Fréttablaðið - 08.01.2016, Page 6
Svo er rétt að hafa í
huga að á hverjum
tíma er hluti flutnings
skyldra starfsmanna, sendi
herrar og aðrir,
við störf í
ráðuneytinu á
meðan hluti
þeirra er við
störf erlendis.
Urður Gunnarsdóttir,
upplýsingafulltrúi utanríkisráðu-
neytisins
Til dæmis erum við
nú að opna sendi
skrifstofu í Strasbourg sem
við höfum áður lokað svo
það er verið að
bæta í.
Guðlaugur Þór
Þórðarson,
þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins
Árið 2015 fæddust
33 börn sem öll hafa
verið boðin
velkomin með
gjöf frá bæjar
félaginu sínu
Aldís Hafsteins-
dóttir, bæjarstjóri
Mikill viðbúnaður í París
Í gær var ár liðið frá árásinni á ritstjórnarskrifstofur tímaritsins Charlie Hebdo og mikill viðbúnaður í
borginni. Í gærmorgun skaut lögreglan vopnaðan mann til bana þegar hann reyndi að komast inn á lögreglu-
stöð í 18. hverfi borgarinnar. Hann var klæddur einhverju sem líktist sprengjuvesti. Fréttablaðið/EPa
Fleiri duftgrafir voru teknar í fyrra en
árið á undan. Fréttablaðið/anton
samfélag Alls voru 1.086 grafir
teknar á nýliðnu ári hjá Kirkju-
görðum Reykjavíkurprófastsdæma.
Það er í Reykjavík, Kópavogi og Sel-
tjarnarnesbæ. Kistugrafir voru 621
en duftgrafir 465 talsins. Þetta þýðir
að 57 prósent allra grafa á Íslandi
voru kistugrafir og 43 prósent duft-
grafir. Fjölgaði duftgröfum um tvö
prósent frá fyrra ári. Á síðasta ári
fóru 629 bálfarir fram í bálstofunni
í Fossvogi og er það 30 prósent af
heildartölu látinna á Íslandi það
ár. – jhh
Fleiri kjósa
bálfarir
sveitarfélög „Fjórtán Hvergerð-
ingar eru komnir yfir nírætt og
munu fimm bætast í þann hóp á
árinu 2016 ef Guð lofar,“ segir í frétt
sem Aldís Hafsteinsdóttir bæjar-
stjóri skrifar á vef Hveragerðis-
bæjar.
„Elst Hvergerðinga er Guðbjörg
Runólfsdóttir en hún er 99 ára og
163 dögum betur,“ bætir bæjar-
stjórinn við og segir að samkvæmt
óstaðfestum upplýsingum úr þjóð-
skrá 1. janúar síðastliðinn séu
íbúar í Hveragerði 2.462 en að þeir
hafi verið 2.387 fyrir 12 mánuðum.
Þannig hafi íbúum fjölgað um 75
eða 3,14 prósent.
„Árgangur 1989 er fjölmennastur
í bænum en þau eru 44 talsins. Árið
2015 fæddust 33 börn sem öll hafa
verið boðin velkomin með gjöf frá
bæjarfélaginu sínu,“ segir í frétt
bæjarstjórans. – gar
Fjölgun í
Hveragerði
stjórnsýsla Nærri helmingur
starfandi sendiherra í íslensku
utanríkisþjónustunni hefur aðsetur
hér á landi.
Guðlaugur Þór Þórðarson, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins, segist
ekki vera í nokkrum vafa um að
hægt sé að hagræða í utanríkis-
þjónustu Íslendinga til að ná fram
sparnaði í málaflokknum.
„Við vorum með fastmótaðar
tillögur um utanríkismálin í hag-
ræðingarhópnum og lögðum til
sparnað á því sviði eins og öðrum.
Við ættum einnig að leggja meiri
áherslu á samskipti okkar við
Bandaríkjamenn sem eru eina
stórveldið í heiminum í dag. Þar
liggja mestu hagsmunir okkar
Íslendinga,“ segir Guðlaugur Þór.
