Fréttablaðið - 25.06.2015, Blaðsíða 21
FIMMTUDAGUR 25. júní 2015 | SKOÐUN | 21
Hér ætla ég að segja ykkur söguna
af sjálfstæðisbaráttu Katalóna.
Katalónía prýðir norðausturhluta
Spánar. Íbúafjöldinn er 7,5 millj-
ónir eða sjötti hluti Spánverja, litlu
minni en í Svíþjóð. Katalónar eiga
sér mikla sögu og sérstæða menn-
ingu og tungu líkt og t.d. Portúgal-
ar. Katalónska er álíka frábrugðin
spænsku og danska er frábrugðin
sænsku. Höfuðborgin Barselóna er
næststærsta borg Spánar, næst á
eftir Madríd.
Hvers vegna sjálfstæði?
Byrjum í Skotlandi. Margir Skotar
vilja taka sér sjálfstæði með þeim
rökum að þeir líta til Norður landa
sem fyrirmyndar að réttlátu sam-
félagi og telja Englendinga held-
ur líta til Bandaríkjanna. Því
er beggja hagur að rjúfa ríkja-
sambandið frá 1707, segja skozk-
ir sjálfstæðissinnar, þar eð þá
fá bæði Englendingar og Skotar
aukið frelsi til stefnumörkunar í
gagnstæðar áttir. Englendingar
virða þetta sjónarmið eins og ráða
má af því að Skotum hefur verið
veitt aukin sjálfsstjórn innan Bret-
lands og var leyft að halda þjóð-
aratkvæðagreiðslu um sjálfstæði
2014. Meiri hluti kjósenda hafnaði
sjálfstæði. Síðan þá hefur sjálf-
stæðissinnum vaxið svo fiskur
um hrygg að þeir hirtu næstum öll
sæti Skotlands í brezka þinginu í
kosningunum fyrir nokkru. Kata-
lónar hafa aðra sögu að segja. Þeir
líta á sig sem undirokaðan minni
hluta á Spáni og telja fullt sjálf-
stæði einu færu leiðina til að girða
fyrir þá mismunun sem þeir telja
sig sæta. Fengju þeir sjálfstæði
gætu þeir að mestu leyti farið
sínu fram, t.d. með því að halda
þjóðar atkvæðagreiðslur, en þær
eru sjaldgæfar á Spáni. Við þetta
bætast m.a. þjóðernissjónarmið
líkt og í Skotlandi, ýmist heilbrigð
menningar- og varðveizlusjónar-
mið eða innhverf þjóðremba og
meðfylgjandi tortryggni gagnvart
útlendingum.
Haldlausar hótanir
Ríkisstjórn Spánar tekur sjálf-
stæðisbaráttu Katalóna ekki vel,
mun síður en ríkisstjórn Bretlands
hefur tekið sjálfstæðisóskum
Skota. Katalónar búa að vísu við
sjálfsstjórn á ýmsum sviðum líkt
og Skotar, en ríkisstjórnin í Madr-
íd tekur ekki í mál að veita Katal-
ónum heimild til að halda þjóðar-
atkvæðagreiðslu um sjálfstæði
eins og ríkisstjórn Bretlands leyfði
Skotum að gera. Stjórnin í Madr-
íd hótar Katalónum að þeir muni
þurfa að hverfa úr ESB ef þeir
taka sér sjálfstæði. Þessa hótun
lét brezka stjórnin einnig dynja
á Skotum fyrir þjóðaratkvæða-
greiðsluna þar í fyrra. Hótunin er
byggð á sandi. Skoðum málið.
Ef Katalónar taka sér sjálfstæði
munu Spánverjar annaðhvort
viður kenna Katalóníu sem sjálf-
stætt ríki eða ekki. Ef spænska
stjórnin neitar að viðurkenna
sjálfstæða Katalóníu, þá munu
mörg aðildarlönd ESB væntan-
lega ekki heldur viðurkenna sjálf-
stæðið, og verður þá Katalónía
áfram í ESB sem hluti Spánar. Ef
spænska stjórnin viðurkennir á
hinn bóginn Katalóníu sem sjálf-
stætt ríki, þá munu öll önnur ESB-
ríki trúlega gera slíkt hið sama
og taka Katalóníu tveim höndum
sem nýju aðildarríki skv. nýjum
aðildar samningi. Áframhaldandi
vist Katalóna í ESB má því telja
vísa hvað sem hótunum spænsku
ríkisstjórnarinnar líður.
