Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2008, Page 4
fimmtudagur 28. ágúst 20084 Fréttir
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Formaður Fjölskylduhjálparinnar fundar í dag með velferðarráði Reykjavíkurborgar:
Loksins sýndur áhugi
„Ég er náttúrulega afskaplega
ánægð með að vera að fara á fund
núna. Ég er búin að vera að senda
inn beiðnir í mörg ár og alltaf fengið
höfnun. Þau hafa ekki áður sýnt því
áhuga að kynna sér þessa starfsemi,“
segir Ásgerður Jóna Flosadóttir,
formaður Fjölskylduhjálparinnar.
Velferðarráð Reykjavíkurborgar
hefur boðað hana á fund klukkan
níu í dag til að ræða mögulegar
lausnir á fjárhagsvanda
samtakanna.
Ásgerður seg-
ist fara með
opnum huga
og ekki vera
með fyrir-
fram mót-
aðar hug-
myndir um
hvaða leið
sé best að
fara. „Ég get
í raun og
veru
ekki vonað neitt. Við erum að fara
að ræða um hvernig hægt er að
liðka til í málum Fjölskylduhjálp-
arinnar en í hverju það felst veit ég
ekki. Ég verð bara að bíða og heyra
hvað þær hafa fram að færa,“ seg-
ir Ásgerður, en Stella Víðisdóttir,
forstöðumaður velferðarsviðs, er
meðal þeirra sem sækja fundinn.
Bæði Stella og Jórunn Frí-
mannsdóttir, formaður velferðar-
ráðs, sögðu í samtali við DV í gær
að fullur vilji væri innan borgar-
innar til að finna lausn á fjárhags-
vanda Fjölskylduhjálparinnar.
DV greindi frá því á mánudag
að Fjölskylduhjálpin hefði ekki
getað staðið í skilum með leigu-
greiðslur til Reykjavíkurborgar frá
nóvember 2006. Skuldin er nú orð-
in tæpar tvær og hálf milljón með
dráttarvöxtum og í síðustu viku
barst Ásgerði bréf þar sem Fjöl-
skylduhjálpinni var hótað útburði
ef skuldin við borgina yrði ekki
greidd innan viku. Hún sá þá enga
aðra leið færa en að leggja starf-
semina niður. erla@dv.is
Miðvikudagur 27. Ágúst 2008 9
Fréttir
„Við munum leita lausnar í málinu
með Fjölskylduhjálpinni og for-
svarsmönnum hennar. Við eigum
ekki von á öðru en að þetta gangi
vel og að málið muni leysast,“ segir
Jórunn Frímannsdóttir, formaður
velferðarráðs Reykjavíkurborgar.
„Ég trúi ekki öðru en að við finnum
lausn sem báðir aðilar verða sátt-
ir við.“
Í samtali við DV í gær sagði Ás-
gerður Jóna Flosadóttir, formað-
ur Fjölskylduhjálparinnar, að hún
hygðist á næstunni leggja niður
starfsemina vegna erfiðrar fjár-
hagsstöðu. Hún sagðist ósátt við
borgaryfirvöld en hún hefur síð-
ustu ár sótt um styrki til velferðar-
sviðs en ekki fengið.
Fjölskylduhjálpin hefur verið
starfrækt undanfarin fimm ár og
hefur á þeim tíma úthlutað mat-
vælum og öðrum nauðsynjum til
fátækra.
Vilja funda með
Fjölskylduhjálpinni
Stella Víðisdóttur, sviðsstjóri
Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar,
tekur undir með Jórunni og segir
mikinn vilja innan velferðarráðs til
að vinna með Ásgerði Jónu að far-
sælum málalyktum. „Við ætlum að
fá hana á fund og fara yfir málið.“
Hún bendir á að árlega sæki
mikill fjöldi um styrki til borgar-
innar og ekki sé mögulegt að verða
við öllum beiðnum. Fjölskyldu-
hjálpin getur því sótt um styrk á ný
en umsóknarfresturinn í ár rennur
út í októberbyrjun.
