Fréttablaðið - 25.06.2015, Side 20
25. júní 2015 FIMMTUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞRÓUNARSTJÓRI: Tinni Sveinsson tinni@365.is HELGARBLAÐ: Erla Björg Gunnarsdóttir erla@frettabladid.is MENNING: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is
LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir FORSTJÓRI: Sævar Freyr
Þráinsson ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRAR:
Andri Ólafsson andri@365.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is.
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er
hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871
FRÁ DEGI
TIL DAGS
Spilling er gamall og svarinn óvinur almenn-
ings. Hún felst í því að þeir sem vald hafa mis-
beita því í þágu sérhagsmuna sinna eða til að
hygla ættingjum, vinum, pólitískum samherj-
um eða fyrirtækjum sem þeir eiga eða stýra.
Spilling dafnar best í skjóli skoðanakúgunar
og skerts tjáningarfrelsis. Ef fólk getur ekki
sagt skoðanir sínar óhikað t.a.m. vegna ótta
við að missa vinnuna eða tapa mikilvægum
viðskiptum fá valdhafar í stjórnmálum og
atvinnulífi ekki aðhald sem nauðsynlegt er til
að halda spillingu niðri. Heiðarleg samkeppni
þrífst afar illa í umhverfi þar sem tengingar,
vinagreiðar og pólitísk velvild og óvild ráða
miklu um hverjir fá og hverjir fá ekki.
Þar sem atvinnulíf er einhæft og flestir
eiga atvinnu sína eða viðskipti sín undir fáum
fyrir tækjum er mikil hætta á að óeðlilegar
leikreglur myndist. Þar sem einstök fyrirtæki
eru mjög stór í samanburði við byggðirnar og
sveitarfélögin þar sem þau starfa, er mikil
hætta á að þau fái í krafti stærðar sinnar völd
og áhrif sem þau eiga ekki að hafa í lýðræðis-
legu samfélagi. Sú hætta eykst svo enn þegar
sömu aðilar hafa einnig óeðlileg áhrif, beint
eða óbeint, á þá sem fara með pólitískt vald
í sveitarstjórnum eða á Alþingi. Fjölbreytni í
atvinnulífi er mikilvæg af ýmsum ástæðum
og ekki síst til að koma í veg fyrir að þetta
gerist.
Spilling er mikil samfélagsleg meinsemd.
Við verðum að hafa kjark til að takast á við
hana með tiltækum ráðum ef við viljum búa
í samfélagi sem gefur fólki og fyrirtækjum
jöfn tækifæri. Höfum við nokkuð gleymt
því strax sem stendur í skýrslu rannsóknar-
nefndar Alþingis um ástæður og afleiðingar
hrunsins og í öðrum skýrslum og úttektum,
s.s. um sparisjóðina, lífeyrissjóðina og Orku-
veitu Reykjavíkur? Erum við ekki örugglega
að gæta þess mjög vel að láta ekki valdaklík-
ur, persónulegar tengingar, vinagreiða og póli-
tíska velvild eða óvild hafa óeðlileg áhrif á
hvað má og hvað má ekki, hverjir fá og hverj-
ir ekki? Hverjir sitja í stjórnum hér og þar og
eru ráðnir til stjórnunarstarfa? Höfum við
ekki örugglega lært af reynslunni og öllu því
marga og mikla sem aflaga fór svo víða í sam-
félaginu á árunum fyrir hrun?
Ef við gerum það ekki mun okkur ekki
takast vel að byggja upp öflugt og fjölbreytt
atvinnulíf og heilbrigt og ábyrgt fjármála-
kerfi. Þetta snýst um að gæta langtímahags-
muna í þágu alls almennings. Látum ekki
sérhagsmuni, valdaklíkur og spillingu koma
aftur í veg fyrir það.
Heilbrigð stjórnmál,
valdaklíkur og öfl ugt atvinnulíf
STJÓRNMÁL
Páll Valur
Björnsson
þingmaður Bjartrar
framtíðar
www.netto.is Kræsingar & kostakjör Mikið úrval!
JARÐARBER, KASSI
DRISCOLLS, 800 GR
999
KR/KASSINN
Nammi
namm...
Þ
eirri mýtu hefur löngum verið haldið á lofti að Ísland
sé herlaust land. Á tyllidögum hefur það verið undir-
strikað og þar með hversu friðelskandi þjóð byggi þetta
sker hér í norðri. Staðreyndin var þó sú að í um sjö
áratugi var erlendur her hér á landi samkvæmt samn-
ingi þar að lútandi til að verja landið, eins og sagt var. Að segja
að landið hafi verið herlaust af því að herinn var annarrar þjóðar
er dálítið eins og að guma sig af því að vera bíllaus en aka um á
bílaleigubíl.
Þrátt fyrir veru hersins ríkti
að nokkru leyti sameiginlegur
skilningur á því að Íslendingar
væru ekki mikið að skipta sér af
átökum í öðrum löndum. Innan
Atlantshafsbandalagsins gerðu
þeir allt sem Bandaríkjamenn
báðu um, en voru kannski ekki
með í ákvarðanatökum, stóðu
ekki í forsvari fyrir neitt.
Á þessu varð nokkur breyting þegar Atlantshafsbandalagið
gerði loftárásir á Serba vegna innrásar þeirra í Kosovo árið 1999.
Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar studdi þær árásir með ráðum
og dáð, og raunar sumir flokkar stjórnarandstöðunnar, og var
stuðningurinn svo mikils metinn að Wesley Clark, yfirmaður
herafla Atlantshafsbandalagsins í Kosovostríðinu, lýsti yfir sér-
stakri ánægju með hann.
Aftur var Ísland með í ákvörðunum á árásir á fólk úti í heimi
þegar landið var á lista hinna viljugu þjóða í innrás í Írak árið
2003 og aftur var Ísland með í loftárásum á Líbíu 2011. Við
höfum sem sagt oft og tíðum fengið að vera með þegar farið er í
aðgerðir sem munu drepa fólk í öðrum löndum. Það má færa rök
fyrir því að þetta sé hreint ekki tæmandi listi. Þær aðgerðir geta
heitið fínum og fallegum nöfnum, en í hverri einustu þeirra hafa
almennir borgarar látið lífið og aðrir farið á vergang.
Nú geta menn haft alls kyns skoðanir á nauðsyn umræddra
aðgerða, en það er ekki umtalsefnið hér. Það sem vekur hins vegar
athygli er hve við, herlausa, friðelskandi þjóðin í norðrinu, virð-
umst eiga auðveldara með að vera með í drápunum en því líknar-
og uppbyggingarstarfi sem óneitanlega fer af stað í kjölfarið.
Eða hver er ábyrgð okkar þegar kemur að öllu því flóttafólki
sem er á vergangi beinlínis vegna aðgerða sem við styðjum? Og
raunar vegna annarra aðgerða líka, því ef við teljum okkur vera
þess umkomin að vera með í ákvörðunum um líf og dauða fólks
úti í heimi hlýtur það að gilda um aðstoð við nauðstadda einnig.
Sagan hefur sýnt að íslenskum ráðamönnum finnst þeir menn
með mönnum þegar þeir fá að vera með í hernaðaraðgerðum. Það
er ekki bundið við einstaka stjórnmálaflokka, flestum virðist
finnast þeir menn með mönnum ef þeir fá að taka ákvörðun
um stríð. Það er misskilningur. Mesta sæmd fengjum við ef við
tækjum þátt í ákvörðunum um mannúð.
Kannski við ættum að skuldbinda okkur til að taka á móti
einum flóttamanni fyrir hvern þann almenna borgara sem lætur
lífið í aðgerðum sem við styðjum. Það væri byrjun.
Afskiptaleysi Íslendinga er til skammar:
Að vera með í
drápi en ekki líkn
Kolbeinn
Óttarsson Proppé
kolbeinn@frettabladid.is
Reykingavandamálið
Allir forsetar og varaforsetar bæjar-
stjórnar Hafnarfjarðar voru fjarver-
andi þegar fundur bæjarstjórnarinnar
fór fram í gær. Rósa Guðbjartsdóttir,
formaður bæjarráðs, ákvað því að
hlaupa í skarðið og var leitað afbrigða
af fundarsköpum svo það væri unnt.
Rósa stýrði svo fundinum með harðri
hendi. Bæjarfulltrúar yfirgáfu fundar-
salinn þegar hlé var gert á fundi. Eftir
nokkra stund var Rósu farið á lengja
eftir nokkrum bæjarfulltrúum
og hrópaði: „Hættið að
reykja!“ svo það gall í hljóð-
nemanum.
Gróðabrallið
Hún var eftirtektarverð,
afstaðan sem Björg-
ólfur Thor Björgólfs-
son athafnamaður tók til fyrir-
hugaðrar málshöfðunar gegn honum.
Í dagblöðunum í gær var auglýst eftir
hluthöfum i gamla Landsbankanum
sem vildu stefna Björgólfi í einkamáli
vegna ætlaðra brota hans. Í yfirlýsing-
um til blaðamanna fullyrðir Björgólfur
að málshöfðunin sé „gróðabrall lög-
manna“ og ekki sé tilefni til neinnar
stefnu. Það er auðvitað dálítið kómískt
að sjá einn ríkasta mann á Íslandi saka
aðra um gróðabrall. En í dag verður
haldinn kynningarfundur um
málshöfðunina. Það mun
kannski sjást á mætingunni
á fundinn hvorir eru meira
sannfærandi, þeir lögmenn
sem telja tilefni til
málshöfðunar eða
sjálfur Björgólfur
Thor.
Veðrið og stjórnarherrarnir
Það hallar stundum á ríkisstjórnina og
ráðherra hennar í opinberri umræðu.
Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason
hefur bent á þetta. Hann sagði á
dögunum að ákveðinn hluti þjóðar-
innar væri með algjört ofnæmi fyrir
Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni. „Í
huga þessa fólks er allt sem Sig-
mundur gerir vont og leiðinlegt. Þegar
ríkisstjórn hans tekst vel upp eins og
í samningum við kröfuhafa bankanna
er allt kapp lagt á að sýna að hann eigi
engan hlut að máli,“ sagði Egill. Þetta
er sjálfsagt rétt. Í það minnsta var sér-
kennilegt hvernig umræður um bjarta
veðurspá á fésbókarsíðu Illuga Jökuls-
sonar í gær gat farið að snúast
um ágæti Sigmundar Davíðs og
Bjarna Ben. sveinn@frettabladid.is,
jonhakon@frettabladid.is
2
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:3
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
D
2
-D
6
E
C
1
7
D
2
-D
5
B
0
1
7
D
2
-D
4
7
4
1
7
D
2
-D
3
3
8
2
8
0
X
4
0
0
6
B
F
B
0
5
6
s
_
2
4
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K