Katalónskum og skozkum sjálf-
stæðissinnum er mjög í mun að
vera áfram í ESB. Án aðildar að
ESB myndi hvorug þjóðin kæra sig
um sjálfstæði þar eð ESB-aðildin
tryggir þeim aðgang að margfalt
stærri markaði en sambúð við
England og Spán myndi gera utan
ESB.
Um þetta þarf brezka ríkis-
stjórnin að hugsa nú þegar hún
ráðgerir að halda þjóðaratkvæða-
greiðslu um hvort Bretar eigi
að vera áfram í ESB. Ef Bret-
ar ákveða að ganga úr ESB jafn-
gildir sú ákvörðun brottvísun
Skota úr ríkjasambandinu við
England, Wales og Norður-Írland.
Nei í væntanlegri þjóðaratkvæða-
greiðslu Breta myndi knýja Skota
til að taka sér sjálfstæði án tafar
til að varðveita aðild þeirra að
ESB.
Líkt og skozkir sjálfstæðissinn-
ar hafa katalónskir sjálfstæðis-
sinnar ekki enn komið sér saman
um aðild að Nató. Hyggilegast
væri í báðum löndum að halda
sjálfstæða þjóðaratkvæðagreiðslu
um málið frekar en að gera út um
það á fámennum stjórnmálafund-
um á þingi eða annars staðar.
Lýðræðislegur réttur
Ríkjasamband er að ýmsu leyti
eins og hjónaband með gagnkvæm-
um rétti og skyldum. Þótt tvo
þurfi til að ganga í hjónaband þarf
bara einn til að skilja. Spænska
ríkis stjórnin þarf eins og brezka
stjórnin að horfast í augu við þá
staðreynd og viðurkenna lýðræðis-
legan rétt Katalóna til sjálfstæðis
kjósi þeir það.
Ríkjasamband er
að ýmsu leyti eins
og hjónaband með gagn-
kvæmum rétti og skyldum.
Þótt tvo þurfi til að ganga í
hjónaband þarf bara einn til
að skilja.
Í DAG
Þorvaldur
Gylfason
hagfræðiprófessor
Katalónía
Það þarf ekki að segja
alþjóð frá því að undan-
farin ár hefur erlendum
ferðamönnum fjölgað
mjög mikið. Hafa menn
jafnvel leyft sér að tala
um að ferðamenn séu
eins og engisprettufar-
aldur og að það sé ekki
líft í miðbæ Reykjavíkur
fyrir útlendingum og því
sem þeim fylgir. Þegar
talað er af slíku gáleysi
er ekki hugsað um það
hverju ferðaþjónusta
hefur skilað í þjóðarbúið
og hversu margir hafa lífsviður-
væri sitt af því að starfa í ferða-
þjónustu og skyldum greinum.
Ferðaþjónusta er atvinnugrein!
Upp á síðkastið hefur hins
vega gætt pirrings og óþolin-
mæði gagnvart þeim sem þjóna
erlendum ferðamönnum og hefur
orðræðan oftar en ekki beinst að
langferðabílum sem eru að reyna
að athafna sig nálægt gististöð-
um borgarinnar. Þetta á jafnt
við um hótel og gistiheimili í
miðborginni, sem og í öðrum
hverfum borgarinnar. Rútur eru
allt í einu orðin bitbein og allir
hafa rétt á því að skammast út
af rútum í borginni. Rútur eru
stór partur af borgarmyndinni
allri og gegna veigamiklu hlut-
verki í því sjónarspili sem flutn-
ingur erlendra gesta milli staða
í Reykjavík er. Borgarbúar leyfa
sér að kalla ókvæðisorðum að bíl-
stjórum langferðabílanna, berja
bílana að utan, hrækja á þá, djöfl-
ast á bílflautum og sýna hug sinn
með hjálp löngutangar. Sumir bíl-
stjóranna geta ekki stillt
sig um að svara til baka,
en flestir láta þetta yfir
sig ganga og reyna að
halda andliti gagnvart
farþegum sínum.
Farþegarnir verða oft
dauðskelkaðir og vita
ekki í hvaða feni þeir eru
lentir og spyrja; erum
við velkomin? Íslend-
ingar gefa sig út fyrir að
vera réttlát og friðelsk-
andi þjóð, en nú er búið
að gefa út skotleyfi á
rútur og friðsælir borg-
arar umhverfast í merkisbera
ímyndaðs réttlætis með því að
láta skap sitt bitna á rútubílum!
