Fréttablaðið - 25.06.2015, Qupperneq 54
25. júní 2015 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 42
BESTI BITINN
Í BÆNUM
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjalti Egilsson
hjalti@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ
SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan
Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar
Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
„Þessir menn vildu bara að ég
myndi gera þetta,“ segir Sigurjón
Kjartansson, sem syngur Risa-
lagið í uppsetningu Leikhópsins
Lottu á Litlu gulu hænunni. Sig-
urjón kom ekki að lagasmíðum þó
svo margan gæti grunað að svo
væri, en lagið er ansi þungt og
drungalegt. „Ég kannast nú við
ýmislegt í þessu, og greinilegt
að þarna eru þau undir ákveðn-
um áhrifum,“ segir hann dulúð-
lega og bætir við að hljómsveitin
hans, HAM, sé að öllum líkindum
innblásturinn, en Baldur Ragn-
arsson, gítarleikari Skálmaldar
og meðlimur í leikhópnum samdi
lagið.
„Þetta er það sem ég kalla heið-
ur, á meðan verið er að halda heið-
urstónleika út um allan bæ, þá
finnst mér þetta frábært,“ segir
Sigurjón yfir sig glaður.
Aðspurður um afrek sín á sviði
barnaefnis stendur ekki á svör-
unum: „Ég er nú reyndar fræg
barnastjarna, var til dæmis fyrsti
Maggi mjói í Latabæ hér um árið
og svo lék ég í Abbababb, sem er
barnaleikrit líka.“
Sigurjón segist hafa sérlegt
dálæti á að hræða börn, og það
gerir hann vissulega í umræddu
myndbandi. „Ég lék líka ömmu
skrattans í Fóstbræðrum, og
það var mikið af börnum sem
hræddust mig. Raunar hræðast
börn mig mikið. Mér finnst það
gaman.“
Þrátt fyrir að skemmta sér kon-
unglega í barnahræðingum, sem
og upptökum við Risalagið, segist
Sigurjón skellihlæjandi ekki ætla
sér frekari umsvif á sviði barna-
efnis. - ga
Hefur alveg sérstakt dálæti á að hræða börn
Sjálfur Sigurjón Kjartansson syngur Risalagið á Litlu gulu hænunni, nýútkominni plötu Leikhópsins Lottu.
RISINN Sigurjón er blússandi sáttur
við heiðurinn sem felst í að tónlist
barnaleikritsins skuli innblásin af HAM.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ
„Femarelle er
algjört undraefni
fyrir mig“
-Soffía Káradóttir
Náttúruleg lausn við áhrifum tíðahvarfa
Austurlandahraðlestin, indverskur
er málið.
Heiða Ólafsdóttir, söng- og leikkona
Hljómsveitin Kings of Leon, sem
treður upp hér á landi í ágúst,
sendir allajafnan ítarlega lista
á tónleikahaldara með ýmsum
kröfum. Á svokölluðum „ræder“,
sem sveitin hefur sent á tónleika-
haldara á tónleikaferðalagi sínu
um Evrópu og Fréttablaðið hefur
undir höndum, kemur fram að
ætlast sé til þess að gnótt drykkja
og matfanga standi meðlimum
Kings of Leon og starfsmönnum
til boða. Hver og einn meðlimur
sveitarinnar þarf sinn eigin kæli
með sérstökum drykkjartegund-
um og klökum í. Misjafnt er hvað
meðlimirnir vilja drekka meðan
á tónleikum stendur. Sumir vilja
orkudrykki en aðrir svalandi
íþróttadrykki.
Standlampar og sófasett
Eins og vaninn er, þegar svona
þekktar hljómsveitir ferðast,
eru strangar kröfur gerðar um
aðbúnað í búningsherbergjum.
Sveitin fer fram á fimm mismun-
andi búningsherbergi og í hverju
þeirra á að vera sófasett og er
sérstaklega tekið fram að sóf-
arnir eigi að vera í stíl. Einnig
er farið fram á tvo borðlampa í
hverju herbergi auk standlampa.