Milljónaskuld
Líkt og kom fram í DV í gær er
Fjölskylduhjálpin í leiguhúsnæði
hjá Reykjavíkurborg en hefur ekki
getað staðið í skilum með húsa-
leiguna frá nóvember 2006. Skuld-
in er nú orðin tæpar tvær og hálf
milljón króna með dráttarvöxtum
og öðrum kostnaði. Í síðustu viku
barst Fjölskylduhjálpinni bréf þar
sem skorað er á hana að greiða
skuldina innan viku. Að öðrum
kosti muni leigusali nýta rétt sinn
til að rifta samningi og krefjast út-
burðar.
Óvíst með niðurfellingu
Jórunn segist ekki hafa eina
lausn í huga fremur en aðra
fyrir fund sinn með Ásgerði
Jónu. „Ég held að það sé eng-
in ástæða til að ganga í málið
með fyrirfram myndaðar skoð-
anir heldur fara yfir það í sam-
vinnu við Ásgerði.“
Stella hefur yfirumsjón
með styrkveitingum Velferð-
arsviðs. Aðspurð hvort hún
telji möguleika á að skuld
Fjölskylduhjálparinnar
verði felld niður segir hún:
„Ég get ekkert sagt um það
á þessu stigi.“
Jórunn Frímannsdóttir
LEITA LAUSNAR
Erla HlynsdÓttir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
REYKJAVÍK
Ið
n
ó
Fr
ík
Ir
k
ja
n
H
á
s
k
ó
la
b
íó
Ið
n
ó
Fr
ík
Ir
k
ja
n
O
r
g
a
n
Fr
ík
Ir
k
ja
n
O
r
g
a
n
H
á
s
k
ó
la
b
íó
n
a
s
a
g
la
u
m
b
a
r
n
O
r
r
æ
n
a
H
ú
s
Ið
V
O
n
a
r
s
a
lu
r
I
n
g
ó
lF
s
n
a
u
s
t
Iðnó FríkIrkjan Háskólabíó Iðnó FríkIrkjan Organ
nasa glaumbar Háskólabíó
Iðnó
PO
RT
h
ön
nu
n
w
w
w.
m
idi
.is
JAZZHÁTÍÐ 2008
Fimmtudagur 28. ágúst •
• KL 21 Háskólabíó - Gítarhátíð Bjössa Thor
Philip Catherine, Kazumi Watanabe,
Maggi Eiríks, Þórður Árnason
RAUÐI J
AZZPASSINN GILDIR Kr3000/2000
Gítarhátið Bjössa Thor er fastur liður
í Jazzhátíð Reykjavíkur.
Gítarleikarinn snjalli ferðast tónlistar
manna mest og kemst
þannig í návígi við vopnabræður sín
a um víða veröld. Með
gítarveislunni er ætlunin að koma á
föstum grundvelli fyrir
vinsælasta hljóðfæri tónlistarsögunn
ar. Gestir ársins eru
Kazumi Watanabe frá Japan og jazzl
eikari Evrópu árið 2007
PhilipCatherine frá Belgíu. Magnús E
iríksson og Þórður Árnason
verða fulltrúar lands og þjóðar auk r
yþmaparsins Jóhanns
Hjörleifssonar trommuleikara og Jón
s Rafnssonar bassaleikara.
Einn heppinn tónleikagestur vinnur
gæðagítar frá Tónastöðinni.
Ferðakostnaður Þorgerðar Katr-
ínar Gunnarsdóttur menntamála-
ráðherra, Kristjáns Arasonar, eig-
inmanns hennar, og Guðmundar
Árnasonar ráðuneytisstjóra til og frá
Peking 23. og 25. ágúst var 1.856.790
krónur.
Þetta kemur fram í svari ráðu-
neytisins við fyrirspurn um út-
lagðan kostnað vegna seinni ferð-
ar ráðherra til Peking. Ferðina fór
Þorgerður Katrín til að vera við-
stödd úrslitaleik Íslands og Frakk-
lands á Ólympíuleikunum. Flogið
var til Helsinki með Flugleiðum og
þaðan til Kína með Finnair, að því
er segir í svarinu. Ekki er komið í
ljós hver kostnaður við gistingu var
en dagpeningar ríkisstarfsmanna
sem ferðast til Kína eru um 30 þús-
und krónur. Ferðin tók þrjá daga og
starfsmennirnir voru tveir. Af því
má áætla að greiðslur vegna dag-
peninga hafi numið um 180 þúsund
krónum. Því lætur nærri að kostn-
aður vegna seinni ferðar ráðherra
og föruneytis hafi numið tveimur
milljónum króna, að gistikostnaði
undanskildum.
