Fréttablaðið - 25.06.2015, Qupperneq 44
25. júní 2015 FIMMTUDAGUR| MENNING BÍÓ | 32
FRUMSÝNINGAR
8,1/10
36 ára Mindy Kaling
Þekktust fyrir The Mindy Project,
The Office og Wreck-It Ralph.
Gyða Lóa
Ólafsdóttir
gydaloa@frettabladid.is
NÝR BÆKLINGUR STÚTFULLURAF SPENNANDI TÖLVUBÚNAÐI
4BLS
SELFÍ
STÖNG
STÓRSNIÐUG SELFÍ STÖNG SE
M HÆGT
ER AÐ LENGJA OG STYTTA ÁS
AMT
INNBYGGÐUM BLUETOOTH HN
APP
TIL AÐ SMELLA AF ÞRÁÐLAUS
T ;)
3.990
2
LITIR
Tölvutek • Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 • Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 • www.tolvutek.is
BÍÓFRÉTTIRAFMÆLISBARN DAGSINS
Sony Pictures og Marvel Studios til-
kynntu í vikunni að hinn 19 ára gamli
Tom Holland færi með hlutverk Peters
Parker í nýrri Spider-Man-mynd.
Myndin fjallar um Parker í
menntaskóla og er Hol-
land því á fínum aldri
til að fara með hlut-
verk Spider-Man en
hann er best þekktur
fyrir að hafa farið með
titilhlutverkið í Billy
Elliot the Musical
og því nokkuð
víst að
drengurinn
er fótafimur.
Nýr Spider-Man
Jurassic World sló miðasölumet um
helgina, sýningar hafa gengið vel frá
því myndin var frumsýnd í Bandaríkj-
unum þann 12. júní. Myndin hefur á
heimsvísu skilað einni milljón Banda-
ríkjadala í miðasölu og
skaut myndinni Furious 7
ref fyrir rass en hún átti
metið í ár.
Með aðalhlutverk
í myndinni fara Chris
Pratt og Bryce
Dallas Howard.
Gengur voða vel
Ted 2
Gamanmynd
Leikarar: Mark Wahlberg, Seth Mac-
Farlane, Amanda Seyfried, Morgan
Freeman og Jessica Barth.
Frumsýnd 25. júní.
Terminator Genisys
Spennumynd
Leikarar: Arnold Schwarzenegger,
Emilia Clarke, Jai Courtney og J.K.
Simmons.
Frumsýnd 1. júlí.
Bravehart fagnar tuttugu ára
afmæli á þessu ári en myndin kom
út þann 19. maí árið 1995 og er
byggð á sögu skoska uppreisnar-
mannsins Williams Wallace sem
talið er að hafi verið fæddur í kring-
um 1270. Wallace er talinn þjóðhetja
í Skotlandi en hann barðist ötullega
gegn yfirráðum Englands í Skot-
landi í kringum aldamótin 1300.
Árið 1305 var Wallace handsamað-
ur af Englendingum, pyntaður og að
lokum líflátinn.
Saga hans öðlaðist heimsfrægð
þegar kvikmyndin Braveheart kom
út árið 1995 en þar fer leikarinn Mel
Gibson með hlutverk Wallace. Gib-
son leikstýrði jafnframt myndinni
og hlaut hún alls fimm Óskarsverð-
laun, sem besta myndin, fyrir bestu
förðun, bestu kvikmyndagerð, bestu
hljóðvinnsla og bestu leikstjórn, auk
þess sem hún hlaut fjölda annarra
verðlauna, til dæmis Golden Globe
og MTV Movie Awards. Mynd-
inni var almennt vel tekið þótt hún
væri, líkt og margar myndir sem
fjalla um sögulega atburði eða ein-
staklinga, gagnrýnd fyrir að frjáls-
lega væri farið með sögulegar stað-
reyndir.
Braveheart var tilnefnd til tíu
Óskarsverðlauna og þar á meðal
fyrir bestu frumsömdu tónlistina
en hana samdi tónskáldið James
Horner, sem samdi tónlist við fjölda
þekkta kvikmynda, til dæmis Star
Trek II: The Wrath of Khan og Tit-
anic en tónlistin úr Titanic er mest
selda kvikmyndatónlist allra tíma.
Horner lést í flugslysi í Kaliforníu
á mánudag.
Handritið að Braveheart er unnið
BRAVEHEART FAGNAR
TUTTUGU ÁRA AFMÆLI
Margir kannast við hina sögufrægu mynd Braveheart sem byggð er á sögu skoska uppreisnarmannsins
Williams Wallace sem leikinn er af Mel Gibson en hann leikstýrði einnig myndinni.
ÁSTIR OG ÁTÖK Eftirminnilegt atriði úr Braveheart þar sem William Wallace og Murron MacClannough
skella sér á hestbak. NORDICPHOTOS/GETTY
upp úr ljóðinu The Actes and Deidis
of the Illustre and Vallyeant Cam-
pioun Schir William Wallace sem
samið var um Wallace af Blind
Harry en aðlagað hvíta tjaldinu af
handritshöfundinum Randall Wall-
ace, sem þrátt fyrir sameiginlegt
eftirnafn er ekki hið minnsta skyld-
ur skosku þjóðhetjunni.
Handritið að Braveheart var
fyrsta handrit hans sem tekið var
til framleiðslu eftir að það vakti
forvitni Gibsons og hlaut handrits-
höfundurinn Wallace tilnefningu
til Óskarsverðlauna. Í myndinni er
sagt frá frelsisbaráttunni og auk
þess ástarsambandi Wallace og
æskuvinkonu hans, Murron Mac-
Clannough.
Líkt og áður hefur komið fram
leikstýrði Gibson myndinni auk
þess sem hann lék aðalhlutverkið
og framleiddi hana. Gibson hafði
þá leikið í þremur Leathal Weapon-
myndum, sem allar höfðu gengið
vel, og einnig þremur Mad Max-
myndum. Þrátt fyrir velgengni
hans átti framleiðslufyrirtæki
Gibsons, Icon Production, í erfið-
leikum með að safna nægilegum
fjármunum til framleiðslu myndar-
innar. Warner Bros var tilbúið til
þess að styrkja
verkefnið með
því skilyrði að
Paramount Pict-
ures samþykkti að
dreifa Braveheart
í Bandaríkjunum
og Kanada og 20th
Century Fox fór í
samstarf um alþjóð-
leg réttindi.
Önnur aðalhlutverk
voru í höndum Soph-
ie Marceau, Patricks
McGoohan og Cather-
ine McCormack.
2
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:3
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
D
1
-D
B
1
C
1
7
D
1
-D
9
E
0
1
7
D
1
-D
8
A
4
1
7
D
1
-D
7
6
8
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
5
6
s
_
2
4
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K