Fréttablaðið - 08.01.2016, Qupperneq 30
| SMÁAUGLÝSINGAR | 8. janúar 2016 FÖSTUDAGUR12
Vegna fyrirhugaðrar deiliskipulagsvinnu fyrir Grundarstígsreit í miðborg Reykjavíkur er nú til kynningar lýsing sbr.
1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem segir að þegar vinna við gerð deiliskipulagstillögu hefst skal
sveitarstjórn taka saman lýsingu á skipulagsverkefninu þar sem fram kemur hvaða áherslur sveitarstjórn hafi við
deiliskipulagsgerðina og upplýsingar um forsendur og fyrirliggjandi stefnu og fyrirhugað skipulagsferli.
Grundarstígsreitur afmarkast af Grundarstíg, Spítalastíg, Þingholtsstræti og Skálholtsstíg. Þær byggingar sem eru
innan svæðisins eru Grundarstígur 2-10 (sléttar tölur) og Þingholtsstræti 25 og 27. Reiturinn er innan staðgreinireits
1.183.3.
Í Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 er reiturinn skilgreindur sem íbúðarbyggð. Ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir
þennan reit. Árið 2011 var unnið deiliskipulag fyrir reitinn og var það samþykkt í borgarráði 22. september 2011.
Deiliskipulagið var kært og fellt úr gildi með úrskurði úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála 1. október 2015.
Þessi lýsing er hluti af vinnu við að leggja fram nýtt deiliskipulag fyrir reitinn. Megintilgangur fyrirhugaðs deiliskipulags
á þessum reit er að:
· Setja fram megin markmið og áherslur fyrir deiliskipulagssvæðið sem skal vera í samræmi við stefnumörkun
borgaryfiralda eins og hún birtist í Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030. Stefna skipulagsyfirvalda á þessu svæði
verður áfram sú að halda skuli í hæð og mælikvarðann sem fyrir er í byggðinni.
· Setja fram sérskilmála um uppbyggingarmöguleika fyrir allar lóðir. Á lóð Grundarstígs 10 verða settir fram skilmálar
um uppbyggingu viðbyggingar fyrir menningartengda starfsemi. Á lóð Þingholtsstrætis 25 verður skoðað að
skipta lóðinni upp og heimila að innrétta allt að fjórar íbúðir í húsnæðinu. Kannaður verður möguleiki að heimila litla
viðbyggingu við Spítalastíg, við lóðamörk Grundarstígs 2 þar sem þegar er gamall grunnur.
· Skoðað verður möguleiki að skilgreina almenningsgarð við Þingholtsstræti og skilgreina þar sérstök lóðamörk.
· Ekki verður gert ráð fyrir nýjum bílastæðum innan lóða.
Lýsingin er orðin aðgengileg á vef Reykjavíkurborgar og eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að
kynna sér lýsinguna og koma ábendingum eða athugasemdum á framfæri til skipulagsfulltrúa, Borgartúni 12-14, 105
Reykjavík eða á netfangið skipulag@reykjavik.is fyrir 5. febrúar nk.
Skrifstofa borgarstjóra
Skrifstofa borgarstjóra
Borgarverkfræðingur
Borgarverkfræðingur
Hagdeild
Hagdeild
Dagvist barna
Dagvist barna
Reykjavíkurborg
Umhverfis- og skipulagssvið
Grundarstígsreitur, lýsing
Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík, sími: 411 1111, www.reykjavik.is
Miklabraut frá Rauðarárstíg að Lönguhlíð
Tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að deiliskipulagi Miklubrautar frá Rauðarárstíg að Lönguhlíð.