Menntamálaráðherra fór í tví-
gang til Kína á meðan á leikunum
stóð. Fyrri ferð ráðherra var farin
þann 5. ágúst og komið var aftur til
Íslands þann fjórtánda. Í för með
ráðherra voru maki hennar og ráðu-
neytisstjóri ásamt maka hans.
Í það skiptið var flogið um Kaup-
mannahöfn með Flugleiðum og til
Kína með SAS. Fargjald á mann var
rúmar 446 þúsund krónur. Kostnaður
við gistingu í það skipti liggur heldur
ekki fyrir en miðað við að tveir starfs-
menn ráðuneytisins hafi fengið 30
þúsund krónur á dag í dagpeninga í
þessa tíu daga nemur kostnaðurinn
600 þúsund krónum. Heildarkostn-
aður ferðanna til Peking nemur því
tæpum fjórum milljónum króna, að
undanskilinni gistingu.
baldur@dv.is
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Til Peking fyrir fjórar milljónir
Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir menntamálaráðherra
Fór tvisvar til Peking á meðan á
Ólympíuleikunum stóð.
dvMynd: guðmundur vigfússon
„Ég held að það sé engin ástæða til að gang
a í
málið með fyrirfram myndaðar skoðanir hel
dur
fara yfir það í samvinnu við Ásgerði.“
þriðjudagur 26. ágúst 20082 Fréttir
„Þetta er árás á fátæka fólkið í borg-
inni og ótrúlegt hversu mikið skiln-
insgleysi er hjá borgarfulltrúum yfir
neyð fólks í borginni,“ segir Ásgerð-
ur Jóna Flosadóttir, formaður Fjöl-
skylduhjálpar Íslands, sem verður
lokað á næstunni. „Þessir fulltrúar
eru þó kjörnir af þessu fólki í von
um að þeir sjái til þess að það hafi
í sig og á.“
Fjölskylduhjálpin hefur undan-
farin fimm ár starfað í þágu fátækra
og vikulega úthlutað matvælum til
þeirra sem minnst mega sín. Hún
leigir húsnæði sitt að Eskihlíð 2 til
4 af Reykjavíkurborg en hefur ekki
getað staðið í skilum með leiguna
frá nóvember 2006. Því er svo komið
að Reykjavíkurborg hótar góðgerð-
arfélaginu útburði.
Fékk aldrei styrk
Samkvæmt samningi Fjölskyldu-
hjálparinnar hefur hún leigt rúm-
lega 300 fermetra atvinnuhúsnæði
af Skipulagssjóði Reykjavíkurborg-
ar frá árinu 2003. Greiðslan var
sjötíu þúsund krónur við upphaf
leigutímabils en er nú orðin um 88
þúsund krónur á mánuði. Ásgerður
hefur undanfarin ár sótt um styrk til
velferðarsviðs borgarinnar en ávallt
verið hafnað.
Skuld Fjölskylduhjálparinnar er
nú orðin tæpar tvær og hálf milljón
króna með dráttarvöxtum og öðrum
kostnaði. Í síðustu viku barst Fjöl-
skylduhjálpinni bréf þar sem skor-
að er á hana að greiða skuldina inn-
an vikutíma. Að öðrum kosti muni
leigusali nýta rétt sinn til að rifta
samningi og krefjast út-
burðar.
Ás-
gerð-
ur
Erla Hlynsdóttir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
FJÖLSKYLDUHJÁLPINNI LOKAÐ
Ásgerður Jóna Flosadóttir
Mynd dV: stefán Karlsson
ósátt við borgaryfirvöld
ásgerði jónu Flosadóttur finnst
borgaryfirvöld vanrækja fátæka.
