn á Vog í áfengis- og
vímuefnameðferð.
n 1.354 manns innrituðust á Vog árið
2008. 58,2% þeirra höfðu verið ákærð
fyrir ölvun við akstur.
n Áfengissýki og vímuefnafíkn eru talin
eiga hlut í 48% banaslysa í umferðinni og
í 28% annarra umferðarslysa.
n Árlegur kostnaður vegna umferðar-
slysa af völdum áfengissýki og vímu-
efnafíklar er metinn á 9.870 milljónir
króna.
40 þúsund drekka sig í
minnisleysi á hverju ári
rök. Fullorðið fólk drekkur upp til
hópa áfengi og í rökræðum fólks
um hvort áfengi eigi að vera leyft
myndar það skoðun út frá þeirri
staðreynd að sjálft vilji það neyta
áfengis. Enda er áfengi vímuefni
sem einstaklingar ánetjast.
Þegar maður skoðar tjónið og af-
leiðingarnar þá sér maður að áfeng-
ið er ekki saklausasta vímuefnið.
Það er núna holskefla af ofboðslega
sorglegum atburðum. Þetta eru
ekki illa farnir vímuefnaneytendur
– þarna er venjulegt, ungt fólk að
fara sér að voða og missa lífið,“ seg-
ir Hjalti að lokum. n
Ölið vinsælt …
… en virðist hafa ógn-
vægilegar afleiðingar.
mynd reuters
n Áhugaverð rannsókn Ara Matthíassonar n Áfengi á þátt í 48% banaslysa í umferð
Fyrrverandi starfsmaður sÁÁ
Rannsóknir Ara má lesa á vef samtakanna.
„Það er búið að samþykkja það að fólk
sé að fara hrynja í það. Og hver veit
hvað getur gerst þegar fólk er drukkið?
Þetta er hræðilegt,“ segir viðmælandi
blaðamanns sem kýs að koma fram undir
nafnleynd. Hann hefur verið tíður gestur
á skemmtistöðum höfuðborgarsvæðisins
undanfarinn áratug og eytt mörgum
helgum undir áhrifum áfengis.
„Eigum við að samþykkja þennan
hugsunarhátt?
„Ofurölvun er mjög viðurkennd
hegðun á Íslandi. Þegar þú ert ekki að
taka þátt í ofurölvun með vinum þínum
þá ertu spurður: „Hei, af hverju ertu ekki
að taka þátt í gleðinni?“ Eins og gleðin
sé að vera ofurölvi og helst vita ekki
hvað gerist.
Ef maður á vin eða vinkonu sem umbreyt-
ist við neyslu áfengis, á maður þá að segja
við þá manneskju að maður ætli ekki að
drekka með henni vegna þess að maður
vilji ekki styðja þessa hegðun? Er ekki
góð hugmynd að sjá hvernig fólk er í raun
undir miklum áhrifum áfengis og spyrja
sig: „Vil ég virkilega taka þátt í þessu?“
Oft og tíðum drekka foreldrar og margir
þeirra mjög mikið. Þar af leiðandi er verið
að senda ungu fólki þau skilaboð að
það megi vera drukkið. Á hverju sumri er
urmull af hátíðum sem ganga út á að fólk
sé fullt. Menningin stuðlar að óhóflegri
áfengisneyslu. Viðhorfið er þannig að ef
þú tekur ekki þátt í þessu þá er eitthvað
að þér. Þá hlýtur þú að vera annaðhvort
alki eða leiðinleg manneskja.“
Ofurölvun viðurkennd hegðun á Íslandi
Á maður að styðja óhóflega áfengisneyslu vina sinna?
Þekkir neysluna af eigin raun Hjalti
Björnsson fagnaði 30 ára edrúafmæli sínu
fyrir skömmu.
„Menningin
stuðlar
að óhóflegri
áfengisneyslu
Áhrif áfengis
geta verið
neikvæð Ölvaður
einstaklingur skikk-
aður inn í lögreglubíl.
mynd eyÞór Árnason
„Vil ég
virki-
lega taka
þátt í þessu?
M
argir hafa heyrt orðið með-
virkni þegar rætt er um
alkóhólisma, en ekki eru
allir sem vita hvað það
merkir. Meðvirkni er ákveðin hegð-
un sem þróast hjá fólki. Hegðunin
er þegar líðan annarra fer að stjórna
hegðun og líðan manns sjálfs. Með-
virknin snýst um að reyna þóknast
öðrum en sjálfum sér, jafnvel án
þess að kæra sig um það. Meðvirkni
er orðið vandamál þegar hún veld-
ur manni vanlíðan. Á attavitinn.is
má sjá punkta um meðvirkni.
einkenni meðvirkni geta verið:
n Að líða eins og maður hafi ekki tök á að
breyta aðstæðum sínum.
n Að kenna sjálfum sér um þegar illa fer,
frekar en öðrum.
n Að reyna stöðugt að þóknast öðrum frekar
en sjálfum sér.
n Að liggja á skoðunum sínum eða vera ekki
hreinskilinn við aðra.
n Einkenni meðvirkni í samböndum við
alkóhólista og fíkla geta verið:
n Að hylma yfir hversu alvarleg neysla hins
aðilans sé.
n Að upplifa að fólk geti ekki slitið sam-
bandinu.
n Að finnast maður þurfa að hugsa um hinn
aðilann og hafa vit fyrir honum.
n Að reyna að þóknast fíklinum þegar hann er
þunnur eða eftir sig eftir túra.
n Að taka hamingju fíkilsins fram yfir eigin
hamingju eða hamingju fjölskyldunnar.
n Að ræða ekki fjármál þótt innkoman fari að
stórum hluta í neyslu.
n Að láta sig dreyma um að allt fari vel – en
vita þó að slíkt gerist ekki.
ingosig@dv.is
Hvað er meðvirkni?