Fréttir af stórum rútum sem eru
fastar í öngstrætum miðborgar-
innar eru blásnar út í fjölmiðlum
og allir eiga til sögur af rútum
sem leggja uppi á stéttum, í
merkt stæði opinberra starfs-
manna og á stöðum þar sem
mikið er um einkabíla. Alls stað-
ar eru rúturnar fyrir.
Skaði fyrir þjóðarbúið
Öll hótel og allir gististaðir í
Reykjavík telja sig eiga rétt á
því að fá rútur heim að dyrum,
ýmist til að skila farþegum af
sér eða til að sækja gesti sem
eru að fara úr landi eða í styttri
og lengri ferðir. Rútufyrirtæki
reyna eftir fremsta megni að
verða við þessum óskum, þrátt
fyrir að í mörgum tilfellum
hreinlega vanti almenn bílastæði
við hótelin og gististaðina, hvað
þá að gert sé ráð fyrir rútum.
Tvö nýleg hótel í borginni eru
til vitnis um þetta, annað við
Hlemm og hitt í Þórunnartúni,
það síðara er stærsta hótel á
Íslandi. Aðkoma að því hóteli frá
Borgartúni er lokuð og frá Bríet-
artúni er aðeins fólksbílafæri.
Það þýðir þó ekki að sakast
við einn eða neinn, heldur gera
gott úr því sem er til staðar
hverju sinni. Það má þó brýna
fyrir samborgurunum að sýna
umburðarlyndi og samkennd þó
að smátafir verði vegna skorts á
rútubílastæðum í borginni. Hug-
mynd yfirmanna borgarinnar
um hjólandi og gangandi fólk í
miðbænum er góð og gild, en á
hreint ekki við um erlenda gesti
sem þekkja ekki borgina og eru
þar að auki oftast með þungan
farangur meðferðis, en ekki hjól-
ið sitt. Pirringur og reiði smita
út frá sér og fæla frá. Við eigum
að sýna umburðarlyndi og vera
gestrisin – það væri mikill skaði
fyrir þjóðarbúið ef ferðamenn
hætta að koma til landsins. Það
þarf að viðurkenna þjónustu sem
atvinnugrein.
Hvar er samkenndin?
FERÐA-
ÞJÓNUSTA
Sigríður Ásta
Hallgrímsdóttir
skrifstofustjóri
Liggurðu á skoðunum þínum? Það er algjör óþarfi . Sendu greinina þína
á greinar@visir.is og við komum henni á framfæri hið snarasta.
HÁSKÓLABÍÓ 15. ÁGÚST 2015
ROKKABILLÝBANDIÐ
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á MIÐI.IS
HEIÐURSTÓNLEIKAR
➜ Borgarbúar leyfa sér að
kalla ókvæðisorðum að bíl-
stjórum langferðabílanna,
berja bílana að utan, hrækja
á þá, djöfl ast á bílfl autum
og sýna hug sinn með hjálp
löngutangar. Sumir bílstjór-
anna geta ekki stillt sig um
að svara til baka, en fl estir
láta þetta yfi r sig ganga …
Hjálpi oss sjónhverfi ngin
Konur hafna ríkisstjórninni í meiri mæli en karlmenn
samkvæmt skoðanakönnun. Formaður Sambands fram-
sóknarkvenna segir það vera leiðréttanlegan misskilning.
Muni lagast, þegar He4She átak Emmu Watson fer af stað!
Vá, sjónhverfing á að redda Framsókn í þessu eins og
öðru. Anna Kolbrún Árnadóttir telur hana sem sagt skipta
konur meira máli en árásir ríkisstjórnarinnar á konur.
Til dæmis bann við verkfalli kvennastéttar hjúkrunar. Til
dæmis minni velferð einstæðra mæðra eins og fátæklinga
almennt. Til dæmis rústun Landspítalans. Vondi veruleikinn á að
hverfa, þegar Framsókn keyrir á amerískri sjónhverfingu! Dæmigerð
Framsókn.
http://www.jonas.is/
Jónas Kristjánsson
AF NETINU
2
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:3
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
D
3
-2
F
C
C
1
7
D
3
-2
E
9
0
1
7
D
3
-2
D
5
4
1
7
D
3
-2
C
1
8
2
8
0
X
4
0
0
8
A
F
B
0
5
6
s
_
2
4
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K