„Til dæmis erum við nú að opna
sendiskrifstofu í Strasbourg sem
við höfðum áður lokað svo það er
verið að bæta í.“
„Ýmis verkefni ráðuneytisins eru
þess eðlis að gagnlegt er að sendi-
herra sé í forsvari fyrir þau,“ segir
Urður Gunnarsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi utanríkisráðuneytisins. „Má
sem dæmi nefna Eystrasaltsráðið
og Norðurslóðir. Samkvæmt for-
setaúrskurði um sendiráð, fasta-
nefndir og sendiráðsskrifstofur
fer ráðuneytið sjálft með fyrirsvar
gagnvart nokkrum ríkjum og getur
þá skipað sendiherra gagnvart þeim
með búsetu í Reykjavík eða eftir
því sem ástæða er til. Svo er rétt að
hafa í huga að á hverjum tíma er
hluti flutningsskyldra starfsmanna,
sendiherrar og aðrir, við störf í
ráðuneytinu á meðan hluti þeirra
er við störf erlendis.“
Um áramótin skipaði Gunnar
Bragi Sveinsson utanríkisráðherra
fjóra nýja sendiherra sem allir eru
starfandi í utanríkisráðuneytinu.
Skrifstofustjóri rekstrar ráðu-
neytisins, mannauðsstjóri ráðu-
neytisins, sendiráðunautur upp-
byggingarsjóðs EES og starfsmaður
utanríkisþjónustunnar voru skipuð
sendiherrar.
Af þeim þrjátíu og níu sendi-
herrum sem starfandi eru í íslensku
utanríkisþjónustunni eru aðeins
tólf konur eða þrjár af hverjum
tíu. Sjötíu prósent sendiherra eru
karlar. Þó hefur Gunnar Bragi verið
duglegur á síðustu misserum að
skipa konur í embætti sendiherra.
sveinn@frettabladid.is
Helmingur
sendiherra í
ráðuneytinu
Af 39 starfandi sendiherrum í íslensku utanríkis-
þjónustunni mæta 19 til vinnu á Íslandi. Fjórir
nýir sendiherrar voru tilnefndir um áramótin.
Heilbrigðismál Dóttir Valdísar
Óskar Valsdóttur var send heim
með svefnlyf af Barna- og unglinga-
geðdeild í gær þegar þær leituðu
þangað vegna sjálfsskaðandi hegð-
unar hennar. Valdís sagði sögu tólf
ára dóttur sinnar í Fréttablaðinu á
þriðjudag en hún reyndi sjálfsvíg
fyrir einu og hálfu ári.
Í kjölfar viðtalsins hafði Barna-
vernd samband við Valdísi og sagði
henni að hjólin væru farin að snúast
í máli dóttur hennar. Það tæki tvær
til sex vikur fyrir umsóknir þeirra að
fara í gegnum kerfið. Dóttir hennar
hefur ekki hitt geðlækni og ekki
notið sálfræðihjálpar.
„Svo kemst ég að því í morgun
að hún var búin að skera sig. Ég fer
með hana á barnaspítalann. Læknir
þar beinir okkur áfram á BUGL. Þar
er komist að þeirri niðurstöðu að
það sé best að koma svefninum í
lag þannig að ég er send heim með
svefntöflur.“
Valdís segir að þegar hún hafi
brugðist illa við hafi þeim verið
bent á að sækja um neyðarvistun
á Stuðlum. „En dóttir mín er ekki
í vímuefnum. Hún er svo hvatvís
að hún kæmi út helmingi fróðari
um allt sem hún gæti gert.“ Hún
segir að þegar hún hafi svo rætt
við barnavernd í Reykjanesbæ hafi
henni verið ráðlagt frá því að leita
til Stuðla.
Valdís segist ekki vita hvers
vegna dóttur sinni líði svona illa.
Hún þurfi sérfræðiaðstoð því hún
sé mjög lokuð og erfitt reynist að
ná til hennar. Valdís viti ekki hvort
dóttir sín hafi orðið fyrir áfalli en
gruni að þannig gæti verið í pottinn
búið. – snæ
Skar sig en send heim með svefnlyf
Valdís Ósk Valsdóttir segist ekki vita hvers vegna dóttur hennar líði illa. Hún gæti
hafa orðið fyrir áfalli sem Valdís viti ekki af en henni reynist erfitt að fá hana til að
opna sig. Fréttablaðið/Ernir
Dóttir mín er ekki í
vímuefnum. Hún er
svo hvatvís að hún kæmi út
helmingi fróðari um allt sem
hún gæti gert.
8 . j a n ú a r 2 0 1 6 f ö s t U D a g U r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
0
7
-0
1
-2
0
1
6
2
2
:4
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
1
8
-2
9
8
8
1
8
1
8
-2
8
4
C
1
8
1
8
-2
7
1
0
1
8
1
8
-2
5
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
7
_
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K