Fréttablaðið - 25.06.2015, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 25.06.2015, Blaðsíða 30
FÓLK| Það má segja að screen-gluggatjöldin séu enn vinsæl en það sem er að koma mjög sterkt inn núna eru rúllu- eða fellitjöld sem hægt er að opna bæði að ofan og neðan. Við viljum fá birtuna inn en jafnframt koma í veg fyrir að það sjáist mikið inn um gluggana. Þessi nýju tjöld eru sett á miðjan gluggann og hægt að draga alveg upp eða hafa opið fyrir ofan miðju og jafn- vel líka neðst við gluggakistuna. Þannig loka tjöldin fyrir miðju gluggans sem er þægilegt ef umferð er fyrir utan. Þessi tjöld eru til í allavega litum og mynstrum en flestir kjósa hlutlausa liti, til dæmis hvítan,“ segir Bryndís Eva. „Önnur breyting eru síðar þunnar gard- ínur sem eru settar á braut upp við loft og ná alveg niður á gólf. Brautin er höfð mun breiðari en glugginn en þannig myndast gardínuveggur. Maður stækkar gluggann, nær fram hlýleika í her- berginu og fær fram nokkurs konar hótel- stemningu. Þessar gardínur eru bæði notaðar í stofum og svefnherbergjum. Fyrir nokkru var svokallað voile-efni vinsælt í gardínum en núna er efnið örlítið þykkara þótt það sjáist í gegnum það. Það er léttleiki yfir þessu nýja efni og vefnaðurinn er sjáanlegur en samt kemst birtan vel í gegn. Efnið gefur mikla hlýja og er hentugt í gólfsíðar gardínur. Vinsælastir eru jarðlitir í þessum gardínum, hvítt, grátt og brúntóna efni. Hlýleikinn er aftur farinn að skipta máli,“ segir Bryndís. Lofthæðin sýnist mun meiri ef gardínurnar hanga frá lofti niður á gólf, jafnvel þótt glugginn sé minni. Á heima- síðu Bryndísar, bryndiseva.is, má sjá nokkrar útfærslur af svona uppsetningum á gluggatjöldum. „Þar sem þessar nýju gardínur eru til í fjölmörgum litum er auðvelt að finna eitthvað sem passar heimilinu. Yfirleitt velur maður lit á gardínum með tilliti til litar á veggjum, gólfi, hurðum og innréttingum eða birtunnar sem flæðir inn. Alls ekki út frá húsgögnum. Gardínurnar gefa mikla mýkt í umhverfið og gerir það heimilislegt. Þetta er gerviefni og hægt að setja í þvottavél og hengja síðan strax upp. Þá eru gardínurnar alltaf eins og nýjar,“ segir Bryndís og bætir við að vinsælt sé að mála veggi í grátóna litum en loftin eru höfð hvít. GLUGGATJALDATÍSKAN BREYTIST NÝJUNGAR Gluggatjaldatískan hefur verið fremur fábrotin undanfarin ár. Svokölluð screen-tjöld hafa verið áberandi. Bryndís Eva Jónsdóttir innanhússhönnuður segir að nú sé þetta að breytast og hlýleikinn að taka völdin. ÞAÐ NÝJASTA Hér sést vel hvernig nýja gluggatískan er. Annars vegar síðar, þunnar gardínur sem ná vel út fyrir gluggann og hins vegar fellitjöld sem hægt er að draga upp og niður í báðar áttir. MYND/ANNA MARÍA SIGURJÓNSDÓTTIR INNANHÚSSHÖNNUÐURINN Bryndís Eva er með ýmis góð ráð á heimasíðu sinni bryndiseva.is. Allt í gleri ÚTI OG INNI M ynd: Josefine Unterhauser Sumarlífið eru nýir þættir á Vísi þar sem Davíð Arnar Oddgeirsson og Ósk Gunnarsdóttir flytja okkur fréttir af öllum heitustu menningarviðburðum sumarsins. Skemmtileg viðtöl, kíkt á bak við tjöldin og hressandi umfjöllun um allt það áhugaverðasta í menningarlífinu. Fylgstu með Sumarlífinu á Vísi í allt sumar. RÁÐLAGÐUR SKAMMTUR AF FERSKRI MENNINGU Vísir.is er hluti af L Í F I Ð GLUGGAR OG GLER 2 7 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :3 9 F B 0 5 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 D 2 -3 D D C 1 7 D 2 -3 C A 0 1 7 D 2 -3 B 6 4 1 7 D 2 -3 A 2 8 2 8 0 X 4 0 0 4 B F B 0 5 6 s _ 2 4 _ 6 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.