Fréttablaðið - 25.06.2015, Síða 16

Fréttablaðið - 25.06.2015, Síða 16
25. júní 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR FJÖLSKYLDAN | 16 Tíðahringurinn stýrir innkaupum kvenna. Þegar þær eru með egglos, og þar með meira estrógen í blóðinu en á öðrum tímum, eru þær líklegri til að leita að fjölbreyttari vörum en annars. Þetta eru niðurstöður rannsóknar Kristinu Durante, sér- fræðings í markaðsrannsóknum við UTSA-háskólann í Bandaríkjunum. Nokkur hundruð konur á aldrin- um 18 til 40 ára voru beðnar um að taka þátt í rannsókn Durante. Þær sem ekki greindu frá hvar þær voru í tíðahringnum og þær sem notuðu hormónagetnaðarvarnir eins og pilluna voru útilokaðar. Meðalaldur þátttakenda var 22 ár, að því er segir í frétt á vísinda- vefnum for- skning.no. Á hverjum degi í heilan mánuð voru konurnar látnar velja á milli varalita, naglalakks og skó- para í 20 mismunandi litum. Þar að auki gátu þær valið á milli 20 mis- munandi bragðtegunda af jógúrt og jafnmargra súkkulaðitegunda. Þær gátu valið sér eins margar tegundir og þær vildu. Haft er eftir Durante að konur velji fleiri mismunandi tegundir þegar þær eru sem frjósamastar og sérstaklega þær sem eru í sam- bandi. Það hversu gott ástarsam- bandið er skiptir jafnframt máli. Því minna sem konur eru tengdar maka sínum, þeim mun fjölbreytt- ari vörutegundir velja þær. Vís- indamennirnir ætla að reyna að finna skýringu á þessu. Durante segir að hægt sé að ímynda sér að þetta sé kannski eins og að fá aðgang að fleiri sviðum samfélagsins sem bjóði upp á betra aðgengi að nýjum maka með góð gen. Bæði einhleypar konur og konur í sambandi velja fleiri tegundir af súkkulaði þegar þær eru sem frjó- samastar. En konur sem eru ekki í mjög nánu sambandi við maka sinn velja miklu fleiri súkkulaðitegundir en þær sem eru í nánu sambandi. Í þessu samhengi er bent á að konur í góðu sambandi finni ekki fyrir þörf á fjölbreyttu vöruúrvali þar sem þær hafi fundið maka sem þær eru ánægðar með. Það er mat vísindamannanna að rannsóknin gefi hugmyndir um hvað það er sem stýrir vali neyt- enda. Niðurstöðurnar hvetji til fleiri spennandi markaðsrannsókna. Haft er eftir Durante að rann- sóknin hafi einnig bent til að merkja- tryggðin minnki í kringum egglos þar sem konur hafi þá meiri tilhneig- ingu til að skipta yfir í nýtt merki. Greint er frá niðurstöðunum í Journal of Consumers Research. ibs@frettabladid.is Tíðahringurinn stýrir innkaupum kvenna Konur líklegari til að velja fleiri vörutegundir og fjölbreyttari þegar þær eru með egglos. Tryggðin við merki minnkar. Gæði ástarsambandsins skipta einnig máli. SKÓKAUP Konur eru lík- legri til að velja sér nýtt merki þegar þær eru með egglos. NORDICPHO- TOS/GETTY Brögð eru að því að foreldrar þrýsti á kennara um að hækka einkunnir barna þeirra, að því er Guð- björg Ragnarsdóttir, varaformaður Félags grunnskólakennara, greinir frá. Í frétt á vef sænska sjónvarpsins segir kennari á efsta stigi grunnskólans í Växjö í Svíþjóð að þrýsting- ur frá foreldrum sé algengur. Foreldrar kenni kennaranum um einkunnir barns- ins, segi að kennarinn vilji eyðileggja fram- tíð barnsins þeirra, að hann vilji ekki að nem- endur standist prófið og að þeir ætli að fara lengra með málið. „Ég myndi halda að vandinn hér sé sambærilegur,“ segir Guðbjörg. Hún tekur fram að grunnskólinn hafi aðalnámskrá sem beri að fylgja. „Í henni eru námsmarkmið og nemandinn er metinn út frá þeim. Foreldr- ar grunnskólanemenda fá upplýsingar um skiladaga verkefna og það er boðið upp á viðtalstíma. Það eru ýmsar leiðir fyrir foreldra til að fylgjast með námi barna sinna.“ Að sögn Guðbjargar senda foreldrar kvartanir, einkum til skólastjórn- enda. „Oftar en ekki eru málin afgreidd í skólunum en í einstaka tilfell- um hafa foreldrar vísað málum áfram til skólamálanefndar viðkomandi sveitarfélags.“ Könnun á vegum sænska kennarasambandsins í fyrra sýndi að sjö af hverjum tíu kennurum höfðu orðið fyrir þrýstingi frá óánægðum foreldr- um. Guðbjörg segir ekki til yfirlit um stöðu slíkra mála hér. - ibs Foreldrar þrýsta á grunnskólakennara: Vilja hærri einkunn fyrir börnin sín Einbeiting skólabarna sem hafa gott aðgengi að grænum svæðum er miklu betri en hjá nemendum sem ekki njóta slíks. Vinnuminni barnanna var einnig miklu betra en annarra, að því er rannsókn á 2.500 grunnskólabörn- um í öðrum til fjórða bekk í Barcelona sýnir. Norska ríkisútvarpið hefur það eftir einum rannsakendanna, Hollendingnum Mark Nie- wenhuijsen, að séu ekki tré, runnar og gras við skóla verði yfirvöld að gera skólana grænni. Slíkt sé mikilvægt fyrir þroska barnanna. - ibs Rannsókn á grunnskólabörnum í Barcelona: Græn svæði auka einbeitingu barna Í NÁTTÚRUNNI Vísindamenn segja yfirvöld verða að gera skólana grænni. ÝMSAR LEIÐIR Guðbjörg Ragnarsdóttir, varaformaður Félags grunnskólakennara, segir ýmsar leiðir fyrir for- eldra til að fylgjast með námi barna sinna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI í tileFni dAgsinS – alLa dagA með vaNillubrAgðI með súKkulaðIsósU hneTuís Með karaMellusósU -Toppurinn á ísnum ÍSinn Með Gula LokinU RR \\\ TBW A TBW TBWBWBWWW A AA • S SÍAÍA SÍA SÍA •• 15 016 4 15 016 4 5 016 5 016 NM 68 96 8 Siminn.is/spotify*Gildir fyrir Spotify Premium áskrift hjá Símanum 2 7 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :3 9 F B 0 5 6 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 D 1 -7 D 4 C 1 7 D 1 -7 C 1 0 1 7 D 1 -7 A D 4 1 7 D 1 -7 9 9 8 2 8 0 X 4 0 0 2 B F B 0 5 6 s _ 2 4 _ 6 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.