Fréttablaðið - 08.01.2016, Side 48

Fréttablaðið - 08.01.2016, Side 48
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja Kjartans Atla Kjartanssonar Bakþankar FAXAFENI 5 Reykjavík 588 8477 DALSBRAUT 1 Akureyri 588 1100 SKEIÐI 1 Ísafirði 456 4566 AFGREIÐSLUTÍMI Mán.–fös. 10–18 | Lau. 11–16 www.betrabak.is ÞÚ FINNUR RÉTTA RÚMIÐ HJÁ OKKUR ÚTSAL A KO M D U O G G E R Ð U F R Á B Æ R K A U P A L LT A Ð 60% A F S L ÁT T U R Opið allan sólarhringinn í Engihjalla, Vesturbergi og Arnarbakka Ég ætla að segja ykkur sögu. Sögu af sex ára stelpu sem ég þjálfa í körfubolta. Þessi stelpa er gangandi sönnun þess að æfingin skapar meistarann og að þolinmæði þrautir vinnur allar. Þessi sex ára stelpa varð þess valdandi að ég fylltist svo miklu stolti að ég tognaði næstum því í bakinu því ég fékk svo mikla gæsahúð. Þessi stelpa byrjaði að æfa körfubolta í byrjun september og varð strax mjög áhugasöm, enda keppnismanneskja mikil, þrátt fyrir ungan aldur. En hún átti í vandræðum með að drífa upp í körfuna. Hún var ótrúlega dugleg í öllu öðru sem körfubolti gengur út á; að spila vörn, að senda boltann á liðsfélaga og að dripla boltanum. En henni gekk illa að drífa upp í körfuna. Hún hafði æft í þrjá mánuði og ekki enn hitt í körfuna. En alltaf mætti hún á æfingar, dugleg og glöð. Tilbúin að leggja á sig. Og svo gerðist það einn daginn. Við vorum að undirbúa okkur fyrir æfingu dagsins og hún var að leika sér að skjóta, áður en fjörið hófst með formlegum hætti. Hún henti boltanum að körfunni og hann fór beint ofan í. Ósvikin gleðin gerði vart um sig í augum hennar og hún hljóp til okkar þjálfaranna og til- kynnti okkur þetta samviskusam- lega. Svo glöð og svo stolt. Svo hélt hún áfram að skjóta og hún gat hreinlega ekki hætt að hitta alla æfinguna. Alls náði hún að hitta 29 sinnum þessa æfingu. Og hún gekk í burtu sigri hrósandi. Hafandi unnið fyrir þessu, lagt sig alla fram og uppskorið eftir allt erfiðið. Ég held að það séu fáar lexíur sem taka svona sigrum fram. Bæði fyrir börn og fullorðna. Ég mun lík- lega aldrei gleyma þessari æfingu. Og vonandi ekki stúlkan heldur. Æfingin skapar meistarann 0 7 -0 1 -2 0 1 6 2 2 :4 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 1 7 -F D 1 8 1 8 1 7 -F B D C 1 8 1 7 -F A A 0 1 8 1 7 -F 9 6 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 7 _ 1 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.