Margir í neyð Fjölskylduhjálpin
hefur úthlutað matvælum
vikulega undanfarin fimm ár. allt
að þrjú hundruð manns hafa í
hverri viku fengið aðstoð.
Jóna harmar þessa niðurstöðu.
„Við ætlum að vera með blaða-
mannafund á föstudag þar sem
við tilkynnum formlega hvenær
við lokum og hvenær við borgum
borginni þessa skuld sem leiðir til
þess að við getum ekki haldið starf-
inu áfram.“
Borgin hirðir rekstrarféð
Um tuttugu sjálfboðaliðar starfa
hjá Fjölskylduhjálpinni. Fjöldi fyr-
irtækja sendir þeim reglulega mat-
væli sem úthlutað er til þeirra sem
þangað leita. Vikulega er hins vegar
keypt ýmis ferskvara, svo sem mjólk
og kjöt. Ásgerður Jóna segir að um
þrjú hundruð manns njóti aðstoð-
ar Fjölskylduhjálparinnar í hverri
viku. Á þessu ári veitti Alþingi þeim
einnar og hálfrar milljónar króna
styrk sem nýst hefur til rekstrar-
kostnaðar. „Reykjavíkurborg er að
hirða þetta af okkur,“ segir Ásgerð-
ur en styrkurinn verður nýttur til að
greiða skuldina við borgina.
Fjölskylduhjálpin hefur einn-
ig safnað um hálfri milljón króna í
lyfjasjóð sem notaður er til þess að
aðstoða fólk við lyfjakaup. Ásgerð-
ur Jóna segir fénu hafa verið safnað
með sölu á fatnaði í Kolaportinu en
sjóðurinn muni nú allur renna upp í
skuldina við borgina. Þá verður ekk-
ert fé eftir til að halda rekstrinum
áfram.
Beitir sér fyrir niðurfellingu
Þorleifi Gunnlaugssyni, fulltrúa
minnihlutans í velferðarráði, þykir
miður að loka þurfi Fjölskylduhjálp-
inni og ætlar að beita sér fyrir því að
skuldin við borgina verði felld niður.
Á sama tíma og velferðarráð hefur
hafnað styrkumsóknum Fjölskyldu-
hjálparinnar hefur það styrkt Hjálp-
arstarf Kirkjunnar og Mæðrastyrks-
nefnd. Þorleifur bendir á að þar sé
unnið mikið og gott starf og segist
ekki viss um að hjálparstarf af þessu
tagi sé mjög dreift. Þannig gæti það
verið til hagsbóta fyrir þá sem þjón-
ustuna þiggja að hún sé veitt undir
einu þaki.
Gátu ekki veitt lengri frest
Jórunn Frímannsdóttir, formað-
ur velferðarráðs Reykjavíkurborgar,
vildi ekki tjá sig um málið þegar DV
náði tali af henni í gær. Hún vísaði
alfarið á Stellu Víðisdóttur, sviðs-
stjóra velferðarsviðs, og Kristínu
Einarsdóttur, aðstoðarsviðssjóra
framkvæmda- og eignasviðs. Krist-
ín bendir á þann langa frest sem
Fjölskylduhjálpin hefur fengið til að
greiða skuldina. Fresturinn var
veittur þar sem Ásgerður
Jóna var að sækja um
styrk til velferðar-
sviðs sem nota átti
til að greiða húsa-
leiguna. Þar sem
styrkbeiðninni
var hafnað og
ekkert bólaði
á greiðslu
sá fram-
kvæmda-
og eign-
asvið
borgarinn-
ar sér ekki
annað fært
en að fara
þessa leið.
Þær upp-
lýsingar feng-
ust hjá Reykja-
víkurborg að
Stella væri í
sumarleyfi.
Þriðjudagur 26. ágúst 2008 3Fréttir
„Við ætlum að vera
með blaðamannafund
á föstudag þar sem við
tilkynnum formlega
hvenær við lokum.“
Hafnað á hverju ári Fjölskyldu-
hjálpin hefur sótt um styrki til
reykjavíkurborgar undanfarin ár
en ávallt verið synjað.