Meðlimir gera kröfu um sjónvarp
í hverju herbergi, nokkur sófa-
borð og vilja hafa teppi á gólfinu.
Ítarlegar kröfur um máltíðir
Sveitin, sem er á tónleikaferða-
lagi um Evrópu, er með fjöl-
marga starfsmenn í kringum
sig. Á Evróputúr sveitarinnar
hafa verið allt að fimmtíu manns
í teyminu í kringum hana. Gerð
er krafa um að kokkur eldi sér-
staklega fyrir hópinn á þeim stað
sem hópurinn er á hverju sinni.
Ætlast er til þess að meðlimir og
fylgilið Kings of Leon geti valið
úr ýmsu, hvort sem það er í morg-
unmat, hádegismat eða kvöldmat.
Á ferðalagi sínu hefur sveitin
farið fram á að maturinn sé ekki
eldaður annars staðar og komið
með hann í hitabökkum. „Slíkt er
hvorki hollt né heillandi,“ segir í
orðsendingu sem tónleikahaldar-
ar á Evróputúrnum hafa hingað
til fengið.
Nákvæmur listi
Ísleifur Þórhallsson, tónleika-
haldari hjá Senu sem flytur sveit-
ina inn, neitar að tjá sig um kröf-
ur sveitarinnar. En sé listinn af
því sem meðlimir sveitarinnar
vilja fá hér á landi jafn ítarleg-
ur og annars staðar er ljóst að
flytja þarf nokkrar sælgætis- og
drykkjartegundir sérstaklega inn
fyrir tónleikana. Meðal annars er
farið fram á sérstaka tegund af
kókosvatni, túnfisksalat, heima-
lagað íste (ekki of sætt), ferskan
hummus og Diet Dr. Pepper, bæði
með og án koffeins. Sveitin legg-
ur einnig fram sérstakan lista af
víntegundum fyrir tónleikahald-
ara. Sveitin nefnir átta tegund-
ir af hvítvíni og níu tegundir af
rauðvíni.
Mikið umfang
Fregnir hafa borist af því að tveir
trukkar komi hingað til lands
með búnað sem nota á fyrir tón-
leikana. Trukkarnir koma hingað
til lands með Norrænu og munu
sjást á þjóðvegum landsins þegar
þeir keyra til Laugardalshallar
frá Seyðisfirði. Samkvæmt heim-
ildum blaðsins verða þeir fullir af
hljóðfærum og aukaljósabúnaði
og viðbót við hljóðkerfið sem á að
skila sér í mikilli upplifun áhorf-
enda. Kings of Leon er ein þekkt-
asta rokksveit heims og er hún
þekkt fyrir líflega sviðsframkomu.
kjartanatli@365.is
Kings of Leon með
nákvæmar kröfur
Goji-ber þakin dökku súkkulaði, koff einlaust Diet Dr. Pepper og glútenlausar
súkkulaðibitakökur eru meðal þess sem tónleikahaldarar hafa tilbúið baksviðs
fyrir meðlimi Kings of Leon á tónleikaferðalagi sveitarinnar um Evrópu.
● Pringles Light-snakk
● Glútenlausar súkkulaðibitakökur
● Nokkrar tegundir af Extra-tyggjói
og Ice Breakers-tyggjó með greip-
bragði
● Patron Silver-tekíla, Absolut-
vodka, Jameson-viskí og The
Macallan-viskí
● Sex lítil tekílaplastglös
● Zevia Dr. Pepper
● Fersk, handgerð salsasósa
● Nokkrar tegundir af Beef-Jerky
og Turkey-Jerky
● Goji-ber þakin dökku súkkulaði
➜ Nokkrir hlutir sem
sveitin biður um:
LÍFLEGIR Kings of Leon treður hér upp í ágúst og er sem stendur á tónleikaferðalagi um Evrópu en sveitin var stofnuð árið 1999.
NORDICPHOTOS/GETTY
2
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:3
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
D
1
-A
E
A
C
1
7
D
1
-A
D
7
0
1
7
D
1
-A
C
3
4
1
7
D
1
-A
A
F
8
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
5
6
s
_
2
4
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K