Deiliskipulagstillagan byggir á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030,sem tók gildi með birtingu í B deild
Stjórnartíðinda þann 26. febrúar 2014. Þrátt fyrir að meginforsendur fyrirhugaðra framkvæmda við Miklubraut liggi
fyrir í Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030, var ákveðið að gera lýsingu fyrir gerð deiliskipulagsbreytingarinnar
sem var kynnt 19. október til 9. nóvember 2015. Í deiliskipulagstillögunni er gerð breyting á útfærslu Miklubrautar
á þeim kafla götunnar sem liggur sunnan við Klambratún, þ.e. frá gatnamótum við Rauðarárstíg að gatnamótum
við Lönguhlíð. Megintilgangur breytingarinnar er að koma fyrir forgangsleið fyrir Strætó í austurátt meðfram
Miklubraut sunnanverðri. Til þess þarf að endurhanna götuna og hliðra henni um eina akrein til norðurs. Gert er
ráð fyrir að sú akrein sem nú er sú syrði á austurleið verði því forgangsakrein fyrir strætó og því bætist við ein
akrein utan á þá sem nyrst er á vesturleið. Gatan mun því ekki færast nær þeirri íbúðarbyggð sem er sunnan
Miklubrautar. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillagan liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15,
frá 8. janúar 2016 til og með 19. febrúar 2016. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðunni, www.reykjavik.is, undir
skipulag í kynningu. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og
athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega, til umhverfis – og skipulagsviðs, b.t. skipulagsfulltrúa, eða
á netfangið skipulag@reykjavik.is, eigi síðar en 19. febrúar 2016. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir
innsendar athugasemdir með tölvupósti.
Reykjavík 8. janúar 2016
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur
Skrifstofa borgarstjóra
Skrifstofa borgarstjóra
Bo garverkf æðingur
Borgarverkf æðingur
Hagdei d
Hagdeild
Dagvist barna
Dagvist barna
Reykjavíkurborg
Umhverfis- og skipulagssvið
Auglýsing um deiliskipulag í
Reykjavík
Í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010,
eru hér með auglýst tillaga að deiliskipulagi í Reykjavík.
Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík, sími: 411 1111, www.reykjavik.is
Kjalarnes, Sætún
Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs þann 25. nóvember 2015 og borgarráði Reykjavíkur þann 10. desember 2015
var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi jarðarinnar að Sætúni I, Kjalarnesi. Í breytingunni
felst m.a. sameining tveggja lóða í eina og breyting á byggingareit. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Veghúsastígur 9 og 9A
Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs þann 9. desember 2015 og borgarráði Reykjavíkur þann 17. desember
2105 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Skúlagötusvæðis vegna lóðanna nr. 9 og
9A við Veghúsastíg. Í breytingunni felst m.a. breytt notkun íbúðarhúsnæðis á vestari hluta lóðar í íbúðar- og/
eða atvinnuhúsnæði, heimild til reksturs gistiheimilis í flokki I, II eða III, rífa núverandi tengibyggingu á baklóð
og byggja nýja tengibyggingu með kjallara milli húsanna, stækkun á byggingareit og hækkun á nýtingarhlutfalli.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillögurnar liggja frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15
frá 8. janúar 2016 til og með 19. febrúar 2016. Einnig má sjá tillögurnar á vefsíðunni, www.reykjavik.is, skipulag
í kynningu. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og
athugasemdum við tillögurnar skal skila skriflega til skipulagsfulltrúa eða á netfangið skipulag@reykjavik.is, eigi
síðar en 19. febrúar 2016. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti.
Reykjavík 8. janúar 2016
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur
Skrifstofa bor ars jóra
Skrifstofa borgarstjóra
Borgarverkfræðingur
Borgarverkfræðingur
Ha deild
Hagdeild
Dagvist b rna
Dagvist barna
Reykjavíkurborg
Umhverfis- og skipulagssvið
Auglýsing um tillögur að breytingu á
deiliskipulagi í Reykjavík
Í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, eru hér með
auglýstar tillögur að breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík.
Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík, sími: 411 1111, www.reykjavik.is
ELDHÚS-ELDHÚS
Hjá Dóra í Mjódd
Við leitum að hressum og reglusömum einstaklingi til starfa
í eldhúsi okkar, almenn eldhús vinna og afgreiðsla á heitum
mat. Kjörið fyrir kjötiðnaðarmann.
Íslenskukunnátta nauðsynleg. Upplýsingar í síma 557 3910
GRÍN, HASAR OG RÓMANTÍK
Á BÍÓSTÖÐINNI
Bíóstöðin er hluti af Skemmtipakkanum þar sem boðið er upp á
kvikmyndir allan sólarhringinn. Með því að greiða 1.990 kr.
aukalega færðu endalaust tal og 1 GB í GSM.
365.is | Sími 1817
BÍÓSTÖÐ
IN
ER Í SKEM
MTI-
PAKKAN
UM
0
7
-0
1
-2
0
1
6
2
2
:4
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
1
8
-3
3
6
8
1
8
1
8
-3
2
2
C
1
8
1
8
-3
0
F
0
1
8
1
8
-2
F
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
7
_
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K