Í innheimtu Bréfið þar sem Fjöl-
skylduhjálpinni er hótað riftun
leigusamnings og útburði.
Harmar niðurstöðuna Þorleifur
gunnlaugsson ætlar að beita sér fyrir því
að skuld Fjölskylduhjálparinnar við
borgina verði felld niður.
26. ágúst 2008
Funda um vandann Jórunn Frímannsdóttir
vill fund með Ásgerði Jónu Flosadóttur þa
r
sem framtíð Fjölskylduhjálparinnar verður
rædd með það að markmiði að finna lausn
sem báðir aðilar eru sáttir við.
Mynd siGurJÓn raGnar siGurJÓnss
on
27. ágúst 2007
Fundur klukkan níu ásgerður Jóna
flosadóttir vonast til að geta fundið lausn á
fjárhagsvanda fjölskylduhjálparinnar á fundi
hjá velferðarráði í dag.
Stígamót
um landið
Zontaklúbbarnir á Íslandi
seldu tíu þúsund rósanælur til
styrktar verkefninu „Stígamót á
staðinn“ fyrr í sumar og söfnuðu
alls 7 milljónum króna. Pening-
arnir verða nýttir til að þjóna
landsbyggðinni betur en áður og
fyrirhugað er að bjóða þjónustu
samtakanna bæði á Suðurlandi
og á Vesturlandi strax í haust.
Þjónustan er hugsuð fyrir karla
og konur sem hafa verið beitt
kynferðisofbeldi og vantar að-
stoð. Sunnlendingar sem vilja
nýta sér þjónustuna geta hringt
í Stígamót og pantað tíma sér að
kostnaðarlausu eins og kemur
fram á vef félagsins.
Á þyrlu úr
veiðinni
Tvær þyrlur lentu skyndi-
lega fyrir utan skrifstofu Kjósar-
hrepps í fyrradag. Starfsmönn-
um skrifstofunnar var nokkuð
brugðið og einn þeirra reyndi
að taka myndir en starfsmenn
þyrlufyrirtækisins komu í veg
fyrir það. Við nánari eftir-
grennslan kom í ljós að þyrlurn-
ar voru komnar til að sækja rúss-
neska fjölskyldu sem hafði varið
deginum í Laxá í Kjós. Ferða-
þjónustuaðilar á svæðinu vildu
ekki staðfesta að það hefði verið
fjölskylda Romans Abramov-
itsj, eiganda fótboltafélagsins
Chelsea, en sögðust gruna það
sterklega.
Kassi með kreditkortakvittunum frá American Style fannst í ruslagámi í Bolholti í
gær. Á þeim voru kreditkortanúmer viðskiptavina staðarins auk gildistíma kortanna.
Upplýsingafulltrúi American Style segir erlendan starfsmann í ræstingu hafa hent
kassanum fyrir misskilning. „Ábyrgðarleysi,“ segir starfsmaður Gagnaeyðingar.
kortanúmer
Á glÁmbekk
„Mér dettur helst í hug að ræstinga-
konan hafi hent þessu fyrir mis-
skilning. Konan sem er af erlendu
bergi brotin hringdi í mig um síð-
ustu helgi og spurði hvort hún ætti
að henda þessu,“ segir Jóhann Þór-
arinsson, upplýsingafulltrúi Amer-
ican Style. Í gær fannst heill kassi
af greiðslukortakvittunum frá fyrir-
tækinu í ruslagámi fyrir utan skrif-
stofurnar í Bolholti 4. Kvittanirn-
ar eru eintök veitingastaðarins og
á þeim má sjá kreditkortanúmer
viðskiptavinanna í heild auk gildis-
tíma og undirskriftar viðkomandi.
„Að sjálfsögðu er þetta ekki vaninn,
kvittanirnar eiga alls ekki að fara
þessa leið. Þær hafa slæðst með
einhverju öðru því venjulega eru
þær geymdar eins og bókhaldsgögn
í langan tíma,“ segir hann.
