Fréttablaðið - 25.06.2015, Page 22

Fréttablaðið - 25.06.2015, Page 22
25. júní 2015 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 22 Bandaríska poppstjarnan Michael Jackson lést þennan dag. Hann fannst látinn í húsi sínu í Los Angeles í Bandaríkjunum, fimmtugur að aldri. Bráðaliðar voru kallaðir að heimili hans í Bel Air í Los Angeles á níunda tímanum eftir að tilkynnt var um að hann hefði hnigið niður. Jackson var hættur að anda þegar bráðaliðarnir komu á vettvang og báru lífgunartilraunir ekki árangur. Hann var fluttur með sjúkrabíl á UCLA-sjúkra- húsið og úrskurðaður látinn skömmu síðar. Jackson hafði átt við heilsuleysi að stríða síðustu ár en hafði ákveðið að fara í tónleikaferð, þá fyrstu í tólf ár, og átti hún að hefjast fáeinum vikum eftir dánardaginn. Michael Jackson fæddist í Gary í Indí- ana 29. ágúst 1958 og var í sviðsljósinu nær alla sína ævi. Hann var aðalstjarna Jackson 5, hljómsveitar sem faðir hans stofnaði og Jackson-bræðurnir skipuðu. Á níunda áratugnum sló Jackson í gegn sem stórstjarna með meistaraverkum á borð við Off the Wall og Thriller. Á tíunda áratugnum fór Jackson að sýna af sér æ undarlegri hegðun og fór í sífellt umfangsmeiri lýtaaðgerðir sem gjörbreyttu útliti hans. Hann kvæntist tvisvar en bæði hjónaböndin urðu skammlíf. Hann eignaðist þrjú börn. TÍMAMÓT Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@365.is. Maki minn, faðir, tengdafaðir og afi okkar, BRYNJAR INGI SKAPTASON Hamarstíg 35, Akureyri, er látinn. Kveðjustund verður auglýst síðar. Sigrún Sveinbjörnsdóttir Hrólfur, Hrönn og Hrafnkell Brynjars- og Sigrúnarbörn Helga Tómasdóttir, Pálmi Óskarsson, Marco Ploeg Sigrún Rósa og Tómas Ingi Hrólfs- og Helgubörn Tumi og Ingi Hrannar- og Pálmasynir Ástkær móðir okkar, amma og langamma, SIGRÚN EINARSDÓTTIR úr Skólastræti 5b, lést á Droplaugarstöðum 19. júní. Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 29. júní kl. 15.00. Skúli Jónsson Sigríður María Jónsdóttir Ágústa María Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir og bróðir, JÓN ÓLAFSSON tannlæknir, frá Gröf á Höfðaströnd í Skagafirði, Hlynsölum 3, Kópavogi, er látinn. Útförin fór fram í kyrrþey. Inga Svava Ingólfsdóttir Hildur Karítas Jónsdóttir Sigríður Ólafsdóttir Edda Jónína Ólafsdóttir Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓN BONDÓ PÁLSSON frá Vestmannaeyjum, lést mánudaginn 22. júní. Útförin verður auglýst síðar. Fjölskyldan Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, HELGI GUÐJÓN STRAUMFJÖRÐ KRISTJÁNSSON Skúlagötu 40, Reykjavík, lést á Landspítalanum v/Hringbraut 17. júní. Útörin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 29. júní kl. 13.00. Sæunn Guðmundsdóttir Sigurður Gunnar Helgason Guðmundur Ólafur Helgason Alma D. Jóhannesdóttir Kristján Hólmsteinn Helgason Matthildur Helgadóttir Sigþór Þórarinsson og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, HELGA KRISTÍN LÁRUSDÓTTIR frá Ólafsvík, sem lést á Droplaugarstöðum mánudaginn 15. júní, verður jarðsungin frá Ólafsvíkurkirkju mánudaginn 29. júní kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarsjóð Ólafsvíkurkirkju. Ásta Lára Leósdóttir Þorvarður Sæmundsson Guðbrandur Rúnar Leósson Gunnhildur Tryggvadóttir Erla Leósdóttir Hjörtur Þorgilsson Ágúst Helgi Leósson Sigrún Ellertsdóttir Þröstur Leósson og fjölskyldur. Reynir hefur frá árinu 2010 gefið út sex gönguleiðabækur. Bækurnar segja frá gönguleiðum á láglendinu en