Fréttablaðið - 25.06.2015, Side 23
Konur sýna herratísku
Konur voru áberandi á
pöllunum þegar herra-
tíska var sýnd á tísku-
vikunni í Mílanó.
SÍÐA 2
Hattar slá í gegn
Allar konur ættu að eiga
að minnsta kosti einn hatt
í sumar en ljósir
stráhattar hafa
slegið í gegn.
SÍÐA 4
Minn stíll er frekar afslappaður. Ég er nánast alltaf í buxum og er mjög hrifin af hversu fjöl-
breytt buxnatískan er í dag. Ég verð
að hafa jafnvægi á jin og jang, vil hafa
jafnvægi á milli karllægs og kvenlægs í
klæðaburði,“ segir Halldóra Sif Guð-
laugsdóttir, nýtútskrifaður fatahönnuð-
ur, þegar hún er spurð út í fatastílinn.
Hún segist helst falla fyrir munstri,
röndum og stórum geómetrískum form-
um í fáguðum litum þegar hún kaupir
föt og þræðir gjarnan fatamarkaði.
„Ég er hrifin af rauðum lit út í appel-
sínugulan og brúnan og er mjög hrifin
af ofnum efnum með etnísku munstri.
Yfirhöfnum fell ég yfirleitt fyrir og fal-
legum leðurskóm. Ég á nokkrar uppá-
haldsflíkur, en ein sem hefur verið lengi
í uppáhaldi er leðurbuxur sem ég keypti
í Danmörku fyrir sjö árum þegar ég bjó
þar. Þær eru enn þá flottar og ég nota
þær mikið.“
„Ég kaupi mikið á „second-hand“
mörkuðum því oft er hægt að finna
öðruvísi gæðaefni eins og silki, ull og
leður sem eru frekar dýr ef maður kaup-
ir þau ný. Ég kaupi einstöku sinnum
merkjavöru og vanda þá valið. Nýjustu
kaupin eru úr sumarskólínu Kron sem
verða brúðarskór í sumar. Þeir eru
þægilegir og vandaðir og mun ég nota
þá mikið.“
Halldóra útskrifaðist úr fatahönnun
frá LHÍ í vor og er þessa dagana að
vinna að því að ljósmynda útskriftarlín-
una sína. Við hönnun línunnar sótti hún
innblástur í japanska menningu.
„Shinto-hugmyndafræði Japana er
einstök og sprettur út frá þeirri trú að
heilagir andar gegni mikilvægu hlut-
verki í lífinu og umbreytist í náttúrunni
í vind, rigningu, fjöll, tré, ár og alla frjó-
semi. Þessi aldagamla trú kallar á mikla
virðingu fyrir náttúrunni og fegurðinni í
ófullkomleikanum.
Fagurfræði Japana kemur fram í
hönnun minni í ósamhverfum sniðum
og prentmunstrum. Einnig nota ég hana
við val á áferðum og litasamsetningum
í efnum mínum. Ég legg áherslu á að
nota náttúruleg efni og bý til minn textíl
sjálf með handvefnaði, prentmunstri
og útsaumi,“ útskýrir Halldóra og segir
hugann leita út að loknu námi.
„Ég er að sækja um starfsnám í París
og Belgíu sem tekur vonandi við eftir
sumarið.“
APPELSÍNUGULUR
Í UPPÁHALDI
AFSLAPPAÐUR STÍLL Halldóra Sif Guðlaugsdóttir útskrifaðist úr fatahönnun
frá LHÍ í vor. Hún leitaði í japanska menningu og fagurfræði við vinnslu
útskriftarlínu sinnar en segist sjálf hafa afslappaðan fatastíl.
KAUPIR Á MÖRK-
UÐUM Halldóra Sif
Guðlaugsdóttir þræðir
gjarnan fatamarkaði í
leit að skemmtilegum
fötum. Hún er hrifin af
etnískum munstrum
og hefur afslappaðan
fatastíl.
MYND/STEFÁN
Engjateigi 5 | Sími 581 2141 | www.hjahrafnhildi.is
SUMAR-
SPRENGJA!
20% afsláttur
af öllum fatnaði
og skóm í dag!
Mikið úrval garðtraktora með og án safnkassa
Opnunartími:
Opið alla virka daga
frá kl 8:00 -18:00
Lokað um helgar
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Akureyri:
Lónsbakka
601 Akureyri
Sími 568-1555
Vefsíða:
www.thor.is
TÆKIFÆRISGJAFIR
TILBOÐ
- mikið af frábærum boðumtil
Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955
Hnífaparatöskur – 12 manna
14 tegundir
Verð frá kr. 24.990
2
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:3
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
D
3
-4
3
8
C
1
7
D
3
-4
2
5
0
1
7
D
3
-4
1
1
4
1
7
D
3
-3
F
D
8
2
8
0
X
4
0
0
8
B
F
B
0
5
6
s
_
2
4
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K