Fyrirtæki ættu að hugsa betur
um gögnin
Greiðslukortakvittanir gefa upp-
lýsingar um nafn viðskiptavina fyr-
irtækja og tímasetningu á þjónustu
sem þeir kaupa. Þegar kreditkorta-
númer bætast við eru upplýsing-
arnar orðnar ansi ítarlegar. „Ég
myndi telja að það ætti ekki að
skilja svona kvittanir eftir á glám-
bekk. Á þessu eru ýmsar upplýsing-
ar sem einstaklingar kæra sig ekkert
um að almenningur sjái, það borgar
sig að farga þessu,“ segir Sæmundur
Sverrisson hjá Gagnaeyðingu.
Ábyrgðarleysi
Fyrirtækið eyðir trúnaðarupplýs-
ingum fyrir fyrirtæki og einstaklinga
og meðal annars gögnum af þessu
tagi þegar það er ekki nauðsynlegt
að geyma þau lengur. „Það er mikil-
vægt að hnykkja á því að menn verða
að vera meðvitaðir um að tímarnir
eru breyttir. Það er ábyrgðarleysi að
láta svona nokkuð koma fyrir og fyr-
irtæki ættu að hugsa betur um gögn
af þessu tagi,“ segir Sæmundur.
Hefði getað farið illa
Það gefur augaleið að einhver
hefði getað nýtt sér innihald kass-
ans og jafnvel selt hann dýru verði.
Hjá mörgum fyrirtækjum dugir að
gefa upp kortanúmer og gildistíma
til að kaupa þjónustu en önnur vilja
líka fá öryggisnúmer sem er á kort-
inu sjálfu. American Style er með
kortaþjónustu hjá þjónustufyrir-
tækinu Valitor en samkvæmt regl-
um fyrirtækisins birtist kreditkorta-
númer viðskiptavinarins í heild
sinni á kvittun fyrirtækisins en á
afriti viðskiptavinarins eru sex síð-
ustu stafirnir. Það á að tryggja við-
skiptavinum sem greiða með korti
öryggi ef þeir kjósa að henda afrit-
inu í næstu ruslatunnu.
liljag@dv.is
„Það er ábyrgðarleysi
að láta svona nokkuð
koma fyrir og fyrirtæki
ættu að hugsa betur
um gögn af þessu tagi.“
lilja guðmundsdóttir
blaðamaður skrifar lilja@dv.is
gífurlegur fjöldi kvittana Kredit-
kortakvittanir lágu í gámi fyrir aftan
skrifstofu american style í Bolholti.
dV mynd róbert reynisson
american style upplýsingafulltrúi
staðarins segir það mistök starfsmanns
að kvittanirnar enduðu í ruslagáminum.
dV mynd sg
Ólafur verndari
Silfursjóðs
Hanna Birna Kristjánsdóttir
borgarstjóri tilkynnti á Kjarvals-
stöðum í gær að stofnaður hefði
verið Silfursjóður fyrir reykvísk
börn til heiðurs íslenska lands-
liðinu í handbolta fyrir frábæran
árangur á Ólympíuleikunum í
Peking. Í máli borgarstjóra kom
fram að hún liti einnig á sjóðinn
sem gjöf til reykvískra barna og
gerði Ólaf Stefánsson, fyrirliða
íslenska landsliðsins, að sérstök-
um verndara Silfursjóðsins.
Sirkus kvaddur
Kling og Bang hefur
boðið öllum alþingismönn-
um þjóðarinnar að koma
og kveðja hinn margfræga
skemmtistað Sirkus sem hef-
ur verið endurreistur. Þessi
sögufrægi bar verður mið-
stöð íslenskra myndlistar-
og tónlistarmanna á stærstu
listakaupstefnu heims, Frieze
Art Fair, sem haldin verður
í London í október. Áður en
Sirkus verður sendur úr landi
munu listamennirnir kynna
verkefnið fyrir alþingismönn-
um og bjóða þeim léttar
veitingar með. Endurreistur
Sirkus verður opinn í síðasta
sinn fyrir brottför í dag milli
klukkan 17 og 19, í portinu á
bak við gömlu kaffibrennslu
O. Johnson & Kaaber, Sætúni
8 við Sæbraut.