ekki uppi í fjöllum. „Það er fjöldi Íslendinga sem vill halda sig niðri. Það þurfa að vera göngu- leiðir fyrir þá líka. Enda er það heim- ur út af fyrir sig, til dæmis að ganga í kringum vötn. Það er heilsusamlegt og róandi,“ segir Reynir en nýjasta bókin fjallar einmitt um gönguleiðir hjá Þing- vallavatni. „Ég skrifa um 25 gönguleiðir á Þing- vallasvæðinu. Hringurinn í kringum vatnið býður upp á svo margar skemmti- legar leiðir og svo eru gömlu þjóðleið- irnar sem hafa verið farnar frá því að Alþingi var stofnað. Í dag fara flestir í Almannagjána og að Öxarárfossi. En Þingvallarsvæðið er aldeilis meira en það og sumir vilja forðast ferðamanna- strauminn. Þá er gott að prófa nýjar gönguleiðir.“ Reynir bætir við að það sé mikil saga í gönguleiðunum. Öll örnefni eigi sér sína sögu og svo er það mannlífið. „Þingvallarsvæðið er í þjóðmenn- ingu okkar og það má því vel kalla þetta menningargöngu. Útgangspunkturinn er þó að stíga út fyrir þröskuldinn og fara út. Það er ekki langt í alla þessa náttúru og alla þessa sögu.“ Í sex bókum Reynis hefur hann skrif- að um gönguleiðir á Vesturlandi og Suð- vesturlandi. Nú er svo komið að með síðustu bók hans um Þingvallarsvæð- ið hefur hann fjallað um allar helstu gönguleiðir þessa landshluta. „Ætli ég segi þetta ekki gott í bili af gönguleiða- skrifum.“ Spurður um eigin gönguvenjur seg- ist hann ekki vera göngugóður þessa dagana. „Það er hálfspaugilegt en ég er kominn með eymsli í hné. Ef ég hefði fengið þetta fyrir ári þá hefði ég ekki komist á Þingvöll og engin bók hefði komið út.“ Reynir hefur gengið allar gönguleið- irnar í bókum sínum að minnsta kosti tvisvar, hver gönguleið er að meðaltali fimm kílómetrar og reiknast honum svo til að hann sé búinn að ganga um 1.500 kílómetra – sem er ríflega hringurinn í kringum Ísland. „Þetta safnast saman,“ segir Reynir hógvær. „En það er mikilvægt að fólk viti að þessar gönguleiðir eru fyrir hverja sem er og maður þarf svo sann- arlega ekki að vera göngugarpur til að ganga þær.“ Nú þegar Reynir hefur lokið síðustu bókinni í bili liggur beinast við að spyrja hvað taki við. „Ég hef verið að sýsla í mörgu í gegnum tíðina. En eftir að ég byrjaði að skrifa þessar bækur uppgötv- aði ég að ég gat gengið í Rithöfundasam- bandið. Það er notalegt að geta kallað sig rithöfund,“ svarar Reynir sposkur. erlabjorg@frettabladid.is Gekk fi mmtán hundruð kílómetra á fi mm árum Reynir Ingibjartsson hefur skrifað sex göngubækur frá árinu 2010. Í öllu safninu má fi nna 150 gönguleiðir á Vesturlandi og Suðvesturlandi. Hann segir komið nóg af skrifum í bili. ÞETTA GERÐIST 25. JÚNÍ 2009 Michael Jackson deyr af völdum hjartaáfalls POPP- KÓNGURINN Michael Jackson fór í fjölmargar lýtaaðgerðir. Undir lokin var hann orðinn gjörólíkur sjálfum sér þegar hann var á þrítugsaldri. GÖNGUMAÐUR OG RITHÖFUNDUR Reynir Ingibjartsson hefur skrifað sex göngubækur á fimm árum og gengið hverja gönguleið tvisvar á tímabilinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Það er hálfspaugilegt en ég er kominn með eymsli í hné. Ef ég hefði fengið þetta fyrir ári þá hefði ég ekki komist á Þingvöll og engin bók hefði komið út. 2 7 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :3 9 F B 0 5 6 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 D 3 -4 3 8 C 1 7 D 3 -4 2 5 0 1 7 D 3 -4 1 1 4 1 7 D 3 -3 F D 8 2 8 0 X 4 0 0 8 B F B 0 5 6 s _ 2 4 _ 6 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.